Morgunblaðið - 22.10.1976, Síða 15

Morgunblaðið - 22.10.1976, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. OKTOBER 1976 15 varla á honum — eins og allt er í pottinn búið — að saka félaga sína um ódugnað, með meira eða minna órökstuddum fullyrðing- um. Við teljum nefnilega, að sjaldan eða aldrei hafi fleiri fé- lagsmanna FlM starfað að töku ákvarðana og beinum fram- kvæmdum en einmitt nú, þessi árin. FRUMKVÆÐI FÍM Félag íslenskra myndlistar- manna hefur átt frumkvæði að ýmsum nýjungum að undanförnu. Nefna má sem dæmi útgáfu Fé- lagsbréfa, sýningar á sjúkrahús- um i Reykjavík, vinnustaðasýn- ingarnar í tengslum við Haustsýn- ingu 1975, staðfestingu gjaldskrár vegna sýningarvinnu auk þeirrar fjölbreyttu starfsemi, sem fram fer að Kjarvalsstöðum í samvinnu við Bandalag Islenskra lista- manna og Reykjavíkurborg. 1 framhaldi af þessu mætti spyrja Braga Asgeirsson hvers vegna hann gekkst ekki fyrir aðildinni að alþjóðasamtökunum eða hafði frumkvæði að sýningum erlendis og útgáfu vandaðra rita um ís- lenska list — á meðan hann sjálf- ur var áhrifamaður i FÍM, meira að segja sýningarnefndarformað- ur? LISTFRÆÐINGUR A KJARVALSSTÖÐUM Bragi virðist taka þá eindregnu afstöðu í Morgunblaðsgrein sinni 23. september, að framkvæmda- stjóri listráðs Kjarvalsstaða hafi ekki átt að vera listfræðingur að mennt. Slíkur sérfræðingur og aðrir listfróðir menn hlytu þó að vera ráðgefandi um starfsemi stofnunarinnar. Þetta er nú satt að segja dálítið brenglað og óljóst í framsetningu greinarhöfundar- ins. Rétt er að telja frásögnina um afstöðu forráðamanna FÍM til misskilnings uns annað kemur í ljós. Sannleikurinn er sá, að lengi var aðeins rætt um einstaka menn og verðleika þeirra til að gegna þessari stöðu í hópi félagsmanna BlL og FlM. Menn bentu meira á segja á alkunna framkvæmda- menn, sem hvorki fylla flokk myndlistarmanna né listfræð- inga. Þegar málin tóku svo að skýrast — og um það leyti sem Hvítbókin kom út — var orðið ljóst, að forustumenn BlL og meiri hluti félagsmanna FlM vildi fela listfræðingi starf hins listræna framkvæmdastjóra Kjar- valsstaða. Af þessum sökum töldu menn enga nauðsyn bera til að breyta viðkomandi málsgrein í Hvítbókinni, sem fer svo óskap- lega í taugarnar á greinarhöfindi. 1 samningunum við forráðamenn Reykjavíkurborgar kom brátt í ljós, að þeir voru sömu skoðunar. Þar með voru úrslitin vitaskuld ráðin. Við vitum ekki til að for- ráðamenn BlL eða FlM hafi talað tveim tungum í þessu máli. Hvað- an gefst Braga heimildin til að fullyrða um slíkt? LÝÐRÆÐISLEG VINNUBRÖGÐ Að lokum vísum við þeirri full- yrðingu Braga og þrástagli á bug, að mikilsverð mál séu ekki tekin til umræðu og ákvörðunar á fé- lagsfundum okkar. öll mikilsverð mál hafa einmitt verið lögð fyrir félagsfundi hin síðari árin að minnsta kosti og við teljum raun- ar að svo hafi verið um langa hríð. Arin 1974 og 1975 voru alls haldn- ir fimm félagsfundir hvort árið um sig með þátttöku sem svarar tuttugu og fimm til rösklega þrjá- tfu prósentum félagsmanna. Það hlýtur að teljast mjög sómasam- leg þátttaka. Til fundanna var boðað bréflega þegar verkefni lágu fyrir. Það er fullljóst að van- þekking Braga á félagsmálum al- mennt spillir mjög mati hans og villir frásagnirnar. Við viljum benda honum á að leita traustari heimilda næst þegar hann geysist fram á ritvöllinn. f.h. stjórnar og sýningarnefndai FlM Hjörleifur Sigurðsson +- ^o.MUU. T T Vöruskemma Eimskips á Akureyri EINS og Morgunblaðið skýrði frá í gær, þá er Eimskipafélag íslands h.f. að reisa nýja vöru- skemmu á Akureyri, og er ætlunin að taka hana í notkun seint á næsta ári. Eins og sést á þessari mynd er skemman yfir 80 metra löng og meira en 40 metrar á breidd. Skipstjóra- félag Norð- lendinga mótmælir bráðabirgða- lögunum FUNDUR haldinn i stjórn Skip- stjórafélags Norðlendinga 16. okt. 1976 mótmælir harðlega setningu bráðabirgðalaga um kaup og kjör sjómanna frá 6. sept. s.l. Stjórnin bendir á, að skömmu áður hafði gengið félagsdómur í málinu og því ekki lengur um vafa að ræða varðandi samningamálin og lögin að því leyti algerlega óþörf. Stjórnin bendir einnig á þá óheillaþróun, að æ oftar skuli gripið til þess ráðs að leysa samn- ingamál sjómanna með lögum. Ennfremur bendir stjórnin á, að ekki var um yfirvofandi vinnu- stöðvun að ræða og því ekki ástæða til lagasetningar þess vegna. Fyrirhugaðar breytingar á vinnulög- gjöfínni flestar neikvæðar 1 FRÉTTATILKYNNINGU, sem Morgunblaðinu hefur borizt frá Sveinafélagi skipasmiða, segir að á fundi félagsins s.l. fimmtudag hafi verið rætt um fyrirhugaðar breytingar á vinnulöggjöfinni. Segir að fundurinn telji þrátt fyrir nokkur atriði, sem teljast megi jákvæð í breytingartillögu ríkisstjórnarinnar á vinnulöggjöf- inni, að þar sé fyrst og fremst um að ræða staðfestingu á venjum sem þegar eru I framkvæmd. Aðr- ar breytingar sé I flestum tilfell- um neikvæðar, og í mörgum til- fellum sé um mjög alvarlega skerðingu á samningsrétti og verkfallsrétti verkalýðsfélaganna að ræða. HH • y «•5t *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.