Morgunblaðið - 01.10.1976, Page 29

Morgunblaðið - 01.10.1976, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR l.OKTÓBER 1976 29 Borgarráð mótmælir: Rádherra snidgengur löglega umsagnaraðila BORGARRAÐ Reykjavfkur semþykkti með 4 atkvæðum gegn einu á fundi slnum si. þriðjudag svohljóðandi tillögu Björgvins Guðmunds- sonar: „Borgarráð mótmælir harðlega þeim vinnubrögðum menntamála- ráðherra að sniðganga algerlega vilja Fræðsluráðs Reykjavfkur við setningu aðstoðarskólameistara við Fjölbrautaskóiann i Breiðholti, en við afgreiðslu málsins í fræðsluráði hlaut dr. Bragi Jósepsson 5 atkvæði, en sá umsækjandi, er ráðherra skipaði, Rögnvaldur Sæ- mundsson, hlaut aðeins eitt atkvæði. Felld var svohljóðandi frávís- unartillaga frá Kristjáni Benediktssyni með 4 gegn einu atkvæði: „Við setningu aðstoðar- skólastjóra við Fjölbrautaskólann I Breiðholti var farið að tillögum skólameistara Fjölbrautaskólans og fræðslustjóra Reykjavlkur. Þótt meirihlut fræðsluráðs væri annarrar skoðunar en framan- greindir aðilar, gefur það ekki tilefni fyrir borgarráð til ályktun- ar I málinu.“ Albert Guðmundsson óskaði bók- að: Frávísunartillaga borgarráðs- fulltrúa Framsóknarflokksins á ekki rétt á sér, þar sem fram kemur, að ráðherra leitar um- sagnar skólameistara og fræðslu- stjóra og byggir ákvörðun sfna á umsögnum þeirra, sem lögum skv. eru ekki umsagnaraðilar skv. samningi milli menntamálaráðu- neytisins og Reykjavfkurborgar um Fjölbrautaskólann f Breið- holti, sem gerður er skv. lögum frá Alþingi um heimild til stofn- unar Fjölbrautaskóla frá 5. aprfl 1973. Tillaga Björgvins Guðmundsson- ar var samþ. með 4:1 atkv. Markús örn Atntonsson óskaði bókað: Á fundi fræðsluráðs f gær létu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins bóka eftir sér, að þeir fordæmdu þau vinnubrögð menntamálaráð- herra við veitingu stöðu aðstoðar- skólastjóra við Fjölbrautaskólann f Breiðholti að ganga f berhögg við nær einróma vilja fræðslu- ráðs. Máli sínu til stuðnings vfsa fræðsluráðsmenn Sjálfstæðis- flokksins til samnings um Fjöl- brautaskólann, sem borgarstjóri og menntamálaráðherra undirrit- uðu 16. október 1973, en þar segir m.a.: „Skólinn skal vera hluti af skólakerfi Reykjavíkurborgar undir stjórn fræðsluráðs og yfir- stjórn menntamálaráðuneytisins. Skólastjóri, kennarar og aðrir uppeldislegir starfsmenn hans skulu skipaðir eða settir af menntamálaráðuneyti að fengn- um tillögum fræðsluráðs." Með vfsan til þessa greiði ég framkominni tillögu í borgarráði atkvæði mitt. Sigurjón Pétursson óskaði bókað: Ég tel, að lagalegur réttur menntamáfaráðherra til að skipa hvem þann umsækjanda, sem honum sýnist í umrætt embætti, sé ótvfræður. Undir mörgum kringumstæðum er einnig bæði rétt og réttlætan- legt að ganga á móti vilja meiri- hluta í fræðsluráði eins og t.d. þegar um er að ræða, að pólitisk- ur meirihluti er að hygla skjól- stæðingi sfnum, Um slíkt er ekki að ræða f þessu tilviki. Af sjö fulltrúum