Morgunblaðið - 12.12.1976, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1976
Fyrir réttri viku leitaði Morgunblaðið
svara hjá fólki við ýmsum spurningum
um launamál. Svörin voru á marga
laund og nú hefur blaðið enn leitað
svara við sömu spurningum hjá fólki í
ýmsum störfum. Spurningarnar voru
þessar:
1 • Hvernig telur þú að hægt sé að bæta kjör
hinna lægst launuðu?
2« Hvað er að þínu mati kjarabætur annað en
beinar kauphækkanir?
3* Hvernig á að ráða bót á verðbólgunni?
Gestur
Einarsson
VINNUR I
SÆLGÆTISGERÐINNI
OPAL.
1. Lágmark aó fólk geti lifaó
af dagvinnulaunum.
2. Að leggja ekki skatta á
lægstu laun.
3. Þessu get ég ekki svarað
frekaren ríkisstjórnin okkar.
og er sá fyrsti Asgeir Höskulds-
son:
1) P’yrst og fremst að þeir
lægst launuðu fái mannsæm-
andi kjör, þá er fyrst um kjara-
bætur að ræða.
2) Það er tvímælalaust
kjarabót fyrir láglaunafólk ef
skattarnir lækka og það er
öruggt mál að ef það tekst að
draga úr verðbólgunni eða
stöðva hana þá eru það beztu
kjarabætur sem hægt er að fá.
3) I fyrsta lagi er það að
verðlag haldist stöðugt og að
gengi íslenzku krónunnar verði
stöðugt líka, en annars þarf
hagfræðinga til að svara þess-
um spurningum.
Reynir Armannsson svaraði á
þessa leið:
1 ) Bæði fyrrverandi og
núverandi vinstristjórnir höfðu
það á stefnuskrá sinni að bæta
kjör hinna lægst launuðu en
það hefur að mínu mati ekki
tekizt. Til að bæta kjör hinna
lægst launuðu þarf í samning-
um að hafa láglaunafólkið i
huga og láta þá sem eru hærra
launaðir bíða á meðan. Ríkis-
stjórnin verður að hafa lægst
launaða fólkið meira í huga.
Spurningar 2 og 3 hanga að
verulegu leyti saman og það er
ljóst að meira verðlagseftirlit
þarf og sterkari neytendasam-
tök.
Jón Helgason sagði:
1) Það þarf að hækka veru-
lega laun hinna lægst launuðu
án þess að það sé tekið aftur í
hækkuðu verðlagi.
2) Samræma þarf verð-
Iagseftirlit og skattabreytingar
eru sjálfsagt kjarabætur fyrir
marga.
3) Við þessari spurningu
er ekki hægt að gefa neina
lausn, það hefur víða gengið
illa og ég get ekki lagt þar til
neina leið, það verða hagfræð-
ingar að gera.
Páll
Hreinsson
að ákveðnum aldri, t.d. 28 ára.
Létt þannig átakið við að koma
þaki yfir höfuðið samhliða hjú-
skaparstofnun.
Einnig mætti fella niður gjöld
dagvistunarstofnana fyrir þá for-
eldra, sem vinna úti og hafa ekki í
önnur hús að venda með börn sín.
3. Gera krónuna aftur að
krónu með sínum 100 aurum og
endurvekja trú fólks á öllu ís-
lenzku. Varast erlendar lántökur
og fjármagn án vinnu, sem fer
beint í eyðslu og er spennuvald-
andi. Treysta stoðir framleiðslu-
atvinnuveganna og framleiða eig-
in neyzluvörur. Siðast en ekki
sízt, auka kaupmáttinn, þannig að
ekki skapist togstreita kaupgjalds
og verðlags.
Ragnheiður
Grétarsdóttir
STARFARI
PRENTSMIÐJUNNI
ODDA.
1. Skikka ráðherrana til að
lifa á verkamannalaunum í eitt
ár.
2. Lækkað vöruverð, lækkun
skatta, hærri persónufrádrátt.
3. Með sparnaði — og með því
að koma í veg fyrir allt svínarí og
fjármálabrask.
Halla
Thorlacius
STARFAR VIÐ
AFGREIÐSLU HJÁ
TOLLSTJORA-
EMBÆTTINU
1. Hækka launin hjá þeim,
sem lægst eru launaðir, en ekki
hjá þeim, sem eru betur launaðir.
2. Lægri skatta eða meiri
skattafrádrátt.
3. Flytja minna inn af er-
lendum vörum og selja meira af
íslenzkum — eða verðstöðvun.
Skarphéðinn
Magnússon
VINNUR A
BlLAÞVOTTASTÖÐINNI
BLIKA
1. Þetta er nú þessi sígilda
spurning, sem oft er búið að svara
— og á mismunandi vegu.
Það er hægt á margan hátt að
bæta kjör þeirra lægst launuðu:
T.d. með því að gera mönnum
kleift að koma yfir sig þaki á
leigukjörum, þvi ekki eru þau svo
lítil nú.
