Morgunblaðið - 22.10.1976, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. OKTÖBER 1976
Ágætar afurðir
eftir gemlinga
KOMINN er út bæklingur á veg-
um Rannsóknastofnunarinnar I
Neðra-Asi I Hveragerði, þar sem
dr. Ólafur R. Dýrmundsson, yfir-
kennari á Hvanneyri gerir grein
fyrir tilraunum slnum og rann-
sóknum á algengri búskapar-
venju á lslandi: að hleypa til
gimbra. Segir þar, að ljóst sé að
Verkfall
hjá SAS
Kaupmannahöfn, 21.
október NTB
VERKFALL flugfreyja hjá
SAS hélt áfram I dag, olli töf-
um og varð til þess að aflýsa
varð ferðum.
Reynt hefur verið að fá
norskar og sænskar flug-
freyjur til að hlaupa I skarðið.
Deilan fer fyrir gerðardóm.
Árangurs-
laus sátta-
fundur
TORFI Hjartarson sáttasemj-
arí hélt í gær fund með fulltrú-
um samninganefnda Banda-
lags háskólamanna og ríkisins.
Stóð fundurinn frá kl. 2—3 en
var árangurslaus. Sáttasemjari
hafði áður haldið fund með
sömu aðilum sl. mánudag og
hefur boðað annan fund með
deiluaðilum nk. laugardag, en
reynist sá fundur einnig ár-
angurslaus er málið þar með
úr höndum sáttasemjara og fer
til kjaradóms
Frankfurt-
lögreglan
enn engu nær
EFTIRGRLNNSI.AN lögregl-
unnar f Frankfurt eftir Gunnari
Elíssyni, sem hvarf þar 1 borg
skömmu eftir að hann yfirgaf
hótel sitt f sl. viku, hafði engan
árangur borið I gær, þegar
Morgunblaðið hafö; samband við
sendiráðið í Bonn
gimbrar séu jafnan ófrjósamari
en ær, en algengt sé að 60—80%
þeirra gimbra sem hleypt er til,
festi fang.
Segir Ólafur, að vinna þurfi að
frekari rannsóknum á þessu sviði
og leitast við að auka hundraðs-
hluta gimbra, sem festa fang og
fæða lömb. Segir hann m.a. að
vanhöid á lambgimbralömbum
séu í flestum tilvikum töluvert
meiri en á lömbum undan
fullorðnum ám, einkum um
burðinn, og taka þurfi tillit til
þess við hirðingu gimbranna.
Einnig að lambgimbralömb (ein-
lembingar) hafi jafnan meiri
vaxtarhraða en tvilembingar
undan ám, og við góð skilyrði sé
hægt að fá ágætar afurðir eftir
gemlinga.
LEIKFELAG Kópavogs mun á næstunni sýna leikritið Glataðir snillingar eftir William Heinesen, á
þriðjudögum og sunnudögum kl. 8.30 I Félagsheimili Kópavogs. Nokkrar sýningar eru búnar og hefur
þeim verið mjög vel tekið. Glataðir snillingar er leikgerð upp úr sögunni De fortabte spillemænd, sem
þýdd hefur verið á Islenzku og heitir Slagur vindhörpunnar.
Myndin sýnir nokkrar góðar hlusta eftir einhverju sem Ifklegt er að geti borizt með bæjarslúðrinu.
Ljósmynd Mbl. Ól.K.M.
Möguleikar á rekstri sam-
norrænnar ferju kannaðir
Vilja láta
EBE semja
við ísland
London, 22. október. Reuter.
DAILY Telegraph segir I forystu
grein I dag að betra væri að Efna-
hagsbandalagið semdi við tslend-
inga um fiskveiðilögsögu þeirra
fyrir hönd allra níu aðildarland-
anna en Bretar semji tvfhliða.
Blaðið segir að þar sem aðeins
séu örfáar vikur þangað til samn-
ingurinn við Islendinga renni út
„verði samningaviðræður nokkuð
brýnt mál ef við eigum að komast
hjá ennþá öðru fáránlegu þorska-
strfði."
„En hingað til hefur írska
stjórnin gert að engu tilraun
Crosiands til að endurnýja ensk-
íslenzka samninginn," segir blað-
ið.
