Morgunblaðið - 13.01.1977, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANUAR 1977
23
Guðrún Aðalsteins-
dóttir - Minningarorð
F. 8.10. 1924.
D. 3.1. 1977.
Minningar okkar ná sjaldnast
til frumbernsku. Þar tekur ljós-
myndin við og eykur við minn-
ingasjóðinn. í huga mér er föst
lítil ljósmynd sem liggur ein-
hversstaðar í myndabök. Hún er
tekin í sólskini, af ungri konu og
barni sem sitja á grasbala fyrir
framan nokkrar hríslur, — eða
réttara sagt, konan situr og horfir
með blendingi af glettni og um-
hyggju á barnið burðast við að
standa á óstöðugum fótum og hún
hallar sér eilítið fram, reiðubúin
að grípa drenginn. Því unga kon-
an, fríð með þykkt liðað hár, er
Gígi frænka en barnunginn sjálf-
ur ég. „Sumar í sveit“ gæti mynd-
in heitið.
Það er engu líkara en þarna á
balanum og nágrenni hafi mynd-
ast milli mín og Gigíar frænku
bönd sem ekki rofnuðu til fulls
fyrr en nú fyrir skömmu og lýsir
hin látlausa ljósmynd gjörla eðli
þeirra tengsla. Þegar ég óx úr
grasinu og frænka eignaðist sjálf
börn og bú, mátti ég ávallt reiða
mig á gestrisni hennar og skiln-
ing. Frænkur eru oft haukar i
horni uppburðarlitlum piltum og
til Gigíar mátti ég leita hvenær
sem var, jafnvel í miðri slátur eða
sultugerðartiðinni þegar allt hús
þeirra hjóna, höfðingjans Sigfús-
ar og hennar, ilmaði af mat og
búsæld og bergmálaði af glað-
værð. Alltaf fann hún tíma til að
bjóða sísvöngum heimavistar-
strák kleinur og kaffi og ræða um
lífsins gang. Jafnan hafði hún lag
á því að toga úr hugskoti mínu
leyndustu hugsanir og vandamál.
Vandamálin leysti hún með
skynsamlegum ábendingum, von-
ir örvaði hún svo hjartanlega að
maður stækkaði á staðnum og öllu
ungæðislegu yfirlæti eyddi hún
með dillandi hlátri, — og bauð
svo meiri pönnukökur til að
græða sárin.
Af sama skilningi, skynsemi og
eðlislægri hjartagæsku kom Gigi
frænka fram við eigin fólk og
fjölskylduvini. Með árunum
fækkaði ferðum mínum á heimili
þeirra hjóa, sem nú hýsti þrjú
efnileg börn, — ég var lengi utan.
En heimkominn beið mín máltið,
rúm og elskulegt viðmót hvenær
sem ég leit þar inn. Ég gleymi því
svo seint hvernig móttökur erlend
kona mín fékk er hún kom þar
feimin inn úr dyrum í fyrsta sinn,
— hún var knúsuð, boðin hjartan-
lega velkomin á góðri og kjarn-
mikilli islensku og síðan leidd að
SVAR MITT
EFTIR BILLY 6RAHAM
Ég hef óskað þess, að augu mín verði fjarlægð og gefin f
„augnabanka“ 1 heimalandi mfnu, strax eftir dauða minn. En
get ég þá séð Guð?
Þér hafið gert gott verk, er þér hafið ákveðið að
gefa augu yðar eftir dauða yðar, og fyrir bragðið
getur blindur maður öðlazt sjón. Þér þurfið ekki að
kvíða því, að þér munið ekki sjá Guð, því að yður
verður gefinn upprisulikami (ef þér eruð í Kristi),
og þá fáið þér miklu betri sjón en þér höfðuð hér á
jörð.
