Morgunblaðið - 14.12.1976, Page 32

Morgunblaðið - 14.12.1976, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Hveragerði Umboðsmaður óskast til að annast dreif- ingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið. Uppl. hjá umboðsmanni Helgu Eiríksdótt- ur eða afqreiðslunni í Reykjavík, sími 10100. Sölubörn óskast 20% sölulaun. Ferðahappdrætti H.S.Í. Iþróttamiðstöðinni, Laugardal, sími 85422. Opið daglega frá kl. 2 — 6. Setjari Óskum eftir að ráða setjara vanan um- broti. Umsóknir sendist blaðinu merkt: „Setjari — 4801", fyrir föstudag 17.12. Sveitarstjóri Ölfushreppur óskar að ráða sveitarstjóra frá 1. maí n.k. Umsóknir, ásamt upplýsingum, um fyrri störf og menntun, berist til oddvita eða sveitarstjóra,á skrifstofu Ölfushrepps, Þor- lákshöfn, sími 99-3726. Umsóknarfrestur er til og með 5. janúar n.k. Hreppsnefnd Ölfushrepps. Rafmagnstækni- fræðingur nýútskrifaður frá veikstraumsdeild Aarhus Teknikum — sérfag „analog styrings- teknik (reguleringsteknik)" óskar eftir góðri framtíðarstöðu. Uppl. í sima 50819. Verslanir — Fyrirtæki Getum leyst út fyrir ykkur vörusendingar. Tilboð ergreini vörutegundir og upphæðir leggist inn á afgeiðslu blaðsins merkt „Gagnkvæmt — 4695". | raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar | nauöungaruppboö Nauðungaruppboð að kröfu Benedikts Sigurðssonar hdl., Axels Kristjánssonar hrl., Jóhannesar Johannessen hdl.. og innheimtumanna ríkissjóðs i Kópavogi og Keflavík verða eftirtaldir lausafjármunir seldir á nauðungaruppboði sem haldið verður að Vatnsnesvegi 33. Keflavík þriðjudaginn 21 des. 1976 kl 16. Bifreiðin Ö-2607. Ö-3447. X-1528, Ignis frystikista, borðstofuborð ásamt 6 stólum, Ignis ísskápur, Candy þvottavél, sjónvarp og plötuspilari af gerðinni Toshiba. Uppboðshaldarinn i Keflavik, Njarðvík, Grindavík og Gullbringusýslu. þakkir Hugheilar þakkir sendi ég öllum vinum og vandamönnum, sem sýndu mér marg- víslega vináttu og tryggð á 80 ára afmæli mínu, 1 9. nóv. sl. Ég óska ykkur, og öllum sem ég þekki, gleðilegra jóla, góðs nýárs og Guðs bless- unar. Helga S. Þorgilsdóttir. lögtök Lögtaksúrskurður Skútustapahreppur Samkvæmt beiðni oddvita Skútustaða- hrepps úrskurðast hér með, að lögtök geta farið fram vegna gjaldfallinna en ógreiddra fasteignagjalda, útsvara og aðstöðugjalda árið 1976 í Skútustaða- hreppi, allt ásamt dráttarvöxtum og kostnaði. Lögtök geta farið fram að liðn- um 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa. Húsavík, 30. nóvember 1976, Sýslumadur Þingey/arsýslu. tilkynningar Stjórn Lífeyrissjóðs Rangæinga hefur ákveðið að veita lán úr sjóðnum hinn 15. febrúar 1977. Þeir, sem telja sig eiga rétt á láni, þurfa að senda sjóðnum umsóknir sínar fyrir 15. janúar n.k. Þar sem skrifstofa sjóðsins verður iokuð til 29. des. verða eyðublöð afgreidd í Búnaðarbanka íslands, Hellu til þess tíma. Lífeyrissjóður Rangæinga. Styrktarsjóður Málfundafélagsins Óðins Sjóðurinn mun nú sem endranær veita styrki fyrir jólin til aldraðra og sjúkra Óðinsfélaga eða maka þeirra. Umsóknir sendist á skrifstofu Óðins Bolholti 7, fyrir 15. desember. Stjórn styrktarsjóðs Óðins. tilboó — útboð Útboð Tilboð óskast í jarðvinnu og smíði grunna þriggja fjölbýlishúsa við Ugluhóla í Breið- holti III. Útboðsgögn verða afhent hjá Gunnari Torfasyni, verkfr, c/o Hagverk, Banka- stræti 11, gegn 12.000 kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 28. desember 1976. Verkfræðistofa Gunnars Torfasonar. — íþróttir Framhald af bls. 23 steinsson bezti leikmaður íslenzka liðsins í þessum leik, og sennilega bezti maður vallarins, ef Kay Jörgensen er undanskil- inn. Geir var mjög virkur f sóknarleiknum og ógnaði sífellt. Reyndu Danirnir að koma vel út á móti honum, en Geir reif sig þá oft lausan og skoraði með gegn- umbrotum. Þótt Geir skoraði 7 mörk í þessum leik var ekki unnt að segja að hann hafi verið hepp- inn með skot sín. Þannig komst hann t.d. tvívegis i dauðafæri, en lét Kay Jörgensen verja frá sér. Viðar Símonarson átti einnig' ágætan leik að þessu sinni, þótt ekki væri hann jafn atkvæða- mikill og hann var í leikjunum við Austur-Þjóðverja. Viðar var mjög öruggur í varnarleiknum og hættulegur í sókninni. Nú kom hins vegar að því að honum brást bogalistin í vítaköstum. Varði Kay Jörgensen frá honum, og þau víti sem Islendingar fengu eftir það dæmd í leiknum tók Jón H. Karlsson og skoraði hann úr þeim. Ágúst Svavarsson ógnaði líka sæmilega í þessum leik, en var hins vegar alltof ragur við að skjóta. Reyndi hann ekki nema þrisvar sinnum að skjóta, skoraði eitt mark og fékk tvívegis dæmd aukaköst á Danina. Þá áttu þeir Þorbjörn og Þórarinn ágætan leik, en þeir voru mest inná í vörninni. — Úr Djúpadal Framhald af bls 11 ákvörðun heimilishögum Hall- gríms hastarlega, því upp frá þessu helgaði hann Samvinnu- hreyfingunni alla krafta sina, en þær stundir, sem hann átti með fjölskyldunni urðu sifellt færri en hann hefði sjálfur ósk- að. Hallgrimi auðnaðist að lyfta mörgum Grettistökum fyrir Samvinnuhreyfinguna meðan hans naut við, en hann lést fyr- ir aldur fram, aðeins fjörutíu og sex ára...“ Saga Hallgrims Kristinsson- ar, er prentuð í Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri. Hönnun annaðist Kristján Kristjánsson. Bókin er gefin út í samvinnu við Samband ís- lenzkra samvinnufélaga, eins og raunar er minnst á hér að framan. I sögu Hallgríms KriStinsson- ar er meðal annars greint frá vináttu hans við Valtý Stefáns- son, ritstjóra Morgunblaðsins. En þess má geta til fróðleiks og sem einskonar viðbót við þessa sögu Hallgríms Kristinssonar að í ævisöguágripi, sem ritstjóri Morgunblaðsins skrifaði um Valtý Stefánsson og birtist í bókinni Með Valtý Stefánssyni, (útg. 1962), er Hallgríms Krist- inssonar meðal annars minnst án þess að það koma fram I bók Páls H. Jónssonar. Valtýr segir m.a.: „Síðar var ég ekkert við- riðinn blaðamennsku þangaó til ég gerðist ritstjóri Freys, 1923, nema hvað ég skrifaði stundum erlendar fréttir í Timann fyrir orð vinar mins Hallgráms Krist- inssonar. Ég var ritstjóri Freys um tveggja ára skeið og hafði þá stuðning að norskum blöð- um, sem fjölluðu um búnaðar- mál, og ef satt skal segja, lagði ég mig í framkróka með að gera blaðið sem bezt úr garði, enda þá farið að tala um að ég yrði ritstjóri Morgunblaðsins, og þdtti mér Freyr góður undir- búningur undir það starf.