Morgunblaðið - 21.11.1976, Blaðsíða 15
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1976
Grein sú, sem hér fer á eftir vai
upphaflega flutt sem erindi á
aðalfundi Landssambgnds stang-
veiðifélaga.
Jón
Hjartarson:
L
Ég var að fletta Hagtíðindum
um daginn og rakst þar á töflu um
fólksf jölda og fólksf jölgun á Is-
landi frá aldamótum. Þessi tafla
kom mér á óvart, þótt ég hefði átt
að vita megininntak hennar, því
af og til, og á hverju ári, eru
manntalstölur birtar í blöðum. En
þetta hefur einhvernvegin farið
framhjá mér, þvi ég er ungur og
timinn er fljótur að líða, og vafa-
iaust er ég ekki einn um það að
finnast ég vera þrítugur, eða jafn-
vel tvítugur, þótt nær fertugur sé.
En hvað um það. Ég las þarna að
þjóðinni hefur f jölgað um helm-
ing í minni tið. Við erum orðin
rúmlega 220 þúsund i þessu landi,
í stað 114 þúsunda árið 1938. Ég
veit að hér inni eruð þið margir,
sem munið þetta ár og önnur eldri
ár eins og þau hefðu verið í gær.
Svona er nú tíminn fljótur að liða.
Það þarf næstum því að segja sér
þetta tvisvar, áður en maður skil-
ur hvílík stökkbreyting það er að
þjóð fjölgi uiri helming á stuttum
tima. — Þjóð, sem í ellefu hundr-
uð ár hefur fæðst og fallið eins og
hver annar fénaður í landinu. Svo
fór ég að hugsa — og reyna að
muna hvernig þessi gömlu ár
höfðu verið. Höfnina í Reykjavík,
stuttbuxurnar og ullarnærbræk-
urnar, sem alltaf hengu niður
undan, bleika sokkabandið úr kot-
inu, sem hélt uppi hinum hötuðu,
snörpu brúnu ullarsokkum. Og ég
sá fyrir mér Reykjavík, sem þá
var orðin allstór borg, en með litla
umferð, eins og við þekkjum hana
i dag. Borg með víðáttumikil
braggahverfi og dreifðar byggðir
austur af, þar sem nú eru þéttbýl
ibúðahverfi. Hús við hús, sneisa-
full af fólki, sem við þekkjum
ekki. Ég dreif konuna og krakk-
ana út I bil að aka um bæinn, því
það var sunnudagur, og ég horfði
á byggðina eins og gestur, sem sér
staðinn í fyrsta sinn. Og hvílík
undrun. Það sem ég hafði marg-
sinnis áður séð, nam ég á nýjan
hátt í tengslum við þróun og for-
tið. Þarna voru Digraneshálsinn,
Fossvogurinn og Ártúnshöfðinn
komnir á kaf í hús. Upp úr blásn-
um urðum og grýttum sjólautum
Rjúpnahæða risu blokkir og rað-
hús sitt á hvað meðfram malbak-
uðum vegum. steinsteypt björg,
iðandi af lífi. Fyrir neðan Breið-
holt liðuðust Elliðaárnar sem
fyrr, en fjallahringurinn var það
eina sem mér fannst vera eins og
áður þennan dag.
Þetta er gott land sem við eig-
um. Okkur hefur fjölgað um
helming á hálfum mannsaldri.
Við höfum haft nær óslitin upp-
grip á einhvern hátt i nær fjöru-
tíu ár. Sild og hersetu, Marshall-
aðstoð, þorsk og loðnu og gott
árferði oftar en slæmt. Og það
sem eitthvað hallaðist á, vannst
það til baka með nýrri og sifellt
fullkomnari tækni á vélum og
búnaði eða stærri lánum. Við höf-
um notað tækifærin nokkuð vel.
