Morgunblaðið - 14.12.1976, Síða 10

Morgunblaðið - 14.12.1976, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976 KTN ER bAR KTR KTA TTIVTTRA TTÁ ” ^^JLiXÁ.^! JLiX V lr ijlAV XVllV Um bók séra Jóns Auðuns: Líf og lífsviðhorf Frá 1930 til 1941 var séra Jón Auðuns aðeins prestur Fríkirkjusafnaðarins í Hafnar- firði, en áhrifa hans sem gáfaðs og mikilhæfs predikara og boðanda þeirra líknarríku sanninda, sem sálarrann- sóknirnar hafa að flytja, náðu fljótt til fjölmargra utan þess safnaðar, sem hann þjónaði. Árið 1939 varð hann formaður Sálarrannsóknarfélags Islands og var það i meira en tvo ára- tugi, og gætti hann þess vand- lega, að það bæri nafn með réttu. Ari síðar gerðist hann ritstjóri Morguns og lagði rika áherzlu á að þar væri hismið skilið frá kjarnanum, og þótti sumum áhugasömum Skoðana- bræðrum hans nóg um það, hve gagnrýninn hann var, bæði sem formaður Sálarrannsóknar- félagsins og ritstjóri málgagns þess. Frá 1941 — 45 var hann, auk prestþjónustu sinnar í Hafnarfirði, klerkur Frjáls- lynda safnaðarins i Reykjavik, sem stofnaður var af þeim er dáðu hann sem predikara og andlegan leiðsögumann, en 1945 varð hann prestur dómkirkjunnar i Reykjavík og sex árum síðar dómprófastur. Loks er vert að geta þess, að hann var valinn til forystu Rauðakross tslands og fleiri veigamikilla stofnana og sam- taka á sviði mannúðar og líknar. Það má verða ijóst af þessu, að séra Jón hefur haft mjög náin og viðtæk kynni af starfi jafnt leikra sem lærðra i þágu andlegra mála- og samtaka, sem þeim eru tengd, og auðsætt er, að svo virkur sem hann hefur verið, hvar sem hann hefur komið við sögu þau meira en fjörutíu ár, sem hann hefur verið andlegur leiðtogi, hafa áhrif hans tekið til mikils meirihluta þjóðarinnar, beint eða óbeint, og þá auðvitað hneykslað suma, en ýmist vakið vinsamlega Ihugun og athygli hinna eða unnið þá til fylgis við stefnu hans og störf. Saga hans sem sálusorgara, innan og utan veggja kirkjunnar, og starfs hans að sálarrannsóknum og kynningu þeirra er í svo nánum tengslum, að þar verður lítt greint á milli. Hann mætti og einkanlega á fyrstu árum þjónustu sinnar sem dóm- kirkjuprestur, svo lúalegum árásum að það minnir á póli- tískt ofstæki ráðamanna i ein- ræðisríkjum heims. Hann getur þess i upphafi kaflans Friðþæg- ing og fleiri kenningar, að honum bárust bréf, sem vitnuðu litt um andlega göfgi „trúaða" fólksins. Hann kveður þau flest hafa farið i bréfa- körfuna en annars farast honum þannig orð: „Islendingum hefir lengi verið tamt að grípa til rímaðs máls til þess að veita útrás van- máttugri gremju og heift. Ég geymi enn eitt ljóð aðeins af þeim, sem mér bárust, til þess að varðveita sýnishorn af mennangarstigi „kristna fólksins“ á Islandi á tuttugustu öld. Það kom að sjálfsögðu ekki við mig, þótt í hótunum þessa ljóðs væri ég á það minntur, að „í helvíti verður heitt". Ég trúði ekki á helviti þessa góða fólks, sem til þess gat hugsað með gleði að njóta sælunnar í himni, „Dýrð handa mér, dýrð handa mér“, meðan aðrir kveldust undir fótum þess og kvalavein þeirra þar niðri myndu ekki trufla halelúja- söngva hólpinna á himnum.