Morgunblaðið - 14.12.1976, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 14.12.1976, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976 27 ERLENDUR JÓNSSON skrifar um bækur — JENNA JENSDÓTTIR skrifar um barna- og unglingabækur Blaðamanna- sagnfræði 30. MARZ 1949. 290 bls. örn og örl. h.f. Rvfk, 1976. BÖKIN 30. marz 1949 er skrifuð og unnin af tveim mönnum sem talsvert hafa starfað við fjölmiðla, Baldri Guðlaugssyni og Páli Heiðari Jónssyni. Fyrri hlutinn, saminn af Baldri, segir frá sögu- legum og pólitískum aðdraganda, seinni hlutinn, skrifaður af Páli Heiðari, lýsir undanfara óeirð- anna, þvl sem gerist daginn sjálfan og loks ýmsum afleiðing- um, persónulegum og félagsleg- Bðkmennllr eftir ERLEND JÓNSSON Hefur því hvflt mest á Baldri að upplýsa ólitiska hlið málsans. Er sú saga greinagóð, þó ekki með glæsibrag. Margt er þar vel og réttilega athugsð. Baldur mun vera yngri maður en svo að hann muni sjalfur árin eftir strfð og rás atburðanna sem leiddi til stofnun- ar Atlantshafsbandalagsins. Han n hefur því stuðst við skriflegar heimildir fyrst og fremst, að minnsta kosti hvað varðar heims- pólitíkina á umræddu tlmabili. Er sá grundvöllur góður og nauðsyn- legur út af fyrir sig. Ekki er þó að öllu leyti hægt að byggja á honum tilfinningalega hlið málanna. Stjórnmálamenn eru þrátt fyrir allt hófsamir í málflutningi miðað við þann skaphita sem ólgað getur undir niðri í þjóðum á róstu- og hættutímum. Orð þeirra eru góð vísbending en fela sjaldnast i sér allan sannleikann. Baldur styðst mest við orð stjórnmálamanna að því er varðar erlenda viðburði og verur saga hans nokkuð einhliða fyrir bragðað en segja má að það komi að litilli sök þar sem hinni hlið málsins — hinni tilfinninga- legu — eru gerð skil f seinni hlutanum. Hluti Páls Heiðars er dæmigerð blaðamennska, mest stuðst við samtímaheimildir er einnig leitað til manna sem fylgdust með atburðunum og eru enn á lifi. Er þá jafnan höfð sú aðferð sem nútfmablaðamenn telja sér eina sæmandi: sem sé að leita til beggja eða allra málsaðila eftir atvikum. Páll heur unnið við út- varp en lftið mun hafa farið fyrir ritstörfum frá hendi hans til þessa. Texti hans ber þess merki, væri lfflegri f útvarpsflutningi þar sem unnt væri að skipta um raddir í samræmi við breytilegt efni. Smáletursgreinar og innskot eru þarna geysimörg en lftið um samfelt mál. Hefur Páll Heiðar einkum leitast við að draga fram f dagsljósið sannleikann i hverju atriði, grafast fyrir hver bar ábyrgð á hverju. Fróðlegast þykir mér það sem hann hefur eftir ýmsum mönnum sem voru þátt- takendur í atburðum dagsins, ef ekki í hlutlægum þá að minnsta kosti I huglægum skilninngi. „Auk könnunar skráðra heimilda," segja höfundar f for- málanum, „hefur verið rætt við stóran hóp manna er komu við sögu þeirra atburða, sem hér er fjallað um, með einum eða öðrum hætti. Við suma heimildarmenn ræddu höfundar báðir, f öðrum tilvikum skiptu þeir með sér verk- um. Við nokkra var rætt simleiðis og fáeinir svöruðu spurningum höfunda skriflega." — Þessar heimildir gefa bókinni mest gildi að dómi undirritáðs. Atburðirnir 30. mars 1949 voru pólitískur jarðskjalfti. Þá leystist úr læðingi spenna sem lengi hafði verið að magnast, gagnstæð öfl toguðust á. Kalda stríðið kom fáum á óvart þó stjórnmálamenn hafi sumir látið svo í veðri vaka í ræðum sfnum á þessum árum. Við þvf hafði verið búist, ef ekki nokkru verra! Sá viðbúnaður