Morgunblaðið - 03.03.1977, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.03.1977, Blaðsíða 13
13 MORgUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977 Firringin og bjór- inn og aumingjar til skapsmunanna MENN úr skáldahópi þjóðarinnar hafa á almannafæri verið að mæð- ast yfir leiðindum lífsins. Þeim finnst mikið mein hve tilveran er leiðinleg og geysi alvarlegt, þar sem fólk verður heltekið firringu vegna leiðindanna og jafnvel leið- ist út í margskonar óhæfuverk til að hafa af sér leiðindi. Eitt ráð sjá skáldin við þessum leiðindum. Það er að koma upp bjórstofum. Það er eina úrræðið. Nú er það mála sannast að lífs- leiðinn er alvörumál og ekki til að spauga með og er seint að rekja allar þær hörmungar sem frá hon- um stafa. Væri ástæða til að ræða við skáldin hverja ábyrgð og sök vissar bókmenntastefnur bera i þvf sambandi, og verður þó að fresta þvi að sinni. Við hinu er skylt að vara að drekka áfengi til að verja sig leiðindum. Þvf er nefnilega þannig varið að drykkj- an er gjörn á að valda meiri leiðindum en hún losar menn við. Drykkjumenn verða bæði sjálfum sér og öðrum til skapraunar ekki síður en fýlupokarnir, og er ég þó alls ekki að mæla þeim bót því að þeir eru eins og karlinn sagði „aumingjar til skapsmunanna." Hugsjón Jóhannesar Helga er bjórkrár úr gleri svo að greina megi af götunni hverjir inni eru. Svo fer hann frá einni krá til annarrar þar til hann eygir innan glerja einhvern þann sem hann vill eyða orðum við. Þá fer hann inn og auðvitað er engin hætta á að sá sem hann vill tala við hafi öðru að sinna eða kjósi sér annað fremur. Þetta var helzta úrræði sem skáldið sá til þess að fundum manna beri saman og maður ræði við mann. Lítið þekki ég til leiðinda og firringar af eigi n raun. Það kom þó fyrir þegar ég var krakki að ég kvartaði um leiðindi, — einkum á sunnudögum. Þá var mér sagt að gera eitthvað og venjulega bent á ákveðið verkefni. Ekki man ég eftir slíkum leiðindastundum eft- ir að ég varð stautfær á bók. En þó hygg ég að gæfa mfn í þessum efnum liggi einkum í því að frá barnsaldri hef ég átt mér góða félaga. Hér f Reykjavfk eru það fyrst og fremst Góðtemplarar. Ég vil ráðleggja skáldum og öðrum þeim sem þrúgaðir eru af leiðindum að ganga f stúku. Þá eiga þeir þess kost að koma á fundi með algáðu fólki með reglu- legu millibili. Þar er m.a. fjallað um skáldskap og bókmenntir. En sagan er ekki öll sögð með því. Félagsstarfið og félagslífið er miklu meira en fastir fundir hálfsmánaðarlega eða svo. Við þurfum oft að finnast og margt að ræða. Því finnum við hvorki til firringar né leiðinda. Við tölum við fólk og skortir ekki kynni við aðra. Og það er miklu hentugra að geta gengið að félögum sínum vís- um en að þeytast út um alla borg til að kanna hver nú sé staddur f þessu eða hinu glerinu. Mannleg samskipti eru nauð- syn. En það er engin nauðsyn að þekkja þúsundir manna. Hitt er ómetanleg blessun að hafa góðan félagsskap við nokkra tugi manna, þekkja þá vel, eiga með þeim áhugamál og þykja vænt um þá. Þess vegna er það sálubót og hjartafró að vera í stúku og því meiri sem betur er unnið. „Hitt kom alltaf hundraðfalt sem hjartað galt úr sjóði“ segir Einar Benediktsson og hann var spekingur, þó að skáldið f Gljúfrasteini telji hann lélegt skáld af því einhverjum gekk illa að þýða Ijóð hans á framandi tungu. Það er ekki einsdæmi að skáld séu misvitur. Mér finnst Reykjavík á margan hátt skemmtileg borg með yndis- legt umhverfi og segja má að hún sé full af góðu og skemmtilegu fólki. Vandinn er bara að ná til þess. Það kemur af sjálfu sér ef við erum f góðum félagsskap. Þar sem áhugasamir umbótamenn eru samankomnir mun engum leiðast. Niðurdregnir fýlupokar sem sjá sig ekki eiga nokkra von utan áfengis munu fáa frelsa. H.Kr. sjálfsblekking senda eftir bjór f staðinn fyrir gosdrykki. Svona er bjórmenning- in. Jafnvel þó lögfest yrðu 100.000 þús. kr. mánaðarlaun strax svo vísitalan tapaðist ekki þegar bjór- frumvarpið verður lögfest, þá myndu tapast margar krónur af lágum launum og vinnu afköst minnkuðu. Þingmenn: Þokan hefur oft orð- ið íslenskum smölum erfið, slæm leitarveður fyrir kosningar getur gert atkvæðasmölun erfiða. Forsvarsmenn þjóðarinnar hafa séð það vel fyrir sfnum tekjum að þeir þurfa ekki kaupsins vegna að svala þorsta sinum á bjórkrám nema þeir séu að leika verkafólk eins og unglingarnir. Segir sig sjálft, að fólk með hundruð þús- unda króna, jafnvel milljónir í tekjur á mánuði situr ekki innan um kofdrukkinn og drullugan vinnulýð nálægt höfninni eða öðr- um vinnustöðum. Fólk má ekki rugla saman glæsihótelum og framleiðslustéttum. Guðlaugur Bergmann og fleiri fóru til Hol- lands fyrir nokkrum árum til að kynna sér hass- og L.S.D.-neyslu unglinga. Þá hristu of margir höf- uðið, trúðu því að fslensk ung- menni myndu aldrei leiðast út í svoleiðis vitleysu. Hver er stað- reyndin? Þó ég hafi hætt við tóbaksneyslu hefði ég aldrei kom- ist framhjá bjórdrykkju svo lúmskur og hættulegur vímugjafi sem hann er. Þurfum við íslendingar sífellt að vera með eftiröpun-á því allra lágkúrulegasta sem aðrar þjóðir eiga við að stríða og geta ekki með neinum ráðum upprætt þótt þær vildu? Væri ekki nær að kanna þá sjálfsblekkingu sem flest í því að velta sffellt fleiri og stærri vanda- málum á okkar eigin afkomend- ur? Við eigum glæsileg hótel og skemmtistaði sem ættu að selja alla daga vikunnar sínar fjöl- breyttu veigar fyrir útlenda ferðamenn og aðra velunnara hins ljúfa lífs. Flutningsnaður bjórfrumvarpsins virðist hafa fengið slæmt höfuðhögg. Vonandi tekst hinum hópnum að leiðrétta svo áfengislöggjöfina að fólk sem hefur fengið prestsvfglu til barna- uppeldis, fái þau sjálfsögðu mannréttindi sem þarf til að sækja opinbera skemmtistaði. Opnari fræðslu, fá unga fólkið sjálft til vinsamlegra samstarfs, svo það sjálft taki upp fyrirbyggj- andi aðgerðir. Er það annars ekki undraverð óskammfeilni að nokkur alþingis- maður skuli treysta sér til að horfa upp á þann vesaldóm sem flæddi yfir þjóðina, til viðbótar öðrum hliðstæðum vandamálum? Jón Veturliðason. L . . EÐA EKKI BJÖR? Hljómdeild Simi frá skiptiborði 281S5 SX — 450 útvarpsmagnari einn nýjasti magnarinn. PL. 112 plotuspilari með Ortofon hljóðdós Hljomtæki frá Pioneer tryggja gæðin Staðgreiðslu- verð kr. 164.500 CS 313 hátalarar, sem skila hreinum tón Komið og hlustið í nýju hljómdeildinni. '77 módelin frá Pioneer eru nú komin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.