Morgunblaðið - 21.11.1976, Síða 32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1976
Frábær plata fyrír alla f jölskylduna
Vísurnar sem sungnar eru á þessari hljómplötu, eru allar
úr Vísnabókinni. Þá bók kannast flestir íslendingar við,
enda hefur hún verið prentuð fimm sinnum á undanförnum
þrjátíu árum og selzt í meira en þrjátíu og fimm
þúsund eintökum.
1 Vísnabókinni er að finna gott sýnishorn af gömlum
vísum, þulum og þjóökvæðum, sem raulað hefur verið
við íslenzk börn öld eftir öld. Og að auki er þar að finna
ýmsan kveðskap nafngreindra höfunda frá síðari tímum.
Vísnabókin hefur öðlazt ómældar vinsældir og hún ætti
tvímælalaust að komast í hendur allra barna og
foreldra þeirra.
Iðunn, Skeggjagötu 1, sími 12923
KOMDU KISA MÍN - ÞAMBARA VAMBARA.
ÉG Á LÍTINN SKRÍTINN SKUGGA.
SOFÐU UNGA ÁSTIN MÍN.
BOKKI SAT í BRUNNI.
KRUMMI SVAF í KLETTAGJÁ.
BRÁÐUM KEMUR BETRI TÍÐ.
STÓÐ ÉG ÚTI í TUNGLSLJÓSI.
HANN TUMI FER Á FÆTUR
SUNNUDAGUR TIL SIGURS.
FYRR VAR OFT í KOTI KÁTT.
ÞAÐ VAR EINU SINNI STRÁKUR
KVÖLDA TEKUR
Leyniþjónusta Bandaríkjanna telur sig vita,
aó í Austur-Evrópuríki einu hafi kunnur
vísindamaður uppgötvað efni, sem orðið
gæti háskalegra og mikilvirkara en öll önnur
áður þekkt gereyðingarvopn. Og nú eru lögð
á ráð um það, hvernig takast megi að
hremma þessa uppgötvun. Víðfrægur
sirkus er látinn fara í’sýningarferð til lands
þessa.
„í fremstu röð ævintýralegrá og spennandi
bóka samtímans . . . í einu orði sagt:
stórfengleg.“ The New York Times
„Hammond Innes er fremstur nútíma-
höfunda, sem rita spennandi og hroll-
vekjandi skáldsögur.“ Sunday Pictorial
„Hammond Innes á sér engan líka í að
semja spennandi og ævintýralegar
skálasögur.“ Elizabeth Bowen, Tatler
Rambo var stríðshetja. Hann var mótaður af
miskunnarlausri styrjöld, þar sem mannslífin
voru lítils metin. Hann var þrautþjálfaður til
hvers konar harðræða . . . í friðsælli smáborg
þekkti hann enginn, en hann var framandi og
líklegur til að valda vandræðum. Þess vegna
var honum vísað brott og engan grunaði
hinn skelfilega eftirleik . . .