“ Annars minnist hann með virðingu slíkra stórmenna sern séra Bjarna Jónssonar, Guðrúnar Lárusdóttur og Knud Zimsens — og eftirminnilegt Bðkmenntlr eftir GUÐMUND G. HAGALÍN sem séra Jóni Auðuns eru ekki sizt hugstæð og tiltæk: ,JEín er þar kirkja undra há, sem öllum býður rúm, kcrleiks að hlýða kenning á komnum af ýmsum trúm; frá hverri tíð og úr hverjum stað, hver sem hann vera kann, engum er þaðan útskúfað, , elski hann sannleikann. Hvort Buddhas þessi, heiðnum hinn hallaðist kreddum að, þriðji kenndist við kóraninn, kemur Isamastað; hið sanna ef hann aðeins vill, eins er hann velkominn mörg kristins villa manns var iII, en minni vorkunnin." Það verður svo vart talið furðulegt, þó að reyndum og vissulega sannleiksunnandi kennimanni, er hyllir slikar skoðanir og auk þess er spiritisti, sem ber I brjósti þá von, er hér að framan getur, hnykki við, þegar hann kemst að raun um, að í nýjustu sálma- bókinni er sleppt lofsöng Davíðs skálds Stefánssonar frá Lokagrein Dagný og sr. Jón Auðuns. „Hann sem dregur allatilsín” verður það, sem hann segir frá þeim frú Guðrúnu og Zimsen. Hann minnist og með gleði sam- starfsfólks sins I söfnuðinum, og þá ekki sizt hins mikla lista- og drengskaparmanns Páls Isólfssonar og söngfólksins yfirleitt,” fórnarlundar þess og sönggleði. Og það, sem almennt mun erfiðast talið í sálgæzlu presta, tilRynningar ástvina- missis og heimsóknir að bana- beði veitti honum andlegt öryggi og djúptæka vissu um gildi þekkingar sinnar og reynslu á sviði sálarrannsókna, og eru frásagnir hans um viðtöl við syrgjendur og þá sem biðu dauðans, hrifandi og átakan- legar. Hvað getur og veitt sálu- sorgara sannari lífsfyllingu en að finna sig tygjaðan þeirri raunhæfu þekkingu, sem fær slævt brodd sárustu harma og lokið upp dyrum eilífs lífs fyrir leitandi sál deyjandi manns? Flest af þvi, sem frá er sagt i köflunum um prestþjónustu séra Jóns og forystu hans um sálarrannsóknir, er mjög for- vitnilegt og þess vert, að á því sé vakin athygli, en á sumt hef ég minnzt áður í þessari grein og um annað verður að duga það sem ég hef nú dregið stutt- lega saman. En ekki get ég látið hjá liða að minnast á það.sem eðlilega hefur veitt séra Jóni Auðuns mikla og á stundum óvænta gleði. Menn úr hópi gáfuðustu og gagnrýnustu fræðimanna og sannleiks- leitenda á sviði sinna afmörk- uðu viðfangsefna hafa ótil- kvaddir vottað honum, að þeir hafi látið sannfærast um það, að spiritistar hafi haft samband við framliðna menn — og vissu- lega hefur þetta styrkt hann í þeirri von og trú, að sálarrann- sóknir spiritista og fordóma- lausra vísindamanna i sálar- fræði og dulrænum efnum megi verða sá bjargvættur til almennra mannbóta, sem aðrir eins unnendur kærleiksboð- skapar Krists og þeir Einar Hjörleifsson Kvaran og séra Haraldur Nielsson gerðu sér fastlega vonir um. Hann hefur og — eins og þegar hefur verið að vikið — verið íslenzkra manna vandastur að því, hvernig að væri staðið hinum spiritisku sálarrannsóknum, vill alls ekki að óvirðulega