Velmegun er mikil og tekjuskipt-
ing jafnari en almennt gerist úti I
hinum stóra heimi. Þjóðfélagslegt
öryggi er einnig bærilegt, jafnt
það sem varðar tryggingar og
sjúkrahjálp, atvinnu- og fræðslu-
mál og eignarétt. Við, sem vorum
í einangrun, höfum færst hratt að
þjóðleiðum. Þriðjungur fólksins
ferðast til útlanda á hverju ári og
útlendir ferðamenn streyma til
landsins. Samt er tungumálið
okkar hreinna og minna slettu-
skotið en þégar ég var drengur.
Meira og minna innfluttar póli-
tiskar stefnur hafa hér á landi
farið í gegn um þjóðlegar og
ihaldsamar skilvindur. Við erum
t.d. fleiri kommúnistar hér hlut-
fallslega en víðast annarsstaðar í
hinum vestræna heimi. Samt er
sósíalisering minni á tslandi en i
öðrum löndum, þar sem við þekkj-
um til. A sama hátt er fasismi
ýmiskonar nær óþekktur hér og
hægri menn finna sér stað f flokk-
um, sem i raun eru miðflokkar.
Allt þetta bendir til þess að ís-
lenskt þjóðerni sé meira en orðin
tóm. Við virðumst vera menn til
að velja úr utanaðkomandi áhrif-
um það sem okkur hentar, að
mestu leyti, svo sem búast má við
af þjóð, sem finnur til sín og býr
að gömlum arfi.
Þó verður ekki frá því litið að
við erum nýríkir, bæði I hugar-
heimi og I raun og veru. Meðferð
á verðmætum, meðferð okkar á
tíma og umhverfi hefur breyst á
ýmsan hátt frá þvi sem var, þegar
skortur beið á næsta leiti. Við
kaupum í skuld eins eðlilega og
afar okkar nurluðu saman hér
áður fyrri. Við eyðum á auga-
bragði þvi sem má geyma.
Hugsunarlaust, vegna þess að við
höfum gleymt að láta eitthvað á
móti okkur. Við erum kröfuharðir
og ákafir í óskum okkar og því
miður, allt of oft, stærstir i dóm-
um okkar um aðra. Slík umsögn
getur verið ósanngjörn. En af og
til er nauðsynlegt að spyrja hvort
hún sé það. „Það þarf sterk bein
tal að þola góða daga,“ sér i lagi
hjá þjóð. Nýrikur maður hefur
aðhald. Hann finnur fyrirlitningu
félaga sinna, verði hann af aurum
api. En þjóð á aðeins sig sjálfa.
Verði hún blind á galla sína, þá
hallar undan fyrir henni. Þegar
það hallar undan hjá þjóð skeður
ýmislegt, svo sem mannkynssagan
er órækast vitni um. Þegar at-
burðarásin er hröð er fólkið tekið
og herleitt. Slikt hefur margoft
gerst. Jafnvel þótt þjóðin sé
hraust og haldi vöku sinni. En
oftar verður þetta vegna atburða,
sem áttu sér langan aðdraganda
og sem menn vöndust, en eru aug-
ljós orsök ógæfunnar, þeim sem á
horfa siðar. Þegar við hættum að
hlýða landslögum og hreykjum
okkur af, þegar við styðjum laga-
setningar vegna þess að þær
koma okkur sjálfum til góða, þeg-
ar við þegjum móti sannfæringu
okkar, og þegar við vikjumst und-
an lýðræðislegri ábyrgð, þá erum
við að eyðileggja; svo einfalt er
það. Við þekkjum mörg dæmi
þess úr þjóðfélagi okkar, að hópar
manna taka sér rétt eða skemmi
með aðgerðum eða aðgerðarleysi
á einn eða annan hátt tilfinningu
almenningsálitsins fyrir réttu og
röngu. Við vitum sáralitið um
hvenær slikir atburðir eru eðlileg
frávik, hjá kröftugri ungri þjóð,
eða vaxandi þróun, sem mun leiða
til upplausnar fyrr eða síðar, en
við verðum sifellt að vera á varð-
bergi.
