Morgunblaðið - 13.01.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.01.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANUAR 1977 5 Baksfðuauglýsing úr janúarhefti brezka tfmaritsins Honey. í slenzk fy rir- sæta vekur at- hy gli í E vrópu ISLENZK stúlka, Kolbrún Sveinsdóttir, hefur vakið veru- lega athygli undanfarið og öðl- azt skjótan frama meðal tizku- sýningarfólks í Evrópu. Hefur Kolbrún siðastliðið ár starfað á vegum austurrísks fyrirtækis, sem hefur starfsemi viða um lönd. Hefur Kolbrún starfað viða á þessu tímabili og ekki hvað minnst á Ítalíu. I nóvem- ber-, desember- og janúarheft- um nokkurra heimsfrægra tfmarita hefur m.a. mátt sjá heilsíðuauglýsingu, þar sem Kolbrún auglýsir ilmvatnsteg- und. Af þeim tímaritum, sem auglýsingin hefur birzt i má nefna Honey, Vogue, Nineteen og Harpers. Kolbrún Sveinsdóttir varð númer 2 i keppninni um fegurðardrottningu íslands ár- ið 1972 og fékk þá titilinn ung- frú Reykjavík. Ári síðar tók hún þátt i alheimsfegurðarsam- keppninni í Tokyo og þó svo að hún kæmist ekki í úrslit keppn- innar, þá vakti hún mikla at- hygli og fékk mörg atvinnutil- boð. Hefur Kolbrún starfað er- lendis 3—4 síðustu ár og þá meðal annars notað sér þau til- boð, sem hún fékk í keppninni í Tokyo. Kolbrún varð þriðja i röðinni i fyrsta skipti, sem keppnin um „Fulltrúa ungu kynslóðarinnar“ fór fram hér á landi. Þess má geta til gamans að i fegurðarsamkeppninni 1972 vakti Kolbrún mikla at- hygli fyrir málakunnáttu sina, en hún talaði þá 7 tungumál og var að læra það áttunda. Athugasemd um skipadeild SÍS 1 AFMÆLISGREINUM um hr. Hjört Hjartar, framkvstj. skipa- deildar S.t.S. nú um s.l. helgi I Morgunblaðinu og Tímanum (og reyndar einnig áður i Samvinnu- fréttum) er skrifað þannig, að ekki verður annað lesið né skilið en hann hafi verið fyrsti fram- kvæmdastjóri skipadeildarinnar. Ilér er um missögn að ræða að minu mati og ég tel nauðsyn á að fjalla nánar um hvers vegna. Skipadeild sambandsins hóf störf undir forustu hr. Vilhjálms Þórs, forstjóra S.Í.S. 1946 með kaupum á M/S Hvassafelli frá ítaliu. Þá er hr. Sigurður Benediktsson fulltrúi Vilhjálms og honum er falið það vandasama verkefni að taka við stjórnun á rekstri skipsins og hefja undir- búning að þvi að samvinnumenn eigi sinn kaupskipaflota. Ég og að minu mati allir sem vorum á kaupskipum samvinnumanna þessi ár töldum að hér væri komin skipadeild S.I.S. í RAUN og ein- hver formbreyting i innri tilhög- un og með tilheyrandi titlatogi skipti EKKI mál. Ef ég man rétt starfaði Sigurður Benediktsson við skipadeildina sem forstöðu- maður framá síðari hluta ársins 1953 eða um eða á 7. ár. Á þessum árum komu einnig skipin M/S ARNARFELL, sem Sverrir Þór var lengst með og Jökulfell, sem kom 1951 og Guðni Jónsson varð fyrsti skipstjóri á og i 6 ár. Við, sem störfuðum á skipum samvinnumanna þessi ár munum vel eftir hve Sigurður heitinn lagði sig fram við að mæta þörf- um kaupfélaganna með vörur, og það mjög margbreytilegar, næst- um inn á hvaða höfn sem vera skal, svo sem Óspakseyri, Borð- eyri, á Bakkafjörð, Vopnafjörð o.s.frv., en menn verða að hafa það, f huga, að þá voru aðstæður allar aðrar en nú er. Allir vissu það, að skipulag á þessari þjón- ustu við kaupfélögin var í hönd- um Sigurðar og sem dæmi má nefna, að hann hafði simann ævinlega i seilingarfjarlægð hvar sem hann var staddur, jafnt á nóttu sem degi. Ég fullyrði að áhugi hans fyrir velferð skipanna var takmarkalaus og ódrepandi. Mér vitanlega mátu skipstjórnar- menn Sigurð mikils og undruðust oft hörku hans ásamt lægni við að finna lausn á erfiðu vandamáli við að fullnægja mjög vaxandi siglingaþörf samvinnuverslunar út um allt land. Á þessum árum var gifurleg vinna um borð í skip- unum og gamlar dagbækur minar sýna, að vinnuvikan var mánuð eftir mánuð 75—80 stundir og jafnvel meir. Ég vil að lokum geta þess, að Sigurður Benediktsson hóf störf 1933 hjá Kaupfélagi Þingeyinga á Húsavík, á fjórtánda ári og helg- aði samvinnuhreyfingunni allt sitt líf. Hann féll frá i blóma lifsins og hafði þá tekið við for- stjórastarfi og uppbyggingu á Osta- og smjörsölunni. Ég vil einnig nota þetta tæki- færi og minnast ferðar þar sem Hjörtur Hjartar var með Hvassa- fellinu og góðum samræðum okk- ar i þeirri ferð og þá sýndi hann sem síðar kom