Morgunblaðið - 14.12.1976, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976
erró
pre-art
2 nýjar bæk-
ur um Erró
Bók með 1882 myndum og bók um stíl Erró
Nýlega kom út á Italfu yfirlits-
bók um verk Errós, en i bókinni
sem er mjög vönduð, eru myndir
af 1882 verkum listamannsins.
Bókin heitir General Catalog og
er meginhluti myndanna f bók-
inni svart-hvítar en um 50 lit-
myndir. Myndir eru f bókinni af
verkum allt frá árinu 1944, þegar
Erró teiknar fslenzkt landslag og
sfðan er rakin þróunin f mynd-
gerð hans að mosaikmyndum
meðtöldum.
Einnig er komin út bók í Frakk-
landi um Erró, rituó af Pierre
Tilmann. Bókin er um málverk
Errós og eru bæði svart-hvítar
myndir og litmyndir í bókinni.
Erró hefur m.a. verið með sýn-
ingu á verkum sínum í O.K.Harris
sýningarsalnum í New York að
undanförnu, en allar myndir hans
seldust þar á fysta degi sýningar-
innar. Þá hefur Erró verið á
ferðalagi í Texas Hudson að
undanförnu þar sem hann skoð-
aði rækilega allan aðbúnað og
framkvæmdir hjá bandarfsku
geimvísindastofnuninni NASA,
en þar eru miklar geimflauga-
verksmiðjur. „Þetta var áhrifa-
mikið“, sagði Erró við blaða-
manna Mbl.,“ og í þrjá daga var
ég með gæsahúað. Ég hef aldrei
séð annað merkilegra og þetta
hentaði mér.vel, því eg er i miðju
verki að vinna myndaflokk um
geimferðir og geimfara."
Geðdeiidir —
Sjúkrahótel
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi frá framkvæmdastjóra
Rauða kross Islands:
Vegna ummæla Ragnhildar
Helgadóttur alþingismanns (Mbl.
8. þessa mán.) skal þetta tekið
fram:
1. Enginn greanarmunur er gerð-
ur í Sjúkrahóteli Rauða krossins á
sjúklingum frá geðdeildum og
öðrum sjúkradeildum.
2. Frá upphafi hefur forráða-
mönnum sjúkrahúsa verið kunn-
ugt um jákvæða afstöðu fyrir-
svarsmanna Sjúkrahótelsins til
vistunar geðsjúklinga þar.
3. Ekki er kunnugt að sjúklingum
geðdeilda hafi verið visað frá.
Hins vegar er rúmleysi vaxandi
vandamál Sjúkrahótelsins.
4. Það sem af er þessu ári hafa 12
sjúklingar frá geðdeildum verið á
Sjúkrahóteli Rauða krossins í
samtals 247 dvalardaga.
5. Sjúkrahótelið er ekki fært um
að veita læknisþjónustu. Það gera
þær sjúkradeildir sem senda sjúk-
linga til dvalar þar.
Sjúkrahóteli Rauða krossins er
ætlað sjúklingum sem: A) Bíða
vistunar á sjúkradeild, t.d. meðan
á forrannsókn stendur. B) Hafa
dvalist á sjúkradeild og þurfa á
eftirmeðferð að halda, geta ekki
strax lagt á sig erfiða heimferð
eða séð um sig sjálfir. C) Eru I
meðferð á sjúkradeild, eru ferða-
færir og þurfa ekki að liggaj í
rúmi inni á sjúkradeild. D) Geta
dvalist utan sjúkradeildar t.d.
milli aðgerða.
Ég tek heilshugar undir áhuga
Ragnhildar Helgadóttur á bættri
aðstöðu fyrir geðsjúklinga. Þeir
þurfa fleiri rúm og bætta læknis-
hjálp.
En hversu mikið sem sjúkra-
húsrými eykst i landinu verður
þörf fyrir sjúkrahótel. Kemur þar
að sjálfsögðu til að kostnaður við
dvöl á velbúnu sjúkrahúsi er
mjög dýr. Hitt er þó mikilvægara
að sé sjúklingur fær um að
dveljast utan sjúkrahúsa, en
njóta samt hinnar fullkomnu
læknisþjónustu sem sjúkrahúsin
geta veitt, er sá kostur að jafnaði
betri fyrir hann.
Reynslan af Sjúkrahóteli Rauða
krossins hefur verið mjög góð.
Hún hefur orðið til þess að verið
er að koma upp á Akureyri
sjúkrahóteli sem Rauða kross
deild Akureyrar á og mun reka.
