Morgunblaðið - 21.11.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÖVEMBER 1976
41
Elton John
Flo and Eddie
Mannfred Mann
Alman brothers band
Ohio players
Osibisa
Gloria Gaynor
Mungo Jerry
Roger Wittaker
20 Soul and
Discogreats
Hit action
40 golden oldies
Beatles
Rolling stones
Blue Moves.
Moving targets
The roaring silence
The road goes
on forever.
Contradiction
Ojah Avake
Never can say goodbye.
Impala saga
Greatest hits
Ýmsir listamenn
Ýmsir listamenn
Ýmsir listamenn
Margir titlar
Margir titlar.
Classiskar Hljómplötur
Rachmaninoff Piano konsert no. 1
Dvorak Slavneskir dansar
Tchaikovsky SvanavatniS
Bach Brandenborgar- konsertar 1 — 6
Schubert Suk trio
Vagner Tannhauser
Myslivecék Abraham og Isack
Haydn Strengjakvartett
Mozart BrúSkaup Figaros
Gluck Orfeus og Efridls
Beethoven Piano sonötur
Chopin Walsar
Lizt Piano consert no. 2
Hljómplötur á kr. 91 5J
Paul Anka Songs 1 wish l've written
Duane Eddy Twangy guitar
Bert weepan Remembering Jim Reeves.
Paper Lace Best of
Jim Reeves Best of
Johnny Cash The great
Roger Wittaker Butterfly
Og ný TOP of the POPS plata no 54
SENDUM í PÓSTKRÖFU.
heimilistœki sf
Hljómplötudeild Hafnarstrœti 3-20455
eftir RAGNAR
BORG
Okkar peningar hafa haft
mynd af skjaldarmerkinu isl-
enzka á framhliðinni, en upp-
hæð mynteiningarinnar á bak-
hliðinni.
Seðlarnir frá Seðlabankanum
hafa þo verið notaðir til að
minna á þætti atvinnulífsins.
Til dæmis 5000 króna seðillinn,
sem ber mynd af virkjun, 500
króna seðillinn sem ber mynd
af sjómönnum við vinnu á
dekki báts o.s.frv. Er líklegt að
Seðlabankinn haldi áfram á
þessari braut. En væri ekki
upplagt að nota myntina líka til
að minna á sögu vora. Þetta
hefir verið gert með frí-
merkjum og í nokkrum löndum
hefir myntin einnig verið notuð
á þennan hátt.
Italskur vinur minn, sem
ferðast mikið, færði mér í sum-
ar að gjöf myntsett frá eynni
Möltu i Miðjarðarhafi. Hann
hafði verið þar á ferð og mundi
eftir því að ég safnaði mynt, er
hann rakst á þetta myntsett í
verzlun.
Ég hefi oft verið spurður um
það á ferðum mínum til Italíu
hvort ég væri ekki frá Möltu.
Þar er nefnilega ættarnafnið
Borg afar algengt, að því mér er
tjáð. Ekki hefi ég komið til
eyjarinnar, en langar mjög því
þar ku vera fallegt, og eyjan á
sér afar langa sögu.
Malta hefir verið i byggð allt
frá þvi frummaðurinn settist
þar að, en liklegast eru það
Fönikiumenn sem fluttust
þangað, sem urðu til að gera
hana að mikilvægari verzlunar-
miðstöð, löngu fyrir Krist.
Fundizt hafa gamlir grískir,
egypzkir og púnverskir pening-
ar á eynni frá hundgömlum
tíma. Á dögum Fönikiumanna
var eyjan sjáfstætt borgriki. Á
sjöttu öld fyrir Krist koma svo
Karþagómenn til skjalanna og
var eyjan undir harðstjórn
þeirra unz Rómverjar léðu
Möltubúum vernd og veittu
þeim sjálfstjórn. Möltubúar
máttu slá sina eigin mynt hafa
Myntin á Möltu minnir á
atburði úrsögu eyjarinnar
á hendi sinni heimastjórn, en
höfðu sendiherra í Róm. Við
klofning Rómaveldis árið 395
lenti Malta undir keisaranum í
Miklagarði. Árið 870 hertóku
svo Arabar eyjuna og lengi
fram eftir öld gekk á ýmsu.