„Því miður hefur irska stjórnin
barizt þrákelknislega gegn um-
boði handa EBE til að semja við
íslendinga i því skyni að reyna að
tryggja sérstaka viðurkenningu á
vandamálum fiskimanna sinna."
„Bezta von okkar er sú að fá íra
til að haga sér af meiri skynsemi
svo að utanrikisráðherrar EBE
geti kippt ástandinu í lag er þeir
hittast í næstu viku.“
NEFND sú sem komiö var
álaggirnar á vegum Norð-
urlandaráðs í því skyni að
athuga möguleika á rekstri
samnorrænnar ferju er
gengi milli Danmerkur,
Noregs, Færeyja og ís-
lands, hélt annan fund sin .i
í Færeyjum fyrir skömmu.
Formaður þessarar nefndar er
Guðmundur Einarssoe, sem ný-
lega var ráðinn forstjóri Skipaút-
gerðar ríkisins, en auk hans eiga
sæti i nefndinni Dani, Norðmaður
og Færeyingur. Nefndin hélt
fyrsta fund sinn I júlí en næsti
fundur hennar verður i Kaup-
mannahöfn í byrjun desember og
er stefnt að því að hún hafi skilað
áliti fyrir september á næsta ári.
Að sögn Guðmundar Einarsson
hafur starf nefndarinnar hingað
til beinzt að þvi að kanna hversu
mikilla flutninga mætti vænta
með ferju af þessu tagi, en það
— Sigalda
Framhald af bls. 2
áramót. Halldór Jónatansson
aðstoðarframkvæmdastjóri sagði
að þessi aðgerð Landsvirkjunar
miðaðist eingöngu að þvl að gera
Energoprojekt kleift að kom
fyrstu vélinni I rekstur fyrir ára-
mótin og tryggja það með öllum
tiltækum ráðum. Undanfarið hafa
vonir staðið til þess að það myndi
takast án sérstakra aðgerða en
upp á síðkastið hefur smám
saman komið í ljós, að gang-
setning muni ef til vill dragast
fram á næsta ár. Er talsverð
óvissa sem ríkir um lúkningu
verksins miðað við óbreytt
ástand."
Eftirlitsmenn Landsvirkjunar
munu ganga til liðs við stjórn-
endur Energoprojekt og reyna að
aðstoða þá og leiðbeina eftir þörf-
um til þess að stuðla að auknum
framkvæmdahraða. Engin breyt-
ing verður á samningnum sem
slikum, Júgóslavarnir verða
áfram aðalverktakinn á staðnum
og bera réttindi og skyldur eftir
sem áður með óbreyttum hætti.
Landsvirkjun er eingöngu að nota
tiltekinn rétt sem hún á sam-
kvæmt verksamningi aðila um að
liósinna verktakanum að eigin
mati til þess að auka fram-
kvæmdahraða þegar slíkt er nauð-
synlegt að mati Landsvirkjunar.
Verður verktakinn áfram vinnu-
veitandinn á staðnum og ber hann
alla ábyrgð á gæðum verksins —
sagði Halldór Jónatansson.
Morgunblaðið re.vndi í gær að
ná sambandi við talsmenn
Energoprojekt, en tveir yfirmenn
fyrirtækisins voru í Júgóslavíu,
Sakula og Popnovakovic. Þá
náðist heldur ekki í Pétur Péturs-
son, starfsmannastjóra fyrir-
tækisins.
yrði þá aðallega ferðamenn yfir
sumartímann og ýmiss konar
vöruflutningar að vetri til.
— 3 menn teknir
Framhald af bls. 40
bótar, þannig að nú er fundin um
íí tæki af þeim 30 sem talið er
fullvíst að smyglað hafi verið til
landsins.
Þrettán menn hafa síðustu daga
setið í gæzluvarðhaldi vegna
rannsóknar þessa máls en ein-
hverjir munu hafa losnað úr varð-
haldi í gær.
