Morgunblaðið - 26.11.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1976
15
Arnarhóll
FYRIR fjórum árum var frá því
sagt I fréttum , að Seðlabanki
Islands ætlaði að láta reisa skrif-
stofuhús á bílastæðinu við Arnar-
hól. I örstuttum pistli í dálkum
Velvakanda í Mbl. benti ég á, að
slíkt hús skyggði á hið fágætlega
fagra útsýni af Arnarhóli. Ég
sagði líka frá því, að Einar heit-
inn Sveinsson húsameistari
Reykjavlkur, sem þá var enn á
lífi, hefði látið bóka eftirfarandi
mótmæli sln gegn þessari ráða-
gerð:
„Ég er mótfallinn þvl, að Arnar-
hólssvæðið verði skert með bygg-
ingu á þessum stað, en álft, að
stuðla beri að stækkun þess eins
og mögulegt er vegna hins fagra
útsýnis og fleira á þessum önd-
vegisstað Reykjavíkurborgar."
Ég lagði til, að hætt væri við þá
ráðagerð að reisa þarna stórhýsi,
algerlega að nauðsynjalausu.
Margir þökkuðu mér þessa ábend-
ingu, en enginn mótmælti henni
opinberlega.
Lá þetta mál svo I þagnargildi I
hálft ár.
En 27 júní 1973 var þess getið I
útvarpsfréttum, að byrjað væri að
grafa fyrir grunni þessa húss.
Kom það öllum mjög á óvart, að I
þetta yrði ráðist þá, um háanna-
tímann, þegar mjög skorti bæði
mannafla og fé til arðgæfra fram-
kvæmda. — Ég birti þá nokkrum
dögum síðar smágrein I Mbl. þar
sem ég mótmælti þvl, að reist yrði
þarna stórhýsi, sem um aldur og
ævi lokaði fyrir eitthvert dásam-
legasta útsýni f Reykjavík.
Strax á næstu dögum tóku
margir undir þessi mótmæli mín,
bæði I blöðum og útvarpi, og að
lokum var haldinn fundur um
málið á Arnarhóli.
Ég átti tal við ýmsa borgarfull-
trúa um málið og síðan gekk ég á
fund þáverandi forsætisráðherra,
Ölafs Jóhannessonar, borgar-
stjóra, Birgir Isleifs Gunnarsson-
ar, Svanbjörns Frimannssonar þá-
verandi Seðlabankastjóra og
Glsla Halldórssonar arkitekts,
Basar í Betaníu
BASAR verður I kristniboðs-
húsinu Betaníu, Laufásvegi 13,
laugardaginn 27. nóvember
næstkomandi kl. 2—6. Allur
ágóðinn rennur til kristniboðs-
starfsins I Eþiópíu, þar sem
basarnefnd segir að mikilla
fjármuna sér þörf, þvi margir
biði og hrópi á hjálp.
Samkoma verður i húsinu um
kvöldið kl. 8.30. Ræðumaður
verður Halla Bachmann,
kristniboði.
„Skólarnir vanbúnir
að gegna því hlutverki
sem ætlað er til”
— segja skólastjórar á Norðurlandi vestra
Sauðarkróki 24. nóvember
SKÓLASTJÓRAR grunnskólans,
frá Siglufirði, Sauðarárkróki og
úr Skagafirði, staddir á fundi í
gagnfræðaskóla Sauðarkróks
hinn 19. nóvember, gerðu eftir-
farandi samþykkt:
„Fundurinn beinir þeirri
eindregnu kröfu til háttvirtra
alþingismanna kjördæmisins, að
þeir hlutist nú þegar til um það,
að fjárhagslegur rekstrargrund-
völlur fræðsluskrifstofunnar á
Blönduósi verði tryggður.
Fundurinn telur skrifstofuna
nú þegar hafa sannað ágæti sitt
og telur það stórt skref til baka ef
starfsemi þessi félli niður vegna
lítilfjörlegra skipulagslegra
atriða og þráteflis milli sveitar-
félaga og rikisvalds.
Fundurinn væntir þess að
háttvirtir alþingismenn sýni máli
þessu fullan stuðning, þar sem
það er komið I algjöra
sjálfheldu.“
Ennfremur ályktuðu skóla-
stjórarnir eftirfarandi:
„Fundurinn lýsir fullum
stuðningi við kröfur kennara um
bætt kjör. Einkum bendir fundur-
inn á, að misræmi í launum fyrir
starf við sömu stofnun er algjör-
lega óviðunandi og óþolandi.
Léleg kjör kennara hafa nú
þegar leitt til þess, að skólarnir
eru vanbúnir til að gegna þvi
mikilvæga hlutverki sem löggjaf-
inn ætlast til.
Þau kjör, sem kennarar búa við,
hafa gert það að verkum, að hæft
fólk hefur fælzt frá störfum við
skólana og horfið að störfum á
almennum vinnumarkaði sem
býður betri laun.
Bætt kjör kennara — betri
skóli; betri skóli — betra þjóð-
félag.“
Guðjón
sem þá var forseti borgarstjórnar
Reykjavikur. Ég greini vitanlega
ekki frá þessum einkaviðtölum,
enda er nú 3‘/4 ár síðan, en vil þó
geta þess, að ég færði það í tal við
Gísla Halldórsson, að nota mætti
holu þá, sem þá þegar var búið að
grafa í Arnarhól fyrir bílastæði á
tveimur hæðum og tyrfa siðan
yfir, Ymsir aðrir tóku undir það.
Siðan yrði Sænska frystihúsið rif-
ið, þegar Bæjarútgerð Reykjavík-
ur mætti missa það, en svo er ekki
enn.
Allt sumarið 1973 var haldið
áfram að grafa og sprengja og
loks var sett bárujárnsgirðing i
kring um þetta sár i Arnarhóli, og
hefur svo verið í tæp þrjú ár, að
þessi hola hefur verið engum að
gagni, en flestum til leiðinda.
Vmsir voru farnir að vona, að
þessar byggingarhugmyndir
myndu gleymast á þessum þrem-
ur árum, eins og sumar aðrar slik-
ar, sem samþykktar höfðu verið
af stjórnvöldum, og óþarft er upp
aðtelja.
En nú fyrir nokkrum dögum
var frá því sagt í einhverju dag-
blaði, að ráðamenn hefðu nú horf-
ið frá fyrri hugmyndum um að
reisa skrifstofuhús í holunni, sem
svo mikið lá á að gera fyrir þrem-
ur árum og miklu hafði verið
kostað til. — En nú vildu þeir fá
lóðina, sem Sænska frystihúsið
stendur á, láta rífa það og reisa
skrifstofuhús á þeirri lóð. Ég
sleppi öllum hugsanlegum hug-
leiðingum um þessa breytingu frá
fyrri áætlun, en vil aðeins aftur
benda á það, að á þessu svæði má
ekki reisa neitt nýtt hús, hvorki
stórt eða lítið, fallegt eða ljótt,
skynsamlegt eða tilgerðarlegt. Ut
sýnið yfir sundin á að vera frjálst.
Eg bendi aftur á hógvær
aðvörunarorð Einars heitins
Sveinssonar, hins vammlausa
manns.
Þetta mál er í höndum tveggja
valdaaðila, borgarstjórnar
Reykjavikur og bankastjórnar
Seðlabankans. Ég og margir aðrir,
sem láta sér annt um fegurð
Reykjavíkur, vona, að þeir ágætis-
menn, sem hér um ræðir, hætti
við allar ráðagerðir um húsbygg-
ingu á þessum stað.
24. nóv. 1976
Einar Magnússon.
.