Morgunblaðið - 21.11.1976, Blaðsíða 4
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1976
Rammagerðiri^
Sendum um allan heim.
Allar sendingar full tryggðar.
Rammagerðin
Hafnarstræti 19, Hótel Loftleiðir.
Laugarnes-
prestakall
Prestskosningar fara fram í dag í
Laugarnesskóla kl 10—22 og
að Hátúni 12 fyrir Hátún 10,
10A, 10B og 12 kl 11 — 17
Stuðningsmenn Pjeturs Þ.
Maack hafa skrifstofu að Laugar-
nesvegi 79 s 86446 og
86520, þangað eru allir
velkomnir Þeir, sem þurfa bíl til
að fara á kjörstað hrinqi í s.
81545
Sýnum vilja í verki
Stuðningsmenn
^fye&díeri /zfaa7£//a/z<7zfzsf a
Jffe- ffyf'/rz/fsesfefff feá
/rufua&k?* - fasfuaz/zys.
Jff/awúan f/f/y/sz/2 sz
/rfaý fffsfTPf/zsrzf'/zazssrz, szzf
ffi/f/z/zdzze/áxzszz'.
fé'fmfae s/fffrsfœ/£?//'.
Borgarplast
■Tfni—nrihil »3-7370
kvVld og helfrslmi 93-7355
Baðherbergisskápar
Franskar rimlahurðir
Nýkomnir baðherbergisskápar
með rimlahurðum, margar gerðir.
Höfum einnig stakar rimlahurðir
í stærðunum 61 X40, 198x40, 61 X50, 198x50.
Óvenju falleg vara. Gjörið svo vel að líta inn.
Nýborg c§3
BYGGINGAVÖRUR
ÁRMÚLA 23 SlMI 86755
Bé emm tvöf altvaf f
þrjúhundruðogsextán
Bayerische Motor Werke (BMW),
bílaveksmiðjurnar bæjersku í
Múnchen í Vestur-Þýzkalandi hafa
löngum haft á sér orð fyrir að fram-
leiða „sportlega" fólksbíla og lagt
sérstaka áherslu á góða aksturs-
eiginleika auk styrkleika bílsins.
02- gerðirnar (1602, 2002) hafa
nú verið leystar af hólmi af 300-
gerðum (316, 318, 320 og 321).
Vélarstærðir eru 1600 til 2000
rúmsm. Ég fór nýlega í stuttan bíltúr
á BMW 316 — 318 og 320 gerð-
irnar eru með sama „boddý" en
stærri vél og smávægilegur annar
munur er á þeim. En svo vikið sé að
316 bílnum.
Þetta er svo sannarlega bill fyrir
þá, sem hafa gaman af að keyra.
Aksturseiginleikar eru þeir bestu
sem fyrirfinnast í bíl í þessum verð-
flokki — rúml. 2,2 millj. kr -
Þetta er einn þeirra bíla, sem
maður getur helst ekki hætt að
keyra. Stýringin er hæfilega þung
og sú nákvæmasta, sem völ er á
(rack and pinion). Stýrishjólið er
fremur lítið og sportlegt og leður-
klætt. Framsætin eru mjög góð og
akstursstaðan sérlega góð. Pedal-
arnir eru með passlegu millibili til að
bjóða upp á sportlegan akstur (hæl-
og- tá skiptmgar). Dempararnir eru
hæfilega stífir.
Verkfærum er nettlega fyrirkomið
í skottlokinu.
BMW 316 er fremur lítill bíll og
rými í ágætu aftursæti ekki mjög
mikið ef framsætin eru í öftustu
stöðu. Þá er einnig fremur lágt til
lofts aftur í. Lengdin er 435,5 sm
og breiddin 161 sm. Hægt er að
snúa við á hring 10.3m í þver-
mál.Venjuleg hæð undir lægsta
punkt bílsins er 14 sm en bílarnir
hér eru hækkaðir að aftan þannig að
þeir eru 216 sm hærri.
Vélin er fjögurra strokka 1573
rúmsm., þjöppun 8,3:1 og 90 hest-
öfl (DIN) við 6000 snún./min.
Bíllinn vigtar 1010 kg. óhlaðinn
og krafturinn má ekki vera minni þó
vart verði að honum fundið í venju-
legum akstri.
Hámarkshraðinn er um 160
km/klst og viðbragðið 0 — 100
km / klst 13,8 sek. Nokkur vélar-
hávaði heyrist inni í bílnum þegar
snúningshraðinn er mikill.
Miðstöðin, sem er þriggja hraða,
er mjög góð. Fyrirkomulag stjórn-
tækja er gott og er mælaborðið
sérlega smekklegt. Mælar hafa hvit-
ar tölur á svörtum grunni, sem gerir
álestur auðveldan.
Bllar
umsjón BRYNJÓLF-
UR HELGASON
Gúmmikantur er á bilnum að
utan, bæði á hliðum og stuðurum,
til að verja gegn minní háttar högg-
um, Farangursrýmið er allgott og
varadekkið fellt niður i gólf þess.
Bíllinn hefur lítla tilhneigíngu til
að renna til að aftan þó hratt sé keyrt
í beygjur.
Bremsurnar, sem eru diskar að
framan og borðar að aftan, eru frá-
bærar og taka mjög jafnt i. Dekkin
eru 1 3 tommu radial.
Verðið á BMW 3 1 6 er kr. 2.240
þúsund. 318 billinn kostar hins veg-
ar kr. 2.350 þúsund og BMW 320
kr. 2.460 þúsund.
Kristinn Guðnason hf, Suður-
landsbraut 20, hefur umboðið fyrir
BMW.
br.h.
Hér getur að líta nýjasta bllinn frá Ford í Evrópu. Hann nefnist Ford Fiesta og er þetta lúxusútgáfa hans, Ghia.
Sennilega hefur sjaldan eða aldrei jafn mikiS veriS fjárfest við a8 koma nýjum bll I framleiSslu. Alls eru þe8 um
400 milljón (125 milljarSar króna). Ford hefur leitast vi8 a8 taka mi8 af bflum I sama flokki vi8 framleiSslu
þessa blls og taldi helstu keppinautana i þvi sambandi Fiat 127, Renault 5. VW Polo, Peugeot 104 og Honda
Civic
Ford Fiesta er nokkru styttri en Escort. Um verSur a8 velja 3 vélar, 957 og 1117 rúmsm., 40, 45 og 53
hestöfl (DIN).
Vélin er a8 framan, liggur þvert og drffur framhjólin. Glerfletir eru stórir þannig a8 útsýni er gott. Ford Fiesta
verSur framleiddur I Bretlandi, Þýzkalandi og á Spáni. HingaS kemur Fiesta Ifklega ekki fyrr en næsta sumar.