Morgunblaðið - 03.03.1977, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.03.1977, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977 — Jón Þorláksson Framhald af bls. 23 brautir yrðu lagðar um alla aðal- vegi landsins og akfær vegur heim að hverjum bæ í sveitunum, en járnbraut frá Reykjavfk til Suðurláglendisins. Bílar voru þá enn eigi komnir í notkun, eða orðnir þau samgöngutæki, sem þeir síðar hafa orðið. Brúasmíði varð eitt af helztu verkefnum landsverkfræðingsins. Jón smfðaði fjölda brúa, og margar þeirra úr steinsteypu. Stærstar' þeirra eru Fnjóskárbrúin og brúin á Norðurá. Fnjóskárbrúin var, þegar hún var byggð, lengsta steinsteypubrú á Norðurlöndum. Járnbrýr lagði Jón einnig yfir margar ár, og sá um smíði þeirra allra. Hann stofnaði verkstæði til þeirra smíða í Reykjavík, og voru síðan Rangárbrúin og margar fleiri járnbrýr smíðaðar að öllu leyti hér heima. Á verkstæðinu hafði hann ekki aðeins stjórnina á hendi og umsjón með annarra verkum, heldur vann þar einnig , mikið sjálfur að smíðum, stund- um frá morgni til kvölds, og var honum það mikið ánægjuefni, að nú var hægt að vinna þau verk hér heima, sem áður hafði orðið að sækja til annarra landa.“ Hafði að sjálfsögðu strax mikið áhrif „Jón flutti oft fyrirlestra um áhugamál sín í félaginu Fram, en svo hét félag Heimastjórnar- manna á þeim árum, sem stríðið um sjálfstæðismálin stóð yfir, og var hann oft i stjórn þess og stundum formaður. Einnig var hann stundum í miðstjórn flokks- ins, og fóru áhrif hans þar vax- andi eftir því sem tíminn leið. Og er deilurnar um sjálfstæðismálið milli gömlu stjórnmálaflokkanna féllu niður, þegar komið var framundir lok heimsstyrjaldar- innar, en nýir flokkar höfðu myndazt, Alþýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, gekkst Jón fyrir því, að gömlu flokkarnir tækju höndum saman, og upp úr því varð nýr flokkur, sem nefnd- ur var eftir þeim báðum og kaliað- ur Sjálfstjórn. Jón var þá enn eigi kominn á þing. Hann var fyrst í kjöri til þingmennsku í Reykjavik sumarið 1908, er deilt var um uppkast sambandslaganefndar- innar að sáttmála um samband Islands og Danmerkur, en náði ekki kosningu, enda féllu þá fylgismenn sambandslagaupp- kastsins unnvörpum um allt land. Siðan var hann tvisvar í kjöri utan Reykjavíkur, en náði ekki kosningu. Þetta má undarlegt virðast um mann, sem hafði látið jafnmikið til sin taka í öllum verklegum framfaramálum lands- ins og var þar að auki gæddur ágætum þingmennskuhæfileik- um. En svona var það. Hann var fyrst kosinn á þing ' Reykjavík 1921. Var hann þá enn á bezta skeiði, 44 ára gamall. Eftir 1926 var hann landkjörinn. Hann hafði meiri þekkingu en nokkur annar maður á öllum verklegum málum, sem til þingsins kasta komu, og hafði því að sjálfsögðu undir eins mikil áhrif." Sogsvirkjun og hitaveita „1 ársbyrjun 1933 varð Jón borgarstjóri í Reykjavík. Bar margt til þess, að honum var það starf hugþekkara en stjórnmála- stríðið, sem hann hafði nú átt í allt frá þvi, er hann kom á þing 1921. Hann hafði átt mikinn þátt í öllum framfaramálum bæjarins á mestu vaxtarárum hans. Og nú voru þau mál tvö, sem hann hafði mestan áhuga á, bundin við bæ- inn, en það var Sogsvirkjunin, sem þá stóð til að ráðizt yrði í, og svo jarðhitaleiðsla frá hverunum við Reyki í Mosfellssveit til upp- hitunar húsa í bænum. Þessi mál taldi hann nú aðalmálin, sem fyrir lægju til úrlausnar, og í borgarstjórastöðunni átti hann hægt með að beita sér fyrir þeim. Hann var því ánægður með þessa stöðu og