Morgunblaðið - 22.10.1976, Side 1
44 SIÐUR
245. tb]. 63. árg.
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Síðasta vopnahlé
Líbana í óvissu
Beirút, 21. október. Reuter AP
Sfðasta vopnahléð f Lfbanon hið
57. á 18 mánuðum, var aðeins virt
að takmörkuðu leyti f dag, og
Lfbanir trúa þvf tæpast að blóð-
baðinu sé lokið. Bardagar héldu
áfram f suðurhluta landsins og
skothrfð heyrðist f Beirút þar sem
fámennar sveitir úr arabfska
f'iðargæzluliðinu tóku sér stöðu
meðfram vfglfnunni til að
fylgjast með brotum á vopnahlé-
inu.
Vopnahléið sætti jafnframt
harðri gagnrýni Iraka sem hafa
verið einir helztu stuðningsmenn
Palestfnumanna og vinstrisinna i
Líbanon. 1 langri yfirlýsingu sem
lesin var í Bagdad-útvarpinu
sagði að leiðtogar þeirra fimm
Arabalanda sem undirrituðu
áætlunina um frið í Líbanon í
Riyadh hugsuðu aðeins um að
bjarga eigin skinni.
Vinstrimenn í Líbanon segja að
16 hafi beðið bana og 30 særzt í
stórskotahrfð frá Israel á líbanska
þorpið Bint Jbail. í Tel Aviv var
haft eftir óopinberum heimildum
að léttir skriðdrekar sem ísraels-
menn hefðu látið i té og mannaðir
væru kristnum líbönskum her-
Framhald á bls. 24
Foot
vann
London, 21. október. Reuter
MICHAEL Foot, einn helzti
leiðtogi vinstri arms Verka-
mannaflokksins, sigraði f dag
frú Shirley Williams úr hægri
arminum f kosningu um stöðu
varaleiðtoga flokksins með 166
atkvæðum gegn 128.
Þar með er vinstri armurinn
talinn hafa unnið annan
mikilvægan sigur, en áhrif
hans jukust á flokksþinginu í
september þegar vinstrisinn-
inn Norman Atkinson var kjör-
inn gjaldkeri flokksins.
Framhald á bls. 24
Smith
heitir
árangri
Genf, 21. október Reuter
IAN Smith forsætisráðherra
Rhódesfu, og Ivor Richard, for-
seti ráðstefnunnar sem Bretar
efna til f Genf um myndun meiri-
hlutastjórnar f Rhódesfu, sögðu f
dag að þeir væru staðráðnir f að
stuðla að þvf að ráðstefnan bæri
árangur.
Smith vildi hinsvegar ekki úti-
loka þann möguleika að hann
gengi af fundi ef krtjfur blökku-
manna græfu undan þeim hug-
myndum sem lægju á bak við ráð-
stefnuna. Richard sagði að hann
teldi ekki að ráðstefnan færi út
um þúfur. Þeir munu ræðast við
einslega áður en sjálf ráðstefnan
hefst.
Smith sagði að Bretar og Banda-
ríkjamenn hefðu opinberlega
samþykkt tillögur þær um lausn
Rhódesíumálsins sem hann gekk
að þegar Henry Kissinger utan-
Framhald á bls. 24
Milljónir hylla Hua í
skrúðgöngu í Peking
Norður-kóresku diplómatarnir sem voru reknir frá Danmörku
vegna smygls á eiturfyfjum og áfengi fara úr landi með lest.
N-Kóreumenn
furðu lostnir
Peking, 21. októbet, NTB,
Reuter
SENDIHERRA Norður-Kóreu f
Peking harmaði f dag að norska
stjórnin hefði ekki ráðfært sig við
stjórnina f Pyongyang áður en
hún ákvað að vfsa norður-kóresku
diplómötunum úr landi.
Norski sendiherrann í Peking,
Torleiv Anda, ræddi við norður-
kóreska sendiherrann, Hyun Jun
Keuk, að beiðni hins síðarnefnda.
Hyun Jun Keuk kvað Norður-
Kóreumenn undrandi á því sem
gerzt hefði, en ekki er ljóst hvort
hann harmaði framkomu
diplómatanna í Ósló. Hins vegr
furðaði hann sig á miklum áhuga
fjölmiðla á málinu og vildi fá
skýringu á honum.
1 Kaupmannahöfn segir Politik-
en i dag að Norður-Kóreustjórn
hafi viðurkennt að norður-
kóresku diplómatarnir þar hafi
framið lögbrot og hafi sent
danska utanríkisráðuneytinu orð-
sendingu. Jafnframt segir blaðið
Framhald á bls. 24
Peking, 21. október. Reuter. AP.
NOKKRAR milljónir Kfnverja,
— hermenn, stúdentar, verka-
menn, starfsmenn öryggisþjón-
ustunnar og aðrir — gengu fylktu
liði undir borðum og fánum um
götur Peking f dag, gagnrýndu
ekkju Maos formanns og þrjá
stuðningsmenn hennar og fögn-
uðu skipun Hua Kuo-feng f stöðu
formanns kommúnistaflokksins.
Gangan fór skipulega fram,
sumir sprengdu „kínverja", aðrir
börðu bumbur og almenn glað-
værð fólksins minnti á þjóðhátíð.
Þótt aðgerðirnar væru greinilega
skipulagðar þóttust kunnugir sjá
augljós merki þess að hreinsan-
irnar að undanförnu nytu
almenns stuðnings.
Aðgerðirnar ná hámarki á
sunnudag með fundi á Torgi hins
himneska friðar og Peking-
sjónvarpið sagði I kvöld að það
myndi skýra frá „mikilvægri
frétt“ á laugardag og aftur á
mánudag. Hugsanlegt er talið að
þá verði skipun Hua I formanns-
stöðuna staðfest.
Alþýðudagblaðið birti f dag
grein þar sem Chang Chun-chiao,
einn hinna fjögurra handteknu,
virðist gagnrýndur fyrir meinta
samvinnu með kinverskum þjóð-
ernissinnum fyrir 40 árum. í
greininni er „höfundur vissrar
blaðagreinar" sakaður um að
gagnrýna Lu Hsun, einn eftirlæt-
isrithöfund Maos.
Vestrænir sérfræðingar segja
að auk þess sem valdhafarnir í
Peking eigi eftir að ganga form-
lega frá hreinsununum verði þeir
að skipa í lausar stöður I flokkn-
um, hernum og skrifstofustjórn-
inni. Umræður sem nú fara
greinilega fram virðast einnig
fjalla um fimm ára áætlunina sem
átti að ganga frá I janúar en tókst
ekki, sennilega vegna stjórnmála-
ágreinings.
Lfklegt er talið að frú Chiang
Ching og stuðningsmenn hennar
verði sökuð um að vilja gefast
upp fyrir Rússum eins og Teng
Hsiao-ping sem var vikið frá völd-
um f vor að undirlagi þeirra. Teng
var gagnrýndur á sumum borðum
í göngunni f dag, en orðalagið var
Framhald á bls. 24
Deilur haf nar
um Svalbarða
Moskvu, 21. október. Reuter.
SOVÉZKA stjórnarmálgagnið
Izvestia sakaði Norðmenn f dag
um að senda herskip og herflug-
vélar til Svalbarða og hafa uppi
áform um að hafa setulið þar.
Saul Bellow fékk
Nóbelsverðlaunm
□
□
Sjágrein ábls. 21.
-□
-□
Stokkhólmi, 21. okt.
AP. Reuter.
BANDARlSKA rithöfundinum
Saul Bellow voru I dag veitt
bókmenntaverðlaun Nóbels
fyrir „mannlegan skilning og
skarpá skilgreiningu á menn-
ingu samtfmans“ eins og segir f
rökstuðningi sænsku akademí-
unnar. Bandarfkjamenn hafa
þar með fengið öll Nóbelsverð-
launin sem veitt verða f ár og
fyrstir þjóða einokað þannig
verðlaunin.
Bellow er sjöundi Banda-
rfkjamaðurinn sem fær verð-
launin í bókmenntum og sá
fyrsti sfðan John Steinbeck
hlaut þau 1962. Aðrir Banda-
ríkjamenn sem hafa fengið
verðlaunin eru Erneát Heming-
way (1954), William Faulkner
(1949), Pearl Buck (1938),
Eugene O’Neill (1936) og
Sinclair Lewis (1930).
I Chicago kvaðst Bellow
undrandi og ánægður þegar
honum var sagt frá veitingunni.
„Ritstörf eru einmanalegt
starf, nú er ég allt í einu f
sviðsljósinu, einkalff mitt er á
uppboði.” Bellow er fæddur
skammt frá Montreal og sonur
Gyðinga sem fluttust frá Rúss-
Framhald á bls. 24
Saul Bellow með Ivrr bjpkur eftir sig á
blaðamannafundi f Oiicago.
Blaðið segir að Norðmenn hafi
þar með brotið gegn bókstaf og
anda Parfsarsamningsins frá 1920
sem kveður á um yfirráð Norð-
manna yfir Svalbarða en heimilar
38 ríkjum sem undirrituðu hann
að hagnýta náttúrauðlindir þar.
Aðeins Norðmenn og Rússar hafa
notfært sér þann rétt en stöðugt
deilt um túlkun samningsins.
Fréttaskýrandi Izvestia, Sergei
Zykov, hefur eftir Kjell Eliassen,
yfirmanni lagadeildar norska
utanríkisráðuneytisins, að Norð-
menn geti ekki komið jpp herstöð
á Svalbarða en haft þar setulið og
kallar ummælin frjálslega túlkun
sem brjóti f bága við bókstaf og
anda Parisarsamningsins.
Zykov segir það þjóna bezt
hagsmunum Norðmanna og
Rússa, almennum friði og auknu
jafnvægi í Norður-Evrópu, að
Parfsarsamningurinn verði virtur
og Svalbarði verði sem hingað til
vopnlaust svæði. Rússar treysti
því að i starfsemi sinni á Sval-
barða hlíti Norðmenn ákvæðum
samningsins á sama hátt og
Rússar sjálfir.