Starfsræksla þess hefst væntan-
lega í næsta mánuði. Er ég ekki f
vafa um að tilkoma þess kemur
geðsjúklingum að gagni ekki síð-
ur en öðrum sjúklingum.
10.12.76.
Eggert Ásgeirsson
Minnist
okkar
minnstu
bræðra
ÞAÐ eru sjálfsagt mörg góðgerða-
og líknarfélög hér i borg, sem láta
eitthvað gott af sér leiða og þá
ekki sizt um þetta leyti árs. Eða er
ekki sem hlýni hið innra með
mönnum á jólaföstunni, þótt kalt
sé hið ytra í riki náttúrunnar?
Jólin eru í nánd, og almennt er
farið að undirbúa komu þeirra.
Talað er um velmegun og pen-
angaflóð, en er það rétt? Eru ekki
margir með létta pyngju þessa
dagana þótt ekki væri nema
vegna hinnar miklu dýrtíðar?
Nefnum t.d. ellistyrkinn, sem er
rúmar tuttugu þúsundir rkóna.
Hann hrekkur skammt hjá hinum
öldnu, sem ekki geta aflað sér
neins aukalega, þess vegna er
ávallt þörf fyrir starf, lfknar-
félaga.
Ein er sú líknarstofnun, gott ef
hún er ekki ein sú helzta hér á
landi, sem hefur stafað af mikilli
kostgæfni f full 80 ár, og á henni
sjást engin ellimörk.
Það er sú hreyfing sem frá upp-
hafi hefur gætt þeirrar skyldu,
sem jólabarnið lagði okkur öllum
ríkt á herðar siðar meir i boðskap
sfnum, er Jesús sagði: „Sannlega
segi ég yður, svo framarlega, sem
þér hafið gjört þetta einum þess-
ara minna minnstu bræðra, þá
hafið þér gjört mér það.“ Hjálp-
ræðisherinn hér á landi hefur
ætið verðið trúr sínum minnstu
bræðrum. Það er hið fagra starf,
sem er ávöxtur lifandi trúar, vak-
andi allan ársins hring, þótt í til-
efni jólanna sé reynt að gera bet-
ur, gleðja fleiri, bæði með sér-
stöku hátiðarhaldi fyrir börn,
haldurhnigna og erlenda sjó-
menn, sem eru í höfn, auk þess
sem fatnaði er dreift til fjöl-
margra fátækra heimila og
heimilslausra manna.
Einbýli —Tvíbýli
Höfum mjög góðan kaupanda að vönduðu
einbýlishúsi í Reykjavík eða á Flötunum. Húsið
þarf að vera 1 70—180 ferm. og vera vandað.
Höfum einnig mjög góðan kaupanda að tví-
býlishúsi 120—160 ferm. í Reykjavík. Eigna-
skipti geta komið til greina.
Höfum til sölu 180 ferm. einbýlishús á Flöt-
unum laust og í Vesturbæ járnvarið timburhús
með einstaklingsíbúð í kjallara, 3ja herb. íbúð á
1 hæð og 5 herb. íbúð á 2. hæð og í risi.
Húsið er að talsverðu leiti ný standsett og laust
nú þegar.
Fasteignamiðstöðin, Austurstrætí 7.
Símar 20424 — 14120 heima 42822 — 30008.
Sölustj. Sverrir Kristjánsson,
viðskfr. Kristján Þorsteinsson.
SÍNIAR 21150 - 21370
Til sölu m .a.
Raðhús í Smáíbúðarhverfi
hæð 85 fm. og rishæð 70 fm. alls 6 herb. mjög góð íbúð.
Húsið er endaraðhús á mjög góðum stað
3ja herb. íbúðir við
Vfðihvamm 80 fm Mjög góðsérfbuð. Bilskúrsréttur
Hátún kjallari 80 fm. Lítið niðurgrafin.
Mjóahlið kjallari 85 fm. Samþykkt. Rúmgóð. Sér hita-
veita. Laus strax. Veðréttir lausir fyrir kaupanda.
4ra herb. íbúðir við
Skipasund hæð 90 fm. Góð endurnýjuð Þríbýli
Leifsgata 1. hæð 1 10 fm. endurbætt. Risherb fylgir.
Hraunbær 1 hæð 109fm Fullgerð Útsýni
Hraunbær 3 hæð 100 fm Úrvals ibúð Fullgerð
Útsýni.
