Morgunblaðið - 26.11.1976, Page 20

Morgunblaðið - 26.11.1976, Page 20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1976 20 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavik. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10100. Aðalstræti 6, simi 22480 Áskriftargjald 1 100.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasolu 60.00 kr. eintakið. BIERMANN Fyrstu einkenni ein- ræöis eru þau, að stjórnvöld ráðast gegn prent- og málfrelsi; blöð- um, tímaritum og öðrum fjölmiðlum er breytt í ófrjáls málgögn þeirra, sem um stjórnartauminn halda. ()g að því kemur, að þau verða ekki annað en eins konar gjallarhorn á fjöldafundi einvaldsherra. Þessi þróun hefur að sjálf- sögðu orðið í þeim löndum, þar sem nasismi og fasismi hafa náð undirtökunum, eins og menn hafa orðið vitni að á þessari öld, svo og herforingjaklíkur alls konar og er skemmst að minnast þess hörmulega ástands, sem ríkti í Grik.k- landi, meðan einræðisklika herforingja réð þar ríkjum. Sama er uppi á ten- ingnum í f jölmörgum lönd- um Suður-Ameríku og Afríku, eins og kunnugt er — og þá hefur Asía ekki ..eldur farið varhluta af ágangi þessara ofbeldis- afla; jafnvel Indira Gandhi, sem komst til valda með lýðræðislegum kosningum, hefur leyft sér að breyta lýðræðisríkinu Indlandi í hálfgert ein- ræðisríki. Hefur verið ömurlegt að fylgjast með þeirri þróun, sem þar hef- ur átt sér stað. En hvergi hefur andlega ofbeldið þó verið atkvæða- meira né ömurlegra en í þeim ríkjum, þar sem kommúnistar hafa sölsað undir sig völdin. Hér í blað- inu hefur oft og einatt ver- ið tíundað hvernig prent- frelsið er fótum troðið í kommúnistaríkjunum, og almenn mannréttindi eru þar af svo skornum skammti, að minnir einna helzt á þriðja ríkið. Þetta er sorgleg stað- reynd, því að ýmsir sósíal- istar halda því fram, að só- síalismi og lýðræði hljóti að fara saman þó að raunin hafi orðið önnur, þar sem staðreyndirnar tala. Morgunblaðið hefur reynt að fylgjast eins ná- kvæmlega með þessari þró- un og unnt hefur verið, stundum við litlar vinsæld- ir kommúnista hér á landi, sem hafa kallað það kalda- stríðs stefnu að vara við því ofbeldi, sem kommún- ismanum jafnan fylgir. Flestir helztu rithöfundar í kommúnistaríkjunum eru annað hvort þögulir eða láta lítið að sér kveða, eða þá að þeim hefur verið fleygt í fangabúðir, svo að ekki sé nú talað um þræla- búðirnar, Gulagiö, sem Solzhenitsyn hefur minnt okkur svo óþyrmilega á. Það eru ekki einungis andstæðingar kommúnis- mans, sem hafa orðið and- legu ofbeldi hans að bráð í þessum ríkjum, því að nú höfum við fyrir okkur dæmi, sem er mjög sér- stætt; vísnasöngvari og trúbadúr, sem kallar sig kommúnista, Wolf Bier- mann hefur sætt sömu ör- lögum og andkommúnist- inn Solzhenitsyn: hann hefur verið rekinn úr landi og er nú útlagi. Samt hefur Biermann reynt að túlka málstað valdhafanna í Au- Þýzkalandi og hvatt landa sína til að flýja ekki vestur fyrir múrinn alræmda. En hann hefur ekki haft er- indi sem erfiði; fyrst hann flýði ekki frá Au- Þýzkalandi, var hann ein- faldlega rekinn úr landi, gerður að útlaga! Málum er þannig komið í kommún- istaríkjum, að þar er ekki einu sinni rúm fyrir yfir- lýsta kommúnista, hvað þá aðra. Biermann er rekinn í út- legð vegna þess að hann hefur gagnrýnt þjóðskipu- lag kommúnismans — og þætti engum mikið í lýð- ræðisríki, en slíkur maður á ekki heima í kommúnista- ríki. Hann hlýtur að verða útlagi frá landinu. Slík ör- lög segja meiri sögu en allt það orðagjálfur, sem berst okkur frá áróðursstofnun- um kommúnistaríkjanna. APN og Novosti, svo að dæmi séu nefnd, geta ekki með þúsundum áróðurs- greina breytt þeirri mynd, sem útlegð Biermanns gef- ur af au-þýzku þjóðskipu- lagi. Þessi ákvörðun komm- únistastjórnarinnar beinir athyglinni að þeirri stað- reynd, hversu völtum fót- um það stjórnarfar stend- ur í raun og veru, sem þolir ekki einn vísnasöngvara innan sinna alræmdu múra. Málgagn au-þýzku stjórn- arinnar, Neues Deutsch- land, segir að Biermann muni „hverfa í myrkan fjölda anddíommúnískra kjaftaska". Biermann er á öðru máli: „Þetta er aðeins ósk- hyggja, og ekki lýsing á raunveruleikanum,“ sagði hann. Kynning á dagvistarmálum: ALLIR eru á einu máli um að dagvistarmálin séu í hinu mesta óstandi og að mikið átak margra aðila þurfi að koma til svo að málin verði þannig til lykta leidd að við verði unað. Mbl. hefur síðstu daga fjallað um dagvistar málin í sambandi við kynningarviku þá sem efnt var til. Að þessu sinni var leitað til nokkurra framámanna í verkalýðshreyfing- unni og fleiri og eftirfarandi spurning lögð fyrir þá: ..Hvernig á að þínum dómi að standa að því að leysa hin erfiðu og brýnu dagvistar- mál, sem eru nú til umræðu?" Þeir sem svöruðu voru Auður Torfadóttir, stjórnm. í V.R. Bjarni Jakobsson, form. Iðju, Björn Jóns son, forseti ASÍ, Jónína Þorfinnsdóttir form. Hvatar, Þórunn Einarsdóttir, umsjónarfóstra Sumargjafar, og Þórunn Valdimarsdóttir form. Verkakvennafélagsins Framsóknar. Þrjú fyrrnefndu svara í dag, en svör hinna birtast I laugardagsblaði dagvistarmálin? Hvemig á að leysa AuÓur Torfadóttir, stjórnarm. í Verzlunarmanna- félagi Reykjavíkur. Þegar dagvistarmál eru rædd þykir mér sem oft vilji brenna við að gleymist að hugsa um hagsmuni barnsins. Ekkert er þó algilt i þessu fremur en öðru, ég tel til dæmis að börn hafi mjög gott af því og verði fyrir þroskavænlegum áhrifum að dvelja á dagvistarstofnunum a.m.k. hluta dags. En kannski ekki öll börn. Frekar en að segja að öll börn hafi ósköp gott af því að vera alltaf heima hjá sér og hreyfa sig aidrei innan um önnur börn. Málin eru ekki svo einföld. Ekkert er bara annaðhvort hvítt eða svart, plús eða mínus. Á þetta verður ekki komið neitt lag fyrir en viður- kennt er að dagvist og réttur til dagvistar eru liður í samneyzlu þjóðfélagsins. Þegar karlmenn hætta að segja: „Því skyldi ég og konan min borga fyrir aðrai manneskjur og þeirra börn dagheimili fyrst mín kona vinn- ur heima og hugsar um okkar börn?“ Þegar menn átta sig á að samneyzla þjóðfélagsins er Auður Torfadóttir ekki afmarkað svið og kona sem nýtur dagheimilspláss fyrir barn sitt verður ekki endilega aðnjótandi einhverrar annarrar þjónustu samfélagsins, sem hún greiðir þó skatta til. Þetta kemst ekki í viðunandi horf meðan fjármálapólitíkusar segja: „Ef þið viljið dagvistar- stofnanir — bendið þá á hvað á að skera niður í staðinn?" UM það er ekki að ræða að skera annað niður, heldur að fella dagvistarkostnaðinn inn í heildarmyndina og viðurkenna hannn sen sjálfsagða og eðli- lega staðreynd í nútímaþjóð- félagi og líta ekki á dagvistar- málin sem fjárhagslegan bagga og aukagemling. Bjarni Jakobsson, form. Iðju í fjárlagafrumvarpi ríkis- stjórnarinnar eru