Job sagði: „Eftir að þessi húð mín er sundurtætt
og allt hold er af mér, mun ég líta Guð. Ég mun líta
hann mér til góðs; já, augu mín sjá hann. (Job
19,26—27). Þessi orð og mörg fleíri í ritningunni
sýna, að fyrir kristnum manni er dauðinn ekki
endirinn, heldur upphafið. Biblían segir: „Nú sjáum
ver svo sem í skuggsjá í óljósri mynd, en þá mun ég
gjörþekkja eins og ég er sjálfur gjörþekktur
orðinn.“ (1. Kor. 13,12).
Jesús sagði: „Sá, sem lifir og trúir á mig, mun
aldrei að eilífu deyja.“ Þér fáið upprisu-augu í stað
núverandi augna yðar. Biblían talar um þennan
leyndardóm með svofelldum orðum: „Allir munum
vér umbreytast í einni svipan, á einu : ugabragði, við
hinn síðasta lúður, þvi að lúðurinn mun gjalla, og
hinir dauðu munu upprísa óforgengilegir, og vér
munum umbreytast. Þvi að þetta hið forgengilega á
að íklæðast óforgengileikanum.“ (l.-kor. 15,51—53).
kúfuðu borði og meðhöndluð eins
og einkadóttir. Innilega glaðvær
hlátur Gígíar frænku hljómar enn
I hugum okkar. Sú minning verð-
ur ekki fest á ljósmynd. Og nú er
hún látin, þessi kjarkmikla og
góða kona, rúmlega fimmtug að
aldri. Sigfúsi og börnum þeirra
hjóna sendum við hugheilar sam-
úðarkveðjur.
Vertu sæl frænka,
Aðalsteinn Ingólfsson
í dag kveðjum við konu sem
ætíð var heil i öllum sinum
athöfnum. Heil í að elska og fórna
sér fyrir heimili, eiginmann og
börn, heil í umhyggju sinni fyrir
öldruðum og sjúkum foreldrum,
heil í vináttu og tryggð. Guðrún
var ein af þeim fáu manneskjum
sem þorði að segja meiningu sína
við hvern sem var og öll hálf-
velgja var henni á móti skapi. Það
gustaði stundum af henni og orð-
hvöss var hún stundum, en
hjartahlýjan skein ávallt í gegn,
skapið var eins og gárur á hlýjum
vatnsfleti. Hún hafði þann sjald-
gæfa eiginleaka að þora að vera
hún sjálf.
Minningarnar streyma fram i
hugann, minningar um glaðværa
og grannvaxna stúlku sem þó var
ótrúlega sterk og hugrökk. Allt
lék í höndunum á henni auk þess
sem hún var góðum gáfum gædd.
Hún gekk að öllum störfum með
hressilegu hispursleysi og var
ekki að æðrast yfir smámunum.
Þó fékk hún sinn skerf af mót-
læti, eins og við öll. Hún tók mér
strax sem systur og vinkonu þeg-
ar ég kom inn í fjölskylduna og á
þá vináttu bar aldrei skugga.
Ég bið Guð að gefa aðstand-
endum hennar styrk og góðri vin-
konu þakka ég fyrar samfylgdina.
Mágkona.
Og enn aukum við flölbreytnina
Við þann mikla fjölda, sem fyrir er af sófasettum, bætum við nú
Adam-sófasettinu
sem er vandað og fallegt, bólstrað í einlitu, möttu plussi
í fallegum litum.
Verið velkomin.
Skoðið úrvalið.
KJÖRGARÐI SÍMI16975 SMIDJUVEGI6 SÍMI44544
1. flokkur
Endurnýjun
9 á 1.000.000 — 9.000000 —
9 — 500 000 — 4.500 000 —
9 — 200 000 — 1 800 000 —
108 — 100 000 — 10 800 000 —
279 — 50 000 — 13.950.000 —
5 598 — 10.000 — 55 980 000 —
6.012 96 030 000 —
18 — 50 000 — 900.000 —
6.030. 96 930 000 —
Vegna gífurlegrar eftirspurnar
hvetjum við alla viðskiptavini
okkar til að endurnýja tímanlega.
Dregið verður 18. janúar.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
------------------Tvö þúsund milljónir í boði