Morgunblaðið - 26.11.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1976
Góðar fisksöl-
ur í Grimsby
TVÖ SKIP, skuttogarinn Dagný ufsi og karfi, en Bretar hafa
frá Siglufirði og Ifnubáturinn
Fróði, seldu fisk I Grimsby í gær
og fengu bæði skipin mjög gott
verð fyrir aflann.
Dagný seldi alls 85 lestir fyrir
12.1 millj. króna og var meðalverð
á kíló kr. 143. Segir i söluskeyti
frá Grimsby að gæði aflans hafi
verið mjög mikil og verðið eftir
því, en stór hluti aflans hafi verið
Viðræður
að hefjast
um leigu á
Norglobal
FRAMKVÆMDASTJORAR
tsbjarnarins i Reykjavik og
Hafsíldar h.f. á Seyðisfirði,
þeir Jón og Vilhjálmur
Ingvarssynir, halda til Noregs
n.k. sunnudag til að ræða um
leigu á bræðsluskipinu
Norglobal við eigendur þess.
Eins og kunnugt er hefur
Norglobal verið hér við land
tvær siðustu loðnuvertiðir og
tekið á móti mikilli loðnu, t.d.
var skipið hæsti einstaki lönd-
unarstaðurinn bæði í fyra og
hitteðfyrra. Á s.l. loðnuvertíð
tók skipið á móti nærri 60 þús-
und lestum, og verðmæti
afurðanna var nokkuð yfir 500
millj. króna.
Ef skipið fæst leigt í vetur og
ekki kemur til neinnar stöðv-
unar á loðnuflotanum né í
landi, má fastlega gera ráð
fyrir að skipið geti brætt
a.m.k. 70 þús. lestir af loðnu og
miðað við núverandi afurðar-
verð loðnu, er útflutningsverð-
mæti þessa magns tæpur millj-
arðurlcróna.
aldrei verið sérstaklega hrifnir af
þeim fisktegundum.
Fróði seldi 63.3 lestir af línu-
fiski fyrir 10.4 millj. króna og var
meðalverð á kíló kr. 165, sem mun
vera næst hæsta meðalverð, sem
Islenzkt skip hefur fengið á brezk-
um markaði.
Langanes frá Þórshöfn átti enn-
fremur að selja í gær. Báturinn er
með lausfrystan þorsk og rækju
og af einhverjum ástæðum þurfti
að bíða með söluna þar til i dag.
INNLENT
Ljósm. Mbl.: Friðþjófur.
Tvö loðnuskip komu með afla til Reykjavíkur í vikunni. Voru það Gísli Árni og
Helga 2. sem bæði voru með fullfermi.
Verðmæti sumarloðnuafurða
komið yfir 1 milljarð króna
Svartolía
hækkar
um 10,5%
FRÁ OG með deginum i dag
hækkar svartolia í verði. Hækkar
hvert tonn úr 19 þúsund krónum í
21 þúsund krónur, og nemur
hækkunin 10.5% Verðhækkun
þessi er eingöngu vegna erlendra
verðhækkana. Rikisstjórnin stað-
festi þessa hækkun í gær, en áður
hafði hún hlotið samþykki í verð-
lagsnefnd.
ÞEIR loðnubátar sem voru
á loðnumiðunum norður af
Vestfjörðum í fyrrakvöld,
fengu allir góðan afla og
héldu þrír af fimm bátum,
sem úti voru til lands í
gærmorgun. Gísli Árni RE
var með 530 lestir, Súlan
EA með 570 lestir og Kap
VE með um 400 lestir.
Gísli Árni og Kap héldu til
Siglufjarðar, en ekki er
Mbl. kunnugt um hvert
Súlan hélt. Talið er að út-
flutningsverðmæti sumar-
loðnuaflans sem er komin
yfir 90 þús lestir sé yfir 1
milljarð kr. Tólf skip
stunda nú loðnuveiðar, og
voru flest þeirra í landi í
fyrrakvöld, þar sem spáð
var leiðjndaveðri. Það fór
hins vegar svo að veður var
nokkuð gott á loðnumiðun-
um og köstuðu bátarnir í
4—5 vindstigum og óreglu-
legri öldu. Köstin, sem
þeir fengu, voru yfirleitt
mjög góð.
Mikil loöna virðist nú vera á
veiðisvæði bátanna og eiga sjó-
menn jafnvel von á að geta elt
loðnuna austur fyrir land og
vestur með vesturströndinni, er
líður á, en veiðin mun að sjálf-
sögðu byggjast mest á góðri tíð.
Frá því að loðnuveiðar hófust í
sumar hefur verið landað nokkuð
yfir 90 þús. lestum og þarf ekki
annað en að koma tvær góðar
veiðinætur til þess, að 100 þús.
tonna takmarkinu verði náð.
Eftir þeim uppwýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér,
mun útflutningsverðmæti sumar-
ioðnuaflans vera komið yfir 1
milljarð króna., og er þá miðað
við að ein 9000 tonn af lýsi hafi
fengist úr loðnunni og 12—14
þúsund tonn af mjöli.
