Morgunblaðið - 22.10.1976, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1976
Ætla að opna Öðal
aftur eftir eina viku
Miklar skemmdir urðu á annarri
hæð hússins í eldsvoða í fyrrinótt
FORRAÐAMENN Oðals hafa ein-
sett sé að opna veitingastaðinn að
nýju á föstudag í næstu viku eftir
þær skemmdir sem urðu þar
innanstokks í eldsvoða í fyrrinótt.
Talið er að eldurinn hafi kviknað
út frá sfgarettu, en hann gaus þó
ekki upp fyrr en alllöngu eftir að
staðnum hafði verið lokað eða á
fimmta tfmanum um nóttina.
Slökkviliðsmenn voru fljótir að
slökkva eldinn eftir að þeir voru
kvaddir á staðinn, en þá höfðu
þegar orðið miklar skemmdir á
annarri hæð hússins af eldi og
reyk.
Að sögn Gunnars Sigurðssonar
varaslökkviliðsstjóra fékk
slökkviliðið tilkynningu um
eldinn í Óðali um 4.22 og þegar
slökkviliðsmenn komu á staðinn
logaði töluverður eldur inni á
annarri hæð hússins einkum
Austurstrætismegin. Varð-
stjórinn taldi þá ekki ástæðu til
að hætta á n^-itt heldur kallaði út
allt slökkviliðið. Slökkviliðsmenn
fóru inn um glugga með háþrýsti-
stút og einnig inn ganginn og upp
á hæðina með annan slíkan stút,
og tókst á skömmum tima að úða
nægilega vel yfir hættusvæðið og
eftir um hálfa klukkustund hafði
eldurinn algjörlga verið slökktur.
Gunnar kvaðst vera mjög
ánægður með frammistöðu sinna
manna, því að bæði hefði tekizt að
slökkva eldinn með skjótum hætti
og enda þótt vatn hefði verið
notað við slökkvistarfið hefði um
leið tekizt að koma í veg fyrir að
vatnsskemmdir hlytust af. Hins
vegar væru miklar skemmdir á
efri hæðinni af eldi og reyk og
ekkert vatn hefði borizt niður á
hæðina fyrir neðan, danssalinn,
þar sem eldurinn var þó mestur,
þannig að starfsfólk Samvinnu-
ferða hefði getað gengið til starfa
sinna á skrifstofunni eins og
ekkert hefði í skorizt.
Jón Hjaltason veitingamaður
sagði í viðtali við Morgunblaðið í
gær að skemmdirnar á skemmti-
staðnum væru miklar, og þá á
annarri hæðinni fyrst og fremst,
en engu að síður hefðu forráða-
menn Óðals sett sér það mark að
opna staðinn að nýju á föstudags-
kvöld í næstu viku. Að visu þyrfti
að endurnýja allar innréttingar á
efri hæðinni á þessum vikutíma,
en Jón kvaðst þó í engum vafa um
að þetta takmark næðist, þvi að
bæði hefði Óðal á sínum snærum
frábæra iðnaðarmenn, sem ein-
mitt hefðu verið að vinna að lag-
færingum á innréttingum
staðarins, og hefði einnig yfir
ötulu starfsfólki að ráða, sem
væri bersýnilega staðráðið í a'
koma staðnum aftur i gang á þess-
um stutta tíma sem væri til
stefnu. Jón kvað veitingastaðinn
hafa verið tryggðan með eðlileg-
um hætti, þannig að tjónið yrði
Miklar skemmdir urðu f veitingasölum Óðals, en lagfæringar hófust strax f gærdag. (Ljósm. Mbl.
Friþjófur)
bætt hvað brunaskemmdirnar
áhrærði.
Óðal spannar að nokkru leyti
tvær húsaraðir — Austurstræti
12a og Austurstræti 12, og er hús-
næðið í eigu Ketils Axelssonar og
Samvinnutrygginga. Eldurinn
kom upp í þeim hluta hússins sem
er i eigu Samvinnutrygginga, en
þann hluta hússins átti Fram-
sóknarflokkurinn áður og fékk i
makaskiptum við Listasafn ríkis-
ins, er það eignaðist Glaumbæ
eftir að sá veitingastaður hafði
orðið eldsvoða að bráð. Upptök
eldsins í báðum tilfellum eru al-
gerlega hliðstæð, þ.e. að logandi
vindlingur hefur fallið milli
stólsessa í sófa og síðan breiðst út.
