Morgunblaðið - 13.01.1977, Page 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JRftrgunbfabtb
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JtUrgunbUbil)
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1977
Færeyingar
fara fram á leyfi
til loðnuveiða
Málið lagt fyrir Alþingi
FÆREYINC.AR hafa farið
fram á það við islenzk
stjórnvöld, að þeir fái að
senda skip til loðnuveiða
við ísland, en aflanum eiga
þau að landa í Færeyjum.
Ekki mun aflinn sem farið
er fram á, vera mjög mikill,
a.m.k. ef miðað er við það,
sem íslendingar veiða
sjálfir. Þá munu Færeying-
ar í staðinn hafa boóið ís-
lendingum að veiða á kol-
munnamiðunum kringum
Færeyjar, en mjög mikið
af kolmunna gengur á
bankana kringum Færeyj-
ar snemma á vorin.
Matthías Bjarnason, sjávarút-
vegsráóherra, sagói í samtali við
Morgunblaðiö í gærkvöldi, að það
væri rétt, að Færeyingar hefðu
farið fram á leyfi til að veiða
loðnu við íslarid, það hefðu þeir
einnig gert á sl. vetri án þess að
málið hefði fengið afgreiðslu þá.
„í beiðni Færeyinganna er far-
ið fram á ákveðið magn og það er
litið miðað við það sem við fiskum
sjálfir af loðnu,“ sagði sjávarút-
vegsráðherra. Sagði hann að mál-
ið yrði kynnt þingflokkunum
strax og alþingi kæmi saman á ný
og yrði væntanlega afgreitt þar á
venjulegan hátt.
„Eins og í
suðupotti
við Reykjavík-
urflugvöll
í gær
Flugfélagsvélar í innanlands-
flugi lentu i nokkrum erfið-
leikum á Reykjavikurflugvelli
í gær vegna þess hve misvinda
var. Stundum var hægviðri en
svo rauk hann upp og var
ýmist á sunnan eða norðan og
urðu vélar m.a. að fara aftur í
loftið eftir að þær voru búnar
að snerta braut.
Morgunblaðið innti Frosta
Bjarnason flugstjóra eftir
þessum sérkennilegu
aðstæðum en hann varð að
margreyna aðflug áður en
hann gat lent vél sinni frá
Akureyri.
„Þetta var mjög óvanalegt"
sagði Frosti, „alveg eins og í
suðupotti. Maður hafði ekki
við að skipta um brautir. Ég
Framhald á bls. 31
35 herbergja hótel
byggt á Sauðárkróki
HAFINN er undirbúningur
byggingar 35 herbergja hótels á
Sauðárkróki með steikstofu og
200 manna veitingasal, en nýja
hótelið verður f nýju miðbæjar-
svæði sem er verið að skipuleggja
fyrir bæinn. Guðmundur Tómas-
son hótelstjóri og eigandi llótels
Mælifells á Sauðárkróki mun
byggja nýja hótelið, en þegar
Morgunblaðið hafði samband við
hann f gærkvöldi kvað hann bygg-
ingarframkvæmdir hefjast á
næsta ári.
„Það er sitthvað fleira á döfinni
í þessu sambandi," sagði hann,
„bflaleiga sem hefur rekstur f
feb.-marz n.k. verður í hluta þessa
nýja húsnæðis þegar þar að
kemur. Þá mun hótelið einnig
bjóða bátsferðir að Drangey og
Framhald á bls. 31
150 millj.
veitt til tíl-
raunaveiða
1 sumar
A f járlögum þessa árs er gert ráð
fyrir 150 milljónum króna til
fiskileitar, — vinnslu og
markaðsöflunar fyrir sjávaraf-
urðir, en sem kunnugt er var
einnig veitt fé til þessara mála á
s.l. ári með mjög góðum árangri,
en þá veiddust yfir 100 þúsund
tonn af sumarloðnu, auk þess sem
tilraunaveiðar á kolmunna og
djúprækju báru góðan árangur.
Matthias Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra, sagði i viðtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi, að
þessum fyrrgreindum þáttum
yrði framhaldið í sumar. Einkum
yrði lögð áherzla á kolmunna-
rækju-, spærlings- og karfaveiðar
og vonuðust menn til þess að enn
meiri árangur næðist að þessu
sinni, þannig að hægt væri að
minnka sóknina f þorskinn meir,
með þvi að skip færu á þessar
veiðar. Auk þessa verður loðnu-
rannsóknum haldið áfram af full-
um krafti.
