Morgunblaðið - 26.11.1976, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1976
Kynningarfundir fyrir húsbyggjendur
Byggingarþjónusta
Arkitektafélags íslands,
Húsnæðismálastofnun
ríkisins og Rannsókna-
stofnun iðnaðarins efna til
sameiginlegra kynningar-
funda fyrir húgbyggjend-
ur dagana 27. nóv, til 4.
des. í húsakynnum Bygg-
ingarþjónustu A.í. að
Grensásvegi 11 í Reykja-
vík. Tilgangur þessara
funda er að auðvelda hús-
byggjendum að gera sér
grein fyrir þeim vandamál-
um, sem þeir mæta þegar
hefja skal undirbúning að
eigin byggingarfram-
kvæmdum eða húsnæðis-
vali.
Dagskránni er skipt í
flokka og á laugardaginn
verða flutt nokkur erindi
m.a. um lóðaumsóknir,
teikningaraðila og kostnað,
verksvið og skyldur
iðnaðarmanna, um lánamál
Byggingarsjóðs ríkisins og
tæknimenn svara fyrir-
spurnum.
Þá verða erindi um lóð
og umhverfi og innrétting-
ar. Þátttaka er öllum opin
og er gjaldið 1.000,- kr. fyr-
ir hjón.
Jólamarkaður —Jólamarkaður
Aðventukransar — Aðventukransaefni
Mikið úrval þurrskreytinga.
KRlNGLUMVfffínBRffUT
GRR9SH0RN
F^sV°ÓOPIÐ
FRA
ALLA DAGA
KLUKKAN 10 TIL 22
Kertamarkaður —
Pottaplöntumarkaður
Fallegar ódýrar jólastjörnur.
GARÐSHORN
Við Reykjanesbraut
Fossvogi
Sími 40500
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík
INNTÖKUBEIÐNI
Ég undirritaður óska hér með að gerast meðlimur í:
n Landsmálafélaginu Verði, sambandi félaga Sjálfstæðis-
manna í hverfum Reykjavíkur:
j j Félagi Sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi
□ Félagi Sjálfstæðismanna í Vestur-og Miðbæjarhverfi
□ Félagi Sjálfstæðismanna í Austurbæ-og Norðurmýri
□ Félagi Sjálfstæðismanna í Htiða- og Holtahverfi
□ Félagi Sjálfstæðismanna í Laugarneshverfi
I j Félagi Sjálfstæðismanna í Langholti
I j Félagi Sjálfstæðismanna í Háaleitishverfi
□ Félagi Sjálfstæðismanna í Smáíbúða- Bústaða- og Foss-
vogshverfi
| j Félagi Sjálfstæðismanna í Árbæjarhverfi
[j Félagi Sjálfstæðismanna í Bakka- og Stekkjahverfi
I I Félagi Sjálfstæðismanna í Fella- og Hólahverfi
I i Félagi Sjálfstæðismanna í Skóga- og Seljahverfi
□ Heimdalli, samtökum ungra Sjálfstæðismanna (16 — 35
ára)
__ Hvöt, félagi Sjálfstæðiskvenna
Q Málfundafélaginu Óðni
Reykjavík_______19__
Undirskrift
Fullt nafn:________________________________________________________
Heimilisf.:___________________________________________________________sími:____
Fæðingard. og ár:______________________________Nafnnúmer:----------------------
Staða:_________________________________________________________________________
Vinnust./sími:_________________________________________________________________
Sendist:
Skrifstofu FulltrúaráSs SjálfstæSisfélaganna i Reykjavik Bolholti 7. slmar 82900 — 82963.
s
Jólasundmót öryrkja
Jólasundmót öryrkja 1976
25. nóv. — 13. des.
(nafn)
(aldur)
(heimilisfang)
Sundstaður:
l^Örorka vegna:
I
i Sendist
| til Í.S.Í.
l Box 864, Reykjavíie
(tilgreinið t.d. lömun, fötlun. blinda. vangefni o.s.frv.