í ljós, að hann var vel vakandi fyrir framgangi skipadeildarinnar. Jón Arm. Iléðinsson. Bridge Umsjón: Arnór Ragnarsson Úrslitakeppni í Reykjanestyimenning lýkur um helgina Urslit í tvímenningskeppni Reykjanesumdæmis, hið annað sinnar tegundar fara fram n.k. föstudag og laugardag (14. og 15. jan) í Þinghól, Kóp. Spila- mennská hefst kl. 20.00 á föstu- dag en kl. 13.00 laugardag. Spiluð eru 5 spil á milli para, alls 75 spil. Keppt verður um silfurstig. Keppnisstjóri verður Sigurjón Tryggvason en honum til aðstoðar verður Vigfús Páls- son. 16 pör eiga rétt í þessa úrslitakeppni, en nv. meistarar eru þeir bræður Hermann og Ólafur Lárussynir BAK Alls komast 6 pör í íslands- mót, auk 1 v-pars. Sveit Jóns Stefáns- sonar með titilinn í seilingarfjarlægð Nú er aðeins einni umferð ólokið 1 aðalsveitakeppni Bridgedeildar Breiðfirðinga- félagsins. Sveit Jóns Stefáns- sonar hefir örugga forystu og er aðeins ein sveit sem gæti komið til með að ógna veldi hennar, sveit Ingibjargar Ilalldórsdóttur. Þó er mjög ólfklegt annað en þeir beri sigur úr býtum, þar sem þeir hafa 23 stiga forystu. Staða efstu sveita er nú þessi: Jóns Stefánssonar 153 Ingibjargar Halldórsd. 130 Sigríðar Pálsdóttur 113 Hans Nielsens 110 Elísar R. Helgasonar 107 Vörðu titilinn og hafa unnið 3svar sl. fjögur ár Tvímenningskeppni Bridge- félags Borgarness er nýlega lokið. Þátttakendur voru 20 pör og voru alls spiluð 135 spil. Sigurvegarar urðu Baldur Bjarnason og Jón Einarsson. Hlutu þeir félagar 665 stig. Unnu þeir tvlmenninginn einn- Framhald á bls. 19 MEIRIHLUTI vagn- stjóra S.V.R. telur, að nagladekk séu nauðsyn- legur öryggisútút- búnaður fyrir vagnana, eins og fram hefur komið í fréttum og hafa þeir Ingi U. Magnússon gatnamála- stjóri Söltun er betri vörn en naglar — segir gatnamálastjóri bent á, að s.l. laugardag hafi 8 vagnar annaðhvort lent í árekstri á Lauga- veginum eða stöðvazt af völdum skyndihálku. Ingi U. Magnússon, gatna- máiastjóri, sagði í viðtaii við Mbl. að hið rétta væri, að einn vagn hefði runnið utan I aðra bifreið og valdið lítilsháttar skemmdum, og nokkrir aðrir strætisvagnar raðað sér upp fyrir aftan og beðið eftir söltun. — Þegar þessi töf á saltdreif- ingunni var athuguð, sagði gatnamálastjóri, kom i Ijós að saltdreifingarbillinn, sem átti að sjá um Breiðholtshverfið var í viógerð og sá, sem átti að sjá um Laugaveginn, var sendur í Breiðholt þvi þar var talin meiri þörf. Þessar ráðstafanir urðu þess valdandi, að nokkrir strætisvagnar urðu að biða i um 20 minútur eftir saltdreifingu á Laugaveginum. Til þess að koma í veg fyrir að svona óhapp geti komið fyrir hefur varasaltbifreið verið bætt inn í kerfið, sagði Ingi, og S.V.R. hefur verið útveguð tal- stöðvarrás við saltbifreiðarnar. „Með góðri samvinnu starfs- manna minna og S.V.R. á að vera hægt að leysa þetta öryggismál vagnanna á betri hátt en með nagladekkjum og að þvi er stefnt af hálfu borgar- yfirvaldanna með fljótvirkari hálkueyðingarkerfi." Þá nefndi Ingi U. Magnússon, að nú væri tiltækur snjóblásari og önnur snjóruðningstæki, auk salt- dreifingarbilanna fjögurra og eins til vara. Við siðustu talningu á negldum hjólbörðum kom i ljós að um 74% bifreiða voru með neglda hjólbarða en um 90% á sama tima í fyrra. Rakti Ingi það til hinnar góðu tíðar í vetur og til breytts hugsunarháttar bilstjóra á kostum nagladekkja. „Ef nú fengist fram að notkun nagladekkja yrði bönnuð myndi slik ákvörðun hafa i för með sér auknar ráð- stafanir til hálkueyðingar. Slíkt bann myndi hafa I för með sér sparnað á viðhaldi gatna er næmi um 200 milljónum króna og heildarsparnaði er næmi a.m.k. 160 m. kr. Þessum fjár- munum mætti verja til þarfari hluta, t.d. kostar leikskóli er rúmar 2x60 börn um 55 m. kr. eða fyrir það sem sparast mætti fá rými fyrir 360 börn svo dæmi sé tekið,“ sagði Ingi Ú. Magnús- son að lokum. FÉLAGI HINS VANDLÁTA KA - 5500 55+55 RMS 8 ohms 20-20000 HZ paf y- Einstaklega kröftugur ,,Low Distortion“ magnari, búinn því allra nýjasta eins og ICL, FET og mælum, sem sýna tónstyrkinn í wöttum til hvors hátalara fyrir sig. A|„ fyma flokks frá $KÉNWOOD FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 //tynsla 'Rionustpr Fálkinn póstsendir allar nánari upplýsingar, sé þess óskað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.