f fræðslu- ráði studdu fimm einn aðila, en sá, sem ráðherra skipaði, hlaut aðeins eitt atkvæði. Ég tel því, að ráðherra hafi freklega misbeitt valdi sfnu við skipun f þetta embætti og tek undir mótmæli annarra gegn slfku framferði. Magnús L. Sveinsson óskaði bók- að: Þar sem samningur milli menntamálaráðuneytisins og Reykjavfkurborgar um stofnun f jölbrautaskóla í Breiðholti, dags. 16. okt. 1973, gerir ekki ráð fyrir, að menntamálaráðherra leiti um- sagnar annarra en fræðsluráðs við skipan skólastjóra, kennara og annarra uppeldislegra starfs- manna fjölbrautaskólans, og menntamálaráðherra hefur við skipan aðstoðarskólastjóra gengið f berhögg við nær einróma vilja fræðsluráðs, en skotið sér á bak við umsagnir aðila, sem nefndur samningur gerir ekki ráð fyrir að leitað sé til við slfka stöðuveit- ingu, tek ég undir framkomin mótmæli og greiði þvf tillöbu B.G. atkvæði. í sambandi við bókun Alberts Guðmundssonar f borgarráði 21. þ.m. (sbr. 15. lið fundargerðar- innar) óskaði Kristján Benedikts- son bókað: Eins og fram hefur komið eru skiptar skoðanir um, hver hljóta hefði átt stöðu aðstoðarskóla- stjóra við Fjölbrautaskólann f Breiðholti. Ágreiningur um slíka hluti er að minum dómi ekki óeðlilegur og sjálfur hafði ég ákveðna skoðun á þvf, hverjum bæri að veita þessa stöðu. Þar sem bókun Alberts Guð- mundssonar er mjög villandi, að því er staðreyndir varðar, tel ég nauðsynlegt, að eftirfarandi komi fram: 1. Réttur menntamálaráð- herra til þess að setja einn hinna þriggja umsækjenda f stöðuna er ótvfræður og óumdeilanlegur bæði skv. fræðslulögum og þeim samningi, sem menntamálaráðu- neytið og Reykjavfkurborg gerðu um stofnun Fjölbrautaskólans. 2. Ég fæ ekki séð annað en að málsmeðferðin hafi f fyllsta máta verið með eðlilegum og hefð- bundnum hætti. Fimm fræðslu- ráðsmenn mæltu með dr. Braga Jósepssyni, einn með Rögnvaldi Sæmundssyni og einn skilaði auðu. Skólameistari Fjölbrauta- skólans mælti með Rögnvaldi svo og fræðslustjórinn í Reykjavfk, Kristján Gunnarsson, sem gaf skriflega og rökstudda umsögn um umsækjendur. 3. Furðu mfna vekur, að borg- arfulltrúi í Reykjavík skuli telja það ámælisvert af ráðherra að leita umsagnar fræðslustjórans f Reykjavfk, þegar um er að ræða að velja yfirmann við eina stærstu og vandmeðförnustu Framhald á bls. 31 i Ifenwood CM er tuWKomnast^ é véV\n ■mOBM OQ ""Tatis kona' o°ta a\U °Íkl láao'eg a"S zvsszr*'w;r4o.«o- 1,0. kaH'kvo”1 Verðfrá kr e« stéiskábÞevrara^^^g HEKirg-g JUDO BYRJENDANÁMSKEIÐ Japanski þjálfarinn Naoki Murata 4 DAN þjálfar í öllum flokkum. Innritun og upplýsingar í síma 83295 alla virka daga frá kl. 1 3 — 22. JÚDÓDEILD ÁRMANNS ÁRMÚLA 32. OPNUM í DAG! AÐRA BLÓMA- OG GJAFAVÖRUVERZLUN í BANKASTRÆT111 í TILEFNI DAGSINS BJÓÐUM VIÐ 10% AFSLÁTT AF ÖLLUM VÖRUM í BÁÐUM VERZLUNUM OKKAR ( HAFNARSTRÆTI OG BANKASTRÆTI BIDM£AVIMIR HAFNARSTRÆT1 3 OG BANKASTRÆT111 SÍMAR 12717 OG 23317

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.