verður að vera með f dæminu þegar rætt er um pólitik stórveldanna á þessum árum. Hitt kom á óvart að íslendingar skyldu í einu vetfangi snúa frá hlutleysisstefnu sem fram að þvfhafi verið hér trúar- atriði og kennd hverju barni í barnaskóla. Þegar til kastanna kom reyndust Islendingar þó trúa meir hver á sinn stjórnmálaflokk. Flokksagi var hér geysiharður og nánast ósjálfráöur, pólitfkin náði til innstu hjartaróta — heiður flokksins var sjalfs æra. Þó um- ræddir atburðir væru pólitfskt fyrirbæri voru þeir engu ómerki- legri sem sálfræðilegt rann- sóknarefni. I myndun manna nær sjaldnast lengra en að búast við status quo — vænta þess að það, sem hefur verið, verði áfram. Stríðinu fylgdu gffurlegar breytingar. Evrópukortið gerbreyttist. Var þá furða þó búist væri við áfram- haldanda skriði herja og landa- mæra? Sá sem segir nú: ekkert hefur gerst svo þetta var allt óþarft — hefur þvi rangt að mæla. Árið ’49 munu fæstir hafa búist við að allt mundi sitja við hið sama að tuttugu og sjö árum liðnum — öðru nær! I þessari bók hefur verið dregið saman á einn stað hið helsta sem gerðist þann dag sem hrikti í stoð- um hins unga lýðveldis. Höfundar eiga þakkir skilið fyrir það. Ahugamenn um stjórnmál munu finna þarna lesning við hæfi. Og garpar þeir, sem þátt tóku í bar- daganum 30. mars, munu sjálf- sagt verða forvitnir að sjá hvort þessum ungu mönnum hafi hér með tekist að endurvekja stemming dagsins. Nokkrar mál- eða stafsteningar- villur rakst ég á f bókinni en rek þær fremur til höfundanna en prentara. Af formála höfunda má ráða á hvað þeir treysta bók sinni til brautargengis, sem sé að „atburðir þeir sem hér er lýst tilheyra í senn nútfð og fortíð. Þeir eru hluti af liðinni sögu, en samt sem áður ennþá f brenni- punkti umræðna og deilna f fslenzkum utanrfkis- og þjóðmál- um.“ — Og það er víst hverju orði sannara. Mýs rækta líka garðinn sinn Anna Kristín Brynjúlfsdóttir: Matti Patti Myndir: Olöf Knudsen (Jtgefandi: Hergill sf. Reykjavíkl976 Bókin Matti Patti er ævintýri um mús. Anna Brynjúlfsdóttir hefur áður skrifað tvær bækur um Bangsabörn fyrir yngstu lesendurna. Töframaðurinn á Matta patta. Hann á líka Snjóhvít móður hans, systkini hans og fleiri, mýs, allar hvftar. Heimur þessara músa er þröngur og kynni þeirra af veröldinni fyrir utan eru engin. Matti patti vill sjá sig um i veröld- inni — vera frjáls. — Mamma ég vil ekki vinna hjá töframanninum. Ég vil fara eitthvað út í heiminn — — Það er ekki hægt Matti minn sagði mamma hans— En Matti strýkur og ný veröld blasir við honum. Hann upp- götvar að litarháttur músa er mis- munandi, þær eru ekki allar hvítar. En það skiptir ekki svo miklu máli lifsbaráttan f músa- heimi er sú sama hvernig sem músin er lit. Hann fær lfka að vita að allar mýs eiga yfir höfði sér þann ógn- vald er köttur heitir. Matti Patti kemst að því að það er hægt að eiga fleiri að vinum en mýs. Álf- urinn Toppur verður vinur hans og sameiginlega eignast þeir sólskríkjuna að vini, þegar þeir bjarga henni úr háska og hlúa að henni. Þau koma ölf f músaland. Þar verður Matti Patti eftir en I vinirnir hans fara. — Svo fóru vinirnir tveir út f bátinn og Matti Patti stóð á bryggjunni og veifaði. Hann horfði lengi á eftir bátnum og gekk svo heim í Músaland — Þótt það væri flökkueðli i Matta Patta byggði hann sér hús f Músalandi og settist þar að. Nágrannarnir voru góðir. — ÍJti stóðu margar mýs. — Velkominn, velkominn