Borgarbókasafnið
lánaði 1,1 milljón
bóka síðastliðið ár
SAMBAND fslenzkra sveitarfé-
laga gekkst fyrir skömmu fyrir
ráðstefnu um almenningsbóka-
söfn f landinu. Á ráðstefnunni
var m.a. lögð fram skýrsla um
þætti f starfsemi bæjar- og hér-
Sigalda:
Landsvirk jun tekur að sér yfir-
st jórn byggingarf ramkvæmda
„ÞAÐ er orðin ákaflega knappur
tfmi til stefnu og það er mikils
virði að gangsetning fyrstu vélar-
innar gagni sem fljótast," sagði
Jóhannes Nordal seðlabanka-
stjóri formaður stjórnar Lands-
virkjunar, er Morgunblaðið
spurði hann f gær um frétt frá
Landsvirkjun þess efnis að fyrir-
tækið tæki að sér yfirstjórn fram-
2 sækja um Laug-
amesprestakall
UMSÓKNARFRESTUR er út-
runninn um Laugarnespresta-
kall. Tveir umsækjendur sækja
um prestsembætti þar, sem séra
Garðar Svavarsson hefur gegnt.
Umsækjendurnir eru séra Jón
Dalbú Hróbjartsson, skólaprestur
og Pjetur Þ. Maack, cand. theol.
Sóknarnefnd hefur enn ekki
ákveðið kjördag, en áður þurfa
umsækjendur að messa svo sem
venja er í Laugarneskirkju.
kvæmdanna við Sigöldu vegna
seinkunar, sem orðið hefði á verk-
inu hjá júgóslavneska verktaka-
fyrirtækinu Energoprójeckt.
Frétt Landvirkjunar er svo-
hljóðandi:
„Eins og kunnugt er, stefnir
Landsvirkjun að því, að fyrsta
vélasamstæða Sigölduvirkjunar
komist í rekstur fyrir lok þessa
árs. Vegna rekstraröryggis á vetri
komandi er mjög æskilegt, að
þessu takmarki verði náð. Hefur
Landsvirkjun því með margvís-
legu móti stuðlað að þvl að
Energoprojekt, verktakinn við
byggingarvinnu virkjunarfram-
kvæmdanna, vinni upp þann
tfma, sem framkvæmdir hafa af
ýmsum ástæðum tafizt um frá
verkbyrjun. Þar til nú fyrir
skömmu hefur nokkur bjartsýni
ríkt um, að ná mætti umræddu
takmarki án frekari aðgerða. Að
mati Landsvirkjunar I dag, þykir
hins vegar fyrirsjáanlegt, að af-
köst Energoprojekt við Sigöldu
Hitaveituhitun kostar
fjórðung af olíuhitun
HAGFRÆÐIDEILD
Reykjavfkurborgar gerir f nýút-
kominni Árbók 1976 samanburð á
kostnaði við hitun húsa með hita-
veitu og gasolfukyndingu, og er
niðurstaðan sú, að hitaveitu-
kostnaður sé ekki nema 26% af
kostnaði við hitun húsa með
gasolíu.
Er í þessu dæmi, sem sett er
upp til samanburðar, tekinn
heildarkostnaður við olíu-
kyndingu annars vegar og hita-
veitu hins vegar. Jafnframt er
sett upp dæmí, þar sem reiknaður
er beinn orkukostnaður og verður
hlutfallið þar enn hagstæðara
fyrir hitaveituna eða 25%.
Þannig að kostnaður við að hita
upp hús með hitaveituvatni í
Reykjavík er um fjórðungur af
þvi, sem mundi kosta að hita þau
með olíu.
séu ekki fullnægjandi til að
tryggja, að fyrsta vélasamstæðan
komizt í gagnið fyrir áramót. Líta
Landsvirkjun og ráðunautar
hennar svo á, að rekja megi orsak-
ir þessarar þróunar til annmarka
á stjórnun verktakans.
Landsvirkjun og viðskipavinum
hennar er það að sjálfsögðu mikið
ÚTVARPS-
NEFNDIN
SKIPUÐ
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
hefur skipað nefnd til þess að
gera samanburð á stöðu starfs-
manna Rfkisútvarpsins f launa-
kerfi fslenzka rfkisins og stöðu
hliðstæðra starfsmanna f nálæg-
um löndum f launakerfinu þar.
Jafnframt skal nefndin hafa hlið-
sjón af launum sambærilegra
starfshópa innanlands.