18 nótaskip lengd eða
byggt yfir þilfar þeirra
LJÓST er að afkastageta
loðnuflotans íslenzka mun
aukast mikið í vetur, því
samkvæmt þeim upplýs-
ingum, sem Morgunblaðið
aflaði sér hjá Siglinga-
málastofnuninni í gær, þá
verða 18 nótaskip lengd
eða byggt yfir þau eða
hvort tveggja. Eitt þeirra
skipa sem byggt verður yf-
ir, er Akranestogarinn
Víkingur sem að bera
nærri 1300 tonn af loðnu
eftir breytingu, þá er enn-
fremur verið að byggja yf-
ir Sigurð RE, en þessi skip
eru systurskip. Reikna má
með að burðargeta hvers
skips aukist að meðaltali
um 200 tonn.
Skipin, sem verið er að
byggja yfir eða lengja, eru
þessi: Pétur Jónsson KÓ,
Loftur Baldvinsson EA,
Hilmir SU, Jón Finnsson
GK, Hópsnes GK, Örvar
SH, Náttfari ÞH, Ólafur
Friðbertsson ÍS, Sigurður
RE, Pétur Jóhannsson SH,
Skírnir AK, Víkingur AK,
Huginn VE, Gullberg VE,
ísleifur VE, Örn KE,
Albert GK og Harpa KE.
Séra Jón D. Hróbjartsson
hlaut flest atkvæði í lög-
mætri kosningu MBB
ATKVÆÐI 1 prestskosningum
I Laugarnessókn 1 Reykjavík
voru talin á Biskupsstofu 1 gær.
Umsækjendur voru tveir, sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson og
Pjetur Þ. Maack guðfræðingur.
Á kjörskrá voru 3.018 og
kusu 2159. Séra Jón Dalbú Hró-
bjartsson hlaut 1.089 atkvæði
og Pjetur Þ. Maack 1037 at-
kvæði. Auðir seðlar voru 24 og
ógildir 9. Kosningin var lög-
mæt.
Mbl. náði tali af sr. Jóni D.
Hróbjartssyni í gær og innti
hann fyrst eftir því hver væri
að hans mati skýringin á þess-
ari miklu kjörsókn, en hún var
um 72%.
— Það hefur ekki verið svo
mikil kjörsókn um langan tíma
hér í Reykjavik, sagði sr. Jón,
og á hún sér sennilega margar
skýringar. Laugarneshverfi er
afmarkað hverfi og fólk þar er
sér þess vel meðvitandi um það,
þar eru margt fullorðinna, sem
sýnir kirkju og kristindómi
mikinn áhuga. Einnig má nefna
að mikið var unnið af hálfu
beggja umsækjenda og stuðn-
ingsmanna þeirra og langt er
siðan kosið hefur verið í þessu
hverfi.
Þá var hann spurður um álit
á prestskosningum:
— Þetta er bundið í lögum
Framhald á bls. 25
Séra Jón Dalhú Hróbjartsson
Sjálfstæðisflokkurinn:
Flokksráds- og formanna-
rádstefna hefst í dag
FLOKKSRÁÐ- og formanna-
ráðstefna Sjálfstæðisflokksins
hefst 1 Reykjavfk 1 dag, föstu-
dag, kl. 15 að Hótel Esju. Ráð-
stefnur þessar eru haldnar ann-
að hvert ár eða þau ár sem
landsfundir flokksins eru ekki
haldnir. Á ráðstefnunni eiga
sæti fulltrúar vlðs vegar að af
landinu.
Ráðstefnan sem stendur í tvo
daga, hefst með þvi, að formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, Geir
Hallgímsson forsætisráðherra
flytur setningaræðu. Að henni
lokinni fer fram kjör stjórn-
málanefndar og síðan flutt
framsögúerindi i tveimur sér-
málum, er tekin verða fyrir á
fundinum — þ.e. „Kjördæma-
skipan og kósningalög", sem
Gunnar Thoroddsen, iðnaðar-
ráðherra, og varaformaður
Sjálfstæðisflokksins fjailar um,
og „Staða stjórnmálaflokkanna
i löggjöf“, sem Ellert B Schram,
aiþingismaður, fjallar um. Að
framsöguræðum loknum fara
fram almennar umræður.
Fyrir hádegi á laugardag
starfa starfshópar en eftir há-
degi verður gerð grein fyrir
umræðum í starfshópum, lögð
fram drög stjórnmálayfirlýs-
ingar flokksráðs og formanna-
fundarins, umræður um stjórn-
málaviðhorfið og stjórnmála-
yfirlýsing afgreidd. Áætlað er
að Flokksráð og formannaráð-
stefnu Sjálfstæðisflokksins
ljúki siðari hluta laugardags.
Erindið var að eiga
blaðasamtal við stúlkuna
KOMIÐ hefur i ljós hvert var
erindi piltanna tveggja á fund
eina kvenfangans í Hegningar-
húsinu við Skólavörðustig að-
fararnótt s.l. miðvikudags, en
piltarnir vofu gripnir i fangelsis-
garðinum eins og kom fram I frétt
Mbl. I gær. Erindi piltanna reynd-
ist vera það að taka viðtal við
stúlkuna fyrir unglingatímarit
eitt í borginni. Stúlkan situr I
gæzluvarðhaldi vegna Geirfinns-
málsins og buðust piltarnir að
fyrra bragði til þess að reyna að
ná fundum stúlkunnar og taka við
hana viðtal gegn góðri borgun.
Gekk tímaritið að tilboðinu, en
áður en viðtalið gat farið fram
komst lögreglan i spilið og gerði
áform piltanna að engu.