í Austurbænum
5 herb. endurnýjuð rishæð um 100 fm. á góðum stað
Ný harðviðarinnrétting. Sérhitaveita. Svalir. Eignarlóð.
Rishæð við Bólstaðarhtfð
4ra herb. mjög góð endurnýjuð rishæð um 90 fm. Svalir.
Útsýni.
Urvals íbúð við Dvergabakka
4ra herb. endaíbúð á 2. hæð 110 fm. Sér þvottahús og
búr á hæðinni. Kjallaraherb fylgir Góð kjör.
Góð sérfbúð óskast
góð séríbúð um 100 fm. óskast í borginni. Mikil útb.
Ný söluskrá neimsend.
AIMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEGI 49 SÍMAR 21150-21370
L.Þ.V. SÖLUM. JÓHANN ÞORÐARSON HDL.
Þegar dregur að jólum sjáum
við sem um miðborgina förum að
framan við sumar stórverzlanir
eru jólapottar hjálpræðishersins,
komnir enn einu sinni á fornar
slóðir. Þeir hafa sett svip sinn á
fjölförnustu göturnar frá þvf fyr-
ir aldamót. Allir þekkja þessa
potta. Um þá standa jafnan vörð
brosandi hermenn og þakka
hverjum og einum framlagið.
Göngum ekki framhjá, leggjum
okkar skerf i pottana til okkar
minnstu bræðra. Látum sjóða af
krafti i þeim. örugglega má
treysta því, að hver króna sem í
þá kemur fer til að gleðja og
hjálpa hrelldum og fátækum á
öllum aldri. Það verður engum
gleymt meðan efni hrökkvatil.
Það hefur ætið verið mér gleði-
efni að sjá bros fólksins og þakk-
læti, er tekið var á móti gjöfunum
og hátíðlegum stundum fagnað,
er góðar veitingar voru bornar
fram og söngurinn lyfti hug og
hjarta. Hve fagurt hlutverk er
það ekki að styrkja hugfallið geð
og beina sólargeislunum til þeirra
sem þrá hina styrkjandi og
vekjandi gleði. Ég vona og bið að
Hjálpræðisherinn fáaenn að njóta
þeirrar ánægju, sem er i því fólg-
in að taka við brauðinu, frá hendi
Drottins, og bera það fram fyrir
þá sem það vantar.
Góðir Reykvíkingar!
Tökum allir þátt í því að auka
jólagleði okkar minnstu bræðra.
Frank M. Halldórsson.
y
r Sölumenn YV
óli S. HallgrfmssonVX
kvöldsfmi 10610 11 Q
Magnús Þorvardsson 11
kvöldsfmi 34776 I/
Lögmaður 17
Valgarð Briem hrl.// i
FASTEIGNAVER H/p
Klapparstlg 16,
almar 11411 og 12811.
Brekkutangi Mos.
Raðhús í smiðum 2 hæðir,
kjallari og bílskúr. Alls 225 fm.
Selst fokhelt. Tilbúið til afhend-
ingar nú þegar, til greina kemur
að skila húsinu tilbúnu undir
tréverk.
Flúðasel
raðhús i smiðum 2x75 fm. Selst
fokhelt. Tilbúið til afhendingar
um áramót.
Birkimelur
3ja herb. íbúð um 96 fm, ásamt
góðu herbergi í risi. Geymslur
og frystiklefi í kjallara. Laus
strax.
Hjarðarhagi
4ra herb. 120 fm. á 4. hæð.
íbúðin er í sérflokki parket á
öllum gólfum.
Hörðaland
góð 4ra herb. íbúð um 90 fm. á
2. hæð.
Hjallabrekka
3ja herb. neðri hæð í tvibýlishúsi
um 84 fm. Sérinngangur. sér-
hiti.
Laugarnesvegur
3ja herb. íbúð á 4. hæð í fjöl-
býlishúsi. Herbergi í kjallara fylg-
ir.
Miðvangur, Hafn.
2ja herb. ibúð á 7. hæð. Þvotta-
herbergi og geymsla í íbúðinni.
Laus strax.
Skerseyrarvegur
2ja herb. íbúð á 1. hæð öll
nýstandsett með teppum. Ný raf-
lögn. Hagstætt verð og greiðslu-
kjör.
Seljendur
okkur vantar
íbúðir og hús
á söluskrá
Sérstaklega
er mikil
eftirspurn
eftir 2ja
og 3ja herb.
íbúðum.