Morgunblaðið - 22.10.1976, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. OKTOBER 1976
Samhand dýraverndunarfélaga:
Oddvitar tilnefni trúnað-
armenn fyrir sambandið
STJÖRN Sambands dýraverndun-
arfélaga íslands hefur ritað öllum
oddvitum landsins bréf þar sem
farið er þess á leit við þá að þeir
tilnefni trúnaðarmann fyrir Sam-
band dýraverndunarfélaga ís-
lands, að þvi er segir í fréttatil-
kynningu frá sambandinu.
Eins og flestum er væntanlega
kunnugt er Samband dýravernd-
unarfélaga islands einungis skip-
að áhugamönnum, sem allir eru
fullhlaðnir starfsskyldum brauð-
stritsins og geta því einungis
sinnt dýraverndunarmálum i sin-
um fritima. Þetta kemur sér oft
mjög illa þegar ieitað er til stjórn-
arinnar frá hinum ýmsu lands-
hlutum vegna ýmiss konar mála
er upp koma um meðferð dýra.
Því ákvað stjórn S.D.l. að koma
upp kerfi trúnaðarmanna um
landið allt. Svipað trúnaðar-
mannakerfi og hér er áætlað að
koma á er t.d. rekið af Dýravernd-
unarsambandi Danmerkur með
mjög góðum árangri.
Er það von stjórnar S.D.Í. að
oddvitar landsins bregði skjótt
við og tilnefni trúnaðarmann í
sinum hreppi og láti stjórnina
vita sem allra fyrst.
LESHRINGIR HEIMDALLAR:
Leshringur um frjálshyggju
1. Hvað er frjálshyggja? — vísir að skilgrein-
ingu.
2. Hvað er frelsi, vald, eign, jafnrétti? — vísir
að greiningu stjórnspekilegra hugtaka.
3. Frjálshyggja og stjórnskipun.
a) lýðræði, b) réttarríki, c) mannréttindi
Kjartan G.
Kjartansson
leiðbeinandi
leshringsins
John Stuart Mill
4. Frjálshyggja og hagkerfi
5. Frjálshyggja og umhverfismál
6. Frjálshyggja og uppeldismál
7. Frjálshyggja og vestræn iðnríki
SER FRJÁLSHYGGJA fyrst og fremst
1 9DU-ALDAR KENFJINGAR UM STJÓRNSKIP
uU AN OG HLUTVERK RÍKISVALDSINS, EÐA ER
HÚN VÍÐTÆKARI AFSTAÐA UM MANNLEGT
EÐLI, MANNLEG SAMSKIPTI OG VALD í
MANNLEGUM SAMFÉLÖGUM?
A.S. Neill
Bertrand Russel
KJORDÆMAFUNDIR
FORSÆTISRÁÐHERRA
Geir Hallgrfimsson, forsætfisrádherra
flytur ræðu og svarar
fyrírspurnum fundargesta
AUSTURLANDSKJORDÆMI
Höfn í Hornafirði
laugardaginn 23. okt. kl. 15.30 í Hótel Höfn.
Takið þátt í fundum
forsætísráðherra
Klaus bartskeri (Jón Júlfusson) og Lars Mattheusson bartskera-
nemi (Evert Ingólfsson) aðstoða rfkismann sem vantar hand-
snyrtingu (Arnar Jðnsson).
Skollaleikur
á Austurlandi
Alþýðuleikhúsið frumsýnir
nýtt fslenskt leikrit á Borgar-
firði eystra sunnudaginn 17.
október. Leikritið heitir
„Skollaleikur" og er eftir Böð-
var Guðmundsson, tónlist er
eftir Jón Hlöðver Áskelsson, en
leikmynd, búninga og grímur
gerði Messfana Tómasdóttir.
Leikstjóri er Þórhildur Þor-
leifsdóttir. Hlutverk í leikrit-
inu eru 25 talsins og leika þau
Arnar Jónsson, Evert Ingólfs-
son, Jón Júliusson, Kristín Á
Ölafsdóttir og Þráinn Karlsson.
Skollaleikur gerist í Ham-
borg og á Islandi á 17. öld.
