Morgunblaðið - 26.11.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1976
5
Fundir kirkjuþings fara tram i nnoarsal 1 Hallgrímskirkju.
Frá kirkjuþingi:
Leikmenn taki meiri þátt
í kirkjulegu starfi
A KIRKJUÞINGI þvl, sem nú
stendur yfir I Reykjavík, hafa
komið fram tillögur sem miða
að þvl að leikmenn taki meiri
þátt I starfi kirkjunnar. Er önn-
ur tillaga, sem lögð hefur verið
fram á þinginu, frá sr. Pétri
Sigurgeirssyni, vtgslubiskupi,
þess efnis að þingið hvetji til
þess að leikmenn annist guðs-
þjónustur á almennum bæna-
degi á þeim stöðum, sem prest-
ur getur ekki komið þvl við að
flytja messu þann dag.
Frá sr. Þorbergi Kristjáns-
syni hefur komið sú tillaga að í
fjölmennum prestaköllum skuli
það heimilt að ráða leiía starfs-
menn, er taki laun úr ríkissjóði,
að því marki sem styrkur úr
Kristnisjóði hrekkur ekki til.
Af öðrum málefnum sem
hafa komið til umfjöllunar á
kirkjuþingi, má nefna ályktun
um kirkjuhús I Reykjavík, og
eru flutningsmenn sr. Pétur
Sigurgeirsson og Hermann Þor-
steinsson. Segir að þingið skuli
beina þeim eindregnu tilmæl-
um til rikisstjórnarinnar, Al-
þingis og borgaryfirvalda að ljá
byggingarmáli þess stuðning og
vænti þess að kirkjuhúsið megi
sem fyrst rísa af grunni. Þá
flytur sr. Jón Einarsson tillögu
til þingsályktunar um að skipuð
verði nefnd til að gera úttekt á
fjárhagsstöðu íslenzku þjóð-
kirkjunnar og fjármagnsþörf
hennar, og skili sú nefnd tillög-
um fyrir næsta kirkjuþing.
Menntamálaráðherrafundur Norðurlanda:
Vilja hækka bók-
menntaverðlaunin
Menntamálaráðherra-
fundur Norðurlanda, sem
haldinn var í Kaupmanna-
höfn fyrr í þessum mánuði,
hefur lýst stuðningi sinum
við að bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs verði
hækkuð sem allra fyrst úr
50 þúsund dönskum krón-
um í 75 þúsund d.kr. eða i
um það bil 2.4 milljónir ís-
lenzkra króna.
Verðlaunafjárhæðin hef-
ur verið óbreytt frá önd-
verðu eða í 15 ár. Einnig
voru fundarmenn hlynntir
því að gert yrði ráð fyrir
sérstökum styrk að fjár-
hæð um 25 þúsund d.kr.
handa rithöfundi, sem birt
hefði fyrstu bók sína á
þremur næstu árum á und-
an styrkveitingu.
Á fundinum kom einnig fram,
að gert er ráð fyrir nokkurri
skipulagsbreytingu á úthlutun
bókmenntaverðlaunanna, þannig
að fulltrúar frá Sömum, Færey-
ingum og Grænlendingum ættu
eftirleiðis aðild að úthlutunar-
nefndinni og að sama nefnd ann-
aðist einnig styrkveitingar til út-
gáfu norrænna rita i þýðingu á
máli grannþjóðanna. Nefnd þessi
fjallar einnig um úthlutun hins
nýja 25 þúsund króna styrks, ef
samþykktur verður, segir í frétta-
tilkynningu frá menntamálaráðu-
neytinu um þennan fund, sem
Birgir Thorlacius, ráðuneytis-
stjóri, sat af Islands hálfu.
Ljósmyndasýning í Eyjum
GUÐMUNDUR Sigfússon, ljósmyndari I Vestmannaeyjum, hefur opn-
að sýningu á myndum sínum í Agógeshúsinu í Vestmannaeyjum. Á
sýningunni eru 66 myndir, bæði i lit og svart-hvitu. Eru þetta gosmynd-
ir, myndir frá sjónum, úteyjum, portretmyndir og ýmsar fleiri myndir.
Sýningin er opin klukkan 20—22 á virkum dögum en á laugardag og
sunnudag verður opið kl. 14—22. Sýningunni lýkur á sunnudag.
Meðfylgjandi mynd er frá sýningunni.
Kanna
hvers
vegna
þorskurinn
gefur sig til
HAFRANNSÓKNASKIPIÐ Arni
Friðriksson er um þessar mundir
úti af Vestfjörðum við rannsókn-
ir, sem fram til þessa hafa ekki
verið stundaðar á fiskstofnunum
við tsland að neinu ráði, en starfs-
menn Hafrannsóknastofnunar-
innar eru nú að hefja viðtækar
rannsóknir á hreyfingu þorsksins
miðað við hitastig sjávar og mis-
mun ætis. Morgunblaðið ræddi í
gær við dr. Sigfús Schopka fiski-
fræðing um borð i Árna Friðriks-
syni.
„Við erum nú að fara í verkefni
í sambandi við þorskinn, fylgjast
með hreyfingum þorsksins á mið-
unum frá Halanum og að Strand-
grunni, með tilliti til breytinga
sem verða á hitastigi sjávar og æti
fisksins. Við erum nú búnir að
vera 2 daga við þessar rannsóknir
og verðum 10 í viðbót í þessari
lotu. Á þessu svæði þéttist oft
fiskur og gefur sig til og við erum
að rannsaka nánar hvað veldur
því. Hitaskilin, sem eru þarna
víða, hafa ugglaust mikil áhrif en
þetta hefur lítið verið kannað.
Slik rannsókn kostar mikla yfir-
legu á svipuðum slóðum og athug-
un á breytingum frá degi til dags.
Þetta er byrjúnin á stærra verk-
efni sem þarf að gera á ýmsum
árstíðum. En með þessu vonumst
við til að geta varpað ljósi á það
mál, hvað veldur að fiskurinn gef-
ur sig til með tilliti til breytinga á
umhverfisástandi og æti. Vest-
fjarðamiðin eru talsvert sérstakt
svæði í þessu tilliti við landið, en
þó er ástæða til að gera þessar
rannsóknir viðar.“
Laugavegur 66
□ ULLARKVENKÁPURNAR VINSÆLU KOMNAR
AFTUR. MJÖG GOTT VERÐ.
□ DÖMUKULDAJAKKAR □ SÍÐAR DÖMUPEYSUF
□ DÖMUFÖT Q HERRAPEYSUR
□ GRÓFRIFFLAÐAR FLAUELSBUXUR.
□ „CAVALIRY TWILL" TERELENE & ULLARBUXUR
O.M.FL.
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
iLfivhV±vrji:i
Laugavegi 66
Simi (ró skipUxyði 28156
Laugavegur 20
□ MJÖG ÓDÝRIR VATTERAÐIR NYLON
STUTTJAKKAR
□ HERRAKULDAJAKKAR „SAILOR"
□ KJÓLAR PILS FÖT MEÐ OG ÁN VESTIS
□ NÝJAR GERÐIR DENIM BUXUR.
□ STAKIR FLAUELSJAKKAR O.M.FL: