Morgunblaðið - 22.10.1976, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTL'DAGL'R 22. OKT0BER 1976
23
igismadur:
rjóta
a brjóta
Ik niður
,4ögum”
Að
lög
Ég bað þá ..viðmælanda' minn að
spyrja yfirdýralækni, hvenær hann
komi í hús SS Þá varð mjög löng
þögn, en loks kom forstjórinn aftur og
sagði „Vfirdýralæknir er mjög tíma-
bundinn og getur ekki talað við þig, en
bað mig að skila, að hann mundi
hringja í þig frá Akureyri." (sem hann
auðvitað ekki gerði)
Þetta kvöld var haldinn fundur í
stjórn SS, þar sem eftirfarandi bókun
var gerð
„Fimmtudaginn 30 sept 1976,
kom stjórn Slátursamlags Skagfirðinga
saman ásamt Eyjólfi Konráð Jónssyni
og Sveini Jóhannssyni i sláturhúsi fé-
lagsins, þar sem von var á Páli A
Pálssyni til að taka út sláturhúsið Jón
Björnsson hafði tal af Steini Þ Steins-
syni fyrir hádegi og spurði hann, hve-
nær von væri á yfirdýralækni, og sagði
hann, að hann mundi koma um kaffi-
leytið, en það mundi taka um 3 tíma
að skoða KS-húsið, en hann vissi ekki
hvort yfirdýralæknir léti sig um að fara
með þeim enska (erlendur dýralæknir
var með í ferðinni) um KS-húsið og
skoðaði húsið hjá okkur á meðan
Siðan skeður það að beðið var allan
daginn og enginn kom Þá var beðið
um símtal við Stein Þ eða Pál A
Pálsson á sláturhúsi KS. sem aldrei
kom Þá skeður það að við fréttum, að
Helgi Rafn Traustason hafi boðið dýra-
læknunum og þeim enska i kvöldmat
Þá hringir Eyjólfur Konráð heim til
Helga og biður um samtal við yfirdýra-
iækni, en honum er sagt að hann sé að
borða Þá bað Eyjólfur um að Páll A
Pálsson sé spurður um hvenær megi
búast við honum að skoða húsið, en
Helgi kemur með þau boð til baka. að
yfirdýralæknir muni hringja til Eyjólfs
frá Akureyri, þar sem hann sé svo
timabundinn Hafði Eyjólfur af þessu
tilefni samband við Sveinbjörn Dag-
finnsson ráðuneytisstjóra, Halldór Sig-
urðsson landbúnaðarráðherra og Ing-
ólf Jónsson fyrv ráðherra, sem hringdi
heim til Helga Rafns og fékk að tala við
yfirdýralækni, sem lofaði að koma á
sunnudag að taka húsið út Stjórnin
ákvað að sýna enn langlundargeð í
trausti þess að sláturleyfi fáist strax
eftir úttektina á sunnudag. en fól
Eyjólfi Konráð Jónssyni hrl að sækja
málið ella að lagaleiðum, þar á meðal
að krefja rikið skaðabóta
Fleira ekki tekið fyrir Fundi slitið
Guðm Stefánsson
Jón Björnsson
Sigurpáll Árnason.
Næsta dag sendi ég yfirdýralækni
eftirfarandi skeyti:
Páll A. Pálsson,
yf irdýralæknir,
Keldum,
Reykjavík
í framhaldi af atburðum þeim, er
gerðust í gær, er þér neituðuð að
koma I sláturhús Slátursamlags
Skagfirðinga, þótt þér væruð hér á
staðnum og genguð jafnvel svo langt
að neita að ræða við forsvarsmenn
Slátursamlagsins, eða mig ( síma,
samhliða neitun héraðsdýralæknis
að taka húsið út, ákvað stjórn félags-
ins að fela mér að halda málinu til
laga og leita (trasta réttar fyrir dóm-
stólum, ef þörf krefur. Þar sem þér
hétuð því ( símtali við Ingólf Jónsson
fyrrverandi landbúnaðarráðherra að
koma n.k. sunnudag og taka húsið
út, ákvað stjórnin þó, eins og segir í
samþykkt hennar ,,að sýna enn lang-
lundargeð ( trausti þess, að slátur-
leyfi fáist strax eftir úttektina á
sunnudag" . Þetta tel ég bæði rétt og
skylt að tilkynna yður nú þegar og
óska þess jafnframt, að þér tilkynnið
Jóni Björnssyni, Hellulandi, hvenær
sunnudagsins þér hyggist taka húsið
út.
