Morgunblaðið - 26.11.1976, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1976
BÆKUR — BÆKUR — BÆKUR — BÆKUR — BÆKUR — BÆKUR — BÆKUR
Skuggsjá:
S jóf erðasögur og æviminning-
ar burðarásinn í útgáfunni í ár
BÓKAÍJTGAFAN Skuggsjá send-
ir frá sér alls 18 titla á þessu
hausti. 11 þerrra eru eftir ís-
lenzka hiifunda, tvær fræðibækur
og 9 bækur með lýsingum eða
frásögnum fðlks. Tvær þýddar
bækur koma út hjá útgáfunni auk
5 þýddra skáldsagnakilja, en þar
á meðal eru þrjú hefti í flokknum
Rauðu ástarsögurnar.
Farmaður 1 friði og strfði heitir
bók eftir Jóhannes Helga. I þessu
verki segir frá minningum Ólafs
Tómassonar, sem lengi var stýri-
maður hjá Eimskip. Minningar
þessar ná til þess er Ólafur fór
sína fyrstu sjóferð sem barn að
aldri á Motor Hans, og til þeirrar
stundar er þýzkur kafbátur sökkti
Dettifossi undan Ólafi í lok síðari
heimsstyrjaldarinnar. Breið-
firskir sjðmenn nefnist bók eftir
Jens Hermansson. í henni er rak-
in sjósóknarsaga á Breiðafirði.
Eru það sannar sagnir allt frá
fyrstu tíð. Faðir minn —
Skipstjórinn er þriðja bók útgáf-
unnar, sem fjallar um sjó-
mennsku. Þessi bók hefur að
geyma fjórtán þætti um látna
skipstjóra, farmenn og fiskimenn,
sem sakir sérstæðra eiginleika
harðfylgi og dugnaðar urðu hver
með sínum hætti áberandi menn i
íslenzku þjóðlífi. Þættir þessir
eru skráðir af börnum þessara
látnu skipstjóra. Llf og lífsvið-
horf nefnist bók þar sem séra Jón
Auðuns segir frá uppruna sínum
og uppvaxtarárum á Isafirði. Seg-
ir hann frá innlendum og erlend-
um mönnum sem hann telur ein-
hvern hafa mótað lífsvið horf sin.
Þá greinir hann frá afstöðu sinni
til ýmissa guðfræðikenninga og
ræðir um trúmál og kynni sin af
ráðgátum dulsálfræðinnar. Þór-
oddur Guðmundsson frá Sandi
ritar bók um Guðrúnu Oddsdótt-
ur, fyrstu húsfreyjuna á Sandi í
Aðaldal. en Guðrún var gift hinu
þjóðkunna skáldi Guðmundi
Friðjónssyni. I þessari bók er ævi
Guðrúnar lýst, ævi alþýðukonu,
ævi andstæðna og harðrar lífsbar-
áttu, þar sem á togast veruleiki og
skáldskapur.
Skuggsjá sendir frá sér bók þar
sem rakin eru minningarbrot
Sigurðar Haralz, en hann var m.a.
landskunnur fyrir bækur sinar
Lassaróni og Emigrantar. Þessi
bók um Sigurð nefnist 1 moldinni
glitrar gullið og er eftir Kormák
Sigurðsson. Koma margar við sögu
í þessari bók, m.a. Guðbrandur í
Rikinu, Sigurður Jónsson,
forstjóri Tóbakseinkasölunnar,
o.fl., o.fl. Eiríkur Sigurðsson ritar
austfirska þætti í bók er nefnist
Af Sjðnarhrauni. Segir hér frá,
m.a.,listamönnunum Finni Jóns-
syni og Jóhannesi Kjarval, dr.
Stefáni Einarssyni og móður
hans, Margréti Jónsdóttur hús-
freyju á Höskuldsstöðum í Breið-
dal. Ennfremur segir frá prentlist
á Austurlandi, upphafsmönnum
hennar og menningaráhrifum
o.fl, o.fl. Gamlir grannar nefnist
bók með frásögnum af gömlum
Breiðfirðingum og lífinu i eyjun-
um og við Breiðafjörð, eins og það
gerðist á fyrri tið. Eru þetta frá-
sagnir af dugmiklu fólki, sem
ekki var mulið undir. Rýnt I forn-
ar rúnir heitir bók eftir Gunnar
Benediktsson. Eru þetta ritgerðir
i sambandi við frásagnir fornra
rita íslenzkra. Varpað er nýju
ljósi á ýmsa kunna atburði ís-
landssögunnar.
Hjá Skuggsjá kemur út bók eft-
ir hina öldnu skáldkonu Elín-
borgu Lárusdóttur. Heitir þessi
bók Sannar dýrasögur.en með
henni lýkur Elínborg rit-
höfundarferli sínum, segir í
fréttatilkynningum frá Skuggsjá.
1 bókinni segir Elinborg frá dýr-
um þeim sem hún umgekkst og
unni sem barn, og öðrum skepn-
um sem hún síðar umgekkst sem
prestfrú að Mosfelli. Níunda
bindi einu heildarútgáfu
Islendingasagna sem fáanleg er
með nútimastafsetningu kemur
að þessu sinni út hjá Skuggsjá.
Heitir það Islendinga sögur með
nútlma stafsetningu IX. r þetta
nafna- og atriðisorðaskrá, en
atriðisorðaskráin er nýlunda með
útgáfu íslendinga sagna. Dular
mögn hugans heitir bók eftir
Harold Sherman. Þetta er bók
sem fjallar um þá hugorku og
yfirskilvitlega hæfileika, sem al-
mennt eru nefndir ESP. Fjallað
er um hugsanaflutning, huglækn-
ingar, hugboð, fyrirboða, fjar-
skyggni, drauma og dáleiðslu og
sitthvað felira.
Bókina þýddi Ingólfur Arna-
son. Vogun vinnur heitir önnur
þýdd bók som kemur út hjá
Skuggsjá að þessu sinni. Er hún
eftir Sir Edmund Hillary, en sá
fjallagarpur rekur hér sögu sína
og ævintýralíf, en segjá má að
leynst hafi hætta við hvert fót-
mál. Bókina þýddi Hersteinn
Palsson. Loks koma út hjá Skugg-
sjá afþreyingarbækurnar
Hamingja hennar eftir Theresu
Charles, Fórnfús ást eftir
Barböru Cartland, Við bleikan
akur eftir Margit Söderholm,
Systir Marla eftir Else-Marie
Nohr og Enga karlmenn takk eft-
ir Sigge Stark.
Njörður F. Njarðvík
Séra Jón Auðuns
Hannes Pétursson
Þóroddur Guðmundsson.
Idunn, Hladbúd og Skálholt:
Um fjörutíu bækur í ár
Systurforlögin Iðunn, Hlaðbúð
og Skálholt munu gefa út 1 ár um
fjörutfu bækur, þegar með eru
taldar endurprentanir á eldri út-
gáfubókum forlaganna.
Eftir Hannes Pétursson kemur
út bókin ÍJr hugskoti.Þessi bók
hefur að geyma frumsamin kvæði
og laust mál, en þetta er 14. frum-
samda bók höfundar. Einleikur á
glansmynd nefnist ný skáldsaga
úr nútímalífinu eftir Þorgeir Þor-
geirsson, en form þessarar bókar
mun vera nýstárlegt, segir í
fréttatilkynningu forlaganna.
Pétur Gunnarsson sendir frá sér
sína fyrstu skáldsögu, sem heitir
Punktur, punktur, komma, strik.
Kafla úr þeirri bók hefur hann
lesið upp í Háskolabíói og úti á
landi. I leit að sjálfum sér nefnist
önnur bókin frá hendi Sigurðar
Guðjónssonar, sem áður hefur
gefið út bókina Truntusól. Þessi
bók er nk. skýrsla hreinskilins
ungs manns um baráttu hans við
að finna fótfestu í lífinu, festa
hendur á lífsgildum, sem duga.
Saga frá Skagfirðingum er fyrsta
bindi mikils sögurits í árbóka-
formi eftir Jón Espólín og Einar
Bjarnason, sem fjallar um árabil-
ið 1685—1847, en ýtarlegar skýr-
ingar og viðaukar Kristmundar
Bjarnasonar fræðimanns á
Sjávarborg færa m.a. söguna nær
nútímanum. Auk Kristmundar
annast útgáfuna Hannes Péturs-
son skáld og ögmundur Helgason
BA. — Þá kemur út safnrit eftir
Stefán Vagnsson frá Hjalta-
stöðum í Skagafirði. Hefur það að
geyma endurminninga- og
frásöguþætti, þjóðsögur og nokk-
urt sýnishorn af kveðskap
Stefáns.
Unnið er að Utgáfu á fyrra
bindi ritverks er nefnist
Svarfdælingar, og er vonast til að
það geti komið út fyrir jól. segir i
frétt forlaganna. Hefur þetta
bindi að geyma ábúendatal í
Svarfaðardal jafnlangt aftur og
heimildir ná og jafnframt er getið
niðja allra ábúenda. Höfundur-
inn. Stefán Aðalsteinsson, féll frá
áður en setning ritsins hófst, og
kom það í hlut dr. Kristjáns
Eldjárns að fylla það skarð er þar
var fyrir skildi, varðandi síðasta
frágang handritsins til prentunar
og jafnframt ritar hann formála
verksins.
Hjá forlögunum koma út fjorar
bækur eftir dr. Gylfa Þ. Gíslason.
Þrjár þeirra eru samdar til not-
kunar í menntaskólum og öðrum
framhaldsskólum, en þar eru
bækurnar Bókfærsla, Þættir úr
viðskiptarétti og Þættir úr
rekstrarhagfræði. Fjórða bókin,
Bókfærsla og reikningsskil, er
námsbók í viðskiptafræðum við
Háskóla Islands, og jafnframt
notadrjúg har.dbók allra þeirra
sem annast bókhald, uppgjör og
endurskoðun. — Veðurfar á
Islandi nefnist bók eftir Markús
Einarsson veðurfræðing , þar sem
meginþáttur islenzks veðurfars
eru gerð skil. Þá kemur út bók
eftir dr. Magnús Pétursson
háskolakennara i Hamborg, sem
nefnist Hljóðfræði. Þessi bók er
lýsing á hljóðmyndun í íslenzku,
og er fyrsta rit sinnar tegundar á
íslensku. Er þetta fyrsta bók úr
fyrirhugaðri ritröð varðandi nám
og kennslu, sem Iðunn gefur út að
frumkvæði Kennaraháskola ísl-
ands.
I sama flokki bóka kemur út
bókin lslenzkar bókmenntir til
1550. Hún er eftir þá Baldur Jóns-
son, Indriða Gíslason og Ingólf
Pálmason, en þetta er ágrip
íslenzkrar bókmenntasögu á
þessu tfmabili, ætluð skólum og
almenningi. Auk þessara kemur
einnig út hjá forlögunum bókin
Setningarfræði, málfræði, hljóð-
fræði. Hún er eftir Ingólf R.
Björnsson íslenzkukennara og er
einkum ætluð til notkunar I 9.
bekk grunnskóla. Þetta er bók í
nýstárlegu formi, og er m.a. eins-
konar vinnubók nemenda.
Þýddar skáldsögur eru þrjár:
Sirkus eftir Alistair MacLean, Til
móts við hættuna eftir Hamond
Innes og 1 greipum dauðans eftir
David Morrell.
Barnabækur forlaganna eru all-
margar. 1 afahúsi nefnist ný bók
eftir Guðrúnu Helgadóttur, sem
áður hefur gefið út bækurnar um
Jón Odd og Jón Bjarna, en þær
hafa báðar komið út í nýjum út-
gáfum á þessu ári. — Helgi
skoðar heiminn heitir bók eftir
þá Halldór Pétursson listmálara
og Njörð P. Njarðvfk lektor. Varð
hún til með þeim hætti, að
Halldór teiknaði röð mynda um
lítinn dreng, hestinn hans og
hundinn, en Njörður samdi siðan
sögu sem fellur að myndunum.
Myndirnar voru sýndar á sýningu
Halldórs sem haldin var á Kjar-
valsstöðum nú f haust. Sigrún fer
á sjúkrahús nefnist bók eftir
Njörð P. Njarðvfk, myndskreytt
af Sigrúnu Eldjárn. Þetta er saga
sem ætluð er það hlutverk að búa
lftil börn undir þá nýju og stund-
um erfiðu lífsreynslu að þurfa að
leggjast á sjúkrahús. Bókin er
samin í samráði við barnadeild
Landakotsspitala. Þá koma út hjá
forlögunum átta litprentaðar
barnabækur. Tvær nýjar Tuma-
bækur eftir Gunilla Wolde, tvær
bækur um Emmu eftir sama
höfund, tvær bækur um Kalla og
Kötu eftir Margret Rettich,
Breytingar f Grfsabæ eftir
Annette Tison og Talus Taylor,
höfunda bókanna um Barbapapa,
og loks koma svo myndasögur af
Barbapapa og fjölskyldu hans.