Morgunblaðið - 01.10.1976, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. OKTÖBER 1976
37
SIG6A V/öG^ £ 'í/LVEgAW
OPIÐ TIL KL. 7
NV
SENDING
AF
SÆNSKUM
LOFT
LÖMPUM
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
UÖS & ORKA
Suöurlandsbraut 12
sími 84488
0 Heimilislausir
kettir
Frá Kattavinafélaginu barst
þetta bréf nú nýverið:
„Kattavinafélagið skrifaði ný-
lega sveitarstjóra Mosfellssveitar
um það að nú þegar haustar sé
nauðsynlegt að fækka sem mest
heimilislausum flækingsköttum
ef um væri að ræða þar I sveit-
inni. Á fundi sveitastjórnar var
þessu máli vel tekið og mun fljót-
lega verða gerð gangskör að þvi
að deyða þessi vesalings dýr, sem
hvergi eiga sér húsaskjól eða við-
urværi.
Ættu fleiri sveitarfélög að fara
að dæmi Mosfellssveitar í þessu
efni og eru það vinsamleg tilmæli
Kattavinafélagsins til dýravina
um land allt, að þeir stuðli að
sams konar aðgerðum, hver í sínu
byggðarlagi.
Deyðum dýrin á mannúðlegan
hátt fremur en láta þau hrekjast
úti hjálparvana, hungruð og öll-
um yl svipt í vályndum veðrum
hins komandi vetrar."
Þetta var ábending frá Katta-
vinafélaginu og gefst hér tæki-
færi til að íhuga stöðu þessara
„minnstu “ í þjóðfélaginu.
Nú er afstaðið verkfall þeirra
sjónvarpsmanna og mesti hitinn
farinn úr umræðum um það mál,
en nokkur bréf hafa borizt þar
sem bréfritarar hugleiða ýmislegt
í framhaldi af þessum aðgerðum
og birtist héreitt þeirra:
• Sjónvarpsmenn
„Kæri Velvakandi.
Nú er eitt ólöglegt verkfallið
enn yfirstaðið, og enginn segir
neitt, þótt lög landsins séu þver-
brotin af starfsmönnum rikisins.
Þessir sömu lögbrjótar eru að
smjatta á smábrotamönnum og
heimta nöfn þeirra, jafnvel
manna sem greitt hafa að fullu
skuldir sínar, þótt stofnun þeirra
skulda kunni að hafa orkað tví-
mælis í byrjun. Ekki er meiningin
að öðru leyti að ræða réttmæti
kaupkrafna þessa fólks. Það kem-
ur mér ekki við. En lögbrot opin-
berra starfsmanna er alvarlegt
mál og varðar okkur öll. En hinu
vil ég vekja athygli á, sem snýr að
ykkur fjölmiðlamönnum. Er eng-
inn ykkar svo ötull og athugull, að
hann geti grafið upp og upplýst,
hvert er kaup þessa fólks fyrir
dagvinnu + eftir- og næturvinnu
eða útborgað mánaðarkaup. Við
vitum að í mörg ár hefur dunið á
okkur hvert verkfallið á fætur
öðru, en aldrei er minnst á, hvaða
kaup þetta fólk hefir. Fyrir
nokkru fóru starfshópar með
Þegar þeir komu út á þjóðveg-
inn aftur hnipraði hann sig sam-
an. Þurr vindurinn lék um andlit
hans og hann byrjaði I huganum
að fara yfir allt sem gerzt hafðl
frá þeirri stundu sem þau komu
inn f húsið. Hann varð að finna
skýringuna á þvf hvers vegna þau
héidu Linn sem fanga eftir.
Hún vissi eitthvað. Eða kannski
voru þau bara hrædd um að hún
vissi eitthvað.
— Miguel, sagði Jack — þegar
þú hefur skilið mig eftir á hðtel-
inu viltu þá ekki reyna að fara og
finna hann vin minn eins og við
töluðum um.
— Alveg sjálfsagt, senor. Var
það ekki senor Feex.
— Jú og það er meira en bráð-
nauðsynlegt að ég hafi uppi á
honum.
Hann varð eínnig að hafa uppi
á Erln Bruce. Þegar hann bað um
herbergisnúmer Bruce var
honum sagt að hann hefði farið á
veiðar.
— Fjárakornið. Hvenær kemur
hann aftur.
— Bátarnir koma aftur inn um
fjögurleytið.
Sami Mexlkaninn varð fyrir
svörum og hafði sagt honum með
Handunninn glerborðbúnaöur.
Sænsk listasmíði
frá snillingunum hjá Kosta-Boda
Lítið inn í hina glæsilegu
nýju verzlun okkar
i Verzlanahöllinni
við Laugaveg.
' Kosta )í Boda
Laugavegi 26 — Sími 13122
'jfcfZIIVlÖLLI IM,^
HÖGNI HREKKVÍSI
„Hérna kisi minn...!“--------
150—250 þúsund króna mánaðar-
kaup í verkfall og gátu platað
lægra launað fólk með sér i sam-
úðarverkfall. Þegar sá hópur
komst að hinu sanna aflýsti hann
strax samúðarverkfallinu, eftir að
hafa bakað vinnuveitendum sín-
um um 100 milljón króna tjón. I
mörg ár hefir láglaunafólki verið
att út í verkföll, með þeirri niður-
stöðu, að það hefur fengið 1
krónu móti hverjum 3—5 krón-
um, sem betur launaðir hópar
hafa fengið. Þetta vita allir, en
alltaf er hægt að narra láglauna-
fólkið út í þennan leik.
Eitt enn. Því var ekki sjón-
varpsfólkinu leyft að vera í verk-
falli og Kaninn fenginn til að
opna sitt sjónvarp á meðan?
Jón Pétursson."
Borgum sjálfar
fatnaðinn
Ein af sjónvarpsþulunum
hringdi og vildi koma á framfæri
skýringum varðandi skrif í dálk-
um Velvakanda út af klæðnaði
þeirra. Hún sagði að þær greiddu
sjálfar allan kostnað varðandi
klæðnað sinn og hún sagði að eng-
in þeirra notaði hártopp. Hins
vegar vildi hún benda á það að
förðunarstúlkurnar sem væru
snyrtisérfræðingar gætu gert
ótrúlegustu hluti við þær og það
væri þeirra hlutverk að sjá um
útlit þeirra. Þeir sem koma oft
fram verða að sjálfsögðu að líta
vel út og skemmtilegra er að vera
ekki alltaf í sömu fötunum og það
er hlutverk þeirra sjálfra að út-
vega sér öll þessi föt og er það
dálítill skattur að greiða, eins og
hún orðaði það. Sjónvarpsþulur-
inn sagði að ef einhver þeirra
væri t.d. ekki nema einu sinni í
einhverri blússunni þá væri það
líklega vegna þess að viðkomandi
hefði fengið hana lánaða hjá ein-
hverjum kunningja.
Þá nefndi sjónvarpsþulurinn
það að sum fyrirtæki erlendis
auglýstu með því að sjá um
klæðnað fólks sem kæmi fram í
sjónvarpi að staðaldri og í Svíþjóð
sagði hún að þulir væru í ein-
kennisbúningum. Hún sagðist
vita til þess að fréttamennirnir og
veðurfræðingarnir fengju ein-
hvern afslátt í karimannafata-
verzlun þar sem þeir þyrftu að
kaupa föt nokkuð oft vegna síns
starfs.
W\?70 'oNÖVUtf \
6TA9/, <bLm \AfNc T6 VBLO V/9v
916/9 w fMn\ 9 mm
AaT miA AT//
VELVAKAIMDI
Velvakandi svarar I slma 10-
100 kl. 10—11 f.h. frá mánu-
degi til föstudags.