Morgunblaðið - 12.12.1976, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1976
liLuJÍ i:||y|
Standlampar
med stillanlegum
ljóshjálmum
Breytileg hæðar- og
hliðarstilling gefur
einmitt þá lýsingu sem
óskað er eftir.
Oskalampi fyrir nútímaheimili.
RAFBÚÐIN
Auðbrekku 49, Kópavogi. Simi: 42120
HREIN SKILIN
ÁDEILA
NýjaBíó:
CONRACK if if if
Amerlsk frá 1975. 20th
Cenyury — Fox
Hinar óvæntu feykivinsældir
myndarinnar SOUNDER (N.
Bíó 1975) urðu til þess að leik-
stjóri hennar, Martin Ritt, og
framleiðslufyrirtæki tóku á ný
saman höndum og ákváðu að
gera aðra mynd um hliðstætt
eða ekki ósvipað efni (Reyndar
fóru þeir á stað í þriðja sinn, og
eru nú nýloknir við myndina
SOUNDER PART II). Fyrir
valinu urðu næsta lygilegar
endurminningar kennara nokk-
urs sem ráðinn var við barna-
skóla þeldökkra á afskekktri
eyju útaf strönd Suður-
Karólínufylkis. Þar mætir
kennaranum þvílik fáfræði að
ætla m^etti að sagan gerðist á
miðöldum, en reyndar áttu
þessir atburðir sér stað á því
herrans ári 1968.
Bókin vakti allmikla athygli
og var þvi, frá flestum sjónar-
hornum, hið æskilegasta efni í
kvikmynd. Þá var og hinn vin-
sæli leikari Jon Voight (MID-
NIGHT COWBOY, DELIVER-
ANCE) ráðinn I aðalhlutverkið,
en stjarnan úr SOUNDER, Paul
Vinfield, fékk einnig stórt hlut-
verk. En öfugt við allar skyn-
samlegar áætlanir, þá varð vel-
gengni CONRACK harla litil og
komst myndin ekki nærri vin-
sældum SOUNDER. En slikt er
ekki óþekkt fyrirbæri í kvik-
myndaheiminum.
Flestir þeirra, sem séð hafa
CONRACK, eru örugglega for-
vaða á þeim dræmu móttökum
sem myndin hlaut í heimalandi
sínu. Þvi hér er á ferðinni
óvenjulega vandvirknislega
gerð og vönduð mynd um hið
eilífa, viðkvæma vandamál —
kynþáttamisréttið. Sýndir eru
fordómarnir frá hliðum beggja,
en umhverfið er smáeyja sem
næstum eingöngu er byggð lit-
uðu fólki.
Það er ekki afsakanlegt að
rekja söguþráðinn nánar, en
hann fjallar þó fyrst og fremst
um samskipti kennarans við
nemendur slna svo og yfirboð-
ara.
Leikurinn i þessari vel skrif-
uðu mynd er yfirleitt með mest-
um ágætum, og þá einkanlega
hjá Voight I aðalhlutverkinu,
eins er Hume gamli Cronyen
réttur maður I hlutverki baðm-
ullarekrueigandans. Skólabörn-
in eru einkar geðslegur hópur
sem virkar eðlilega á áhorfend-
ur. Blueskennd tónlist John
Williams, sem I dag er I lang-
fremstu röð þeirra tónskálda
sem fást við tónsmiðar fyrir
kvikmyndir, eykur verulega við
gildi CONRACK, og sama máli
gegnir um kvikmyndunina
jafnt sem örugga leikstjórn
Ritts. Þetta er því sannkölluð
fjölskyldumynd, sem nú gerast
ærið sjaldgæfar.
Varið ykknr kyn-
bombnr - hér kem-
nr Lanra Antonelli
hvikm
mijnd
/íðom
SÆBJÖRN VALDIMARSSON
AUSTURBÆJARBIO:
SYNDIN ER LÆVÍS
OG ★ ★
(PECCATO VENIALE)
ítölsk frá 1965.
Kvikmyndin ALLIR ELSKA
ANGELU (Austurb.b. 1975),
kom þægilega á óvart. Þá
höfðu felstir kvikmyndaunn-
endur orðið illan bifur á
evrópskum meginlands-
myndum, með hálfberum,
líttþekktum „störnum", í
aðalhlutverkum. Ekki var það
til að bæta úr skák ef þær svo
voru flokkaðar undir „djarfar
gamanmyndir. Slíkar
skemmtanir", voru oftast
innantómar gerviklámmynd-
ir. En ANGELA, ásamt LES
VALSEUSES ofl góðum,
hafa tvímælalaust aukið
hróður evrópskra sex-
gamanmynda.
Að sjá framhald ANGELU
var mér því tilhlökkunarefni,
og hú olli alls engum von-
brigðum. Myndin og oft
drepfyndin, líkt og forveri
hennar, erótíska spennan
ekki síður rafmögnuð og
lostafull. Aldrei ódýr, jafnan
skynsamlega og fagurlega
uppbyggð. Sjálfsagt geta
einhverjir hneykslast á
glettnum söguþræðinum, ég
votta þeim hér með vorkunn
mína.
En aðalkraftaierk myndar-
innar er sem fyrr ítalski álfa-
kroppurinn Laura Antonielli,
sem auk ómælanlegs kyn-
þokkaog fegurðar, er miklum
leikhæfileikum gædd, bæði
fyndin og dramatísk Nú fyrir
skömmu hlaut Antonelli
mjög góða dóma fyrir leik
sinn í nýjustu satíru Dino
Risi, en þar leikur hún á móti
Giancarlo þeim sem löngum
hefur farið með aðalhlutverk-
in í myndum Linu Wert-
múller (SWEPT AWAY . . .,
SEVEN BEUTIES). Hér er því
leikkona sem er á uppleið, og
hún endar á toppnum, verið
viss.
Hinar gamalgrónu kyn-
bombur eins og B.B., Sophia
Loren Raquel Welch, Ursula
Andress, mega því vissulega
gæta sin, því hér hafa þær
eignast keppinaut sem á eftir
að skyggja á frama þeirra.
Það ætti þvi örugglega
engum karlmanni (með eðli-
legar kynhvatir) að leiðast í
Austurbæjarbíói næstu dag-
ana, og kvenpeningurinn
ætti eínnig að skemmta sér
hið besta, því Syndin er
lævís . . ., er oftast bráð-
skemmtileg og sjarmerandi.
Þér verður
hlýtt til hans
Þurrkarinn frá ENGLISH ELECTRIC I
er ómissandi í íslenskri veðráttu.
Tvær hitastillingar.
5 kg. afköst.
Einfaldur öryggisbúnaður.
Útblástursbarki einnig fáanlegur.
Yfir 20 ára reynsla hérlendis.
Varahluta- og viðgerðarþjónusta frá eigin verkstæði.
SMí&Œa
Laugavegi 178 Sími 38000