Á siðustu 38 árum f jölgaði okk-
ur íslendingum um 110 þúsund. Á
næstu 19 árum mun okkur f jölga'
svipað, og verða yfir 300 þúsund
talsins, ef að likum lætur. Nitján
ár eru fljót að liða. Við förum með
börnin okkar á gæsluvöllinn og
skömmu seinna, að þvi er okkur
sjálfum finnst, koma þau og eru
að fará að gifta sig. Við erum
orðin af ar og ömmur áður en við
vitum af, og allt er þetta eðlilegt
þeim sem eiga okkur að, þvi þau
þekkja ekki annað. En okkur er
það undrunarefni og ef við gefum
okkur tíma til að ihuga tímans rás
og stöldrum við augnablik, rif jum
upp hvaða augum við litum okkar
afa og okkar ömmur, og hvaða
umhverfi þau sátu, þá skiljum við
breytinguna, sem orðin er á
nokkrum áratugum. Þeir sem ól-
ust upp jafnt af móður mömmu
sinnar og pabba föður síns og
gátu margoft leitað til ellinnar og
trúað henni fyrir æskuvandamál-
um sinum, vita hvað ég er að fara.
En hvað eru þeir orðnir margir
uppalendurnir í þéttbýlis- og
streituþjóðfélagi okkar tima, sem
hafa gleymt hlutverki sinu svo
gjörsamlega að börnin eru slitin
úr tengslum við eldra fólkið og
þekkja varla frændur sina, hvað
þá heldur landið sitt og náttúru
þess. Þeir eru margir og þeim
f jölgar sífellt sem mitt i öllum
allsnægtunum gefa sér aldrei
tima til að lita upp. Það er svo
margt sem þarf að gera og það
liggur svo mikið á, þótt enginn
viti hvers vegna það liggur á, eða
að hverju er keppt. Aðlögunar-
hæfni mannsins breytir honum I
hjálpartæki véla sinna, án þess að
hann taki eftir þvi, og hann slitn-
ar úr tengslum, ekki aðeins við
gamlar venjur og hefðir, heldur
einnig við landið og unga fólkið,
sem hann á að vernda og kenna að
lifa I landinu. Þannig flytjum við
yfir á börnin með afskiptaleysi
okkar og lifsgæðagræðgi, þá galla
sem við höfum búið til óvitandi.
Við ætlum þeim að verða duglegir
þjóðfélagsborgarar og taka við af
okkur og við menntum börnin af
miklu kappi, svóþau geti unnið
og unnið hratt. En það hvarflar
ekki að neinum I öllu ríkidæminu,
með 38 stunda vinnuviku, að það
sé nauðsynlegt að kenna börnun-
um að nota fritima sinn, sem er
helmingi lengri en samanlagður
vinnu- og svefntimi. Já, kenna
þeim að nota fritímann öðruvisi
en við gerum. — Hinn dæmigerði
samnefnari okkar er dugnaðar-
forkur, en vinnur á tveimur til
þremur stöðum og þegar hann
lítur upp, þá keppist hann við að
hvíla sig og myndi sofa hratt ef
það væri hægt. — Ég er ekki að
lasta dugnað, heldur benda á
hættuna sem fylgir þvi, þegar hin
nýja unga kynslóð tekur við, sem
hefur alist upp við allsnægtir og
þráir ekki jafn ákaflega og við
hin, ýmiskonar efnislega hluti,
því þá mun hvatinn til að vinna
vera minni en nú og frítíminn ef
til vill geigvænlegt vandamál,
sem leiðir til upplausnar. Vinnu-
timinn styttist stöðugt, og þó
hann sé ekki nándar nærri eins
skammur enn og hin lögboðna
vinnuvika segir til um, þá mun
koma að því að svo verður, og það
hugsanlega fyrr en margur hygg-
ur. Þessi þróun, sem fer saman
með aukinni velmegun, verður
þvi aðeins til velferðar, ég endur-
tek, til velferðar, að við lærum að
nota frítímann til að aukast, að
þroska og bæta heilsu okkar I
eigin landi og með náttúru þess.