Með kveðju,
Eyjólfur Konráð Jónsson, hrl.
Þessu svarar Páll A. Pálsson með eftir-
farandi bréfi:
2. október 1976
Hr. alþingismaður
Eyjólfur Konráð Jónsson
Brekkugerði 24,
Reykjavík.
Þakka tvö skeyti frá yður dagsett
28/9 og 1/10 1976, varðandi
sláturhús á Sauðárkróki. Vegna fjar-
veru úr bænum fékk ég skeyti þessi
fyrst í hendur að kvöldi föstudags 1.
október.
Þér óskið eftir því í skeytum þess-
um að kannað verði hið bráðasta
hvort sláturhús Slátursamlags
Skagafjarðar uppfylli þær reglur sem
gilda um sláturhús. Sm(ði virðist þó
ekki lokið ( húsinu samkvæmt skeyti
yðar.
Eins og ég tjáði yður er við hitt-
umst fyrir rúmri viku siðan hefi ég
verið á stöðugu ferðalagi, og verð
það einnig f næstu viku. Ferðalög
þessi eru að beiðni Landbúnaðar-
ráðuneytisins til að sýna fulltrúum
breskra og bandarfskra heilbrigðis-
yfirvalda sláturhús sem flytja afurðir
til Bretlands og Bandaríkjanna. Að
þessu sinni hefur skoðun þessa
breska fulltrúa á sláturtilhögun og
sláturhúsum verið mun ftarlegri og
tlmafrekari en áður hefur verið, tek-
ið um þrjár klukkustundir, jafnvel
meir.
Þvf var það að skoðun á Sláturhúsi
Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðár-
króki sem hófst strax og við komum
þangað kl. 15.30 var eigi lokið fyrr
en klukkan var ca. 18.45. Þá var
eftir að ræða við héraðsdýralækninn
og forráðamenn hússins um allmörg
atriði og komast til Akureyrar bflleið-
is til að ná þar sfðustu kvöldvél til
Reykjavikur, en á Akureyrarvelli áttu
farþegar að vera mættir kl. 21.45.
Þar sem tfmi var svo naumur til
umræðna og athugasemda um húsið
ákvað ég að tala ekki að þessu sinni
við menn úr Skagafirði sem óskað
höfðu eftir að hitta mig að máli, eða
að svara f sfma þessa stund.
Að sjálfsögðu var enginn tfmi
þetta kvöld til þess að skoða slátur-
hús Slátursamlagsins enda farið að
bregða birtu. Baðég Stein Steinsson
héraðsdýralækni að greina forsvars-
mönnum Slátursamlagsins frá því
hvers vegna ég gat ekki skoðað
sláturhús þeirra. Það er á misskiln-
ingi byggt að ég hafi neitað að skoða
hús þetta, tfminn var bara of naumur
til þess að það væri hægt.
Stjórn Slátursamlags Skagfirðinga ásamt Eyjólfi Konráð Jóns-
syni alþingismanni
Ingólfur Jónsson, alþingismaður,
náði f mig gegnum sfma að loknum
umræðum f þann mund að ég var að
leggja af stað frá Sauðárkróki. Tjáði
ég honum að vegna tímaskorts gæti
ég ekki skoðað hús Slátursamlagsins
þá um kvöldið, en skyldi reyna að
gera það sunnudag þann 3. okt. ef
flugveður leyfði, en næstu viku verð
ég enn á ferðalögum.
Ofangreint vil ég taka fram til að
leiðrétta misskilning sem fram
kemur í áðurnefndum skeytum.
Virðingarfyllst,
Páll A. Pálsson.
Hvert er valdsvið yfir-
dýralæknis?
