Morgunblaðið - 12.12.1976, Side 1
80 SIÐUR
274. tbl. 63. árg. SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Spánn:
Forsetaríkis-
ráðsins rænt
Madrid, 11. desember Reuter.
FJORIR menn vopnaðir vélbyss-
um rændu í dag forseta spænska
ráðgefandi ríkisráðsins, Antonion
Maria de Oriol y Urquijo, að sögn
lögreglunnar. Oriol, sem fyrrum
var dómsmálaráðherra, er af
einni ríkustu fjölskyldu baska-
héraðanna, þar sem þjóðernis-
sinnaðir skæruliðar hafa háð bar-
áttu fyrir heimastjórn.
Ríkisráðið, sem er skipað af
þjóðhöfðingjanum, er ríkisstjórn-
inni ráðgefandi um lagasetningar.
Álitið er að ræningjarnir séu
skæruliðar úr aðskilnaðarhreyf-
ingu Baska, ETA.
Mennirnir fóru inn í skrifstofu
Oriols og sögðu að þeir væru send-
ir af sóknarpresti og óskuðu eftir
að fá að tala við hann. Þegar þeir
voru komnir inn til Oriols drógu
þeir fram vélbyssur og skipuðu
syni hans, einkaritara og skrif-
stofufólki að leggjast á gólfið.
Samkvæmt frásögn lögreglunnar
hefur Oriol margsinnis verið hót-
að af ETA.
I október síðast liðnum myrti
ETA Juan Maria de Araluce, sem
átti sæti.í annarri opinberri ráð-
gjafarnefnd í San Sebastian. Eftir
það morð var lögreglunni gefið
sérstakt vald til að leita og hand-
taka fólk í baskahéruðunum.
Morðingjarnir hafa enn ekki
fundist. Oriol er æðsti maður, sem
rænt hefur verið síðan í borgara-
stríðinu 1936.
Símamynd AP
Henry Kissinger, utanrfkisráðherra Bandarfkjanna, kveður
fréttamenn í sfðasta skipti á blaðamannafundi f aðalstöðvum
NATO í Brússel að loknum ráðherrafundi bandalagsins.
Sveitarstjórnarkosningar í Portúgal:
Prófraun fyrir minni-
hlutastiórn Soares
Lissabon, 11. desember.— Reuter.
Á MORGUN verður gengið til
sveitarstjórnakosninga f Portúgal
og eru þær mikil prófraun fyrir
stjórn sósíalista. Er litið á kosn-
ingarnar sem þjóðaratkvæða-
greiðslu um frammistöðu minni-
hluta stjórnar Mario Soarcs, sem
farið hefur með völd f fimm mán-
uði. Kosnir verða 45.000 borgar-
og sveitarstjórnafulltrúar.
Sósíalistar, sem hafa 107 af 263
sætum þingsins, hafa verið gagn-
rýndir af hægriflokkunum fyrir
vangetu í stjórn og af vinstri
flokkunum fyrir óvinsælar sparn-
aðarráðstafanir.
Kosningarnar á sunnudaginn
eru fyrstu frjálsu sveitarstjórna-
kosningarnar í Portúgal, og
þriðju meiriháttar kosningarnar í
landinu í ár. Búizt er við að kosn-
ingaþátttaka verði minni nú en
áður þar sem lítils áhuga virðist
gæta hjá kjósendum. Þá má búast
við að alda sprenginga hermdar-
verkamanna, sem gengið hefur
yfir, haldi fólki frá kjörstöðum,
en þær hafa sett óhug i fólk, þótt
ekki hafi þær enn valdið mann-
tjóni.
Aðalvatnsveita Lissabon var
eyðilögð í sprengingu á fimmtu-
dag og í dag voru flestir íbúar
borgarinnar enn vatnslausir.
Yfirvöld segja að eitthvert lag
verði komið á vatnsveituna í dag
en að skortur verði á vatni fram á
þriðjudag.
Framhald á bls. 27
Mannfjöldi f Highfield nálægt
Salisbury f Ródesíu fagnar Elliot
Gabellah, varaforseta frelsis-
hreyfingar Muzoreve, þegar hann
flutti ræðu og skýrði frá gangi
ráðstefnunnar um framtíð
Ródesíu f Genf.
Brezka þing-
ið samþykkir
200 milurnar
London, 11. desember. Reuter.
BREZKA þingið samþykkti í gær
formlega útfærslu fiskveiðilög-
sögu landsins í 200 milur I sam-
ræmi við stefnu EBE i fiskveaði-
málum. Tekur útfærslan gildi
strax eftir nk. áramót. Þá til-
kynnti brezka sjávarútvegsráðu-
neytið einnig í dag bann við síld-
veiðum til bræðslu á miðunum
undan vesturströnd Skotlands og
þeim hluta Norðursjávar, sem
fellur undir brezk yfirráð. Gildir
bann þetta frá 1. janúar, en allar
síldveiðar á þessum svæðum eru
bannaðar til 31. desember n.k.
Þorsk- og rækjukvótar
ákveðnir við Grænland
Julianhaab, Grænlandi,
11. desember.
Frá Henrik Lund fréttar. Mbl.
FUNDI NV-Atlantshafsfisk-
veiðinefndarinnar lauk á Kan-
ari eyjum I gær og eru
lauk á Kanaríeyjum I gær og eru
Eiturský 1
Louisiana
Baton Rouge, Louisiana, 11.
desember. Reuter.
ÞÚSUNDIR manna voru í gær og
dag fluttir á brott frá Missisippi-
fljóti, undan baneitruðu klórskýi,
sem seig hægt niður eftir fljótinu
eftir sprengingu í efnaverk-
smiðju í Baton Rouge og allar
siglingar um fljótið voru bannað-
ar. tbúar lítilla þorpa á bökkum
þess voru fluttir á brott og í Baton
Rouge voru allir reknir úr veit-
ingastöðum borgarinnar og
næturklúbbahverfinu svo og
stúdentar Southern University.
Þá voru yfirvöld farin að undir-
búa brottflutning 3000 fanga frá
fylkisfangelsinu í Angóla,
skammt frá Baton Rouge. Ekki
hefur enn verið hægt að komast
að hvað olli sprengingunni í verk-
smiðju stórfyrirtækisins Allied
Chemicals.
danskir og grænlenzkir embættis-
menn sagðir ánægðir með ákvarð-
anir, sem teknar voru um rækju-
og þorkveiðikvóta innan hinna
nýju 200 mílna marka frá grunn-
línum að miðlinu á Davissundi.
Þorskkvótinn var ákveðinn 31
þúsund lestir, þar af skiptast
29000 lestir milli Færeyinga og
Grænlendinga, en 2000 lestum
verður skipt með samningum
milli annarra þjóða. Þá var rækju-
kvótinn ákveðinn 36000 lestir og
fá Grænlendingar og Færeyingar
29000 lestir, en 7000 lestum verð-
ur skipt milli annarra.
Rússar lofa að
hætta truflunum
Stokk'hólmi, 11. desember.
Reuter. NTB.
SOVÉZK yfirvöld hafa tilkynnt
sænsku stjórninni, að öflugar
stuttbylgjusendingar, sem truflað
hafa útvarpssendingar víðsvegar
um Evrópu kunni að hafa orsak-
ast af tilraunum í sambandi við
uppsetningar á sovézkum út-
varpsstöðvum. 1 bréfi, sem kunn-
gert var í Stokkhólmi í gær frá
sovézku póst- og símamálastofn-
uninni, segir, að Sovétmenn muni
gera ráðstafanir til að koma í veg
fyrir frekari truflanir.
Bergmansmálið:
Ríkissaksóknari telur máls-
höfðunma embættisleg afglöp
Stokkhólmi, 11. des. NTB.
SÆNSKI ríkissaksóknarinn
telur að Kurt Dreifaldt sak-
sóknari, sem ábyrgð bar á mála-
rekstrinum gegn leikst jóranum
Ingmar Bergman og leiddi af
sér brottflutning hans úr landi,
hafi orðið alvarlega á I mess-
unni og gert sig sekan um
alvarleg embættisafglöp.
Holger Romander ríkissak-
sóknari mun þvf krefjast þess
að Dreifaldt verði dreginn til
ábyrgðar.
Romander gagnrýnir fyrst og
fremst að Dreifaldt hafi borið
fram ákæru á hendur Bergman
án þess að hafa gengist fyrir
nokkurri eiginlegri rannsókn.
Ber saksóknari brigður á að
rétt hafi verið að málinu staðið.
Hinn 30. janúar sl. ákvað
Dreifaldt að láta sækja Ingióar
Bergman til Dramatenleikhúss-
ins til yfirheyrslu án þess að
honum hefði verið send kvaðn-
ing þar að lútandi áður. Sam-
tímis var gerð húsrannsókn á
heimili hans og á skrifstofu lög-
fræðings hans. Síðan var úr-
skurður upp kveðinn á grund-
velli skýrslu sem þótti renna
stoðum undir skattamisferli
sem Bergman hefði gerzt sekur
um og þann 3. febrúar var höfð-
að mál á hendur Bergman.
Ríkissajcsóknarinn lýsti
furðu sinni yfir því að svo
reyndur embættismaður sem
Dreifeldt hefði gerzt sekur um
svo mikla fljótfærni og svo
alvarleg afglöp og væru vinnu-
brögð hans hin vítaverðustu.