Morgunblaðið - 14.12.1976, Síða 34

Morgunblaðið - 14.12.1976, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976 Sigurður Guðjónsson: Geðs júklingar—horn- rekur þjóðfélagsins I Morgunblaðinu 7. desember, á annarri bláðsíðu, er frétt sem ber þessa fyrirsögn: „Um 530 rúm skortir fyrir geðveikt fólk. — Að óbreyttum framkvæmdahraða verður geðdeild Landspítala ekki lokið fyrr en 1980.“ Siðan segir orðrétt með dökku letri: „Nú er talið, að um 530 rúm skorti hér á landi fyrir fólk, sem þjáist af hinum ýmsu tegundum geðsýki. Þar af skortir um 280 rúm á geðdeildir fyrir skamm- tima vistun sjúklinga. A hjúkrunarheimili vantar a.m.k 120 rúm fyrir geðsjúklinga til langdvalar. Um 100 rúm skortir á sérstökum geðveikrastofnunum og á drykkjumannahæli vantar um 30 rúm fyrir langdvalarsjúk- linga. Um nokkurra ára skeið hef- ur verið í byggingu geðdeild við Landspitalann og var lokið við að steypa þá byggingu upp á sl. sumri en að óbreyttum aðstæðum verða engin rúm tekin þar i notk- un á næsta ári, hins vegar mun stefnt að þvi að ljúka göngudeild i hinni nýju geðdeild á næsta ári.“ Þá er bætt við í fréttinni að nú séu til í landinu samtals 428 rúm fyrir geðsjúka, þar af 128 rúm á Kleppsspítala fyrir skammtima vistun (18 af þeim sérstaklega ætluð drykkjusjúkum) og 31 rúm á Borgarspítala, 50 rúm fyrir langdvalarsjúklinga á Kleppi sjálfum, en auk þess á sérstökum hjúkrunarheimilum á hans veg- um 104 rúm og fyrir sams konar sjúklinga 86 rúm á vegum Borgar- spitalans. Þetta gera í heild 190 rúm fyrir langdvalarsjúklinga, öll í Reykjavík að undanskildum 16 á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi og 14 á Bjargi. Loks er samtals 81 rúm á drykkjumannahælum. Ekki kemur fram hvort nokkur hæli séu til fyrir drykkjusjúkar konur. Nú er ný geðdeild í bygg- ingu við Landspitalann en i frétt- inni segir, að þó árið 1976 hafi fjárveitingar til hennar verið áætlaðar 78 milljónir króna og árið 1977 125 milljónir króna bendi ekkert til þess miðað við núverandi áætlanir að byggingu geðdeildar Landspítalans verði lokið fyrr en árið 1980 og að öllu óbreyttu verði engin sjúkrarúm tekin í notkun I hinni nýju geð- deild fyrr en i fyrsta lagi á árinu 1978. I Morgunblaðinu daginn eft- ir að þessi frétt birtist, þ.e. 8. desember, staðfestir Tómas Helgason yfirlæknir á Kleppi, að þessar tölur um skort á sjúkra- rúmi fyrir geðsjúka séu réttar og I meginatriðum kemur hið sama fram í svari Matthíasar Bjarna- sonar heilbrigðisráðherra á al- Ef við nú á næstu mánuðum, eða nánar, til næstu samninga íhugum stöðu okkar matsveina i samanburði við aðra launþega, kemur í ljós að við erum langt á eftir öðrum — ef miðað er við vinnuálag á fiskiskipunum. Hvaða matsveinn vill ekki leysa starf sitt samvizkusamlega af hendi? Og útgerðarmenn vita, hve mikið fjármagn fer um hend- ur þessara manna, og þess vegna veit ég, að margur mætur út- gerðarmaðurinn skilur okkar sjónarmið og lítur með sanngirni á okkar mál. Stéttarfélag okkar er landsfél- ag, og verðum við því að fylkja ok..ur undir eitt sameiginlegt merki, og hvetja alla starfandi þingi 7. desember við fyrirspurn Ragnhildar Helgadóttur. Umræður á Alþingi Nokkrar umræður urðu um þessi mál í sameinuðu þingi. Til- efni fyrirspurnar Ragnhildar er sú, samkvæmt fréttum Morgun- blaðsins 8. desember, að „henni fyndist ekki alveg ljóst af fjár- lagafrumvarpi næsta árs, hver áætlunin í þessu efni yrði nú, hvort halda ætti áfram á sömu braut og áður hefði verið mörk- uð“. Meginatriðin í svari Matt- hiasar ráðherra voru á þessa leið: Byggingaframkvæmdir hafi geng- ið með eðlilegum hætti fram á mitt ár 1976. En síðan segja þing- fréttirnar: „Tillögur heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins um fjárveitingar til geðdeildar á fjárl. þessa árs voru lækkaður úr 188 millj. í 78 mill. (leturbr. min) og olli þessi lækkun því, að ekki var hægt i byrjun þessa árs að gera ráð fyrir öðru en að bygg- ingarframkvæmdir við geðdeild myndu stöðvast, þegar lokið var þáverandi samningsáfanga, en það var að gera húsið fokhelt og glerja það.