— Foot
Framhald af bls. 1
Foot hefur stutt efnahags-
stefnu stjórnarinnar þótt
vinstri armurinn hafi gagn-
rýnt hana og nýtur almanna-
hylli. James Cailaghan hefur
vísað mörgum kröfum vinstri-
sinna afdráttarlaust á bug en
vildi að Foot yrði einróma
kjörinn aðstoðarleiðtogi til að
tryggja einingu i flokknum.
Shirley Williams bauð sig
fram gegn Foot að beiðni
hægri manna í flokknum sem
vilja draga úr áhrifum vinstri
armsins. Hún gæti síðar komið
til greina sem aðalleiðtogi
flokksins.
Foot tapaði fyrir Callaghan i
kosningunni um aðalleiðtoga
Verkamannaflokksins með 137
atkvæðum gegn 176 i vor.
Hann tekur við stöðu varaleið-
toga af Edward Short sem
hættir afskiptum af stjórnmál-
— Nóbels-
verðlaun
Framhald af bls. 1
landi en hefur búið í Chicago
siðan hann var niu ára. Nýlega
sagði hann til viðtali: „Nóbels-
verðlaun eru sjaldan Banda-
rikjamönnum til góðs, að
minnsta kosti ekki Bandarikja-
mönnum. Það rann varla af
Sinclair Lewis og John Stein-
beck eftir að þeir fengu þau.
Hemingway hætti að skrifa."
Á blaðamannafundinum tók
Bellow í sama streng og minnt-
ist Steinbecks sem hann sagði
að verðlaunin hefðu orðið byrði
og kvað hafa verið mjög van-
sælan síðustu æviárin vegna
alls konar skuldbindinga. Hann
kvaðst vona að ekki færi eins
fyrir sér, en hætti því við að
hann væri neikvæðari en Stein-
beck.
„Ég gleðst yfir að fá þau,“
sagði Bellow um verðiaunin, en
„ég hefði komizt vel af án
þeirra." „Barnið í mér gleðst en
fullorðni maðurinn í mér er
efagjarn," sagði hann enn
fremur. Hann kvaðst vona að
einkaiif sitt yrði látið í friði, en
sagði um ágang fréttamanna:
„Ef þessu heldur svona áfram
fá erfingjar mínir verðlaunin
eftir einn eða tvo daga."
Aðspurður hvort hann ætti
verðlaunin skilið sagði hann:
„Enginn á neitt skilið." Um rit-
störf sin sagði hann: „Hingað
til hafa þau komið i veg fyrir að
ég yrði brjálaður." Hann kvaðst
ekki trúa á „skapandi" ritstörf
þar sem sköpunargáfu væri
ekki hægt að kenna. Og hann
dró I efa að skáldsagan væri
deyjandi listform.
Nokkrar helztu bækur
Bellows eru „Humboldt’s Gift“
(1975), „Herzog" (1964), „Mr.
Sammler’s Planet (1970) og
„Henderson the Rain King“
(1959). Sögupersónurnar eru
„andhetjur” sem sænska aka-
demían segir hann lýsa með
stiililegum skilningi sem sé
sigildur á borð við þann skiln-
ing sem sé að finna i verkum
Maupassant, Flauberts og
Henry James.
Karl Ragnar Gierow, ritari
akademíunnar, sagði I yfirlýs-
ingu um veitinguna að bækur
Bellows fjölluðu um „mann
sem hefði ekki fótfestu en leit-
aði að fótfestu I hrynjandi
heimi og afsalaði sér aldrei
þeirri trú að lifsverðmæti
grundvölluðust á sjálfsvirð-
ingu, ekki velgengni, og að
sannleikurinn yrði að sigra að
lokum."
I rökstuðningi akademíunnar
segir í bókum Bellows sé
áherzlan ekki lögð á áhrifa-
mikla atburði og ofbeldi heldur
á „ljósið sem sé varpað á innra
sjálf aðalpersónanna”. Aka-
demían lýkur lofsorði á „varan-
legt gildi" sem „andhetjur"
Bellows hafi.
Bellow hlaut Pulitzer-
verðlaunin í Bandarikjunum á
þessu ári fyrir Humboldts Gift
og U.S. National Book Award
fyrir „Mr. Sammler’s Planet"
' 1971. Otgefendur Bellows í
New York, Viking Press, segja
að Nóbelsverðlaunin ættu að
tryggja metsölu á nýrri bók
hans, „To Jerusalem and
Back“, frásögn um Israelsferð
1975, og eldri bókum hans.