Leikritið er byggt á sögulegum
grunni þótt frjálslega sé farið
með atburði og persónur. Það
greinir frá þýskum kaupmanns-
syni, Lars Mattheussyni, sem
gerist bartskeri, og fylgikonu
hans, Matthildi. Þau flýja til
íslands undan galdraofsóknum
og ofbeldi auk þess sem þau
ætla að lækna íslendinga af
sárasótt. Á tslandi kynnast þau
auk sjúklinga fyrirmönnum
landsins, hinum brennuglaða
Þorleifi Kortssyni, Runólfi
biskupi lærða og Gísla lög-
manni vísa á Hliðarenda. Þau
komast að raun um að einnig á
tslandi hefur galdratrúin feng-
ið byr undir báða vængi.
Þótt vettvangur Skollaleiks
sé fjarri okkar tímum er efni
hans ætlað að skfrskota til lfð-
andi stundar. I leikritinu er
komið inn á ýmis þau mál sem
mjög eru á vörum fólks í dag,
jafnt hér á landi sem annars
staðar, svo sem mútuþægni,
misbeitingu valds, ofsóknir og
lagaflækjur.
Rétt er að taka fram að leik-
ritið er varla við hæfi barna.
Frumsýning verður sem fyrr
segir á Borgarfirði sunnudag-
inn 17. október en síðan verður
sýnt út vikuna á eftirtöldum
stöðum i þessari röð: Seyðis-
firði, Neskaupstað, Eskifirði,
Stöðvarfirði, Reyðarfirði og Fá-
skrúðsfirði laugardaginn 23.
október. Að leikferð um
Austurland lokinni verður sýnt
á Akureyri, en síðan haldið til
Reykjavfkur og Skollaleikur
sýndur þar ásamt 1. verkefni
Alþýðuleikhússins, Krumma-
gulli.
Kópavogur:
Mikil brögð að því
að útivistarreglur
barna séu brotnar
MIKIL brögð hafa verið að þvf f
Kðpavogi, að börn og unglingar
hafi ekki virt reglur um útivist
barna. Lö^reglunni hafa borizt
kvartanir vegna hðpa barna og
unglinga, sem hafa safnast saman
á kvöldin og valdið ðnæði og jafn-
vel unnið skemmdarverk.
Ásmundur Guðmundsson rann-
sóknarlögreglumaður í Kópavogi
sagði í samtali við Morgunblaðið i
gær, að samkvæmt reglum ættu
börn 12 ára og yngri að vera kom-
in inn til sin fyrir klukkan 8 á
kvöldin og 13—15 ára börn mega
ekki vera úti lengur en til 10 á
kvöldin. „Það eru mikil brögð að
þvf að þessar reglur séu ekki
haldnar og vill lögreglan beina
því til foreldra, að þeir sjái til
þess að börn þeirra séu ekki úti
eftir leyfilegan tíma," sagði Ás-
mundur.
Þá benti Ásmundur ennfremur
á það, að ljósaútbúnaður reiðhjóla
væri ekki í sem beztu ásigkomu-
lagi hjá unglingum í Kópavogi um
þessar mundir. Eru reiðhjól tekin
og flutt á lögreglustöðina, ef ekið
er á þeim ljóslausum og verða
foreldrar barnanna að koma á
stöðina og leysa þau út. Vildi Ás-
mundur brýna fyrir foreldrum að
sjá til þess að hjólin séu í full-
komnu lagi.
Konur efla
brunavarnir
Akranesi, 20. október
DAGANA 16. til 30. október
ganga konur úr Kvenfélagi Akra-
ness í hús hér og bjóða slökkvi-
tæki og reykskynjara til sölu. Að-
ur höfðu konurnar sent upplýs-
ingar um brunavarnir i öll hús á
Akranesi. Tækin sem boðin verða
til sölu, eru til sýnis í verzlunar-
glugga Bjargs h.f.
Þar sem reykskynjarar og
slökkvitæki auka mjög öryggi í
heimahúsum sem annars staðar
er trúlegt að bæjarbúar notfæri
sér þessa sérstæðu þjónustu kven-
félagsins. Frekari uppfýsingar
viðvíkjandi þessum tækjum verða
gefnar í síma 1279, 2195 og 1871.
Júlfus.