Morgunblaðið - 21.09.1976, Side 21

Morgunblaðið - 21.09.1976, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976 25 — Heimsókn í Hraunsrétt Framhald af bls. 12 RÉTTINA Á HIKLAUST AÐ ENDURBYGGJA Næst tökum við tali Gunnstein Sæþórsson í Presthvammi í Aðaldal — Réttina á hiklaust að endur- byggja en aðalatriðið er að hægt'sé að rétta í henni Nú er réttin vart fjárheld, því þetta fer allt milli dilka Menn kunna ekki orðið ð hlaða og það er erfitt að halda réttinni við, segir Gunnsteinn og bætir við að deilan standi ekki um hvar byggja eigi nýja rétt, því yfirleitt vilji fólk ekki byggja nýja rétt. — Afrétturinn okkar er ekki góður sem sauðfjárland og hann er frekar ásetinn, sérstaklega sækir mikið á hann fé úr nágrannasveitunum. Bú- skapur hjá mönnum hér i Aðaldæla- hreppi er bæði kúabúsj<apur og sauðfjárrækt — Eina ráðið gegn þessum sam- drætti i mjólkurframleiðslunni, sem mikið hefur verið talað um að und anförnu, er að hækka mjólkina nóg Nei, ég hef ekki trú að það leiði til offramleiðslu, því menn söðla ekki um yfir í mjólkurframleiðsluna i einu vetfangi Það er líka léttara að hafa sauðféð og hægt að hafa það jafn- gott og jafnvel betra út úr því með þægilegri vinnu og meiri fritíma RÉTTIRNAR FARA ILLA MEÐ FÉÐ Réttardegi er tekið að halla, ef svo má að orði komast, þó ekki sé klukkan orðin nema rétt 1 2 á há- degi Bændur og búalið ganga rösk- lega fram i því að draga úr hópnum, sem enn er eftir í almenningnum En þó féð sé komið i dilkana er eftir að koma þvi heim og ýmist hafa menn þann háttinn á að flytja það á bílum eða reka það í heimahagana Hress- ing er þó vel þegin áður en haldið er heim, fólk gripur til nestis sins og tyllir sér gjarnan niður í dilkunum í einum dilknum hittum við fyrir Jó- hannes Kristjánsson, bónda i Klambraseli og fjallskilastjóra þeirra Aðaldælinga — í Aðaldælahreppi eru milli 1 3 og 14 þúsund fjár en mikið af þvi gengur i heimahögum Nú er verið að rannsaka beitarþol afréttarins hjá okkur og við óttumst að ekki sé á hann bætandi — Réttarmálið er víða hitamál og enn er alveg óráðið hvaða kostur verður tekinn. Flestir eru þó þeirrar skoðunar að réttirnar eigi ekki að risa hér Þessar réttir eru ekki nógu góðar og þær fara illa með féð Bæði er að hraunið rífur i ullina og það merst Nú er mál að linni þessum um- ræðum um deilur þeirra Aðaldæl- inga, hvort ný rétt skuli risa eða sú gamla notuð áfram Eins og fram hefur komið i þeim stuttu viðtölum. sem birst hafa hér að framan, er engan veginn sýnt hver verður nið- urstaða þess máls. Sú áleitna spurn- ing, hvort menn vilji kosta einhverju fjármagni til að halda við gömlum minjum, sem Hraunsréttir óneitan- lega eru, biður svars Þessar vangaveltur hafa þó ekki áhrif á gang réttardagsins þennan daginn og Kjartan réttarstjóri biður menn að þrengja að fénu Það á að byrja að töfludraga, markafróðir menn ganga skörulega til verks og köll taka að heyrast: „Keldhverfing- ar", „Skriða' , „Helgi", „Mývetning- ar" Þannig er lokið við að draga féð og séu menn ekki vissir hver sé eigandi marka, er gripið til marka- skrárinnar Hún er biblia réttanna — Hugurinn Framhald af hls. 21 þyrfti Frjálsíþróttasambandið eða aðrir aðilar að styrkja til æf- inga og keppni erlendis. Þá fyrst er hægt að krefjast einhvers af okkur þegar okkur er búin að- staða til jafns við keppendur ann- arra þjóða. Við getum alveg feng- ið topp-einstaklinga bara ef þeim væri sköpuð aðstaða, sagði Lilja. — Ég á mér framtfðartakmörk sem ég vonast til að geta unnið að, en þau eru 2:02,0 mfn. f 800 m og 4:10 mfn. í 1500 m. Það væri auð- vitað gaman að geta náð lengra, en það er best að sýna svolitla hófsemi í þessum málum að sinni og tala ekki um of mikið, sagði Lilja Guðmundsdóttir að lokum. ágás. — Minning Friðrik Framhald af bls. 31 flokknum að málum og var í fram- boði fyrir hann ásmat Jónasi Guð- mundssyni f S-Múlasýslu f kosningunum 1937. Friðrik var fróður um marga hluti, enda vfð- lesinn, og hann naut þess f rfkum mæli að fræða og fræðast. Yndi hafði ftann af góðum skáldskap, einkum snjöllum stök- um. Sjálfur var hann hagmæltur, en flfkaði þvf lítt. Spilamaður var Friðrik ágætur og við græna borðið nutu margir af bestu eiginleikum hans sín mjög vel svo sem gjörhygli hans og útsjónarsemi. Friðrik Steinsson var maður félagslyndur, viðræðugóður, hjálpfús og tryggur vinur vina sinna. Þetta eru ekki orðin tóm. Vin- átta og tryggð hans f garð föður míns var ósvikin enda mat hann Friðrik allra manna mest óvanda- bundinna. Skal ekki nánar farið út f það hér, en hinum látna vini mínum færðar innilegar þakkir fyri drengskap hans og hlýju í garð föður mfns. A heimili þeirra Friðriks og Önnu Mörtu átti hann ótaldar ánægjustundir bæði fyrr og síðar. Að leiðarlokum færi ég Friðriki Steinssyni bestu þakkir fyrir margar fróðlegar og skemmtileg- ar samverustundir. Af honum var margt hægt að læra sakir mann- kosta hans, langrar lífsreynslu og þekkingar á mörgum sviðum. I minningunni er mynd hans skýr, sveipuð ljóma þess dreng- skapar sem yljar manni um hjartarætur og gerir lffið bjartara og fegurra en ella. Eftirlifandi konu Friðriks, önnu Mörtu Guðnadóttur frá Karlsskála, fósturdóttur þeirra, Birnu Gunnhildi, fjölskyldu hennar og vandamönnum öllum færi ég innilegar samúðar- kveðjur. Guðmundur Magnússon. 5 ára reynsla Í2 óóréttu trifnlacjfuygatjölcliti SOLARIS STRIMLAR einungis hjá t^á^iiiigiatjölil Lindargötu 25-Símar 13743 og 15833

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.