“ Þá kemur í ljós af orðum ráðherra, að síðastliðið vor hafi byggingarstjórn óskað eftir því við Háskóla íslands að fá að láni 50 milljónir króna af fé því sem gert var ráð fyrir að færi til bygginga Háskólans á Landspít- alalóð á þessu ári, til að halda áfram framkvæmdum við geð- deildina. Þetta Ián fékkst með þvi skilyrði að féð yrði endurgreitt af fjárveitingum ársins 1977. Þá voru gerðar útboðslýsingar um áframhaldandi vinnu við geð- deildina, en aðferðin við fjárveit- inguna hafi valdið því að það hönnunarstarf sem í byrjun var gert vegna geðdeildarinnar hafi „hvergi nærri komið að þeim not- um sem upphaflega var gert ráð fyrir, vegna þess að bjóða hefur orðið út miklu minni byggingar- áfanga en fyrirhugað var“. Það kemur fram i svari heilbrigðisráð- herra að hann geti ekki á þessu stigi málsins sagt um hvenær byggingu geðdeildarinnar verði lokið, m.a. vegna niðurskurðar fjárveitinga á síðasta ári. Þá segir í þingfréttum Morgunblaðsins: „I fjárlagafrumvarpi þvi sem nú liggur fyrir alþingi, eru fjárfram- lög til geðdeildar skorin niður úr 185 millj. I 125 millj. eða um 60 millj.“ (Leturbr.mín). Ráðherr- ann segist hafa lagt áherzlu á það að í fjárlögum næsta árs verði varið fé til að ljúka göngudeild- matsveina á fiskiskipum til að ganga í MatsveinafélagSjómanna- sambands Islands, og vil ég biðja alla aðila að senda okkur ábend- ingar — sem eru ævinlega vel þegnar. Ég sagði einu sinni, — réttilega — að háseti væri gulls igildi. En hvers virði skyldi matsveinn vera? Nú eru menn að minnsta kosti hættir að segja, þegar spurt er um skipshöfn: „Það er svo og svo margir menn um borð — og svo kokkurinn!" Mér finnst mál til komið, að matsveinar, með eða án réttinda, vakni af þyrnirósarsvefni sínum, og taki höndum saman um sin málefni. örfáir áhugamenn innan stéttarinnar fá afar takmörkuðu inni þannig að hún geti tekið til starfa á næsta ári, en þingmenn geti reynt að gera sér grein fyrir þvi sjálfir, hve það myndi lengja byggingartímann ef tillögur ráðu- neytisins verði áram lækkaðar á sama hátt og áður hefur verið. Það kemur einnig fram að nú I október hafi verið greiddar til geðdeildar rúmlega 260 milljónir króna en áætlaður kostnaður við alla bygginguna sé um 750—800 milljónir króna. Til þess að geð- deildin geti öll verið komin í notk- un árið 1980, þyrfti að veita til hennar um 200 milljónir króna á ári. Matthías telur að auðvelt verði að taka deildina í not í áföngum ef fjárveitingar væru nægar. Þannig geti göngudeildin tekið til starfa i lok næsta árs og tvær sjúkradeildir á árinu 1978. Verði hins vegar áfram haldið þeirri stefnu er mörkuð var í fjár- veitingum ársins í ár, konfa sjúkradeildir ekki i gagnið fyrr en árið 1979 eða jafnvel 1980. Hvaða ályktanir má draga? Svona eru staðreyndir þessa máls. En hvaða ályktanir má draga af þessum staðreyndum? I Morgunblaðinu 8. desember er einnig viðtal við Tómas Helgason yfirlækni á Kleppi og kemur þar m.a. þetta fram. Ef fer fram sem horfir um framkvæmdahraða nú miðað við tillögur í fjárlögum þá verður húsnæðið til þess að „hinir geðveiku verði áfram einangraðir og við færumst aftur á bak á þessu sviði I stað þess að miða nokkuð á leið.“ (Leturbr. min). Ætla mætti af framangreinduni staðreyndum að ástandið væri í þessum efnum svo bágborið að illt væri að það stæði í stað hvað þá að það versnaði. 