Morgunblaðið - 01.10.1976, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. OKTÖBER 1976
11
Zettequist-kvartettinn
Kammertónleikar
ZETTERQVIST-
KVARTETTINN er tveggja ára
og samanstendur af tveim
stúlkum og tveim piltum, nem-
endum við tónlistarháskólann í
Stokkhólmi. Kvartettinn hefur
þegar haldió tónleika víða og og
er hér á landi fyrir tilstilli sam-
starfs á milli Nordisk Solistrad,
Tónlistarfélagsins í Reykjavík
og Félag ísl. tónlistarmanna.
Heimsókn þessara ungmenna
er ánægjuleg og ætti að vera
ungum ísl. tónlistarmönnum
hvatning, jafnframt því að vera
hljómlistarunnendum sönnun
þess, að iðkun kammertónlistar
á sér framtíð.
Efnisskrá tónleíkanna var ef
til vill ekki að öllu leyti heppi-
leg en þó skemmtilegt en tak-
markað sýnishorn af kammer-
tónlist. Tónleikarnir hófust
með Capriccio op. 81 eftir
Mendelssohn og var leikur
unga fólksins sérlega góður.
Ungu fólki lætur oft vel að
leika hraðar línur en aftur á
móti er hægferðugt tóntak þvi
ekki eins eðlilegt, enda kom
það greinilega fram í Mendels-
sohn. Næsta á efnisskránni var
verk eftir Lars-Johan Werle,
eitt af frægari og afkastamestu
tónskáldum Svía í dag. I Penta-
gram per quartetto d’aechi er
Werle að fást við sambærileg
vandamál og svo nefndir
„abstrakt” málarar, þ.e. að tón-
gerðin, blær og afstaða tónanna
er einangruð og látin standa án
alls ivafs eða tilfinningatúlkun-
ar, með sama hætti og mynd-
gerðin sjálf, án túlkunar mynd-
veruleikans, í málaralist. Slik
tónlist verður oftast stutt og
samanþjöppuð f formi. 1 næsta
verkefni, strengjakvartett nr.
Tðnllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
3, eftir Bela Bartók, eru þessir
þættir aftur á móti samofnir í
eina heild. Það má segja að
B :rtók hafi haft á valdi sinu öll
blæ- og tóntaksfyrirbæri, sem
voru einangruð hjá Werle, en
þau eru samofin tónhugsun
verksins, þjóna stærri heild.
Flutningurinn á þessu verki
var ekki eins rismikill og þurft
hefði en þó skýr og skilmerki-
legur. Síðasta verkið var
strengjakvartett nr. 3 eftir
Stenhammar. Það má heita
furðulegt að Bela Bartók og
Stenhammar eru samtíma-
menn, en milli tónsmiða þeirra
er heil öld, ef ekki meira.
Kvartett Stenhammars á sam-
leið með tónlist Beethovens, að
stil og tóntaki og er algerlega
ósnortin af þeim nýmælum sem
voru viðfangsefni tónskálda á
seinni hluta 19. aldar og fram á
fyrri fjórðung þeirrar 20. Gegn
þessu stendur tónlist Bartóks,
vísar veginn fram á við og er
enn fersk og hrífandi. Leikur
ungmennanna var mjög góður,
einkum þar sem reyndi á hraða-
tækni en blæ og túlkunartækni
hafa þau af eðlilegum ástæðum
ekki náð að þroska með sér
ennþá, þó ætla megi, að með
aldrinum munu þau eiga eftir
að bæta þar miklu við.
Jón Ásgeirsson
Ljósmynd M bl. jsfgurgeir I Eyjum.
Fyrsta hringnótasíldin stór og falleg síld, kom til Eyja
með Óskari Halldórssyni og fór beint í söltun.
Wj
>>
Haustiaukakynning
laugardag og
sunnudag /d. 2-7
Látið
fagmenn
aðstoða
við val
haustlauka
Jólahýasyntur
Jólatúlípanar
sími, 36770 — 86340
TOYOTA SAITMAVELIN
cr óskadraunmr kouunnar.
Toyota-saumavclin
cr mcst sclda saumavclin á Islandi í d
rOYOTAvarahlutaumboöið h.f
Ármúla 23, Reykjavík, sími 81733.
Einkaumboð á íslandi.