Morgunblaðið - 21.09.1976, Page 7

Morgunblaðið - 21.09.1976, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976 Athyglisverð I grein ' Ragnar Arnalds, for- I maður Alþýðubandalags ins, ritar athyglisverða I blaðagrein um siðustu ■ helgi. Fjallar greinin um > afstöðu ítalskra kommún- I ista til Atlantshafsbanda- lagsins og áhrif þeirra á viðhorf sósíalista og • kommúnista annars stað- I ar f V-Evrópu. Formaður | Alþýðubandalagsins hefur ' bersýnilega farið til ítaliu I til þess að kynnast hinum nýju viðhorfum meðal I kommúnista þar og er I óhætt að fullyrða, að hug- > leiðingar hans á sunnudag I eru hinar eftirtektarverð- ustu, sem komið hafa frá I forystumanni i Alþýðu- • bandalaginu um langt I skeið. Tvennt hefur vakið mesta athygli Ragnars | Arnalds á ítaliu: vilji | kommúnista til samstarfs ' við kristilega demókrata I og afstaða þeirra til Atlantshafsbandalagsins. I Um þetta segir formaður • Alþýðubandalagsins í I grein sinni: „Á ítalíu hafa I sósíalísku flokkarnir tekið ' allt aðra afstöðu og stefna ekki að þvi að mynda meirihlutastjórn saman, jafnvel þótt þeir fengju aðstöðu til þess með auknu fylgi. Það er yfir- lýst stefna þeirra að fá alla aðra flokka en fasista til samstarfs við sig og stefnumörkun þeirra ein- kennist beinlínis af því að ná sem beztu samstarfi við aðalflokk hægri manna, Kristilega demó- krata. Þeir hafa jafnvel gengið svo langt að falla frá andstöðu sinni við að- ild ítalíu að Atlantshafs- bandalaginu og sætt sig fyrst um sinn við banda- riskar herstöðvar á Ítalíu." Síðan skýrir Ragnar Arnalds frá því, að spænski kommúnista- flokkurinn hafi svipaða af- stöðu til Atlantshafs- bandalagsins og sá ítalski og að jafnvel þótt vinstri fylkingin í Frakklandi fengi kosinn forseta og næði meirihluta á þingi mundi Frakkland verða áfram í Atlantshafsbanda- laginu. Afstaðan til stjórnarþáttöku I hugleiðingum þessum fjallar formaður Alþýðu- bandalagsins um að- stæður á ísland I Ijósi hinna itölsku viðhorfa og segir: „ Samvinna sósíaliskra hreyfinga i Vestur-Evrópu við hægri öfl hefur oft áður átt sér stað. Þátttaka kommúnista og vinstri sósialista með hægri flokkum í fjölmörgum rikisstjórnum i V-Evrópu fyrst eftir heimsstyrjöld- ina siðari var ekki siður sögleg málamiðlun en sú sem nú er boðuð i ftaliu. Ein fyrsta stjórnin af þessu tagi var nýsköpun- arstjórnin hér á fslandi með þátttöku Sósialista flokks. Alþýðu- og Sjálf- stæðisflokks. Þetta var áður en kalda striðið hélt innreið sina. En nú þegar þvi hefur að mestu slotað má búast við að þess háttar samvinna geti komizt á dagskrá þar sem sérstakar óvenjulegar að- stæður eru fyrir hendi. Hitt er augljóst að barátta andstæðra stétta verður ekki sniðgengin og náin samvinna hægri og vinstri afla hlýtur ávallt að vera bráðabirgðalausn, sem ekki stendur lengi." Auðvitað er Ijóst að i lýðræðisrikjum er sam- vinna flokka um lands- stjórn alltaf timabundin og breytist með breyttum viðhorfum. En ofan- greindur kafli úr grein Ragnars Arnalds verður ekki skilinn öðru visi en svo að meðal æðstu