Upplýst um smygl á
fíkniefnum fyrir 60
milljónir í fyrra
UPPLVST var um smygl á ffkni-
efnum að söluverðmæti rúmar 60
milljónir króna f fyrra. Lang-
stærstur hluti ffkniefnanna var
hass, eða tæp 32 kfló, að söluverð-
mæti um 48 milljónir króna.
Arnar Guðmundsson, fulltrúi
við sakadóm í ávana- og fíkniefn-
um, veitti Mbl. þær upplýsingar f
gær, að sannazt hefði á árinu 1976
innflutningur á tæpum 32 kg af
hassi, þar af náðust 7 kg, 130
grömmum af hassolfu, ekkert
náðist af henni, rúmlega 300 töfl-
um af LSD, af þeim náðist ekkert,
tæplega 400 grömmum af amfeta-
mindufti, af þvi náðust liðlega
200 grömm, og nokkrum kflóum
af marihuana, en nákvæmlega er
ekki vitað um magnið af þvi.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. hefur aflað sér, er hvert
gramm af hassi selt'á um 1500
krónur að meðaltali á ólöglegum
markaði innanlands. Söluverð-
mæti hassins er þvf um 48
milljónir króna. Grammið af hass-
olíu var selt á 10 þúsund krónur,
svo söluverðmæti þess er um 1,3
milljónir, LSD-taflan hefur verið
seld á 1500 krónur stykkið, svo
verðmæti þess er um 450 þúsund
krónur, grammið af amfetamin-
dufti hefur verið selt á 12—14
þúsund krónur, þannig að verð-
mæti þess er um 5,2 milljónir
króna. Þá mun vera talið, að verð-
Matthías A. Mathiesen, fjármálaráðherra:
Greiðsluáætlanir
og virkara eftírlit
stuðluðu að bættri stöðu ríkissjóðs
GREIÐSLUAFKOMA
rfkissjóðs er nú jákvæð um 1,1
milljarð króna. Til samanburó-
ar var afkoman 1975 neikvæð
um 6,4 milljarða króna og árið
1974 um 3,7 milljarða króna.
Þessar upplýsingar komu fram
f viðtali Morgunbláðsins við
Matthfas Á. Mathiesen fjár-
málaráðherra. Hann sagði enn-
fremur að áætlað væri að
rekstrarjöfnuður yrði hagstæð-
ur á A-hluta rfkissjóðs á árinu
1976, en árið 1975 varð hann
óhagstæður um 7,5 milljarða
króna og 1974 um 3,3 milljarða.
Matthfas Á. Mathiesen fjár-
málaráðherra sagði um afkomu
ríkissjóðs: „Meginmarkmið í
efnahagsmálum þjóðarinnar,
sem ríkisstjórnin setti sér að ná
á síðastliðnu ári, voru að draga
úr viðskiptahallanum við út-
lönd, að hægja á hraða verð-
bólgunnar og tryggja fulla at-
vinnu. Stjórn fjármála ríkisins
er ásamt stjórn peningamála og
hóflegri stefnu í launamálum
mikilvægasta tæki til að ná
þessum markmiðum. Þær
bráðabirgðatölur, sem nú liggja
Framhald á bls. 18
Matthfas Á. Mathiesen
málaráðherra
fjár-
mæti marihuanaffkniefnanna sé
um 6 milljónir króna. Samtals eru
þetta rúmar 60 milljónir króna.
Uppvíst var um smygl á lang-
stærstum hluta ffkniefnanna við
rannsókn fikniefnamálsins mikla
seinni hluta ársins, en það er
stærsta fíkniefnamál, sem upp
hefur komið hér á landi, en þvi
tengjast á annað hundrað ung-
menni. 1 sambandi við það mál
var lagt hald á nokkrar milljónir
króna, hluta af því í erlendum
gjaldeyri, en peningar þessir voru
söluhagnaður fyrir fíkniefnin.
Sannaður var innflutningur á
um 40 kg af hassi árið 1975, þar af
24 kg til hermanna á Keflavíkur-
flugvelli. Komst upp um það mál
snemma árs 1976.
Handtökumálið:
Ný réttar-
höld und-
irbúin
— NÝ réttarhöld eru fyrirhuguð
og er verið að safna fyrir þau
gögnum, sagði Steingrimur Gaut-
ur Kristjánsson, umboðsdómari í
handtökumálinu f gær. Hann
sagði að engin réttarhöld hefðu
farið fram sfðan á laugardaginn,
en þá var ennfremur tekin ævi-
ferilsskýrsla af Hauki Guðmunds-
syni, en slíkt er venjulega gert
þegar menn eru orðnir sökunaut-
ar, að sögn Steingrims.