2. Meðan skattamál þjóðar-
innar eru í því horfi, að mönnum
er refsað fyrir að vinna mikið (og
þar af leiðandi afla gjaldeyris) er
ekki von á góðú. Það þyrfti að
verðlauna það fólk, sem ynni mik-
ið. Það þarf að gera gangskör að
því að lagfæra lífeyrissjóðakerfið
svo þeir séu kjarabót, en ekki
refsiskattur.
3. Það gefur auga leið, að
það má ekki lifa um efni fram.
Ekki fjárfesta með lánum, sem
eru borguð með öðrum lánum.
Það kostar peninga að taka lán,
en mér finnast ráðamenn þjóðar-
innar ekki hafa verið til eftir-
breytni í þessu efni.
Sandra
Róberts
VINNUR t
KEXVERKSMIÐJUNNI
FRÓN
1. Hækka kaupið í krónu-
tölu, en ekki í prósentuvís, því
þá vilja þeir, sem eru hærra
launaðir, fá sómu prósentutölu
(Lágmarkslaun verði 100 þús-
und fyrir 40 stunda vinnu á
viku).
2. Engan tekjuskatt á lægstu
laun og engan söluskatt á
neyzluvörur. Heimavinnandi
húsmæður fái sama skattafrá-
drátt og þær, sem vinna úti.
Gera á fólki, sem er að eignast
sitt fyrsta húsnæði, kleift að
borga enga skatta i tvö ár, eða á
meðan á húsbyggingu stendur.
Menn, sem eiga fyrirtæki, borgi
ekki minni skatta en hæst laun-
uðu starfsmenn í sama fyrir-
tæki.
3. Draga úr ríkishákninu.
Takmarka á lántökur erlendis
og fara ekki út í allt of miklar
framkvæmdir fyrr en peningar
eru til fyrir þeim í landinu.
Skattleggja verðbólgugróða og
halda öllu verði sem mest niðri.
Innflytjendum verði gert skylt.
að gera hagstæð innkaup.
Birgir
ÞormóÖsson,
STARFAR HJA
VÖRUFLUTNINGA
MIÐSTÖÐINNI.
1. og2. Kjör hinna lægst
launuðu má bæta með ýmsum
hætti. Fyrst vil ég nefna að
hækka ætti öll laun upp í
hundrað þúsund á mánuði, en
þó með þeim fyrir vara, að þeir
kauphækkun fylgdi ekki hækk-
un á verðlagi. Þá finnst mér að
fólk, sem býr i leiguhúsnæði,
ætti að fá þá peninga, sem það
borgar í húsaleigu frádregna
skatti.
Það á að fella niður söluskatt
af nauðsynjavörum, eins og
mjólk o.fl. þess háttar. Ríkið
gæti bætt sér tekjumissinn af
því með því að hætta að borga
útlendingum fyrir að borða ís-
lenzkt kjöt, þ.e.a.s. hætta öllum
útflutningsuppbótum á íslenzk-
ar landbúnaðarvörur. Ég hef
heyrt að upphæð, sem nemi öll-
um hagnaði okkar á síldveiðun-
um í ár, hafi farið í útflutings-
bætur á kjöti.
Lækkun beinna skatta er að
mínum dómi kjarabót, sem gæti
komið að verulegu leyti í stað
beinna kauphækkana. T.d tel
ég að lækka ætti skatta af yfir-
vinnu, þannig að fólk sé ekki
beinlinis fælt frá því að vinna
eins mikið og það þarf, t.d. ef
það er að kaupa sér hús eða
byggja. Ég held að það væri
heppilegra ef fólk gæti unnið
að verulegu leyti fyrir húsa-
kaupum sjálft, í stað þess að
vera að taka stór lán hjá riki og
lífeyrissjóðum. En fólk er að
sjáflsögðu ekki æst í að vinna
Framhald á bls. 27
Reynir Ármannsson og Jón
Helgason. Þvi miður náðist
ekki að mynda Asgeir
Höskuldsson.
Beztu kjara-
bætur ef tekst
að draga
úr verðbólgu
— SEGJA PÖSTMENN
Á Pósthúsinu urðu þrír menn
fyrir svörum, hver i sinni deild
AFGREIÐSLUMAÐUR
HJA S.S.
1. Með þvi að auka kaupmátt
launa, en fjölga ekki launakrón-
um og rýra verðgildi þeirra.
Þessu marki má ná með niður-
færsluleið, en til þess að byrja
með þarf að auka kaupmáttínn
um 25% með afnámi skatta og
útsvars á tekjur undir 900 þúsund
á ári.
2. Aðstoð í byggingamálum
ungs fólks, þannig að nálgist
meira fyrirkomulag hjá frænd-
þjóðum okkar, þ.e. leigukaupa-
samninga. Lækkun vaxta á lánum
til húsnæðis fyrir láglaunahópa