Orðin velmegun og velferð eru
nokkuð ný I málinu og greina á
milli jafn ólikra hluta og þeim
svipar saman. 1 sinni hrjúfustu
mynd er velmegun að vera sadd-
ur. Og á sama hátt er velferð að
vera óttalaus. Barnið, sem sýgur
brjóst móður sinnar hefur hvoru-
tveggja. Og I hnotskurn er öll leit
okkar manna og framþróun eins
og við nefnum hana, áfangaganga
að því markmiði að saman fari
þetta tvennt. Að við gleymum
þessu yfirleitt er ekki íhugunar-
efni út af fyrir sig, því tækifærin
koma ekki til okkar. Það erum við
sem búum þau til. En ef einhver
þjóð hefur nokkru sinni haft
möguleika til að stytta sér leið að
þessu marki og fara framhjá
happa og glappa hendingum
venjulegrar atburðarásar, þá eru
það Islendingar.
ísland var einu sinni harðbýlt
land. Þetta hefur nú breyst.
Tækni þessarar aldar hefur fært
það á svipaða breiddargráðu og
Skotland um aldamótin. Þokka-
legar likur eru til þess að fisk-
veiðar aukist jafnt og þétt með
fólksfjölgun. Iðnaður og verslun
mun vaxa hraðar en frumfram-
leiðslan á næstu áratugum og aðal
auðlind landsins, hin breiða
aldurssúla ungra manna, sem enn
eru I skólum, kemst í gagnið á
næstu árum. Á þessum sama tíma
þurfa þjóðirnar fyrir sunnan okk-
ur að vaxa á því sem þær þegar
hafa. Þær munu gera það. En
ekki nándar nærri eins hratt og
við, sem eigum land fyrir tífalt
stærri þjóð. Og þarna er ég ein-
mitt kominn að kjarna málsins.
Við eigum nefnilega land. Stórt,
fallegt og gott land. Og hreint
land. Ég þarf ekki að lýsa því
fyrir ykkur hvers virði það er að
njóta náttúru landsins okkar, að
fá að veiða i ám þess og vötnum,
að mega fara á fjöll, frjáls og
óháður, og finna það í bringunni
að þetta er land, sem maður á
sjálfur. Hver einasti maður, sem
ekki er andlega steinblindur,
gleðst með landi sinu og vex af
þvi, og ég held að maður, sem er í
andlegu og líkamlegu jafnvægi,
verði aldrei leiður á því. Landið
er þessvegna sífelldur gleðigjafi
hverjum heilbrigðum manni, en
um leið jafn augljóslega forsenda
þess að menn eiri um kyrrt og
haldi likamshreysti sinni og sálar-
ró. 5000 unglingar í Reykjavík,
sem fara á götufylliri eru að glata
sambandi við landið sitt. Tugþús-
undir manna, sem flýja land til
Afriku i sólina þar, eru að glata
landinu sínu. Þeir, sem láta sig
engu skipta hvernig með landið
er farið eða hvernig það er notað í
kaupum og sölu, eru að glata land-
inu sínu. Og þjóð, sem glatar land-
inu sinu; hún glatar sjálfri sér.
Við höfum alist upp við meiri
og minni aðdáun á framúrskar-
andi einstaklingum. Aðdáun á
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1976
51
mönnum, sem við álítum fremri
að greind, hæfileikum eða ein-
hverju öðru atgervi, og gætum
sjaldnast að þvi, að eitt af undr-
um mannlifsins er það, hvað okk-
ur er allt jafnt gefið I upphafi.