1 nefndinni eiga sæti Magnús
Bjarnfreðsson, tilnefndur af rík-
isútvarpinu, Eiður Guðnason, til-
neíndur af Starfsmannafélagi
sjónvarps, Dóra Ingvadóttir, til-
nefnd af Starfsmannafélagi hljóð-
varps, og Indriði H. Þorláksson,
skipaður án tilnefningar, og er
hann jafnframt formaður nefnd-
arinnar.
Stefnt er að því að nefnin skili
áliti fyrir árslok.
hagsmunamál, að umræddum
verkáfanga sé náð sem fyrst. Af
þeim ástæðum hefur Landsvirkj-
un I dag ákveðið f samráði við
ráðunauta sfna að ganga inn f
stjórnun byggingarframkvæmd-
anna við Sigölduvirkjun. Er ráð-
stöfun þessi gerð samkvæmt
ákvæðum í verksamningi Lands-
virkjunar og Energoprojekt, sem
beitir Landsvirkjun heimild til
aðgerða af þessu tagi, ef telja má,
að framvindu verksins eða ein-
stakra hluta sé stefnt í hættu með
tilliti til tímasetninga."
Samkvæmt upphaflegum verk-
samningi átti öllum framkvæmd-
um á Sigöldusvæðinu að vera
lokið á seinni hluta þessa árs, en
nú er verið að stefna að þvf að
fyrsta vélin komizt í gang fyrir
Framhald á bls. 24
aðsbókasafna á sfðasta ári. 1
skýrslu þessari kemur fram að
útlán bóka 1 Reykjavík var rúm-
lega 1.1 milljón eintaka. Hins
vegar hafa fæst eintök á árinu
verið lánuð út I bókasafninu f
Búðardal, eða 426. Það er bóka-
fulltrúi rfkisins, sem unnið hefur
þessa skýrslu, en ekki hafa borizt
skil á útlánum f öllum bókasöfn-
Ráðstöfunartekjur bókasafn-
anna var mjög misjafnar á sfðasta
ári. Þannig höfðu almennings-
bókasöfn i Reykjavík rúmlega 70
milljónir króna til ráðstöfunar, en
safnið í Búðardal hafði engar
tekjur til ráðstöfunar á árinu,
samkvæmt skýrslunni. Þau bóka-
•söfn, sem höfðu mestar ráðstöfun-
artekjur auk Reykjavíkur eru á
Akureyri og f Hafnarfirði, en ráð-
stöfunartekjur safnanna fara yf-
irleitt eftir fólksfjölda á viðkom-
andi stöðum. Á Akureyri voru
lánuð út á árinu liðlega 119 þús-
und eintök og er það eini staður-
inn utan Reykjavíkur, sem fór
yfir þúsund í útlánum.
Borgarbókasafnið f Reykjavfk
keypti á síðasta ári bækur fyrir 15
milljónir króna, á Akureyri voru
bækur keyptar fyrir 1.9 milljónir
króna, í Hafnarfirði og Keflavík
fyrir 1.8 milljónir króna og fyrir
tæplega 1.7 milljónir á ísafirði.
Bækur sem söfnin í ReyRjavík
keyptu
16.872.
á árinu voru samtals
Um helmingur stöðu-
mælasekta innheimtist
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær
til Sturlu Þórðarsonar fulltrúa
lögreglustjórans f Reykjavfk og
spurði hversu mikill hluti stöðu-
mælasekta innheimtist.
Sagði Sturla, að um það bil
helmingur þessara sekta væri
borgaður, en þegar viðkomandi
sinntu hvorki fyrstu aðvörun um
að ljúka málinu með 100 króna
sátt né ítrekun þar um, væri
málið sent Sakadómi.
Síðasti kjördæma-
fundur forsætis-
ráðherra að sinni
StÐASTI kjördæmafundur Geirs
Hallgrfmssonar, forsætisráðherra
að þessu sinni verður haldinn að
Hótel Höfn á Hornafirði n.k. laug-
ardag kl. 15.30. Með þeim fundi
er forsætisráðherra búinn að
halda tvo kjördæmafundi í öllum
kjördæmum landsins utan
Reykjavfkur.
Kjördæmafundirnir hafa verið
mjög vel sóttir og í lok hvers
fundar hafa fundarmenn átt kost
á að spyrja forsætisráðherra
spurninga um þau málefni, sem
þeim eru ofarlega í huga. Hefur
þetta nýmæli mælst mjög vel fyr-
ir og margir hafa orðið til þess að
þakka forsætisráðherra fyrir
þessar frjálsu fyrirspurnir. Geir Hallgrfmsson.