Morgunblaðið - 11.12.1976, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1976
Seljum nokkur
sófasett með
miklum afslætti
Stílhúsgögn h. f.,
Auðbrekku 63, Kópavogi,
sími 44600.
%
Morgunblaóid
óskareftir
biadburdarfóíki
Vesturbær Úthverfi
Skólabraut ' Blesugróf
Hjarðarhagi 1 1 42 Laugarásvegur 77
Austurbær
skiphoit 1—5o Upplýsingar í síma 35408
Jólavaka
í Fríkirkjunni sunnudaginn 12. desember 1976 kl.
17.00
Efnisskrá:
1. Einleikur á orgel: Sigurður ísólfsson — J.S. Bach
Pastorale
2. Ávarp: Sr. Þorsteinn Björnsson.
3. Fríkirkjukórinn. Velkomin vertu vetrarperlan fríð.
Lag: íslenzkt sálmalag. Ljóð: Helgi Hálfdanarson.
4 Einleikur á orgel: Sigurður ísólfsson — 4
kóralforspil.
J.L. Emborg: Ó hve dýrlegt er að sjá
J.S. Bach: Sjá himins opnast hlið.
J. S. Bach: Heiðra skulum vér herrann Krist.
J.S. Bach: í dag eitt blessað barníð er.
5. Jólaguðspjallið lesið af Sigríði A. Valdimarsdóttur.
6. Einsöngur: Hjálmtýr Hjálmtýrsson — Aðfangadags-
kvöld jóla.
Lag: Sigvaldi S. Kaldalóns. Ljóð: Stefán frá Hvítadal.
7. Ræða: Halldór E. Sigurðsson, landbúnaðarráðherra.
8. Fríkirkjukórinn: Guðs kristni í heimi krjúp við jötu
lága.
Lag. Rómverskt lag. Ljóð: V.V. Snævarr.
9. Einsöngur: Hjálmtýr Hjálmtýsson — Jesús þú ert
vort jólaljós.
Lag: C. E. F. Weyse. Ljóð: Valdimar Briem.
10. Almennur söngur: Heims um ból
Lag: Franz Grúber. Ljóð: Sveinbjörn Egilsson.
1 1 . Lokaorð: Sr. Þorsteinn Björnsson.
Fríkirkjufólk fjölmenni Allir velkomnir.
Kvenfélag Frikirkjusafnaðarins
Bræðrafélag Fríkirkjusafnaðarins.
Jólabasar Viðeyingafélagsins verður að Hall-
veigarstöðum, sunnudaginn 13. desember og
hefst kl. 2 e.h.
A boðstólum verða gómsætar kökur og góður
jólavarningur. Viðeyingafélagið
Jólabasar
Lífeyrissjóður
rafiðnaðarmanna
mun á næstunni veita lán til sjóðfélaga. Lánin
verða eingöngu veitt þeim sem eru að byggja /
kaupa eigið húsnæði og gegn veði í hlutaðeig-
andi fasteign. Lánstíminn verður 12 ár og
ársvextir 18% miðað við núgildandi vaxtakjör.
Þeir sjóðsfélagar ganga fyrir sem hafa verið í
sjóðnum frá upphafi, enda hafi iðgjöld verið
greidd skilvíslega a.m.k. til 1. október s.l.
Umsóknir um lán skulu sendast stjórn sjóðsins,
Freyjugötu 27, Reykjavík á eyðublöðum sem
sjóðurinn lætur í té, eigi síðar en 31. des.
1976.
Reykjavik 9. desember 1976
Stjórn Lífeyrissjóðs rafiðnaðarmanna.
'Allt P
jólabaksturinn
Ódýrar möndlur og hnetu-
kjarnar.
12. teg. dropar og Essens.
Kúrenur— Kókosmjöl.
Konfekt marsipan.
Hveiti — Sykur — Flórsykur
— Púðursykur á hagstæðu
verði.
Jólapappír — Jólakort — Frí-
merki — Servíettur — Kerti.
0pið * Aclfínr
kl. 6 I dag. MoKJUÍ ,
Ásgarði 22, sími 36960.
Skemmdarverk
í Lissabon
Lissabon, 9. des. Ntb.
IBÚAR í Lissabon voru vatnslaus-
ir i allan gærdag eftir aö sprengja
eyðilagði vatnsleiðslu til borgar-
innar. Varð sprengingin við þorp-
ið Povoa de Santa Iria sem er í 18
km fjarlægð frá Lissabon. Fyrir
þremur dögum sprakk sprengja
við járnbrautarteina i höfuðborg-
inni og þurftu yfir eitt hundrað
þúsund manns að fara gangandi
til vinnu sinnar meðan unnið var
við viðgerðir. Lögreglan kveðst
ekki vita hverjir hafi staðið að
baki skemmdarverkum þessum.
EBE-fundi
frestað
Briissel, 9. des. NTB.
EFNAHAGSBANDALAGIÐ hef-
ur aflýst fyrirhuguðum ráðherra-
fundi f Hollandi 20. og 21. desem-
ber þrátt fyrir mótmæli utanrfk-
isráðherra Danmerkur, K.B. An-
dersen. Danski utanrfkisráðherr-
ann sagði að mikilvæg málefni
myndu gjalda þess illílega ef
fundinum yrði frestað.
Samkvæmt diplómatiskum
heimildum í Briissel var það hol-
lenzki utanríkisráðherrann Max
van ser Stoel, sem hafði forgöngu
um að aflýsa fundinum til að forð-
ast gagnrýni á nýja stefnu Hol-
lands gagnvart þróunarrlkjunum,
en Stoel er sem stendur formaður
ráðherraráðs Efnahagsbandalags-
ins.
Hollenzka rfkisstjórnin mun
gröm yfir því að EBE skuli ekki
hafa tekizt að móta sameiginlegt
og betra tilboð til þróunarland-
anna og hefur gefið ótvirætt til
kynna að vegna þessa muni Hol-
lendingar gripa til þess ráðs að
móta sjálfstæða stefnu í þessum
málum. Var búizt við þvi að málið
yrði rætt á nefndum ráðherra-
fundi fyrir jól.
K.B. Andersen sagði að hann
myndi hafa notað tækifærið til að
gera grein fyrir því meðal annars
hvernig Danir hafa greitt atkvæði
á Allsherjarþinginu. Danir hafa
legið undir nokkru ámæli vegna
þess að þeir hafi ekki fylgt öðrum
EBE-löndum við ýmsar atkvæða-
greiðslur á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna.
Manntjón í
jarðskjálfta
Jóhannesarborg, 9. des. Ntb.
AÐ MINNSTA kosti einn náma-
verkamaður beið bana og tveir
slösuðust þegar nokkrir minni
háttar jarðskjálftar skóku f gær-
kveldi suðurafriska námabæinn
Welkom, sem er 280 km suður af
Pretoria. Stjórnvöld óttast þó að
fleiri hafa látist. Saknað er rosk-
innar konu og tveggja barna. Hús
sem þau voru í hrundi til grunna.
Fjöldi bygginga skemmdist.
Skjálftarnir mun hafa mælzt um
4.8 stig á Richter og stóðu f um
það bil tvær mínútur.
Desmond Bagley lauk ekki það snemma við nýju
söguna sína að hún gæti komið út á íslensku í ár og því
kemur hún út næsta haust. En þess í stað gefur Suðri
nú út spennandi og ævintýralega sögu eftir amerískan
höfund, Charles Williams. Allar sögur hans gerast á
sjó og þetta er sú fyrsta sem út kemur á íslensku.
Charles Williams er tvímælalaust í fremstu röð
þeirra sem skrifa spennandi bækur og nýja bókin eftir
hann heitir ELDRAUN Á ÚTHAFINU.
Tryggið yður eintak í tíma.
Saga um ofsafengna vnJureígn á Kyrrahafi
SUORf
Gærufóðruðu
karlmannakuldastígvélin
frá Clarks
nýkomin.
Litir
brúnt og svart.
Margar gerðir.
Póstsendum
SKÓBÆR,
Laugavegi 49,
sími 22755.
Verð 10.450.-