Menn sem við metum lítils breyt-
ast þegar við kynnumst þeim bet-
ur og vaxa af verkum sinum og
tækifærum
Góðir félagar. Með þeim hug-
myndum, sem ég hef sett hér
fram og sem ég hef lagt mikla
áherslu á, eins og þið hafið heyrt,
vil ég undirstrika það ástand sem
nú varir i útivistarmálum okkar
Islendinga. Á sama tima og allir
hlutir I okkar þjóðlifi hafa tekið
slikri stökkbreytingu að ekki
verður við neitt jafnað, fyrr né
siðar, búum við að lögum og
reglugerðum um landseignarétt-
indi, sem að stofni til og hugsun
eru erfð aftur ú grárri forneskju
og hafa litið breyst. Þar að auki
byggja þau á meira og minna
óljósum hugtökum fyrir okkur,
sem erum ekki staðkunnugir, og
þekkjum ekki landamerki eða
hvar landareign endar og afrétt
tekur við og almenningar af af-
rétt. Þetta kom ekki að sök fyrir
nokkrum áratugum, áður en þjóð-
flutningar hófust hér innanlands,
og áður en hundrað þúsund þétt-
býlismenn fæddust, en núna vit-
um við sjaldnast hvenær við erum
að brjóta rétt á öðrum. Við þekkj-
um ekki mörk hinnaýmsu af-
rétta, t.d. á Reykjanesskaganum,
né heldur hvar almenningur tek-
ur við hér i fjöllunum. Hve langt
getur landsréttur lögbýla náð?
Nær hann að fjallsbrún eða yfir
fjöllin? Nær hann inn á heiðar,
eins langt og augað eygir, í ein-
hvern stein eða strýtu eða hnjúk á
jökli? Eiga allar aðrar nálægar
jarðir land að sama marki, eða á
ein jörð land um afrétt og al-
menning þveran? Stundum er
hægt að fá svör við þessum spurn-
ingum með þvi að grúfa sig niður
í gömul skjöl á sýsluskrifstofum,
en jafnvel þótt eanhver tæki sig
til og gerði þetta af ástundun og
færði vitneskju sina inn á landa-
bréf, þá er það alveg vist ð á því
korti yrðu margar stórar hvitar
skellm-.
Að löggjöf okkar um eignarétt á
landi sé gömul tel ég ekki galla í
sjálfu sér, því að stofni til eru
flest okkar lög gömul og eiga sér
rót í fornri réttarvatund kyn-
stofnsins, og enginn má skilja orð
min þannig að ég viljaafnema
eignarétt á landi, en ég gagnrýni
það afskiptaleysi, sem hefur við-
gengist um almannarétt til lands,
og átel harðlega þann skort á
skilningi sem ýmsir landeigendur
og ríkisvald sýnir okkur, sem
landlausir erum. Landsréttarlög-
in, sem i eðli sínu eru búskapar-
lög, sett í upphafi til að vernda
lifsafkomu búenda, eru með
hverju árinu sem líður freklegar
notuð til að ganga á þann rétt,
sem við hljótum að hafa sem ís-
lenskir þegnar. Það er erfitt að
tala um þessi mál á breiðum
grundvelli, þvi mikill meirihluti
bænda og landeigenda tekur okk-
ur landleysingjum yfirleitt bæði
vel og virðulega þegar við biðjum
um leyfi til yfirferðar um löndin,
og gætið að þvi, að ég er ekki að
tala um það sem sjálfsagðan al-
mannarétt að mega tjalda I túni
bænda án leyfis, veiða I bæjar-
læknum án leyfis, eða höggva
skóg þar sem við viljum kveikja
eld, en það getur ekki verið sann-
gjarnt eða eðlilegt, að við séum
lögbrjótar i hvert sinn sem við
stígum yfir girðingu, ef við höfum
ekki beðið sérstaklega um leyfi
fyrirfram, en það er nú einmitt
tilfellið. Ég fæ ekki heldur með
nokkru móti skilið hvernig hægt
er að siga lögreglu á okkur i Blá-
fjöllum, þegar við göngum til
rjúpna, eða banna okkur að veiða
I fjallavötnum fjarri allri byggð.
Ég skil ekki heldur hversvegna
þörf fyrir að eiga land og vilji til
að kaupa það heitir brask nú til
dags, þegar það er bæjarmaður,
sem vill kaupa, en ekki bóndi.
