Morgunblaðið - 14.12.1976, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976
rekstrarvörum einum sér þ.e á ýmsum
vörum til tækninota og verkfæra ýmiss
konar nemi um 170 m. kr. á næstu
fjórum árum Koma lækkanir þessar til
framkvæmda á mislöngum tlma en
leitast var við að þær lækkanir sem
mikilvægastar virtust. kæmu að fullu
til framkvæmda strax frá næstu ára-
mótum
TOLLAR Á
FJÁRFESTINGARVÖRUM
Fjórði þáttur endurskoðunarinnar
beinist að lækkunum tolla á fjárfest-
ingarvörum og hef ég þegar vikið
nokkuð að þeim þætti Gert er ráð fyrir
að lækkanir þessar komi til fram-
kvæmda I áföngum og þá I fyrsta sinn
hinn 1 jan. 1978
í grófum dráttum má segja, að tolla-
lækkun þessi taki til vöruflokka eins og
byggingaplata ýmiss konar. furu, þak-
járn, einangrunarplata og -efnis.
steypustyrktarjárns, plpa og plpuhluta.
raflagnaefnis ýmiss konar, auk lækk-
ana á vélum, vélahlutum og varahlut-
um almennt, sem þó að mestu leyti er
notað I iðnaði og öðrum atvinnurekstri
Gert er ráð fyrir að tekjutap rlkissjóðs
af þessum sökum þegar allar lækkan-
irnar eru komnar til framkvæmda nemi
um 1.150 m. kr. á grundvelli fjárlaga
1977.
vinna gegn alvarlegum brotum á tolla-
lögum svo sem ólögmætum viðskipt-
um með áfengi, ávana og flkniefni o.fl.
Hefur fjármálaráðuneytið upp á slð-
kastið lagt áherslu á virka þátttöku af
íslands hálfu I þessu samstarfi og mun
því verða áfram haldið næstu árin.
TAKA VERÐUR UPP VIRÐIS
AUKASKATTKERFI TIL AÐ
JAFNA SAMKEPPNISAÐSTÖÐU
IONAÐ ARINS
Tveimur þáttum endurskoðunarinn-
ar hefur ekki verið gerð grein fyrir en
það er breytingar á annarri og þriðju
grein gildandi tollskrárlaga um
heimildir r.n. til lækkunar eða niður-
fellingar aðflutningsgjalda og hins veg-
ar breytingar á ýmsum framkvæmdar-
atriðum I tollalöggjafarinnar I 4—38
gr. frumvarpsins. Fer ég ekki nánar út I
þau atriði hér, enda er Itarlega gerð
grein fyrir breytingum þessum I
athugasemdum við frumvarpið.
Auk þeirra breytinga sem nú hafa
verið lýst hafa verið gerðar einstakar
breytingar aðrar og má þar m.a nefna
lækkun tolla á vörubifreiðum undir 3 t
úr 40% I 30% til samræmis við gjöld
af vörubifreiðum yfir 3 t., hækkun tolla
á jeppabifreiðum úr 40% I 90% en á
móti er gert ráð fyrir lækkun innflutn-
ingsgjalds af jeppabifreiðum úr 90% I
50%. Er með þessari breytingu endan-
lega búið að samræma gjöld af þessari
tegund bifreiða við gjöld af almennum
fólksbifreiðum sem lengi hefur sýnst
nauðsynlegt og eðlilegt. Þá má nefna
lækkun tolla á smyglnæmum vörum að
ræða þar sem hinn hái tollur hefur
fyrirbyggt eðlilega verslunarhætti Áð-
ur höfðu af sömu ástæðum m.a. verið
lækkuð gjöld af úrum, sjónaukum,
myndavélum og ilmvötnum. en það
var gert með tollskrársbreytingunni
1974
Ljóst má vera að þvl sem fyrr hefur
verið sagt I ræðu þessari að frumvarp
þetta miðar fyrst og fremst að þvl að ná
jöfnun I samkeppnisaðstöðu innlends
verndarvöruiðnaðar við erlendan áður
en tollvernd hans lýkur I ársbyrjun
1 980. Til viðbótar þeim leiðréttingum
sem I frumvarpi þessu felast og ganga
I fyrrgreinda átt vil ég minna á
heimildarákvæði I fjárlagafrumvarpi
fyrir árið 1 977 þess efnis að fella megi
niður að fullu sölugjald eða söluskatt
af vélum og tækjum til samkeppnis-
iðnaðar Það ákvæði er sett inn I fjár-
lagafrumvarpið I beinu tengslum við
samningu þessa frumvarps og verður
að skoða þá lækkun sem hluta af
Ivilnandi aðgerðum rlkisstjórnarinnar
sem að er stefnt iðnaðinum til handa
Sú lækkun er talin nema um 150 m
kr. á ársgrundvelli 1977.