Kossfarariddarar frelsuðu
eyjuna úr klóm Araba og síðan
lenti eyjan undir Anjou-
konungum. Einn þeirra veð-
setti eyjuna fyrir 30 þúsund
gullflórinur árið 120, en eyja-
skeggar losnuðu undan þessari
kvöð með þvi að borga skuld-
ina. Auðvitað varð það til þess,
að kóngurinn seldi öðrum koll-
ega sínum eyjuna fyrir sömu
upphæð 5 árum seinna. Svo fór
Malta að ganga í erfðir, eða
einhver, sem þurfti að þagga
niður I, fékk eyna gefins, og svo
fram eftir götunum. Þá koma
Jóhannesariddararnir til skjal-
anna og setja svip sinn á yfir-
stjórn og vernd eyjarinnar.
Seinasti stórmeistarinn af
Jóhannesarreglunni, sem kjör-
inn var yfirmaður á Möltu, fór
frá árið 1798. Þá tók Napóleon
Bonaparte yfirráð yfir Möltu,
með svikráðum á leið sinni til
Egyptalands. Siðan komust
Bretar með puttann I spilið og
hafa verið þar áhrifamiklir síð-
an. I seinni heimsstyrjöldinni
var Malta afar þýðingarmikil
herstöð og er sjálfsagt enn.
Skoðum nú myndirnar á
peningunum nánar og athugum
hvað þær eiga að minna á:
50 centa peningurinn sýnir
Minnismerkið mikla. Það var
búið til af listamanninum
Antonio Sciortino. Hann var
Möltubúi. Var það vígt árið
1927 og á að minna á fræga
vörn, er 9.121 riddari varðist
umsátri 38.500 tyrkneskra sjó-
ræninga og hermanna, og stöðv-
uðu þar framrás Tyrkja inn í
þennan heimshluta.
10 centin sýna mynd af
skrautskipi stórmeistarans.
Þetta skip notaði stórmeistar-
inn af Jóhannesarreglunni á 18
öld.
Var skipið, sem er með
galeiðulagi, notað við hátiðat-
hafnir á stórhöfninni.
5centa peningurinn sýnir
Blómaaltarið. Þetta altari er
fallega úthöggvið (2400 — 2000
f. Kr.)
2 cent sýna höfuð Penþesileu.
Hún var drottning skjaldmeyj-
anna og samkvæmt griskum
goðsögnum i bandalagi við
Trójumenn I striði þeirra við
Grikki. Hana drap Akkiles.
1 cent sýnir mynd af Georgs-
krossinum. Hann gaf Georg
sjötti Bretakóngur Möltubúum
árið 1942, er þeir höfðu staðizt
„eins og hetjur" loftárásir Þjóð-
verja og ítala í langa hrið og
voru orðnir matarlausir. Það
var í fyrsta sinn, sem þessi
kross hafði þannig verið veittur
heilli þjóð.
2 mils peningurinn sýnir
Möltukrossinn. Hann minnir
enn á Jóhannesarriddarana.
Þeir komu til Möltu eftir fjög-
urra alda krossferðatimabil
reglunnar til Jerúsalem og
Ródos. Þetta skjaldarmerki Jó-
hannesarriddaranna er nú
þekkt um allan heim sem
Möltukrossinn.
3 mils peningurinn sýnir
býflugur á búi sinu. Malta hefir
alltaf framleitt gæðahunang.
Fræðimenn hafa um það deilt
hvort heiti eyjarinnar er komið
af griska orðinu Meli, sem þúð-
ir hunang, eða hvort það er
afbökun á orðinu Meli, sem
þýðir himnar, og komið er frá
föneyskum sæförum.
5 mils peningurinn sýnir
Mnra, sem var oliulampi, sams
konar og notaður var á Möltu
allt fram á þann dag, er raf-
magnið leysi hann af hólmi.
Lampinn á myndinni hefir
mannslag.