Morgunblaðið - 14.12.1976, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1976
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
En það afturhald, segja sjálf-
sagt margir er þeir sjá þetta, en
mér finnst þetta bara sjálfsögð
mannréttindi. Það á ekki að mínu
mati að veita neinum forgang
fram yfir aðra, allra sízt í þessum
menningarmálum og þegar ekki
er ennþá komið almennilegt út-
varp út um landið. Hvað liggur þá
á með litsjónvarp?
Innflutningur litsjónvarps-
tækja mun líka taka eitthvað af
gjaldeyri ef maður hefur reiknað
rétt, en það er kannski ekki néin
umtalsverð upphæð. Það hefur
löngum loðað við okkur tslend-
inga að vilja apa allt eftir útlend-
ingum og það liggur við að manni
finnist þetta vera ein eftiröpun
enn. Við verðum aðeins að gæta
hófs og velja og hafna — ég héldi
að við höfum ekki efni á því að
gera alls sem okkur langar til.
Það er vissulega huggulegt að sjá
fólk í litum- allt sjónvarpsefnið
væri að sjálfsögðu mun liflegra og
skemmtilegra en ég held samt að
hér verði að bíða um tíma og sjá
til. Það má áreiðanlega gera
margt þarfara fyrir aurana á með-
an.
Þetta voru orð sjónvarpsneyt-
andans um litsjónvarpið.
% Spurning dagsins.
Það hefur verið orðað í
þessu tali um litsjónvarp að
breyta eigi afnotagjöldunum á
þann veg að hærra gjald sé fyrir
þá sem hafa litstjónvarpstæki en
svart-hvít tæki. Með því má
reikna með að innheimtukerfið
verði enn flóknara en nú er eða
hvað halda lesendur um það? Er
það rétt að menn greiði hærra
fyrir það að horfa á sjónvarp í
litum, þegar það kemst á, eða á að
hafa sama gjald fyrir alla? Má
ekki líkja þessu við vegatollinn
fræga — það njóta ekki allir þess
að aka á steyptum vegum?
Bjölluhljómar — einn sjónvarpsáhorfenda vill sjá þennan þátt aftur.
Þessir hringdu . . .
0 Um eftirlits-
menn í stórbúðum
Dóttir konu sem hafði verið
þjófkennd:
— Mig langar að koma á fram-'
færi smásögu um það að móðir
mín var fyrir nokkru ásökuð fyrir
að hafa tekið hlut úr verzlun
ófrjálsri hendi. Það hefur tíðkast
í mörgum stórverzlunum að nokk-
urs konar eftirlitsmenn ráfa um
búðirnar og lita eftir viðskipta-
vinum og það mun ekki vera van-
þörf á því eftir því sem verzlunar-
eigendur og verzlunarstjórar
segja.
En það er artnað sem mér finnst
að þessir menn verði að temja sér
og sínu eftirlitsfólki og það er að
vera kurteist, því það er alvarlegt
mál að bera á fólk að það hafi
stolið einhverju. Móðir mín var
nýlega að verzla i kjörbúð og varð
hún þá fyrir því að hún var leidd
fyrir verzlunarstjórann og sökuð
um að hafa stolið tepakka. Eftir-
litskonan sagðist hafa séð hana
taka pakkann og þegar hann
fannst ekki hjá móður minni
sagði hún að hún hlyti að hafa
hent honum frá sér. Þegar leitin
var afstaðin sagði verzlunarstjór-
inn aðeins: Þér megið fara.
Það var ekki verið að biðjast
afsökunar á þessu framferði og
það finnst mér lítil kurteisi. Nú
SKÁK
/ UMSJÁ MAfí-
GE/fíS PÉTURSSO/VAfí
Á skákmótinu í Dubna í Sovét-
ríkjunum í vor kom þessi staða
upp í skák sovéska stórmeistarans
Gipslis og pólska alþjóðameistar-
ans Kostro. Gipslis hefur hvítt og
á leik. Eins og sjá má er staða
hvíts allvænleg, en hvernig
þvingaði hann andstæðing sinn til
uppgjafar tveim leikjum síðar?
getur móðir min ekki hugsað sér
að verzla í þessari búð framar og
hefur hún af því viss óþægindi og
það hlýtur að vera undarleg
stefna að hrista af sér viðskipta-
vini á þennan hátt.
Svo mörg voru þau orð og þetta
er náttúrlega ekki gott afspurnar
ef rétt er. Það hlýtur að þurfa að
fylgjasl mjög vel með fólki ef það
á að vera hægt að sjá þegar það
stingur á sig hlutum og þetta eft-
irlitsfólk verður að vera algjör-
lega visst í sinni sök.
% Endursýnið
bjölluhljóma
Sjónvarpsáhorfandi:
— Eins og margir muna sjálf-
sagt eftir var fyrir alllöngu
sýndur þáttur í sjónvarpinu sem
hét bjölluhljómar. Þar léku ein-
hverjir listamenn, sænskir að mig
minnir, á gamlar bjöllur eða
klukkur og var það alger snilld
hvernig þeir gátu náð heilu lögun-
um út úr þessum „hljóðfærum"
og undravert var hversu góð sam-
vinna og samspil þeirra var. Vil
ég hvetja forráðamenn sjónvarps-
ins til að endursýna þennan þátt
ef mögulegt er eða að fá annan
með þessum ágætu listamönnum.
Ég er viss um að það hefur margt
lélegra verið endursýnt um dag-
ana.
HÖGNI HREKKVÍSI
Skínandi pottar og pönnur
með Brillo stálull með sápu
gm
MALARAR
Þið getið ekki skilað fyrsta
flokks vinnu ef þið notið
ekki fyrsta flokks límbönd.
Notid því „SCOTCH
3M UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI
Scotc
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.
I % %
A w k 1
m K A íp ....
1 m H
& U Wrn, B
W!w/.
A1 hf A Hf m Ol A M VzzÆ
ÍrM ■ ■ ' A , \...\
20. DH5! Dd5 (Svartur virðist nú
vinna tíma, því að eftir 21. Hh3
kemur Dxg2 mát. En:) 21.
Dxh7+H og svartur gafst upp,
vegna 21.. . Kxh7 22. Hh3+ Kg8
eða Kg6 23. Rxe7+ og mát.
Líklega er verið að koma með mjólkina...?
Armúla 1 . — Simi 8 55 33.
DRÁTTHAGI BLÝANTURINN