Þátttöku staðfestir
Áhugi þeirra
öðrum hvatning
ALLSTÓR hópur tók þátt f jóla-
sundmóti öryrkja strax fyrsta dag
mótsins, sem var í gær. Er við
ræddum við Sigurð Magnússon,
útbreiðslustjóra ÍSÍ, I gær sagðist
hann hafa orðið var við mikinn
áhuga öryrkja um allt land fyrir
þessu móti og sagðist vera bjart-
sýnn á að margir tækju þátt í
þessu móti, sem er hiðfyrsta sinn-
ar tegundar hér á landi.
í þessum dálkum í dag munum
við fjalla um tvo þeirra öryrkja sem
lengi hafa stundað sund og tóku
m.a fyrir nokkru síðan þátt í miklu
sundmóti fatlaðra i Svíþjóð Þessir
tveir menn eru þeir Hörður Barðdal
og Snæbjörn Þórðarson og ættu
þeir að geta orðið öryrkjum hvatning
til að taka þátt í mótinu og iðka
sund. Það geta að vísu ekki allir
tekið þátt í sundmótum í öðrum
löndum, en það geta allir tekið þátt í
jólasundmótinu
íþróttafélag fatlaðra sendi tvo
keppendur á alþjóðlegt íþróttamót
fatlaðra f Stokkhólmi 6 og 7. þessa
mánaðar Þeir kepptu báðir í 100
metra frjálsu sundi og stóðu sig
mjög vel Hörður varð þriðji i sinum
flokki á timanum 1:17.2, en Snæ-
björn fjórði í sínum flokki á 1:14.5.
Keppendum i sundi er skipt i flokka
eftir fötlun þeirra
Þeir Hörður og Snæbjörn höfðu
ekki haft langan tíma hér heima til
æfinga miðað við fólk sem þeir öttu
kappi við og var árangur þeirra mjög
góður og eiga þeir eflaust eftir að
gera enn betur á alþjóðlegum sund-
mótum i framtiðinni Keppendur i
sundinu voru 94, en alls á þessu
mikla móti 752 talsins Þjálfari pilt-
anna er Július Arnarson og fór hann
með í ferðina til Svíþjóðar ásamt
Elsu Stefánsdóttur ritara íþrótta-
félags fatlaðra
ÞeSsi litla frétt um stórgóða
frammistöðu þessara islenzku sund-
manna á mótinu í Svíþjóð ætti að
vera öðrum öryrkjum hvatning. Sá
sem ekki hefur reynt sund eða æf-
ingar í vatni veit ekki hve miklu
auðveldara verður með allar hreyf-
ingar þar heldur en á þurru, enda er
það visindalega útreiknað að likam-
inn léttist um 10% í vatninu.
í lokin skulu rifjuð upp nokkur
atriði i sambandi við jólasundmót
öryrkja Mótið fer fram samtimis á
öllum Norðurlöndunum og verður
að þvi loknu lagt til grundvallar fyrir
næsta mót þessarar tegundar sem
ætlunin mun vera að halda síðan
reglulega eins og Norrænu sund-
keppnina — 200 metrana
Tilgangur mótsins er sá að örva
öryrkja til að iðka sund og njóta
þeirrar hollustu og ánægju, sem það
veitir Mótið er ætlað öllum ör-
yrkjum, hvort heldur um er að ræða
hreyfilamaða, blinda, þroskahefta,
vangefna, heyrnarlausa eða öryrkja
af öðrum ástæðum Þátttakendur
þurfa að vera í vatninu a m k 5
mínútur og þeim sem litt eru syndir
eða mikið fatlaðir er heimilst að nota
hjálpartæki við að halda sér á floti
Að jólasundmótinu loknu fær hver
þátttakandi sendan heim sérstakan
borða í viðurkenningarskyni
Hörður Barðdal og Snæbjörn Þórðarson, sem stóðu sig með prýði á
alþjóðlegu móti fatlaðra f Svíþjóð á dögunum.