Þannig má ýmislegt fleira telja
upp, sem okkur mislíkar, vegna
þess, að I það er haldið, og á þvi er
staðið, i skjóli úreltrar löggjafar
og forneskjulegs hugarfars, sem
mismunar mönnum í landinu eft-
ir þvi hvar þeir eru fæddir, eða
hvaða lifsstarf þeir hafa valið sér.
Þó er það af öllu verst, þegar
stórkostlegustu sumargæði lands-
ins eru seld útlendingum úr hönd-
um okkar og á ég þá við laxveiði-
árnar.
Engin iþrótt hefur náð jafn al-
mennum vinsældum hér á landa
og stangveiðiíþróttin. Við sem
þekkjum hvilikur gleðigjafi það
er að veiða á stöng, undrumst
ekki vinsældir íþróttarinnar hér
norður frá, meðal fólks, sem byrj-
ar að þrá næsta sumar strax og
haustar. Þetta er íþrótt sem menn
eru ekki áhorfendur að, heidur
þátttakendur í af lifi og sál, með
öllum litbrigðum og margbreyti-
leika Islenskrar sumarnáttúru.
Það er við árnar og vötnin, sem
margir finna og skilja í fyrsta
sinn, þannig að þeim verður það
aldrei siðar úr minni fært, hvern-
ig lif og land er eitt og hið sama
og'maðurinn með. Samt erum við
svo lánlausir að jafnframt þvi
sem við flýjum þúsundum saman
á sumrin til útlanda i leit að lífs-
gleði þar, seljum við útlending-
um, til einkaafnota, þessi stór-
kostlegu gæði, blygðunarlaust,
bara ef þeir borga nógu mikið. Og
við sem höfum rétt til þess sem
íslendingar að krefjast þessara
gæða fyrir okkur sjálfa, og við
hljótum að hafaþað, erum slíkir
kotungar að orðið „útlendinga-
timi“ er fast i málinu.
Utlendir menn, sem ekki aðeins
hafa rúm fjárráð, heldur draga
veiðiútgjöld sin frá skatti fyrir-
tækja sinna, sem risnu og ferða-
kostnað, og þurfa ekki að taka
þátt I neinum sameiginlegum
gjöldum og niðurgreiðslum okk-
ar, hafa fegurstu og bestu árnar
frá því seinast í júni til ágústloka.
Við aumingjarnir megum veiða í
þessum ám I júni, áður en laxinn
gengur og í september, þegar
bjarminn er farinn af honum. Og
ekki nóg með það. Ef við viljum
veiða í öðrum löndum, eins og
útlendingarnir veiða hér, þá fáum
við ekki gjaldeyrisyfirfærslu og
við fáum ekki heldur gjaldeyris-
yfirfærslu til að veiða i íslenskum
ám, sem aðeins eru seldar fyrir
dollara. Ástand þessara mála er
miklu verra en nokkur hyggur I
fljótu bragði. Mjög erfitt er að
afla sér upplýsinga um eðli samn-
inga og þessvegna nær ógjörning-
ur að fá heildarsýn á málin, en
svo virðist sem veiðifélög, stór og
smá, og einstaklingar og fyrir-
tæki, séu smám saman að verða
taglhnýtingar erlendra hags-
muna, og leppar útlendinga gagn-
vart veiðiréttarhöfum og löggjaf-
anum, eða leppar veiðiréttareig-
enda, sem sumir hverjir vilja ekki
semja beint við útlendinga. Þetta
hefur orðið til þess að stangveiði-
menn hafa alls ekki náð að sam-
einast um ákveðna, afgerandi
varnar- og baráttustefnu, þrátt
fyrir margar viljayfirlýsingar þar
um. Ymsir menn, sem við heföum
svo gjarnan viljað hafa með okk-
ur og getað sótt styrk til, reynast
deigir og loðnir i afstöðu sinni, á
meðan þeir sjálfir geta fengið
veiðileyfi fyrir sig og sina, eða
meðan þeim sjálfum er boðið af
Mr. þessum eða Mr. hinum að
veiða á útlendingatimanum. Til
þess að mönnum verði ljóst i hvi-
líka niðurlægingu þessi mál eru
komin i höndum bænda og ann-
arra landeigenda og rikisvalds,
sem er stærsti landeigandinn, hef
ég aflað mér eftirfarandi upplýs-
inga:
Laxá í Kjós:
I þessari á veiða aðallega út-
lendingar, en íslendingar fá leyfi
sem losna eða ganga ekki út.