for- ystumanna Alþýðubanda- lagsins sé nú að verða hugarfarsbreyting. Flestir þeirra hafa hingað til verið rigbundnir við þá skoðun, að Alþýðubanda- lagið hlyti fyrst og fremst að stefna að myndun svo- kallaðrar vinstri stjórnar, þ.e. rikisstjórnar er byggði á samstarfi Framsóknar- flokks og Alþýðubanda- lagsins með þátttöku þriðja aðila, þegar nauð syn krefði þ.e. rikisstjórn af því tagi sem hér sátu við litinn orðstir 1956—1958 og 1971 —1974. Ummæli Ragnars Arnalds benda hins vegar til þess, að for- ingjar Alþýðubandalags- ins séu nú tilbúnir til þess að víkka sjóndeildar- hringinn i þessum efnum. Ef svo er skapar það nýjar viddir i islenzkum stjóm- málum. Afstaðan til Atlantshafs- bandalagsins Bersýnilegt er, að af- staða ítalskra kommún- ista til Atlantshafsbanda lagsins er Ragnari Arnalds áleitið umhugsunarefni. Hann undirstrikar sérstak- lega, að Alþýðubandalag- ið hafi við þátttöku i tveimur rikisstjórnum sætt sig við aðild íslands að Atlantshafsbandalag- inu og segir: „Stjórnmála- flokkar setja ekki önnur mál að skilyrði fyrir stjórnarþátttöku en þau, sem einhver raunhæf von er um, að hugsanlegir samstarfsflokkar geti fall- izt á. Þess vegna hefur Alþýðubandalagið talið óhjákvæmilegt að sætta sig við Nato-aðild að svo stöddu r tvennum rikis- stjórnum og vitað er, að þótt vinstri fylkingin i Frakklandi ynni sigur i forsetakosningum eða næði meirihluta i franska þinginu, yrði Frakkland vafalaust áfram i Nato enn um skeið." Og siðar i greininni segir formaður Alþýðubandalagsins: „Að sjálfsögðu munu sósialist- ar taka fullan þátt í ríkis- stjómum viðkomandi landa, þrátt fyrir áfram- haldandi Nato-aðild, þeg- ar svo ber undir. Engu að síður er fyllsta ástæða til að halda kröfunni um úr- sögn úr Nato hátt á loft, a.m.k. i þeim Nato-rikjum þar sem bein fasistahætta er ekki yfirvofandi." Það Framhald á bls. 39 Heimsþekktar verðlaunavörur frá Finnlandi. Einstakar glervörur, hannaðar af færustu listamönnum Finnlands. Otlit og gæði littala eru í algerum sérflokki. — Komið og skoðið úrvalið. HIJSGAGNAVERZLUN KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF. Laugavegi 13 Reykjavik simi 25870 ÚTSÖLUSTAÐIR: Akureyri: Akranes: Bolungarvík: Borgarnes: Egilsstaöir: Hornafjörður: j Húsavík: Keflavík: Blómabúðin Laufás Verzl Valfell Verzl. Virkinn Verzl. Stjarnan Gjafa- og blómabúðin Stráið Kaupfélag A-Skaftfellinga Hlynur s.f. Stapafell h.f. Ólafsvík: Ólafsfjörður: Sauðárkrókur: Selfoss: Siglufjörður: Vestmannaeyjar: Reykjavik: Verzl. Kassinn Verzl. Valberg h.f. Bóka- og gjafabúðin Kjörhúsgögn Bólsturgerðin Kaupfélag Vestmannaeyja Kristján Siggeirsson h.f. E. TH. MATHIESEN H.F. STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIROI. — SÍMI 51919. O 7t L-2L vinsœll lampi fyrir skolafolk. margir litir fyrir allt að 75w pnilips argenta super lux peru PL-85 ný gerd með hálfgegn sœjum skermi sem gefur hlýja birtu fyrir allt að 60 w pnilips argenta V super peru | heimilistœki sf Hafnarstræti 3—16555 Sætúni8 — 20455

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.