1 viðtali Morgun- blaðsins 9. desember við Jón G. Stefánsson geðlækni á Kleppi kemur það berlega fram að stofn- unin er mjög ófullnægjandi og aðstaða erfið. Jón segir t.d.: „Kleppsspítalinn er í raun löngu orðinn úreltur og staðall hans er I raun miklu lakari en gengur og gerist um sjúkrahús á Islandi." Jón bætir við síðar að þó vissulega hefðu orðið endur- bætur á siðustu árum, hefði spít- alinn alls ekki í tré við þá þróun sem orðið hefði. Þetta sama við- horf kemur mjög skýrt I ljós I myndskreyttum frásögnum við Kleppsspitalinn er birtust sömu helgina i haust af tilviljun bæði í Vísi og Alþýðublaðinu. En nú skulum við athuga og áorkað, hversu mjög sem þeir leggja sig fram — í félagi sem á að vera stórt og öflugt. Að endingu vil ég benda út- gerðarmönnum og skipstjórum á, að samkvæmt samningum er óheimilt að ráða réttindalausan mann til matsveinsstarfa, ef rétt- indamaður er fyrir hendi. — Tel ég, að skipstjórar hafi gert tölu- vert af þvi að ráða vini sína og venzlafólk i matsveinsstöður, ef hagnaðar er von. Þrátt fyrir að rikt hafi mikið samtakaleysi innan stéttar okkar, vonq ég að nú sjáist fyrir endann á því með samstöðu góðra manna I félagi okkar — Matsveinafélagi Sjómannafélags tslands. — Geta þá allir unað glaðir við sitt — þegar réttlætið ræður ríkjum. bera saman við upplýsingar Matt- híasar ráðherra um þróunina. Hvernig Tómas Helgason yfir- læknir telur nauðsynlegt að hún þurfi að verða. Hann segir i fyrr- nefndu viótali Morgunblaðsins: „Ég tel að það eigi að leggja áherzlu á að koma sem allra fyrst á alhliða geðlæknisþjónustu og ljúka fyrst við eina sjúkradeild fyrir 15 sólarhringssjúklinga og 3 dagsjúklinga ásamt hluta af fyrir- hugaðri göngudeildaraðstöðu. Ég tel bráðnauðsynlegt að hvort tveggja verði komið í gagnið ekki siðar en I árslok 1977 eða árs- byrjun 1978. Siðan verði unnið að næstu legudeild með það fyrir Sigurður Guðjðnsson augum að hún verði tekin í notk- un I árslok 1978 og um leið verði aukið göngudeildarpláss. Það skiptir mjög miklu máli að koma á samhliða sjúkradeild og göngu- deild. Til þess að göngudeild nýt- ist vel þarf sjúkradeildin að vera komin á og göngudeildin býður einnig upp á betri nýtingu sjúkra- deildar. „ (Leturbr: mínar.) Þetta eru viðhorf Tómasar. Það sem hann telur bráðnauðsynlegt miðað við tiltekin árabil stangast heldur betur á við áætlanir um hvenær þessum áföngum verður náð í raun og veru samkvæmt áætlunum. En hvaða afleiðingar hefur seinkun geðdeildarinnar á mál- efni geðsjúkra? Þær telur Tóm- as þessar helztar: „Ef fram- kvæmdahraði verði ekki aukinn, mun það leiða til þess, að sjúk- lingar, sem nauðsynlega þurfa að komast á sjúkrahús, komast ekki að og það er þvi hætta að ekki takist að lækna þessa sjúklinga og þeir verði krðniskir sjúklingar og örýrkjar. Það myndi hins veg- ar leiða til þess, að meira lang- dvalarpláss þarf fyrir þetta fólk síðar, en ella þyrfti, ef unnt reýndist að lækna það í tíma.“ Þá kemur fram ótti Tómasar um tregðu aðstandenda sjúklinga að veita þeim viðtöku eftir að þeim er batnað ef þeir hafa orðið að sinna þeim langan tima veik- um áður en þeir komust á sjúkra- hús. En síðar segir hann: „Það hefur einnig ýmsar aðrar afleið- ingar ef fólk, sem er geðveikt, kemst ekki á sjúkrahús í tæka tið. Það getur leitt til fleiri sjálfs- morða, aukningar á lyfjanotkun og aukningar á áfengisnotkun, sem í mörgum tilvikum leiðir til áfengissýki". ((Leturbr: mtnar). Þetta ályktar Tómas Helgason. Matthías ráðherra segir að úrbæt- ur í heilbrigðismálum verói að gera fyrst þar sem þær eru brýn- astar. Af þvi sem Tómas segir, Jón G. Stefánsson, Ragnhildur Helgadóttir og fleiri þingmenn I umræðunum á alþingi og mun auk þess vera almenn skoðun þeirra er fjalla um heilbrigðis- mál, er ástandið liklega hvergi lakara en einmitt í sviði geð- heilsu. 