kölluðu þær, er þær sáu hann i glugganum. Þetta voru allt nágrannar hans —. Einkenni- legt atvik verður þess valdandi að Matti Patti lendir f Leikfanga- landi. Þar ferðast hann um og sér margt skemmtilegt — Brúður og bangsar af öllum stærðum og gerðum voru á ferð um götuna. Einnig mörg önnur leikföng — Þegar hann kom til Músalands aftur eignaðist hann gullmola. Og nú langaði hann til að kaupa ost handa svöngu músunum í norð- austurhluta landsins. — Hanr. vissi að mennirnir voru sólgnir f gull og hjá þeim hlaut að vera til ostur — Og Matti lagði af stað á ný. Sagan af Matta Patta er unnin af alúð og vandvirkni. Höfundur lætur margt gerast í músaheimi, í hversdagslífi músanna sem leiðir þær til athafna og ástundunar- semi. — Svo kom að því að öllu fræinu hafði verið sáð. Og um haustið fengu mýsnar svo góða gulrótauppskeru að allar mýsnar i Músalandi gátu borðað nógar gulrætur — Myndirnar auka á gildi bókar- innar. Þetta er mjög skemmtileg bók og frágangur ágætur. Og frost- ið kom Knut Odegárd: Fugl og draumur Einar Bragi íslenskaði Frits Solvang myndskreytti Letur — bókaútgáfa Reykjavfk 1976 Komin er út á íslensku bókin Fugl og draumur eftir Knut Ode- gárd í þýðingu Einars Braga, en hann hefur áður þýtt ljóðabók eftir skáldið: — Hljómleikar í hvítu húsi (1973). Þetta er um margt athyglisverð bók. Höfundur skyggnist inn i líf lítillar stúlku, Möggu og lætur hana rifja upp minningar frá liðnu sumri. Hann bregður upp samhengislausum myndum minn- inganna, í senn raunveruleika og draumum. Magga litla lifir margar reynslustundir þetta sumar og samofið þeim er ófrelsi borgar- barnsins, sem ekki má stíga á snoðklippt grasið og villigróður- inn hjá blokkinni. Ekki má eiga kanfnuna sína og hlúa að henni í friði. Bókmenntlr JENNA JENSDÓTTIR skrifar um barnabækur Á Sólvangi 7 þriðju hæð í blokk- inni búa þær systurnar Magga og Helga litla, mamma sem skarkar í eldhúsáhöldum og pabbi sem hjólar til vinnu sinnar í Alverk- smiðjunni á hverjum morgni. Jörðin Bólsey kemur líka inn í minningarnar: — Þar sem túnin bíða og hvíta húsið sem þau áttu heima í einu sinni—. Verðleikar þessarar sögu felast í þvi hve höfundur skapar sterk- an bakgrunn og raðar siðan var- færnislega brotum minninganna um leið og þær koma í hug Möggu, stundum óskýrar og dularfullar. Heimur veruleikans getur líka verið dularfullur. Heimur reynslunnar sár og óskiljanlegur. Pabbi er þreyttur. Og höfundur laðar fram minninguna um fugl- inn sem þær litlu vinkonurnar fundu dáinn á götunni og jörð- uðu: — Þær moka ofan á og dálít- il mold verður afgangs, af því að nú er fuglinn í gröfinni —. Um kvöldið heyrir Magga inn til sín, að pabbi og mamma eru að tala saman. — Pabbi: Ég er svo skelfilega þreyttur, þreyttur allan daginn — — Mamma: Þú ættir að leita læknis, þú ert orðinn svo magur og gugginn upp á síðkastið — Þannig byrjar það með pabba. En minningarnar verða aldrei óbærilegar vegna þess að höfund- ur fléttar af djúpum skilningi leiki og atburði dagsins inn í hugarheim Möggu samhliða því er hún veit að krabbi er hættulegt orð — og pabbi á að deyja. Áhrifaríkur þykir mér kaflinn á bls. 52 í bókinni, svo milt segir höfundur frá því sem tengist minningunni um hinstu stundír pabba. Minningar Möggu um Gerði og pabba hennar, sem er drykkju- maður, eru snilldarleg lýsing á því hve börn eru fordómalaus og fundvís á hreinar tilfinningar hversu ömurlegt sem umhverfið er. Það er enginn vafi á því að þessi listræna bók sýnir veruleik ann eins og hann getur ofur eðli lega birst í minningu barns sem lifað hefur slíka reynslu. Hún á því erindi við alla, ekki sist þá sem skilja hana og finna til lífsins við lestur hennar. Þýðing Einars Braga er mjög góð. Myndskreyting Frits Solvang er sérstæð og skemmtileg. Meðalmálmur Magnea Matthfasdóttir: KOPAR. 