Ljóst er að breytingar þær sem I
frumvarpi þessu felast eru ærið
umfangsmiklar og ættu eins og fyrr var
getið að jafna verulega samkeppnis-
stöðu innlends verndarvöruiðnaðar. sé
litið á tollahlið málsins sérstaklega Ef
hins vegar á að jafna samkeppnisað-
stöðu Islensks iðnaðar við erlendan til
fulls og láta hann að auki njóta staðar-
verndar, sem verið getur veruleg I
ýmsum greinum, sem framleiða fyrir
innlendan markað, sýnist óhjákvæmi-
legt að taka upp virðisaukaskattkerfi
hér á landi eða söluskattskerfi með
virðisaukasniði
Þrátt fyrir þær breytingar og lagfær-
ingar sem I frumvarpinu felast og miða
að bættri samkeppnisaðstöðu innlends
iðnaðar fer ekki hjá því að islensk
tollalöggjöf. sem um langa tið hefur
mótast af háum tollum verður vart
lagfærð á skömmum tima svo að ekki
verði einstök vandamál óleyst Sérstak-
lega á þetta við þegar aðföng ákveð-
innar iðngreinar eru jöfnum höndum til
almennra nota og eins og dæmi eru
um. Til þess að unnt sé að leiðrétta
alvarlegt misræmi af þessu tagi er I 3
gr. frumvarpsins tekið upp viðtækt
heimildarákvæði þess efnis að fella
megi niður eða endurgreiða aðflutn-
ingsgjöld af aðföngum I verndarvöru-
iðnaði Mun fjármálaráðuneytið verða
að meta hverju sinni beiðni um béit-
ingu umrædds heimildarákvæðis á
grundvelli mikilvægis hvers máls svo
og út frá sjónarmiðum öruggra toll-
framkvæmdar og samkeppnisstöðu
viðkomandi framleiðslu.
í greinargerð frumvarpsins er að
finna tölulegt yfirlit um áætlað tekju-
tap, sem tollalækkanir frumvarpsins.
munu valda ríkissjóði á þeinn fjórum
árum sem hér um ræðir Ljóst er að hér
er um verulega lækkun að ræða eða
samtals um 4400 m.kr. og þar af
Framhald á bls. 32
LÆKKUN HÆSTU
FJÁRÖFLUNARTOLLA
NIÐURFELLING MAGNTOLLA
Sjötti þáttur endurskoðunarinnar
miðar að þvl að allir magntollar að
undanskildum magntollum á ollum I
27. kafla tollskrárinnar verði felldir
niður. Yfirleitt hafa þessir tollár numið
óverulegum fjárhæðum og þar af leið-
andi er ekki gert ráð fyrir að I þeirra
stað verði lagður á verðtollur nema I
kartöflur þar sem I stað 20 kr. magn-
tolls per 100 kg. kæmi 4% verðtollur.
Er ekki gert ráð fyrir neinni aukningu
tekna af þessari breytingu og þvi fyrst
og fremst um formbreytingu að ræða
ALÞJÓÐLEGT TOLLASAMSTARF
Þá er komið að mjög veigamikilli
breytingu sem i frumvarpinu felst frá
gildandi lögum enda þótt ekki hafi sú
breyting ein sér neina tekjubreytingu I
för með sér Er hér átt við þær veru-
legu textabreytingar sem lagt er til að
gera á tslensku tollskránni vegna breyt-
inga sem gerðar hafa verið á tollskrá
Tollasamvinnuráðsins I Brussel sem.