“ Það er ekki lítill þáttur í samtíðar- sögunni að hafa átt hlutdeild að því að Valtýr Stefánsson hóf blaðamennsku og varð siðar rit- stjóri Morgunblaðsins, en Hall- grímur Kristinsson hefur sýni- lega ýtt á hann, enda þótt hann hafi fremur kosið að Valtýr ilentist á Tímanum en Morgun- blaðinu. Fáir menn höfðu jafn mikil áhrif um sina daga og einmitt Valtýr Stefánsson. — Frumvarp um tollskrá Framhald af bls. 21 koma um 900 m kr. til framkvæmda strax á næsta ári sem er um 300 m. kr meira en fjárlagafrumvarpið eins og það nú liggur fyrir gerir ráð fyrir. Það dylst sjálfsagt engum að ríkissjóður verður með einhverjum hætti að draga úr útgjöldum eða bæta sér upp þann tekjumissi sem hér um ræðir og mun það mál koma til kasta þingsins þegar þar að kemur en ekkert hefur að svo stöddu verið ákveðið í þeim efnum AFGREIÐSLA FRUMVARPSINS FYRIR ÁRAMÓT BREYTT VEGNA HAGSMUNA IÐNAÐARINS Á árinu 1 975 var sú ósk borin fram af samtökum iðnaðarins að leitað yrði eftir því við EFTA og EBE að fá al- menna framlengingu á aðlögunartíma að því er snertir tollalækkun á verndar- vörum Ríkisstjórnin taldi ekki rök vera fyrir almennri framlengingu aðlögunar- tímans, en hins vegar kæmi til álita að óska eftir undanþágum fyrir einstakar iðngreinar, er stæðu höllum fæti í samkeppninni í þessu skyni var að undirlagi ríkisstjórnarinnar hafin athugun á vegum Þjóðhagsstofnunar á áhrifum fríverslunarsamninganna á innlendan verndarvöruiðnað og mun skýrsla stofnunarinnar væntanleg á næstunni Gefst þá tækifæri til athugunar á því hvort sérstakra undanþága er þörf fyrir einstakar greinar verndarvöruiðnaðar- ins. j þessu sambandi vil ég leggja ríka áherslu á það hér, að samþykkt þessa frumvarps snertir engan veginn hug- leiðingar um þetta efni, því að um- samdar tollalækkanir koma til fram- kvæmda frá ársbyrjun hvort sem þetta frumvarp er þá afgreitt eða ekki vegna skuldbindinga okkar I fríverslunar- samningunum Dragist samþykkt þessa frumvarps fram yfir áramót þá hefur það eingöngu i för með sér, að þær ívilnanir iðnaðinum til handa, sem í því felast, frestuðust til mikils óhag- ræðis fyrir iðnaðinn samtímis því, að samkeppnisaðstaða hans yrði lakari frá næstu áramótum vegna áðurnefndra umsaminna tollalækkana á verndarvör- um við EFTA og EBE. Ég geri mér grein fyrir að frumvarp þetta er lagt fram i allra síðasta lagi til að hægt sé að afgreiða málið fyrir jólaleyfi þingmanna Sá dráttur sem orðið hefur á framlagningu frumvarps- ins stafar fyrst og fremst af mikilli undirbúningsvinnu sem tekur mikinn tima Ég vil hins vegar eindregið fara þess á leit við hæstvirta Alþingi að mál þetta fáist afgreitt frá Alþingi fyrir ára- mót, því að mínu mati skapar frestun á afgreiðslu frumvarpsins mikil vanda- mál og afgreiðsla þess er mjög brýn vegna hagsmuna iðnaðarins. Munu embættismenn tolladeildar ráðuneytis- ins verða þingmönnum í hæstvirtum fjárhagsnefndum þingsins svo og öðr- um þingmönnum sem þess óska að því liði sem hægt er til að svo megi verða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.