Morgunblaðið - 13.01.1977, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANUAR 1977
29
w w
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
hæli nr. 38/1973) voru sameinuð
lög um ríkisfangelsi og vinnuhæli
(nr. 18/1961) og lög um héraðs-
fangelsi (nr. 21/1961), og var
megintilgangur þeirra að fella
niður þátttöku sveitarfélaga í
stofnkostnaði og rekstri svo-
nefndra héraðsfangelsa. Að þvíer
varðar ákvæði hinna nýju laga
um framlög úr ríkissjóði til bygg-
ingu fangelsa og vinnuhæla segir
svo í 15. gr. þeirra: „Veita skal úr
ríkissjóði 15 milljónir króna á ári
hverju hið minnsta til byggingar
fangelsa og vinnuhæla, þar til lok-
ið er við að koma upp og fullgera
þær stofnanir, sem falla undir
1.— 3. tölulið 2. greinar.", (þ.e.
ríkisfangelsi, vinnuhæli og ung-
lingavinnuhæli). Samkvæmt 7.
gr. eldri laganna (nr. 18/1961)
skyldi verja 1 millj. króna árlega
hið minnsta til samsvarandi bygg-
inga.
A fjárlögum fyrir árið 1976 var
variö kr. 14.250.000,- til byggingar
ríkisfangelsa og vinnuhæla, og á
sömu fjárlögum var jafnhárri
upphæð varið til byggingar prest-
setra! Vissulega væri æskilegra
að geta varið peningunum í eitt-
hvað annað en falgelsisbyggingar,
en við verðum að horfast í augu
við það sem dóms- og kirkjumála-
ráðherra sagði í grein sinni: „Af-
brotaalda hefur flætt yfir landið".
séu álíka margir og þeir, sem
lenda (eða ættu að lenda) í fang-
elsum „reglulega". Og með tilliti
til þess hve misjöfn nýting þess-
ara tvenns konar húsa er, má telja
tímabært að stöðva frekari
kirkjubyggingar, a.m.k. um sinn,
en leggja ríkari áherzlu á hygg-
ingu fangelsa.
0 Fangelsin
frekar
Ég tel ekki fjarri lagi að
þeir sem sækja guðshús reglulega
Ég vil ljúka þessu með því að
gera orð ráðherrans að mínum:
„Við þurfum að horfast í augu við
þá staðreynd, að í brotamálum og
misferli margs konar er miklum
vanda að mæta. Við þeim vanda
ber að snúast af einbeitni og með
viðeigandi úrræðum, þ.á.m. með
aukinni löggæzlu og refsingum“.
M. Jónsson"
Þessir hringdu . . .
0 Enginn afsláttur
Símnotandi:
— Að undanförnu hefur
síminn hjá mér legið inni til
geymslu vegna sérstakra ástæðna
og lá hann inni í heilt ár. Þegar ég
síðan tek hann úr geymslu í ágúst
s.l. er greitt sérstakt gjald fyrir
geymsluna. Síðan er ég hef notað
simann um tíma fæ ég reikning
upp á sextán þúsund krónur, sem
sagt reikning fyrir því sem sím-
inn var notaður þennan tíma. Það
var sem sagt ekki dregin króna
frá þó svo að síminn hefði ekki
verið notaður og það finnst manni
nú nokkuð hart.—
Hvert stefnir í
þessu þjóðfélagi?
Kona sem misst hefur
atvinnuna:
— Ég vil byrja á því að til-
færa hér ljóðlínur okkar ágæta
þjóðskálds, Einars Benediktsson-
ar:
Sjálft hugvitið, þekkingin
hjaðnar sem blekking, sé hjartað
ei með sem undir slær.“
Ég get ekki orða bundizt með
þennan klíkuskap og það stjórn-
leysi sem ríkir orðið í þessu þjóð-
félagi okkar. Þegar ég kom heim
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
ÞÓ AÐ Smyslov, fyrrverandi
heimsmeistari í skák, sé orðinn 55
ára og snerpan örlitið farin :ð
dofna, sýnir hann þó oft glæsileg
tilþrif er hann tekur þátt i skák-
mótum.
Staðan hér að neðan kom upp i
skák Smyslovs við Grigorjan á
nýafstöðnu skákþingi Sovétríkj-
anna.
% ■ m m, m
mfa. m w i
i m m Wfw KP i jgj
gp m A % m
A gfitt m- A u HP H
ggg iii jj
B w wm, Æík A u
pnj ■ jjl 2 ■Ll.
frá vinnu einn daginn beið mín
bréf, sem er ekki í frásögur fær-
andi nema vegna þess að það var
uppsagnarbréf frá atvinnuveit-
anda mínum. Vegna breyttra að-
stæðna, samdráttar og erfiðleika
þurfti að stokka upp spilin og
breyta. Ég ræddi við vinnuveit-
andann og spurði hvort nokkuð
hefði verið við mín störf að at-
huga og reyndist svo ekki vera.