Nú er.dokað við En loks nokkru fyrir
hádegi sunnudaginn 3 þ m berast
boð um það frá héraðsdýralækni. að
yfirvaldið mum birtast eftir hádegið
sem og varð þótt talsvert seinna væri
en boðað hafði verið hver svo sem
ástæðan var Og nú heldur Páll A
Pálsson áfram frásögninni
Landbúnaðarrá ðuneytið,
Reykjavik.
Að höfðu samráði við ráðuneytis-
stjóra Sveinbjörn Dagfinnsson, skoð-
aði ég sfðastliðinn sunnudag þ. 3.
þ.m. Sláturhús Slátursamlags Skag-
firðinga á Sauðárkróki að beiðni for-
ráðamanna þess.
Á liðnu sumri var sláturhús þetta
endurskipulagt og endurbætt, en
undanfarin ár hefur sláturhúsið verið
starfrækt á undanþáguheimild ráðu-
neytisins.
Ekki lágu þó fyrir samþykktar
teikningar af húsinu áður en fram-
kvæmdir voru hafnar svo sem lög
gera ráð fyrir.
Við skoðun mfna kom í Ijós að
ýmsu er enn áfátt miðað við gildandi
reglur um sláturhús og þann búnað,
sem nú er krafist af nýjum eða ný-
uppgerðum sláturhúsum hér á landi,
og smfði f húsinu ekki að fullu lokið.
Gerði ég forráðamanni hússins grein
fyrir því í stórum dráttum, hvers
væri ábótavant að mínu mati. Var þá
bæði um að ræða óheppilegt fyrir-
komulag og ófullnægjandi frágang.
Skrá um það fylgir sfðar.
Að lokinni skoðun á þessu húsi vil
ég taka fram eftirfarandi:
1. Hús Slátursamlags Skagfirð-
inga er innréttað sem sauðfjárslátur-
hús fyrst og fremst. í Ijós kom, að
þar var ekki að finna sérstaka
aðstöðu til slátrunar stórgripa nema
einn gálga. Smfði er enn ólokið.
Frystirar og frostgeymslur eru ófull-
nægjandi að frágangi.
2. Verulegar og kostnaðarsamar
breytingar hafa verið gerðar á húsi
þessu f sumar án þess að fyrir hafi
legið samþykktar teikningar, svo
sem lög mæla fyrir um. Því hefur
margt farið úrskeiðis um fyrirkomu-
lag. Húsið uppfyllir nú ekki nema að
nokkru leyti gildandi reglur um út-
búnað sláturhúsa og kjötfrystihúsa,
þó sumt hafi verið vel gert varðandi
breytingar.
3. Ef hafin verður starfsemi í
þessu húsi, hefur það f för með sér,
að mun erfiðara verður fyrir héraðs-
dýralækni að framkvæma heil
brigðisskoðun og annað eftirlit, sem
honum er skylt, þar sem hann þarf
að vinna f tveim húsum samtfmis, en
mikil áhersla er lögð á, að slfkt
eftirlit sé sem best.
4. Ekki virðist nein brýn nauðsyn
vera á því að hefja starfsemi f þessu
húsi (sbr. 1. nr. 30/66), þar sem
örskammt frá er nýtt og vandað
sláturhús, sem er sérstaklega inn-
réttað bæði fyrir slátrun sauðfjár og
stórgripa og getur annað allri slátrun
f héraðinu.
Virðingarfyllst,
Páll A. Pálsson.
Reykjavík 3. okt. 1976.
Menn taka
að skjálfa
Og nú landbúnaðarráðherra
Hr. yfirdýralæknir,
Páll A. Pálsson,
Sóleyjargötu 7,
R
4. okt. 1976
í bréfi yðar, dags. f dag, varðandi
sláturhús Slátursamlags Skagfirð-
inga er ekki tekin afstaða til, hvort
sláturhús félagsins skuli hljóta lög-
gildingu til sauðfjárslátrunar á þessu
hausti. Af þeirri ástæðu tekur ráðu-
neytið eftirfarandi fram.
Samkvæmt lögum nr. 30/1966,
2. gr., um meðferð skoðun og mat á
sláturafurðum, er skilyrði þess, að til
löggildingar sláturhúss komi, að yfir-
dýralæknir eða viðkomandi héraðs-
dýralæknir mæli með löggildingu
húss.
