Morgunblaðið - 12.12.1976, Síða 43
Aðventukvöld
í Kristskirkju
Félag kaþólskra leikmanna
gengst fyrir aöventukvöldi i dóm-
kirkju Krists konungs, Landakoti,
mánudaginn 13. desember, kl.
8.30 siðdegis. Kammersveit
Reykjavíkur leikur þar konsert
fyrir sembal og strengi í D-dúr
eftir J.S. Bach, Concerto grosso
op. 8 (Jólakonsertinn) eftir A.
Corelli og auk þess jólalög. Milli
tónverkanna verða lesnir kaflar
úr spádómsbókum Gamla testa-
mentisins og loks jólaguðspjallið
úr Lúkasarguðspjalli.
Bæklingur
um ketti
SAMBAND dýraverndunarfélaga
tslands hefur gefið út bækling
um, meðferð katta. Þetta litla rit
mun bæta úr brýnni þörf fyrir
slfka fræðslu þvf mjög oft er leit-
að til dýraverndunarmanna um
upplýsingar og meðferð hinna
ýmsu dýra og þá mjög oft katta.
Er bæklingurinn kominn I bóka-
búðir.
Verði einhver ágóði af sölunni
mun hann renna óskiptur til dýra-
verndar. Þessi bæklingur skiptist
i tvo meginflokka. Fyrri hlutinn
fjallar um meðferð og uppeldi
katta og kettlinga, en sá síðari eru
lýsingar á nokkrum þeirra sjúk-
dóma sem kettir geta fengað. Fall-
egar kattamyndir prýða ritið.
Formaður S.DÍ., Jórunn Sör-
ensen, tók ritið saman, en Guðrún
A. Simonar, dýralæknarnir
Brynjólfur Sandholt og Gunn-
laugur Skúlason og dýra-
hjúkrunarkonan Sigfríð Þóris-
dóttir lásu handritið yfir efnis-
lega. Er það von S.D.Í., að.ritið
muni stuðla að bættri meðferð
katta og skilningi á þeim.
Reynt að finna
heppilegan tíma
fyrir útvarpsum-
ræður um land-
helgismálið
UMRÆÐUR standa yfir á milli
þingflokkanna um heppilegan
tima fyrir útvarpsumræður um
landhelgismálið. Alþýðubanda-
lagið flutti tillögu um þetta efni i
Sameinuðu þingi, en vegna mik-
illa anna i þingstörfum er erfitt
að finna umræðunum stað. Að
sögn Friðjóns Sigurðssonar skrif-
stofustjóra Alþingis kemur til
greina að útvarpa fyrri umræðu
um málið fyrir jól, eða þeirri síð-
ari og þá eftir jól. Ákvörðun verð-
ur tekin um málið strax eftir
helgi.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGÚR 12. DESEMBER 1976
43
--------------: X
BAÐMOTTUSETT
Glæsilegt úrval
HF.,
DAN
CLEAN
háþrýstihreinsKæki
frá Gerni
Stærðir frá 65 kg /cm2 — 160 kg /cm2
Stærðir D-85, D-1 1 5 og D-1 50 er hægt að fá
með búnaði til sandblásturs.
Einkaumboð á íslandi.
Vélsmiðjan Dynjandi s.f.,
Skeifunni 3H, símar 82670 og 82671,
Viðgerða og varahlutaþjónusta.
Geróu kröfur
og pú velur
Philishave
Philishave — nafnið táknar
heimsfrægt rakhnífakerfi. Þrjá
hringlaga,fljótandi rakhausa.
Þrisvar sinnum tólf fljótvirka
hnífa,sem tryggja fljótan, þægilegan
og snyrtilegan rakstur. Þrisvar sinnu
níutíu raufar,
sem gripa bæði
löngogstutt h
í sömu stroku.
Er ekkikominn
tími til,aðþú
tryggir þérsvo
frábæra rakvél?
Philishave 90-Super 12,hefur
stillanlega rakdýpt, sem
hentar hverri skeggrót.
Vegna hinna nýju 36 hnífa,
rakar hún hraðar og þægi-
legar. Niu dýptarstillingar
auka enn á þægindin.
Bartskerinn er til snyrtingar
á skeggtoppum og börtum.
Þægilegur rofi og auðvitað
gormasnúra. Vönduð gjafaaskja
(HP1121).
Hleðsluvél með stillanlegri
rakdýpt. Á einni hleðslu
tryggir þessi Philishave 90-
Super
,þer
rakstur í tvær
vikur. Níu dýptarstillingar
og ein þeirra hentar þér
örugglega.Teljari sýnir hve
oft vélin hefur verið notuð
frá síðustu hleðslu. Bart-
skeri og gormasnúra
og í fallegri gjafaöskju
(HP 1308)
Philishave 90-Super‘12.
Hraður og mjúkur rakstur,
árangur 36 hnífa kerfisins.
Rennileg vél sem fer vel í
hendi. Bartskeri og
gormasnúra og í
fallegri gjafaöskju
(HP1126).
Rafhlöðuvél.
Tilvalin í ferðalög,
í bátinn, bílnum,
og hjólhýsinu.
Viðurkenndir
rakstrareiginleikar.
Fórar rafhlöður,
tryggjafjölmarga
hraða og þægilega
rakstra. í þægilegri
ferðaöskju (HP 1207
Philips kann
tökin á tækninni.
Nýja Philishave 90-Super 12
3x12 hnífa kerfið.
PHILIPS
Fullkomin þjónusta
tryggir yðar hag.