En um kvöldið, þetta sama kvöld,
fékk ég upphringingu og það var
kona sem tjáði mér að búið væri
að ráða í það starf, sem ég hafði
gegnt.
% Hverjir þurfa
á vinnu
að halda?
Ég hef stundum átt leið á
einn spítalann hér í borg og þar
hefur maður séð forstjórafrú,
skrifstofustjórafrú og atvinnu-
rekendafrú vinna við símavörzlu,
það starf sem hver og ein gagn-
fræðaskólastúlka getur unnið.
Ríki og bær ættu að ganga fram
fyrir aðra með góðu fordæmi og
reyna að ráða í störf fólk, sem
þarf þeirra nauðsynlega með, en
ekki endilega fólk, sem tekur
þessi störf af þvi að það hefur
ekkert annað að gera. Ég er ekkja
og hef engað að leita til nú þegar
ég hef ekki lengur atvinnu, en
börn mín eru í námi sem þau vilja
náttúrlega halda áfram og ég þarf
að styðja við bakið á þeim.
Þetta er ekki eina dæmið, það
má taka dæmi úr bankakerfinu,
að duglegt og heiðariegt fólk fer
og biður um lán, tekur sér frí úr
vinnu og gengur milli bankanna.
En hver er útkoman? Því miður,
ekkert til. Á sama tíma er búið að
lána þeim sterku og stóru. Er það
furða þó að einstaklingar staldri
við og spyrji spurninga. Ef maður
á föður og tengdaföður, sem ein-
hvers mega sín þá er allt opið og
ég hef reynt það líka.
En hvað tekur við? Ég hef átt
andvökunótt og stéttarfélag er
ráðþrot gagnvart svona aðgerðum
við starfsfólk einkafyrirtækja?
Það er engin furða þó að launþeg-
ar spyrji hvað sé framundan í
málefnum atvinnulífs hérlendis.
Ég vona að framtíð lands okkar
leiði okkur á nýjar brautir, studd
af arfi þeim sem feður og mæður
létu okkur í té. Og hugsa sér hvað
forfeður okkar hafa skilað merku
fólki án þess að það hefði mennt-
un, eins og flestir hafa í dag.
HÖGNI HREKKVISI
/í-'t ©1976
McNaught Synd., In<
Þarna er þá lffstykkið mitt!
DRATTHAGI BLYANTUREMN
Þakkir
Vel sé ykkur öllum sem glöddu mig með
heimsóknum, blómum skeytum og gjöfum
þann 1. janúar s.l.
Hlýr hugur er gullinu betri.
i Hu/da A. Stefánsdóitiri
Bifreiðaeigendur
Látið okkur um að almála eða bletta bifreiðina.
Erum á góðum stað í bænum.
Sjáum einnig um réttingar.
Bílamálarinn h. f.,
Ármúla 23.
sími 85353.
litsala
Terylenebuxur, nærföto.fl.
Andrés, Skólavörðustíg 22,
sími 18250.
Skipulagssýningin
að Kjarvalsstöðum
Á sýningunni í kvöld fimmtudaginn 13.
jan. mun Haukur Viktorsson arkitekt frá
Teiknistofunni Arkir kynna skipulag Nýs
Miðbæjar við Kringlumýrarbraut.
Kynningin hefst kl. 20.30 með sýningu
skuggamynda. Kynning verkefnis og
almennar umræður.
Þróunarstofnun Reykjavíkurborgar.
Stjórnunarfélag Islands
SKATTSKIL EINSTAKLINGA
með sjálfstæðan
atvinnurekstur
Stjórnunarfélagið gengst fyrir námskeiði í skattskilum
fyrir einstaklinga með sjálfstæðan atvinnurekstur
þriðjudaginn 18. jan. og fimmtudaginn 20. jan. kl.
15:00—18:00 eða í samtals 6 klst.
Skattframtöl hafa löngum
valdið framteljendum erfið-
leikum. Einkum á þetta við
um einstaklinga, sem hafa
sjálfstæðan atvinnurekstur
með höndum. Námskeiðinu
er ætlað að auka skilning á
skattamálum, auðvelda þátt-
takendum gerð framtala og
gera þeim léttar um við að
átta sig á því, hvenær sér-
fræðiþjónustu er þörf.
Fyrri dag námskeiðsins verður farið yfir helstu ákvæði laga og
reglugerða, sem efnið varða. Stðari daginn verður farið nánar í einstök
atriði í samræmi við óskir þátttakenda.
Þátttakendagjald kr. 5.000 - (Félagar fá 20% afslátt.)
Leiðbeinandi er Atli Hauksson löggiltur endurskoðandi.
Tilkynnið þátttöku í síma 82930.
21. Hxf6 + !! (Frábær leikur. Nú
gengur hvorki 21.. . Bxf6, 22. De6
mát né 21. . . Kg8, 22. Hafl —
Bxf6, 23. De6+. Næsti leikur
svarts er þvf þvingaður) — Kxf6,
22. Dg4! — Dc5+, 23. Khl — Ke7,
24. Bg5+! Svartur gafst upp.