eða gálauslega sé að þeim unnið og þar með varpað skugga á það málefni, sem trúmaðurinn og eldhuginn Haraldur Níelsson leýfði sér að kalla mikilvægasta málið i heimi... Svo eru það þá kaflarnir i siðari helft þessarar sögu lifs og lífsviðhorfa. Séra Jón hefur lesið vel islenzkar bókmenntir og skírskotar gjarnan til þessa eða hins sem þar er honum geðfellt. Hann víkur að því, sem Egilssaga greinir frá um samskipti þeirra Egils og Þórólfs, sona Skallagríms, og Aðalsteins konungs. Þeir bræður létu primsignast, þ.e. skírast eins konar minni skírn, „en höfðu þat at átrúnaði, er þeim var skapfelldast." Séra Jón dregur ekki dul á að í trú- málum hafi honum orðið meir og meir að þessu leyti sem þeim bræðrum. Hann er — sem áður getur — Ijóðelskur og segir að séra Haraldur Nielsson hafi brýnt fyrir nemendum sínum að lesa og læra ljóð og hafa svo á tak- teinum tilvitnanir úr þeim, svo sem við geti átt hverju sinni. Séra Jón vitnar einkum I þessari bók í hið sérstæða kvæði hins hámenntaða og spakvitra Grims Thomsens, Stjörnu-Odda draum nýrri, en sem kunnugt mætti vera, orti Grímur einnig hinn fagra sálm Huggun, sem er . seinustu út- gáfum íslenzku sálmabókarinn- ar. I öðrum hluta hins langa kvæðis, sem Grímur kennir við Stjörnu-Odda, eru þessi erindi, Fagraskógi, Þú mikli eilífi andi, auðsýnilega vegna þess, að þar eru þessar Ijóðlinur: „Við altari kristinnar.kirkju, við blótstall hins heiðna hofs, er elskað og sungið þér einum lof...“ Og hvort má annars vænta en að slikum boðanda Orðsins þyki bregða iskyggilega dökkum skugga á framtíð kirkju og sigurvænlegrar kærleiks- kristni, þegar skólameistari hins langþráða þjóðlega og próffjötrum óháða lýðháskóla I Skálholti lýsir því yfir fyrir alþjóð, að dauðinn sé ægi- legasta staðreynd lifsins og kominn I heiminn sem refsing fyrir syndina? Og svo... og svo kom það, sem séra Jón Auðuns getur þannig i bók sinni: „Mér var raunaleg saga sögð frá prestastefnu þeirri I Skál- holti sem það frægðarverk vann að syngja fyrir alþjóðar- eyrum bann yfir dultrú, án þess að láta þess getið við hvað væri átt, hvort heldur væri verið að fordæma sakramentistrú kirkjunnar, sem auðvitað er hreint dultrúarfyrirbæri, eða sálræn fyrirbæri af sama stofni og þau, sem guðspjöll herma, að ríkulega hafi gerzt í návist Jesú. Sú saga var mér sögð af þessari samkomu í Skálholti, að þegar einn prestanna, einn þeirra sárafáu, sem héldu fram frjálslyndum sjónarmiðum, hafi lýst skilyrðum Helgakvers fyrir sáluhjálp, hafi lesturinn orkað svo á ungan prest, sem fyrir skömmu hafi orðið fyrir þeirri reynslu að missa barn, sem náði ekki skírn, að haldinn stórri geðshræringu hafi hann gengið á dyr. Sé Helgakver tekið alvarlega er vandséð, hvernig þeir óskirðu eiga að ná sáluhjálp." Og séra Jón heldur áfram og segir: „Enginn skyldi gleyma þvi að „aðgát skal höfð I nærveru sálar“, sem í musteri sorgar- innar situr, en þessi saga frá Skálholti minnti mig óþægilega á það að nokkru fyrr hafði ég lesið ritgerð ungs manns, þar sem fullyrt var að skírnin veiti fyrirgefningu syndanna! Hverra synda? Þeirra, sem sak- laust barnið á eftir að drýgja siðar á ævinni? Hvað er hér á ferð? Er ekki Guði trúandi fyrir barnssál, þótt prestur hafi ekki ausið barnið vatni áður en það dó?