Laxá í Leirársveit:
Þessi á, sem bændur leigja út
sjálfir, er öll seld útlendingum.
Islendingar, sem höfðu eina stöng
I ánni, buðust til að ganga inn i
hæsta boð útlendinga, en misstu
stöngina samt.
Grlmsá:
Bændur hafa sjálfir afhent
fyrirtækinu „Fish and Game" í
Bandarikjunum söluumboð frá
26. júni til 14. ágúst.
Kjarrá:
Kjarrá I Kjarrárdal, fram á
heiði, leigðu bændur Svisslend-
angum.
Norðurá: Þessi á er seld út-
lendingum frá 1. júlí til 6. ágúst.
Langá á Mýrum:
I þessari á fá nær eingöngu
útlendingar veiðileyfi i júni, júli
og ágúst, nema eitthvað hafi
brugðist.
Hftará:
Þessi á er leigð fyrir Ameri-
kana sem nota ána.
Haffjarðará:
Þessi á er seld föstum erlendum
viðskiptavinum ár eftir ár, svo
sem enska veitingamanninum
Forte.
Straumfjarðará:
Þessi á er dæmigerð útlend-
ingaá. Islendingar fyrst og síðast,
útlendingar þegar einhver veiði
er.
Laxá í Dölum:
I þessari á er niðurlæging Is-
lendinga algjör. Þeir eru bannað-
ir við ána.
Víðidalsá:
Þessi á er leigð af Islendingum,
sem hafa fasta erlenda viðskipta-
vini, frá 26. júní fram í ágúst.
Vatnsdalsá:
Þessa á hefur John Ashley
Cooper haft frá 1964 og selt veiði-
leyfi bæði innanlands og utan, án
heimildar til atvinnureksturs hér
á landi.
Laxá í Aðaldal:
Þessi á er leigð útlendingum
fyrir löndum þeirra jarða, sem
bóndinn í Nesi hefur umboð fyrir.
Hofsá:
Hofsá í Vopnafirði hefur B.D.
McDonald Booth rekið eins og
fyrirtæki fyrir útlenda veiðimenn
I mörg ár.
Sog:
I þessari á hefur besti tíminn i
júlí og ágúst verið leigður frönsk-
um veiðimönnum fyrir landi Al-
viðru.
Landsamband Islenskra stang-
veiðifélaga er samnefnari allra
stangveiðifélaga á tslandi. Það er
sameiningartákn stangveiði-
manna og hugmyndafræðilegur
leiðtogi þessarar útivistaríþrótt-
ar.
Ég álit það aðalverkefni Land-
sambands íslenskra stangveiði-
félaga að hefja veiðar Islendinga
úr þeirri niðurlægingu, sem þær
eru komnar í, og ég skora á aðal-
fund að fela næstu stjórn sam-
bandsins að .hafa öll önnur mál-
efni að aukaverkefnum þangað til
þessu hefur verið breytt.
Island fyrir tslendinga.
Jón Hjartarson.
MOKKAKAPUR
MOKKAJAKKAR
MOKKAHÚFUR
MOKKALÚFFUR
MIKIÐ ÚRVAL
RAMMAGERÐIN
HAFNARSTRÆTI 19
pioni:i<h
veggstrlgi í nátiúrulegum litum
90 sm breidd
mrntim
korkveggklœdning i veggfóöursformi
90 sm breidd
BYGGINGAVÖRUVERZUUN BYKI
K0PAV0GS SF
NÝBÝtAVEGl 8 SÍMI:41000
m
AugíýsingaKféíIdki: