Morgunblaðið - 12.12.1976, Side 10

Morgunblaðið - 12.12.1976, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1976 Hérleiðir Vfkingureitt barnanna á spftalanum, hann Gumma litla, sem er að verða 2ja ára. fíætt við við að etja. Þetta eru nú ekki nema ómótaðar hugmyndir ennþá og enn ekki komið á neinn rek- spöl, en mér finnst áberandi hvað þessi aldurshópur er vanræktur hvað vérðar heilsugæzlu.“ Áhugi á að opna spítalana meira — Nú hefur læknisþjónusta spitalans verið aukin og má að mestu leyti rekja það til aukning- Öðruvísi hús- næði æskiiegt „Barnadeildin hefur aðstöðu hér á tveim hæðum og auk þess er nýburadeild í húsakynnum fæð- ingardeildarinnar, þar sem veiiei, nýfædd börn eru til húsa,“ hélt Víkingur áfram. Það var i sjálfu sér geysileg bót að flytja hingað og öll aðstaða batnaði mjög. Að mínu mati væri hins vegar æski- legt að barnaspitalinn væri í öðru vísi húsakynnum. Það þarf að ýmsu leyti aðra aðstöðu í sjúkra- húsi fyrir börn en fullorðna, t.d. þarf nægilegt rými fyrir leik og föndurstarfsemi, svo og kennslu. Þá væri ákjósanlegt að nokkrar stofur væru þannig útbúnar, að annað hvort foreldra gæti dvalið í vissum tilvikum hjá barni sínu yfir nóttina, t.d. ef um mikið veik eða dauðvona börn er að ræða og fólk sem kemur utan að landi. Mér finnst líka galli að nýbura- dgildin, sem ég minntist áður á, skuli vera í annarri byggingu, jafnvel þó stutt sé á milli og einn- ig sakna ég þess að Geðdeild Barnaspftala Hringsins, sem er í Laugardal, skuli ekki vera í nán- ari tengslum við spítalann hér. Æskilegast teldi ég að hafa barna- spftalann í sérstakri byggingu og þar væri hægt að útbúa útivistar- svæði fyrir börnin sem hægt væri að ganga beint út í af jarðhæð, en það er mjög nauðsynlegt að hafa þannig aðstöðu fyrir þau börn, sem eru rólfær. Að vísu var út- búinn leikvöllur hér á lóðinni fyr- ir deildina, en það skapar alltaf vissa erfiðleika að þurfa að fara marga stiga og ganga í stað þess að geta hleypt börnunum beint út. En það er kannski ekki nema eðlilegt að ýmislegt megi bæta þar sem staðsetning deildarinnar hér var í sjálfu sér þrautalending vegna fjárskorts til byggingar sjálfstæðrar stofnunar, og það ber að þakka allt, sem hér hefur verið vel gert." Heilsugæzla unglinga vanrækt „En það er einn hópur manna, sem mér finnst hafa dottið dálítið upp fyrir í heilsugæzlumálum okkar lslendinga, og það eru unglingarnir," sagði Víkingur ennfremur. Mér fyndist mjög æskilegt að hér yrði komið upp sérstakrí unglingadeild og væri eðlilegt að hún væri í tengslum við barnadeildina, en á barna- spítalann er miðað við 15 ára há- marksaldur. Það væri mjög heppi- legt að slík deild væri í formi göngudeildar, því algengast er að unglingar eigi við þannig vanda- mál að glima, að ekki sé ástæða til að þeir leggist inn á spítala. Þetta er þróunin erlendis, t.d. í Ameríku og á Norðurlöndunum, enda hafa unglingar ýmis vanda- mál þó flestir gangi út frá því sem vísu að unglingar séu heilbrigt og hraust fólk. Má þar t.d. nefna eiturlyfjaneyzlu, kynsjúkdóma, sem hafa aukizt víða erlendis vegna hinna nánu samskipta unglinganna nú á tímum, svo og ýmiss konar andlega og félagslega erfiðleika, sem unglingar geta átt Þessi ungi herramaður var að búa sér til jólabjöllu úr papplr. Það er mikilvægt ao börnín séu í sem eðlilegustu umhverfi svo daglegt Iff þeirra raskist sem minnst þó að þau þurfi að fara á spftala. Á spftalanum starfa bæði fóstrur og kennari og hér eru fóstrurnar að kenna krökkunum að gera jólaföndur. ar heilahimnubólgutilfella hjá börnum undanfarið. Við spurðum Víking um þessa starfsemi. „Markmiðið með þessu var fyrst og fremst að létta undir með læknisþjónustunni," sagði hann. „Meiningin var að þessi starfsemi yrði aðallega i gegnum heimilis- og vaktlækna, þannig að þeir gætu sent til okkar sjúklinga til skoðunar, án þess að endilega þurfi að leggja þá inn því það er ekki alltaf ástæða til þess. Það geta t.d. komið upp þær aðstæður að læknir sé fastur á stofu og komist ekki tafarlaust i sjúkra- vitnun. Þá getur fólk náttúrulega snúið sér til neyðarvaktarinnar en það hefur.hins vegar reynzt erfitt að fá lækna til starfa þar, því flestir læknar eru svo störfum hlaðnir. Þeir eiga því stundum erfitt með að fara á stundinni. Auk þess eru svo þúsundir manna, sem ekki hafa heimilis- lækni og hingað til hafa þeir orðið að snúa sér til slysavarðstofunn- ar, oft með veikindatilfelli sem alls ekki eiga heima þar. Við álít- um því að með þessu skapist méira öryggi. Og þó hugmyndin sé, að starfsemin fari i gegnum heimilislæknana erum við að sjáifsögðu alltaf reiðubúnir til að taka við börnum, ef þau verða skyndilega mikið veik, þó læknir „STOFNUN Barnadeildarinnar má rekja til þeirrar ætlunar að stofna og koma á fót sérstökum barnaspítala og voru það upp- hafiega Hringskonur, sem stóðu að fjáröfl- un til þeirra framkvæmda. Síóar, þegar byggt var við Landspítalann, varð það aö samkomulagi að þetta fé rynni til barna- deildar við spítalann. Árið 1957 komst deildin í gagnið og var hún þá til húsa í gamla spítalanum, en 1965 var deildin flutt hingað í nýbygginguna og eftir það var deildin kennd við Hringinn vegna fjár- framlags kvennanna.“ Þannig fórust Víkingi H. Arnórssyni, yf- irlækni Barnaspítala Hringsins, orð, þegar Mbl. menn heimsóttu spítalann í vikunni. Víking H. Arnórsson, yfiriækni Barnaspíta/a Hringsins „Æskilegt að fólk geti komið til skyndiskoð- unar án þess að þurfa að leggjast á sjúkrahús"

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.