“ Skyldi það svo ekki vera þakkarvert, að hinn aldni, en þó í hug og hjarta ungi séra Jón Auðuns, reis upp af friðarstóli að ósk viðsýnna trúmanna og sannleiksleitenda og freistaði þess að dreifa hinum dökku skuggum erfðasyndar og eilifr- ar útskúfunar mikils meiri- hluta mannkyns, þeim skugg- um, sem í bernsku minni höfðu nærfellt svipt mig og margan annan blessun trúar og bænar — og ég — við þriggja ára margvisleg kynni af frændum okkar í Noregi — sannfærðist um, að formyrkvuðu svo skyn- semi, þekkingarþrá og ábyrgðartilfinningu hinna „sanntrúuðu" meðal Norð- manna að þeir væru rétt- nefndir menn myrkursins, eins og skáldið og frelsishetjan Arnulf överland kallaði þá — sem og kristindóm þeirra tiundu landpláguna! Séra Jón bendir á það, að ómótmælanlega á kenningin um erfðasyndina einustu rót sína i þjóðsögunni um synda- fallið — og að erfðasyndin „er grundvöllur sjálfrar endur- lausnarkenningar kristinnar kirkju, — og ekkert minna og að allt trúfræðikerfið er i raun- inni ekkert annað en marklaust bull, ef ekki er litið á mennina sem fallið mannkyn...“ Honum farast og þannig orð: „Hverjum er ætlað að trúa þvi að Guð hafi skapað hina fyrstu foreldra mannkyns sem sælar og saklausar verur i unaðslegum aldingarði og ætlað þeim þar eilífa vist, eilífan barnaskap, og lagt fyrir þá það eina bann að snerta ekki ávexti skilningstrés góðs og ills, svo að þeir öðluðust aldrei hlutdeild I þekkingu, sem Guði einum ber? Vita menn ekki það, að frumlíf mannsins á jörðu var enginn dans á Edensrósum, ekkert lif i barnaskap og áhyggjuleysi aldingarðsins, heldur barátta, hörð og ströng fyrir milljónum ára, barátta lifsvera sem voru á mörkum dýrs og manns?“ 1 bókarköflum í síðari helmingi bókarinnar er höfundur víðförull og ærið margt forvitnilegt, sem hann kemur þar að til lokaskýringar andlegum viðhorfum sínum. Rökvislega og skorinort og í fyllsta samræmi við andlega reynslu sína, langþjálfaða skyn- semi og viðkvæma samvizku af- sannar hann það i kenningum kirkjunnar, sem er henni ekki samboðið og ekki verður með sannindum ráðið af orðum Jesú Krists — og varpar ennfremur yfir hiö undursamlega i guðspjöllunum skæru ljósi spiritiskrar þekkingar og rann- sókna síðustu tima vísinda, sem fjallað hafa um dulardóma mannssálarinnar. Hann segir i lokakaflanum, sem hann kallar Leikslok: „Þér sem ég hef verið að segja frá eða sýna lifsviðhorf mín, hef ég áður sagt, að fyrir löngu er ég fráhverfur með öllu þeirri trú, að blóð Krists geti borgað nokkurs manns sekt, og ég hef trúað þér fyrir þvi að eindregin ummæli Jesú — ekki postulans Páls eða annarra guð- fræðanga kirkju minnar — er mér ekki unnt að skilja á annan veg en þann, að sekt sina verði hver maður sjálfur að greiða i einhverri mynd, ýmist þessa heims eða annars." _ Hann dregur heldur enga dul Framhald á bls. 36

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.