áætlaðar 85 Fyrri hluti millj. til dagvistarmála. En það mun þurfa um 230 milljónir kr. á næstu fjárlögum til að standa undir þeim kostnaði er til þarf, til að ljúka við þau heimili sem þegar eru í smiðum, skv. út- reikningum menntamálaráðu- neytisins. Vantar því um 145 millj. kr. til að endar nái sam- an. Haft er eftir Birgi ísl. Gunnarssyni borgarstjóra í Mbl. 18. nóv. sl. að fyrirhugað hafi verið að byrja á smíði dag- heimilis í Hólahverfi á þessu ári, en af því hefði ekki orðið, þar sem staðið hefði á teikning- um. Það er að mínu mati harla lítilfjörleg afsökún. En í fram- haldi getur borgarstjóri þess að menntamálaráðuneytið hafi þann undirbúning með hönd- um. Þá er þess getið, að þessi framkvæmd verði búin til út- boðs fyrir áramót og er það nokkur bót í máli. Það leikur ekki minnsti vafi á því að það þarf að vinda bráðan bug að því að leysa þessi mál, Bjarni Jakobsson þar sem nú bíða yfir 400 börn einstæðra foreldra og náms- manna eftir dagheimilsplássi í Reykjavík einni og yfir 1000 börn eru á biðlista eftir leik- skólaplássi. Þá eru ótalin þau börn, sem foreldrar hafa orðið að koma fyrir á einkaheimilum. Er mér ókunnugt um hvað mörg þau kynnu að vera né hvort nokkur könnun hefur verið gerð á því. Þessi börn tel ég hvað verst sett, þar sem þau geta mörg hver dvalist nema stuttan tíma á hverju heimili — eiga sér aldrei vissan samastað. Eins og við þekkjum er óvissan eitt hið versta er allir fá að kynnast einhverju sinni á lífsleiðinni. Það fer þess vegna ekki hjá því að fyrir barni, er svo komið fyrir, að það verður óhjákvæmi- lega fyrir sálrænum áhrifum, sem ekki verður séð fyrir hver kynnu að verða. Ég er þeirrar skoðunar, að allir sem einhvers eru megnug- ir eigi að leggjast á eitt um að leysa þessi vandamál. Það má t.d. nefna að hlutdeild í lausn þessa máls gætu átt í samein- ingu ríkið, borgin og bæjar- félögin. Einnig tel ég rétt að verkalýðsfélögin taki málið til gagngerðar athugunar, það er, hver þeirra þáttur gæti orðið til að leysa þetta sameiginlega vandamál, sem óhjákvæmilega snertir þjóðina alla. Björn Jónsson, for- seti Alþýdusam- bands Íslands Ég lít á lausn dagvistarmála sem ákaflega brýnt hagsmuna- mál alls almennings og þó alveg sérstaklega þeirra, sem við svo lág laun búa að útilokað er að þeir geti framfleytt heimilum sínum nema bæði hjónin vinni úti, en fyrir einstætt foreldri er úrlausn mála á þessu sviði for- senda þess að það geti yfirleitt stundað atvinnu. Að auki kemur hér til að nægileg fjölgun dagvistarheim- ila er atvinnuvegunum og þjóð- Björn Jónsson inni í heild beint hagsmuna- atriði. Af þessum sökum virðist mér eðlilegt og raunar sjálfsagt að í þessum efnum þurfi allir að leggjast á eitt, verkalýðssam- tökin, ríkisvaldið, sveitarfélög- in og atvinnurekendur. En ef til vill er það óskhyggja ein að slíkt gerist. En hitt er víst að verkalýðssamtökin munu taka málið upp í samhengi við kjara- baráttu sína næstu mánuði og tel ég ólíklegt að við það verði skilið nema við unandi leiðrétt- ing náist. En það verður ekki nema til komi mjög auknar fjárveitingar frá ríki og sveitar- félögum. Takmarkið hlýtur að vera það að hinir löngu biðlist- ar eftir dagvist verði úr sög- unni og að þeir sem á þurfa að halda eigi þess kost að koma börnum snum í örugga og uppeldislega heilbrigða gæzlu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.