62 bls. Alm. bókaf. 1976. ÞESSI ljóðabók Magneu Matt- híasdóttur líkist ótal slfkum sem út hafa komið á undanförnum ár- um, er hvorki betri né verri en meðallagið en hverfur þá líka í fjöldann. Þetta eru í og með óræð ljóð og myrk; skáldkonan fer með hálfkveðnar visur, umskrifar hlutina, lætur lesandann gruna hitt og þetta, gætir sín oftast að segja ekki meir en svo að hann verði sjálfur að yrkja í málið. Þetta á fyrst og fremst við um fyrri og lengri hluta bókarinnar, Ný lff og gömul, en að nokkru leyti um hana alla. Getur verið góð dægradvöl að „ráða" sum ljóðin, velta fyrir sér meining- unni I þeim, leggja þau út á ýmsa vegu. En vitanlega er það þá les- andans skáldskapur en ekki höf- undarins. Seinni parturinn heitir til mannanna minna og er bæði ljós- ari og hreinskilnislegri. Eins og nafnið bendir til eru það ástarljóð — eða ljóðaflokkur réttara sagt. Heldur svífur þar dapurlegur andi yfir vötnunum, ástarsælan reynist annaðhvort skammvinn eða fallvölt og eftir sitja elskend- ur með söknuð einan i sinni. Eða er þessi skilningur ekki nálægt réttu Iagi? Sé lagt einhvers konar skáld- skaparmat á þessi ljóð Magneu Matthíasdóttur verður útkoman nærri miðju með hliðsjón af frumraunum annarra skálda þessi árin. Ekkert ljóð bókarinnar tel ég vera minnisstætt. Það vant- ar í þetta magn og spennu; skáld- konan hefur ekki enn öðlast hæfi- leikann að segja mikið i fáum orðum. Myndvísi eða líkingar Magneu eru sums staðar allvel heppnaðar en annars staðar mis- heppnaðar. Ekki ber þó svo að skilja að eitt ljóðið sé betur lukk- að en annað, miklu fremur er eitt atriði öðru betra í sama ljóðinu. Lakast virðist mér Magneu takast að enda ljóðin. — Einhvern tíma kastaði maður fram þeirri þver- sögn i mín eyru að eiginlega væri ekki hægt að enda skáldsögu. Hafi falist sannleikskorn i þeirri staðhæfing á það eins við um ljóð. Upphöfin á Ijóðum Magneu eru betri en endahnútar þeir sem hún bindur að jafnaði á þau. Ennfremur hefði Magnea þurft að aga betur málfar sitt. Ljóð get- ur verið með óteljandi móti. En hvernig sem það er, stutt eða langt, Ijóst eða myrkt, verður það að vera gagnort, annars felur það ekki i sér eðli ljóðs og ber þá ekki heldur nafn með réttu. Magnea er ekki nógu gagnorð. Miðað við form það sem hún notar er það víða of prósaískt. Einnig hættir Bökmenntlr eftir ERLEND JÓNSSON henni til að blanda saman skáld- legum hátíðleika annars vegar og strákslegu kæruleysi hins vegar Sé á annað borð hægt að fella það tvennt til listræns samræmis (og þá á ég við málfarið, orðavalið) þá hefur það að minnsta kosti naum- lega tekist í þessari bók. En hvað um það, dæmdu bók eftir þvi hvaða tilfinning hún skilur eftir með sjálfum þér að lestri loknum, og ljóð Magneu eft- irláta ekki nein óþægileg áhrif, þvert á móti er eitthvað ferskt og upprunalegt í þeim og af þeim sökum verðskuldar Magnea ekki alls kostar neikvæða umsögn fyrir þennan Kopar sinn, kopar er ekki gull en r. uðleitur samt — málm ur svona i meðallagi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.