Morgunblaðið - 14.12.1976, Page 5

Morgunblaðið - 14.12.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976 5 Þreyttir Islendingar töpuðu fyrir úrvalsliði Siálands Islenzka handknatt- leikslandsliðið tapaði f gærkvöldi leik sfnum við úrvalslið Sjálands, er leikið var í Griskove- höllinni á Sjálandi. Úrslit leiksins urðu 25—20 fyrir danska liðið, eftir að tslendingarnir höfðu haft 2 mörk yfir í háifleik 11—9. Auðséð var á íslenzka lið- inu i leik þess*um að áhugi leikmanna á leiknum var ekki mikill, og þreyta eftir erfiða keppnisferð einnig greinilega farin að segja til sín og kom hún bezt í ljós í seinni hálfleiknum, þegar menn voru hreinlega „á hælunum“. Þarf raunar engan að undra það. FH- ingarnir i landsliðinu voru t.d. að leika þarna sinn fimmta leik á sex dögum og hinir sinn fjórða leik á fimm dögum. Auk þess vantaði svo leikmennina frá Val í landsliðið, en þeir héldu til Moskvu i gær, þar sem þeir leika seinni leik seinn við MAI á morgun. Gangur leiksins í gær- kvöldi var í stuttu máli sá, að íslendingarnir voru jafnan með forystu í fyrri hálfleik, mest 5 mörk, er staðan var 8—3. I seinni hálfleik snerist dæmið svo við. Staðan var jöfn 13—13, eftir 10 mínútna leik, en þar með misstu íslendingarnir leikinn al- gjörlega úr höndunum á sér og Danirnir skoruðu hvert markið af öðru, flest eftir hraðaupphlaup, þar sem íslendingarnir sátu al- gjörleg eftir. Komst danska liðið mest 7 mörk yfir, er staðan var 21—14. Mörk íslendinganna skoruðu: Viðar Símonar- son 5 (2 v), Ágúst Svavars- son 3, Ölafur Einarsson 3, Þorbergur Aðalsteinsson 3, Geir Hallsteinsson 2, Björgvin Björgvinsson 2, Þórarinn Ragnarsson 1 og Viggó Sigurðsson 1. Margir fyrrverandi landsliðsmenn léku í danska liðinu. Var Ole Lindqvist markhæstur með 6 mörk, en Irving Larsen næst markhæstur, skoraði 5 mörk. Bækur sem ekki hafa fengist lengi — En eru nú til 1907 Hreppamenn sýna Deleríum Búbónis ÍSAFOLD Syðra-Langholti 12. desember UNGMENNAFÉLAG Hruna- manna frumsýndi á föstudags- kvöld gamanleikinn Deleríum búbónis eftir þá Jónas og Jón Múla Arnasyni f Félagsheimilinu á Flúðum. Með helztu hlutverk i leiknum fara Kjartan Helgason, sem ieikur Ægi Ö. Ægis, fórstjóra, Sigurbjörg Hreiðarsdóttir, leikur Pálinu Ægis, og Guðrúnu Ægis, dóttur þeirra, leikur Sólveig Guð- mundsdóttir. Jafnvægismálaráð- herrann leikur Jóhannes Helga- son en alls eru leikendur 9 og flestir hafa þeir komið fram áður. Þau Sigurbjörg og Jóhannes hafa til að mynda unnið I rúmlega 30 ár að leiklistarmálum hér i sveit- inni. Sýningunni var vel tekið og voru undirtektir áhorfenda mjög góðar. Voru leikendur og leik- stjórinn, Jón Sigurbjörnsson, leikari, kallaðir margsinnis fram i leikslok. Höfundunum, sem við- staddir voru frumsýninguna, var einnig þökkuð skemmtunin. Þess má geta að þetta er i fjórða sinn, sem Jón Sigurbjörnsson leikstýrir verki hjá UMF Hrunamanna. Flutningi tónlistar stjórnaði Loftur Loftsson. Á þriðjudags- kvöld verður leikritið sýnt i Ara- tungu en fyrirhugað er að sýna Ieikritið viðar á Suðurlandi á næstunni. Sig. Sigm. Leidrétting VEGNA greinar í Morgunblaðinu 11. desember undir fyrirsögninni Eiga sumir rithöfundar að fá starfslaun — aðrir „medalfu" vil ég vinsamlegast biðja blaðið að leiðrétta ummæli, sem þar eru ýmist með öllu ranglega eftir mér höfð eða slitin svo úr réttu sam- hengi, að þau eru algerlega vill- andi, eins og fyrirsögnin vekur þegar gun um. 1. Ég er ekki og hef aldrei verið formaður Launasjóðs rithöfunda. 2. Eg sagði aldrei neitt í þá átt, að menntamálaráðuneytið hefði óskað eftir, að umsækjendur skyldu greina frá skattskyldum tekjum á umsóknareyðublaði Launasjóðs. Hins vegar gat ég þess, að á hliðstæðum eyðublöð- um fyrir umsóknir um starfs- styrki, sem sumir hverjir væru á vegum menntamálaráðuneytisins, væri mjög oft óskað eftir upp- lýsingum um tekjur umsækjanda næsta ár á undan. 3. Setninguna „peningar vega þar ekki minnst" kannast ég hreint ekki við. Hins vegar taldi ég, að fjárhagsástæður umsækjenda væri eitt atriði af mörgum, sem gætu skipt máli, þegar úr vöndu væri að ráða um veitingu starfslauna. 4. Blaðamaðurinn upphóf sjálfur fjálglegt tal um höfunda, sem teldu, að fjármunir skiptu þá engu máli, en heiðurinn öllu. Mér þótti harla ólíklegt, að slíkir menn færu að sækja um starfs- laun, og taldi vandamál þeirra liggja utan verkahrings sjóðsins. I andvaraleysi nefndi ég þá „medalíu" sem hugsanlega úrlausn, en vitaskuld án allra tengsla við Launasjóð rithöfunda. Öraði mig ekki fyrir, að úlfaldi yrði gerður úr þeirri mýflugu. Að öðru leyti leyfi ég mér að visa til greinargerðar stjórnar Launasjóðs rithöfunda, sem um þessar mundir er birt i öllum dag- blöðunum, um starfsemi sjóð- stjórnar, sbr. Morgunblaðið sunnudaginn 12. desember. Með þökk fyrir birtinguna. Bjarni Vilhjálmsson Saumavélin sem eerir alla saumavinnu einfalda er NECCHI NECCHIL YDIA 3 er fullkomin sjálfvirk saumavél með fríum armi. NECCHIL YDIA 3 er sérlega auðveld ínotkun. Með aðeins einum takka má velja um 17 mismunandi sporgerðir. NECCHILYDIA 3 mánota viðaðsauma, falda, þrceða, festa á tölur, gerahnappagötogskrautsaum auk sauma sem henta öllum nýtízku teygjuefnum. NECCHI LYDIA 3 vegur aðeins um 11 kg með tösku og fylgihlulum, og er því einkar meðfcerileg í geymslu og flutningi. NECCHI LYDIA 3 fylgir fullkominn íslenzkur leiðarvtsir. 40 ára reynsla NECCHI á íslenzkum markaði tryggir góða varahluta- og viðgerðaþjónustu. Góð greiðslukjör - Fást einnigvíða um land. NECCHILYDIA 3 kostar aðeins kr. 55.875,- Fálkinn póstsendir allar nánari upplýsingar, sé þess óskað. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 tSATOVD

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.