Ráðuneytið fer þess þvf á leit við
yður, að þér gefið út ákveðna yfirlýs-
ingu um, hvort þér mælið með lög-
gildingu hússins eða ekki, þannig að
ráðuneytið geti tekið málið til end-
anlegrar afgreiðslu.
H. E. Sig.
Og svo Páll aftur.
Taldir eru til 22 liðir í ódagsettu
bréfi „sem ekki eru í samræmi við
gildandi reglureða lagfæra þarf
Og mðurlag bréfsms er svohljóð-
andi
. Vinnutilhogun í þessu húsi við
slátrun sauðfjár tel ég gamaldags og er
erfitt að samræma hana þeim krofum
til heilbrigðisskoðunar sem nú eru í
gildi Væntanlega hefði betur til tekist
ef menn hefðu gefið sér betri tíma
„Hótunarbréf" E.K.J.
næsta morgun.
Þá sendi ég bréfið fræga um hús
Slátursamlagsms svohljóðandi
Landbúnaðarráðherra
Arnarhvoli
Reykjavfk. 6. október 1 976.
Með bréfi þessu tilkynnist for-
sætisráðherra, landbúnaðarráðherra
og dómsmálaráðherra, að sauðfjár
slátrun hefst í húsi Slátursamlags
Skagfirðinga, Sauðárkróki, snemma
morguns fimmtudagsins 7. þ.m. og
mun ég með eigin hendi slátra fyrsta
dilknum, hvort sem sú löggilding,
sem skylt er að veita lögum sam-
kvæmt hefur verið framkvæmd eða
ekki.
Þess er hér með krafizt að stjórn-
völd sjái um, að dýralæknir eða full-
trúi hans verði f húsinu meðan
slátrun fer fram og gegni skyldu-
störfum sfnum, en slátrun stórgripa
mun hefjast þegar að sauðfjárslátrun
lokinni.
Virðingarfyllst,
Eyjólfur Konráð Jónsson
Vituð ér enn eð: hvat
Nú veit ég ekki hvort fleiri orð þjóna
tilgangi. og eftirleikmn kannast menn
v.ð Bezt er því líklega að fólk lesi bara
í eyðurnar. þær eru stórar — eru
hrópandi — blasa við augum hvers
sæmilegs manns
Svo var veitt leyfi til sauðfjárslátrun-
ar, um það er lauk og hélt ég á
tímabili að ég yrði að skreppa norður
og skjóta naut Söguna um þetta segi
ég ekki að fyrra bragði. þótt saga væri
til næsta bæjar
Hver hefur skotið hrút
— og hver hefur ekki
skotið hrút?
Hvar má skjóta hrút — og hvar má
ekki skjóta hrút — eða þá Hver má
skjóta hrút — og hver má ekki skjóta
hrút
Fyrst var ég ásakaður fyrir að brjóta
log svo var ég sakaður um að hafa
hótað að brjóta log Engm log er mér
kunnugt um sem ég braut í þessari
sennu og heldur engm sem ég hótaði
að brjóta — eða hvaða lög banna
manm með byssuleyfi að slátra sínum
hrút i húsi sem ekki fékkst loggilt sem
sláturhús Ég hef skorað á þá sem
bera mig sokum að nefna emhvern
lagastaf. sem ég hótaði að brjóta — ég
endurtek , Hvaða lög hótaði ég að
brjóta? Svarið óhikað og berið sokum
þvi að engan mann (eða dagblað) mun
ég hundelta út af þessu máli
Hugsamr minar i flugvélmm á leið-
inm norður á ég emn Um þær segi ég
það eitt að ég þóttist þá viss um að
ranglæti og valdníðslu væri unnt að
brjóta á bak aftur i þessu tilfelli án
þess að brjóta lög — en gerði mér um
leið grein fyrir þvi, hve hrikalega auð-
velt er að brjóta niður fólk með „lög-
um'
I þetta skipti tókst það ekki En
hversu oft hefur það ekki tekizt — Og
hversu oft á það ekki eftir að takast
ef
Og nú vona ég að máli þessu geti
verið lokið af minni hálfu a m k