1 leiðara Morgunblaðsins 8. desember er þetta ófremdar- ástand kallað „svartur blettur á þjóðinni." Aldagatnlir fordómar Liggur það ekki I augum uppi að veita mest útgjöld til þeirra mála sem brýnust þörf er á að leysa? Þvi svarar Matthias ját- andi. En samt bætir hann því við að meðan hann sé heilbrigðisráð- herra muni hann ekki gera geð- heilbrigðismálum hærra undir höfði en öðrum þáttum heilsu- gæzlu. Hann er því greinilega í mótsögn við sina eigin hugsjón-a- stefnu I sérgrein sinni sem ráð- herra. Þeir sem liða svo og svo mikið vegna lélegs ástands á sviði geðheilbrigðismála verða því ef til vill að biða eftir því að málum þeirra verði komið I sómasamlegt horf þangað til einhver annar tek- ur við embætti heilbrigðisráð- herra af Matthíasi. Geðsjúkdómar hafa löngum haft mjög ákveðna sérstöðu i hug- um fólks miðað við aðra sjúk- dóma. Alveg fram á síðustu tima hafa aldagamlir fordómar blindað augu almennings gagnvart þess- um fyrirbærum. Þó viðhorfin hafi mjög breyzt i frjálslyndari átt á siðari árum er þó langt i frá að leifar þessara fordóma séu horfn- ir. Þeir eru að visu sjaldan núorð- ið illkynja. Það er að skilja: Fólk vill gjarna hafa viðsýnt og vin- gjarnlegt viðhorf til þessara sjúk- dóma og leggja „úrbótum" lið. En skilningur almennings á vanda- málum geðsjúkra, bæði I einkalifi þeirra og hvernig þau koma fram og hindra þátttöku þeirra i þjóð- félaginu og umhverfi sínu, er mjög óljós og eiginlega langt frá lagi. Ég á hér auðvitað við hlut- lægan skilning sem sér fyrirbærið eins og það er i raun og veru en ekki skilning sem sprettur af ein- hverrf meira og minna yfirborðs- kenndri samúð sem fyrr en varir getur breytzt í ómeðvitaða eða vísvitandi tortryggni og andúð. Tiltölulega fáir gera sér glögga mynd af dálitið sérstæðum vanda- málum margra geðsjúklinga nema þeir sem hafa haft náin kynni af sjúklingum I gegnum starf, skyldmenni eða á einhvern annan hátt. Þó eru geðrænir kvill- ar mjög algengir og geðsjúkdóm- ar eru ekki einn sjúkdómur held- ur margir. En flestir þurfa ekki að leggjast á sjúkrahús vegna geð- heilsu sinnar og það veldur þvi að meiri háttar mörk eru dregin milli þeirra sem eru eða hafa ver- ið á sjúkrahúsi og þeirra sem aldrei hafa þurft að leita hælis á sjúkradeildum. Én i sambandi við geðsjúkdóma gildir það lög- mál eins og við flesta sjúkdóma að sjúklingurinn komi sem allra fyrst undir læknishendur. Því fyrr þvi betri batahorfur. Þvi seinna þvi lakari batahorfur. Þetta á ekki sizt við um aivarlegri tegundir geðsjúkdóma. Ef aðeins grunur vaknar um að einhver gangi með krabbamein er viðkom- andi einstaklingur umsvifalaust settur í rækilega rannsókn og þykir álíka sjálfsagt mál og að rétta drukknandi manni hjálparhönd. Margir geðsjúkdóm- ar gera fyrst vart við sig þegar fólk er I „blóma lífsins", kannski að hefja lífsstarf sitt. Fái þeir að þróast óáreittir, en slík tilfelli hljóta að vera ótrúlega mörg á Islandi, samkvæmt þeim upplýs- ingum sem fram hafa komið, get- ur það leitt til að sjúklingar, sem hægt er að lækna, verði eins og Tómas Helgason bendir á krón- ískir öryrkjar. Þeir verða kannski andlegir örkumlamenn óhæfir til þátttöku í þjóðfélaginu og jafnvel þvi umhverfi sem þeir lifa I. Framtið þessa fólks hrynur bók- staflega í rúst, menntun þeirra, hugsun og hæfileikar koma eng- um að gagni. Þeir hverfa í raun og veru af sjónarsviði þjóðfélagsi veruleika nema sem flöktandi skuggar. Hvað skyldi það kosta þjóðfélagið i peningum að halda uppi andlegum öryrkjum á viku, mánuði eða ári? Hvað verður sú upphæð há eftir fimm ár ef svo og svo margir læknanlegirsjúklingar eru bókstaflega neyddir til að sætta sig við þessi örlög? Og hvað um lífshamingju þessa fólks og ættingja þeirra? Það er sagt að Framhald á bls. 34 Skúli Einarsson matsveinn: Hugleiðingar til mat- sveina á fiskiskipum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.