Morgunblaðið - 13.01.1977, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 13.01.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANtJAR 1977 7 Hin algjöra kyrrstaða um nýtingu jarðvarma Hér ( Morgunblaðinu hefur verið gerður nokkur samanburður á jarðhita- framkvæmdum, annars vegar á tfmum vinstri stjórnarinnar og hins veg- ar F tíð núverandi rikis- stjómar. Sú algjöra kyrr- staða sem rikti um nýt- ingu jarðvarma til húshit- unar ( ráðherratFð Magnúsar Kjartanssonar hefur reynzt þjóðinni dýr. Margföldun oKuverðs á heimsmarkaði hefur af þessum sökum komið mun verr við gjaldeyris- stöðu þjóðarinnar á gengnum árum en þurft hefði, ef eðlileg þróun hefði átt sér stað um nýt- ingu jarðvarmans; og hús- hitun með ol(u hefur rýrt ráðstöfunartekjur heimila á svokölluðum „oliusvæð- um" meira en nokkuð annað ( brösóttri verðþró- un hér á landi. Seinkun framkvæmda um nokkur ár hefur og, með þeirri verðbólguþróun sem hér hefur rfkt, gert stofn- kostnað varmaveitna mun dýrari, sem að sjálfsögðu hlýtur að segja til sfn ( hærra heetavatnsverði til notenda. Það má þv( með sanni segja, að umrædd kyrrstaða hafi reynzt þjóð- inni dýr, hvern veg sem á mál er litið. Hins vegar hefur mikill fjörkippur komið ( jarð- varmarannsóknir og hita- veituf ramkvæmdir I t(ð núverandi rfkisstjórnar; hitaveita komin ( ná- grannabyggðir Reykjavfk- ur, Hitaveita Suðurnesja komin vel á veg, hitaveita fyrir Akureyri ( sjónmáli, hitaveita ( Siglufirði á góðu f ramkvæmdastigi — og rannsóknar- og bor- aðstaða verið efld og bætt, sem skapað hefur nýja og glæsta möguleika á þessu sviði. Öndvert við allar stórvirkjanir Alþýðubandalagið hefur I raun þvælst fyrir öllum stórvirkjunum hér á landi. Búrfellsvirkjun var á sln- um tlma háð þv(, mark- aðslega og fjárhagslega, að hún tengdist orkufrek- um iðnaði. An álversins I Straumsvík hefði hún aldrei verið byggð á þeim tfma, er hún var reist. Al- þýðubandalagið hamaðist gegn álverinu, sem var ein af meginforsendum virkjunarinnar. Frestun á Búrfellsvirkjun til dýrari framkvæmdatlma, hefði þýtt enn hærra rafmaghs- verð en þó er í dag, sem þykir nægilega hátt. Þegar ákvörðun var tek- in um Sigöiduvrikjun (heimildarlög) seint á valdaferli viðreisnar- stjórnar, hófst mikið and- óf Alþýðubandalagsins gegn þeirri virkjun — og allir þekkja afstöðu þess nú til virkjunar ( Tungnaá við Hrauneyjafoss. Eftir að Magnús Kjartansson varð orkuráð- herra hóf hann viðræður við Union Carbide um járnblendiverksmiðju ( Hvalfirði til að bæta mark- aðsgrundvöll Sigöldu- virjunar. Hans var valið á viðsemjanda og allt frum- kvæði ( þessu efni. Efallt- ið hefur tilgangur hans verið góður — en allir vita, hvern veg það ævin- týri endaði. Það eitt hefur breytzt frá ráðherratíð Magnúsar að nú er norskt fyrirtæki komið inn F myndina ( stað bandarfsks og framkvæmdin byggð á samnorrænu átaki með lánafyrirgreiðslu norræna fjárfestingarbankans. En nú er Magnús og Alþýðu- bandalagið öndvert við fyrri afstöðu, enda ( stjórnarandstöðu. Alþýðu- bandalagið utan rlkis- stjómar berst nú gegn þv(, sem það lagði grunn- inn að innan stjórnar. SKkar afstöðuþversagnir segja sána sögu, sem óþarfi er að fjölurða um frekar. Orkuspár Landsvirkjun- ar telja Sigölduverkjun fullnýtta um áramót 1980—81 — og er þá reiknað með tilkomu jám- blendiverksmiðjunnar og stækkun álversins. Sú er ástæða þess að hafinn er undirbúningur virkjunar við Hrauneyjafoss. Og enn er andófið farið að segja til s(n hjá Alþýðu- bandalaginu. Orka er undirstaða iðju og iðnað- ar. Og þessar atvinnu- greinar undirstaða þess að haagt sé að tryggja framtlðaratvinnuöryggi með vaxandi þjóð. En Al- þýðubandalagið er samt við sig F hlutverki nátt- tröllsins gegn sókn þjóð- arinnar til betri framtlðar og bættra Kfskjara. Sumir versla dýrt - aðrir versla hjá okkur. Okkar verð eru ekki tilboð ^ heldur árangur af dtil hagstæðum innkaupuni. í síðustu viku seldum við 50.000 egg — Hvað ætli að við seljum mörg egg þessa^viku? — og nú á aðeins 325 kílóið. C^VBDlp) Austurstræti 17 Starmýri 2 Sundbolir verð kr. 2.780. — Sundskýlur verð kr. 1.355. — Sundgleraugu verð kr. 498. — Sundspaðár verð kr. 1.055. — og 1.270 KLAPPAHSTIG 44 SIMI 1 1 783, LÓUHÓLUM 2 — 6 SlMI 75020 Hinn heimsfrægr arena sundfatnaður frá Frakklandi er nú loksins komin til íslands. Afreksfólk, eins og t.d. Mark Spitz og Shane Gould nota Arena sundföt. verður sunnudagskvöld 16. janúar að Hótel Sögu Súlnasal. ★ Kl. 1 9.30 — Hátiðin hefst stundvfslega. Matseðill: Spánskur veizlumatur sangria og aðrir lystaukar. Matarverð aðeins kr. 1850.- ★ Kl. 20.30. Skemmtiatriði ★ Myndasýning if Ferðabingó: Spilað verður um 3 sólarferðir með Útsýn til Spánar og ítallu. if Fegurðarsamkeppni ungfrú Útsýn 1977 forkeppni. if Dans: Hin vinsæla hljómsveit Ragnars Bjarnasonar. Gestir, sem koma fyrir kL 20.00, fá ókeypis happdrættismióa og vinningurinn er ókeypis Útsýnarferd ti! Spánar og Íta/íu. Munið að panta borð snemma hjá yfirþjóni Hjá Útsýn komast jafnan færri að en vilja Útsýnarkvöld eru skemmtanir I sérflokki. |>ar sem f jórið og stemmningin bregzt ekki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.