ísland er aðili að og islenska tollskráin
er byggð á eins og fyrr er að vikið
Með þeim breytingum, sem hér um
ræðir fæst mun nánari sundurliðun á
innflutningi til landsins sem I mörgum
tilvikum getur haft hagnýtt gildi jafnt
fyrir opinbera aðila sem innflytjendur
og framleiðendur. Breytingar þessar
munu þó vafalaust fyrst I stað valda
innflytjendum og tollstarfsmönnum
nokkrum erfiðleikum en eru hins vegar
ugglaust til mikilla bóta Þessu til við-
bótar hafa borist beiðnir frá ýmsum
samtökum atvinnulifsins hér I landi um
enn nánari sundurgreiningu innflutn-
ings eftir tollskrárnúmerum og hefur I
frumvarpinu verið reynt að koma til
móts við þær óskir eins og frekast
hefur verið unnt
Fyrst hér er minnst á hið alþjóðlega
samstarf á sviði tollamála fyrir milli-
göngu tollasamvinnuráðsins má geta
þess að þetta samstarf nær ekki
einungis til samvinnu og samræming-
ar á sviði tollskrárlöggjafar heldur og
til samræmingar á öðrum sviðum toll-
tæknilegs eðlis svo sem á sviði verð-
mætisákvarðana og ýmis konar fram-
kvæmdaatriða auk samstarfs til að
Fimmti þáttur endurskoðunarinnar
beinist að lækkun hæstu fjáröflunar-
tolla
í tollskrárlögum þeim er tóku gildi I'
ársbyrjun 1974 voru tollar á fjölmörg-
um vörum, sem báru 100% toll,
lækkaðir I 80% Var litið á þessa
breytingu sem fyrsta skrefið I átt til
lækkunar fjáröflunartolla almennt og
lýstu ýmsir alþingismenn fylgi við slika
lækkun I umræðum um málið hér á
Alþingi. Um almennan rökstuðning
fyrir nauðsyn þess að lækka fjáröfl-
unartolla visa ég til athugasemda frum-
varpsins um það efni, sem tvimæla-
laust á erindi inn I umræður um fram-
tíðarskipan þessara mála
Af tekjuöflunarsjónarmiðum þótti
ekki fært á þessu stigi að lækka
almenna fjáröflunartolla meira en svo
að þeir tollar, sem enn eru 100%,
verði lækkaðir I 80% svo og allir 90%
tollar, að undanskildum tollum á bif-
reiðum Ég tel, að nauðsyn beri til að
gera enn frekara átak I þessum efnum,
enda þótt ekki þyki fært I þessu frum-
varpi að tlmasetja hugsnlegar lækkanir
af þvi tagi
Hin öra eftirspurn eftir innréttingum
okkar hefur gert okkur kleift að bjóða
nú ódýrustu eldhúsinnréttingarnar á
markaðnum.
í Haga eldhúsum er hver hlutur á
sínum stað í léttu samræmi lita og
forma. Enda um 283 mismunandi
einingar að velja og fjórar gerðir -
fjórar blómalínur, sem bjóða upp á
marga valkosti um verð, efni og sam-
setningu. Þannig er afar auðvelt að
uppfylla óskir kaupandans, hvort sem
hann er að endurnýja gamla innrétt-
ingu eða flytja inn í nýja íbúð.
Spyrjið, hringið eða skrifið og /
biðjið um litmyndabækling. Við /
tökum mál, skipuleggjum og /' $
teiknum - ykkur að kostn- /
aðarlausu og gerum tilboð $
án skuldbindinga af /^
ykkar hálfu.
MAGIr
Suðurlandsbraut 6,
Reykjavík.
Sími: (9I) 84585.
/^ft
/jp
/W/
/^/ / /
Verslunin Glerárgötu
Akureyri.
Sími: (96) 21507.
26,