Morgunblaðið - 12.12.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1976
19
Hluti Kammersveitar Reykjavfkur á æfingu f Hátfðasal Háskólans en tónleikarnir verða f Krists-
kirkju sunnudaginn 12. des. kl. 16. Það eru strengja- og semballeikararnir sem eru þarna á æfingu.
Ljósmynd Mbl. RAX.
Jólatónleikar Kammer-
sveitar Reykjavíkur
Fjölbreytt efnisskrá í Kristskirkju
KAMMERSVEIT Reykjavíkur
heldur tónleika í Kristskirkju
sunnudaginn 12. des. n.k. kl. 16.
Þetta er þriðja starfsár
Kammersveitarinnar og 10.
reglulegu tónleikarnir. Sveitin
er skipuð á nokkuð annan hátt
en venjulegar kammersveitir,
því f henni eru strengir,
blásturshljóðfæri og sembal. 14
hljóðfæraleikarar leika í
Kammersveitinni að staðaldri,
en oft leika mun fleiri.
Æfingar eru 2—3 sinnum í
viku, en allt starf í sambandi
við sveitina er sjálfboðavinna.
Kammersveit Reykjavíkur hef-
ur leikið við fjölmörg önnur
tækifæri en reglulega tónleika
og t.d. lék Kammersveitin á
Listahátíð s.l. vor í samvinnu
við Leikfélag Reykjavíkur þar
sem um var að ræða flutning
Sögunnar af dátanum.
Kammersveitin skiptist í tvo
hópa á þessum tónleikum,
málmblástursleikara annars
vegar og hins vegar strengi
' sjálfstæða og einnig með
sembal. Málmblásturskvintett
mun leiká verk frá baroktíman-
um. Þá verður einnig fluttur
sembalkonsert eftir Bach og
leikur Helga Ingólfsdóttir ein-
leik þar. Verður það verk flutt
á sérstakan máta, þ.e. hljóð-
færaskipan verður eins og
venja var á baroktímanum. Eitt
hljóðfæri verður með hverja
rödd í stað þess að yfirleitt hafa
þessi verk í seinni tíð verið
flutt af stórum strengjasveit-
um. Með þessari hljóðfæraskip-
an verður verkið flutt í
upprunalegri stíl. Þá verður
m.a. fluttur jólakonsert eftir
Corelli og i þeim flutningi
munu einleikarar og strengja-
sveit skiptast í tvo hópa eins og
tiðkaðist í gömlum stil.
Á efnisskránni eru verk eftir
eftirtalda menn:
Anthony Holborne.
Lítið er vitað um A.
Holborne, annað en að hann
var lútuleikari og tónskáld.
Meðal verka hans eru safn af
dönsum fyrir málm-
blásarakvintett og eru þessir
dansar úr því safni.
Johann Pezel.
Fá tónskáld hafa skrifað eins
mikið fyrir málmblásara og
Pezel, eftir hann liggja ógrynni
af verkum s.s. hið mikla dansa-
safn „Hora Decíma“ og mikill
fjöldi af sónötum.
Henry Purcell
Pureell er sennilega óþarfi að
kynna fyrir íslenskum
tónlistarunnendum. — Hann
var orgelleikari í Westmister
Abbey, skrifaði mikið af
sprang
Eftír
Arnn Johnsen
kirkjumusik, og einnig leikhús-
verk.
Samuel Scbeidt
Scheidt er fæddur i Halle
1587. Nemandi Sweelinck og
var frægur orgeileikari og tón-
skáld í Þýskalandi.
Arcangelo Corelli
A. Corelli starfaði mestan
hluta ævi sinnar i Róm. Var
hann þar í miklu áliti sem
tónskáld og fiðluleikari. Barst
frægð hans víða um lönd og var
hann mjög eftirsóttur kennari.
í Róm naut A. Corelli stuðnings
Perro Ottobonis kardinála. Út-
vegaði kardinálinn A. Corelli
bústað í höll sinni, en A. Corelli
stjórnaði þar tónleikum hvern
mánudag. Þóttu tónleikar
þessir ávallt mestu tónlistar-
viðburðir borgarinnar. A.
Corelli lagði til þróunar
hljómsveitarformsins Concerto
grosso svo stóran skerf, að hann
hefur oft verið nefndur faðir
þess. „Jólakonsertinn" svo-
nefnda ætlaði A. Croelli tii
flutnings á jólanótt. Konsertinn
er talinn eitt fegursta verk
hans.
Johann Sebastian Bach
Ekki er vitað hvenær J.S.
Bach skrifaði sembalkonserta
sína, en líkur benda til þess að
það hafi verið eftir að hann tók
við starfi sínu í Leipzig. Kom þá
m.a. i hans hlut að taka við
stjórn kammersveitarinnar
„Collegium Mucium". Að
sjálfsögðu varð J.S. Bach að sjá
kammersveit þessari fyrir
nægum verkefnum. En J.S.
Bach varð um líkt leyti einnig
að sjá annrri kammersveit fyrir
verkefnum, en sú sveit var hin
musikalska fjölskylda hans.
Um þetta leyti voru i eigu fjöl-
skyldunnar 5 sembalar, 2 fiðl-
ur, 1 piccolofiðla, 3 víólur, 2
cello og víóla da gamba. — 1
bréfi til æskuvinar síns Georg
Erdmanns í Danzig skrifar J.S.
Bach m.a. árið 1730: „öll börn
mín hafa hlotið tónlistargáfu í
vöggugjöf, og ég fullvissa þig
um að við getum leikið og
sungið saman bæði konserta og
söngverk, einkum vegna þess
að núverandi kona mín hefur
sérlega hreina rödd...“
HLJÖÐFÆR ALEIKAR AR
Einleikari: Helga Ingólfsdóttir,
semballeikari
Rut Innólfsdóttir
Helga Hauksdóttir
Ásdfs Þorsteinsdóttir
I)óra Björgvinsdóttir
Pierre Anderssen
Sesselja Halldórsdóttir
Auriur Ingvadóttir
John Collis
Jón Sigurðsson
Helga Ingólfsdóttir
Lárus Sveinsson
Jón Sigurðsson
Christina Tryk
Ole Kristian Hanssen
Bjarni (audmundsson
konsertmeirstari
fiðluleikari
fiðluleikari
fidluleikari
fidluleikari
vfóluleikari
cellóleikari
celloleikari
bassaleikari
semballeikari
t rompct leikari
trompetlcikari
hornleikari
básúnleikari
túbuleikari
Uppsetningabúðin
Hverfisgötu 74,
auglýsir
Allt til uppsetningar á handavinnu.
Öll fáanleg járn og snúrur
Allt til skerma.
Mikið úrval af púðaflaueli.
Til gjafa:
antik dúkar og púðar.
Uppsetningabúðin
Hverfisgötu 74.
Frá aðalfundi Styrkt-
arfélags aldraðra
1 Þingeyjarsýslu
AÐALFUNDUR Styrktarfélags
aldraðra í Þingeyjarsýslu var
haldinn 4. des. sl. og kom fram í
skýrslu fráfarandi formanns,
Björns Friðfinnssonar, að félagið
hefur að undanförnu beitt sér fyr-
ir undirbúningi dvalarheimilis
aldraðra á Húsavík og fjáröflun
til hennar. Er byggingin nú hafin
og hafa sveitarfélög í héraðinu
stofnað sameiginlegt félag um
byggingu og rekstur dvalarheim-
ila fyrir aldraða og skipað sér-
staka byggingarnefnd fyrir
dvalarheimilið á Húsavík.
Styrktarfélagið hefur nú þegar
lagt fram nokkurt fé til dvalar-
heimilsbyggingarinnar, sem því
hefur áskotnazt með félagsgjöld-
um og gjöfum og stendur nú yfir
sérstök fjáröflun í sama skyni.
Stjórn félagsins skipa nú Þuríður
Hermannsdóttir, Húsavik, Öskar
Sigtryggsson, Reykjahverfi, Elín
Aradóttir, Reykjadal, Aðalbjörn
Gunnlaugsson, Axarfirði, og Ingi-
mundur Jónsson, Húsavík.
Fréttaritari.
Haraldur Magnússon viðskipta-
fræðingur,
Sigurður Benediktsson sölumað-
ur, kvöldsimi 42618.
Úrval fasteigna á
söluskrá. 2ja, 3ja, 4ra
og 5 — 8 herb. íbúðir.
Einbýlishús og rað-
hús. Fullgerð og i
smíðum.
Sérhæð
Úrvals sérhæð við Álfhólsveg
um 1 50 fm.
I!!l
LAPPONIA
skartgripir frá Finnlandi
KJARTAN ASMUNDSSON gullsmiður — Aðalstræti 8
4ra herb. íbúð óskast
Höfum verið beðnir að auglýsa eftir 4ra herb.
íbúð á Reykjavíkursvæðinu. Útb. fyrir áramót 2
millj. íbúðin þarf ekki að losna fyrr en eftir 8
mánuði.
Benedikt Þórðarson héraðsdómslögmaður.
28644 nf.lLfjil 28645
Við bjóðum
3ja herb. ibúð á hagkvæmum kjörum við
Bragagötu bað nýstandsett með þvottaaðstöðu
Samkomulag um verð, útb. og losun.
Opiö sem endranær um helgar.
í dag frá kl. 1 —5.
ftfdrCp f asteignasala Sölumenn: Heimasimar:
Öldugötu 8 Finnur Karlsson, Þórhallur Sigurðsson, 25838 16787
^ símar: 28644 : 28645 Valgarður Sigurðsson, lögPr 42633t