— Kína
— Smith
tillögurnar hins vegar umræðu-
grundvöll.
Smith sagði að hætta væri á þvi
að menn sem vildu breyta hluta
rammasamningsins græfu undan
viðræðunum.
Richard kvaðst telja að þriggja
daga undirbúningsfundir /æru
fram áður en ráðstefnan hæfist.
Fyrstu 10 dögum ráðstefnunnar
verður varið til formlegra yfir-
lýsinga um afstöðu samnings-
aðila. Síðan hefjast hinar raun-
verulegu samningaviðræður og
þær munu standa miklu lengur.
— N-Kóreumenn
Framhald af bls. 1
að Norður-Kóreumenn hafi látið I
ljós von um áframhaldandi sam-
starf við Dani. Fundur Norð-
manna og Norður-Kóreumanna I
Peking þykir lýsa sömu ósk.
I Helsingfors vildi finnska
utanrikisráðuneytið hvorki stað-
festa né bera til baka fréttir um
að finnska sendiherranum i Pyon-
gyang hefði verið skipað að fara
úr iandi. Talsmaður ráðuneytisins
sagði að finnska stjórnin teldi
mikilvægt að viðhalda góðu sam-
bandi við Norður-Kóreu.
Framhald af bls. 1
veikt samanborið við það sem var
notað í gagnrýninni á „Shangha-
mafiuna”.
Nokkrar myndir af Hua voru í
göngunni og ein af Chou En-lai.
Þess var krafizt að vinstrisinnaðir
stjórnendur Tsinghua-háskóla
yrðu settir af.
Framhald af bls. 1
ríkisráðherra kynnti honum þær í
síðasta mánuði.
Þessar tillögur Kissingers
kallaði Smith: „Samkomulag um
rammasamning". Hann kroðst
hafa sagt löndum sinum að um
það væri ekki hægt að semja,
annað hvort yrði að samþykkja
það eða hafna þvi. Richard kallaði
— Líbanon
Framhald af bls. 1
mönnum hefðu sótt yfir landa-
mærin ti Libanon.
Talsmenn Israelska hersins
vildu hvorki staðfesta né bera til
baka fréttir um að tsraelsmenn
hefðu útvegað líbönskum hægri
mönnum vopn og neituðu þvi ein-
dregið að nokkrir Israelskir her-
menn hefðu tekið þátt I aðgerðum
með líbönskum hægrimönnum.
Hins vegar leyfðu ritskoðarar i
fyrsta skipti að minnzt væri á
óopinberar fréttir um israelska
aðstoð við líbanska hægrimenn
þar sem israelskur blaðamaður
minntist á þær i frétt I brezka
útvarpinu.
I Kairó hóf aðalframkvæmda-
stjóri Arababandalagsins,
Mahmoud Riad, viðræður við
ríkisstjórnir Arabalanda um
myndun 30.000 manna friðar-
gæzluliðs Arabalanda. Núverandi
gæzlulið er aðeins skipað 2.500
mönnum og nýja gæzluliðið heyr-
ir undir Elias Sarkis forseta.
Sarkis forseti og hermála-
fulltrúi Saudi-Arabiu unnu I dag
að undirbúningi fundar æðstu
manna i Kairó á mánudag en þar
er búizt við að rætt verði um
framkvæmdaratriði samkomu-
lagsins i Riyadh.
Bardagarnir sem geisuóu I
Beirút áður en vopnahléð tók
gildi voru einhverjir þeir
hörðustu sem um getur I margar
vikur. Um 90 óbreyttir borgarar
féllu og 240 særðust.
Kamal Jumblatt, leiðtogi
vinstrisinna, sagði eftir fund með
palestinska skæruliðaleiðtogan-
um Yasser Arafat i kvöld að hann
teldi að vopnahléið yrði algerlega
virt innan skamms. Hann sagði að
æðsta skylda Sarkisar væri að
krefjast brottflutnings sýrlenzka
herliðsins.