sinnti henni af einlægum áhuga. Hann hafði að undanförnu verið formaður Sjálfstæðisflokks- ins, en fyrir þingkosningarnar 1934 sagði hann af sér for- mennsku flokksins og lýsti yfir, að hanq byði sig ekki fram til þingmennsku, en drægi sig út úr afskiptum af stjórnmálum. Síð- asta verk hans í þágu lands og bæjar voru samningarnir um virkjun Sogsins, lán til hennar erlendis og framkvæmd verksins. En framkvæmd þess auðnaðist honum ekki að sjá. Hann hafði verið heilsuveill á síðari árum og hvað eftir annað dvalið erlendis um tíma sér til heilsubótar. Ef til vill hafði hann lagt of mikið að sér í utanförinni haustið 1934, er hann var að ganga frá samningun- um um Sogsvirkjunina. Hann var aldrei með fullri heilsu eftir það. Og 20. marz 1935 versnaði honum skyndilega og hann andaðist eftir litla stund, 58 ára gamall. Bana- meinið var hjartabilun. Utför hans er fjölmennasta og viðhafn- armesta jarðarför, sem ég minnist að hafa séð hér í bænum." Kom á þeim tíma sem Islandi var mest þörf á slíkum manni „Eins og sjá má á því, sem sagt er hér á undan, voru viðfangsefni Jóns Þorlákssonar svo margvís- leg, að ekki er unnt að lýsa þeim til neinnar hlítar í því rúmi, sem þessari grein er ætlað. Aðalstarf hans var á sviði hinna verklegu mála, og þar var hann afkasta- meiri en nokkur annar samtíðar- maður hans. Hann kom fram ein- mitt á þeim tíma, sem Islandi var mest þörf á slíkum manni. Hann var stilltur maður, gætinn og fá- orður, en áhugamikill og sivinn- andi. Hann var ágætlega máli far- inn og ritfær í bezta lagi. Mesti kostur bæði á ræðum hans og ritgerðum var það, hve allt var þar Ijóst og skipulegt. Hann var óvenju rökvis maður, útskýrði þau mál, sem hann hafði til með- ferðar, flestum eða öllum betur, fór engin gönuskeið út fyrir mál- efnið, talaði alltaf til skynsemi en ekki tilfinninga áheyrendanna. Hversdagslega var hann óvenju- lega þögull maður. Ekkert var honum hvimleiðara en óþörf mælgi og orðagjálfur. MálsniIIdar sinnar neytti hann aðeins á opin- berum mannfundum, bæði á þingi og utan þess, en aldrei í viðræðum hversdagslega. Á fyrri árum skrifaði hann jafnan ræður sínar áður en hann flutti þær. En það mun hann varla hafa getað gert að jafnaði eftir að hann kom á þing, að minnsta kosti ekki, er hann þurfti að svara mótbárum. En i deildum á þingi þótti hann bera af öðrum af rökvísi og skipu- leik. Ýmsir fundu það að flokks- forustu hans, hve þögull hann var hversdagslega, þurr á manninn við ókunnuga og lítill áróðurs- maður í viðtali við menn. Það er rétt, að slíkt var honum ekki eiginlegt, enda var hálfur hugur hans, eða meira en hálfur, jafnan bundinn við hin verklegu störf, sem hann hafði rrteð höndum, einnig meðan hann var flokksfor- ingi. En þeir, sem heyrðu hann tala á þingi, eða á mannfundum, um áhugamál sín eða stefnumál þess flokks, sem hann talaði fyrir, gátu sízt af öllu sagt, að hann væri hlédrægur maður. Hann var þvert á móti, frá þvi er ég þekkti hann fyrst, einlægur og ódeigur flokks- maður. Hann hafði tamið sér kurteisi bæði í ræðu og riti, og hvikaði ekki frá þeirri venju, þótt hann yrði fyrir árásum, eins og allir þeir menn, sem gerast for- vígismenn í stjórnmáladeilum, enda gat hann lesið ádeilugreinar um sjálfan sig, þótt harðorðar væru, með svo fullkominni ró, að það var eins og þær kæmu honum ekkert við.“ — Tillögur LÍÚ Framhald af bls. 44 ráðuneytinu, þar sem eftirfarandi kemur fram m.a.: „Með tilvísun til þeirra samn- inga, sem f gildi eru við aðrar þjóðir, má áætla, að hlutdeild Is- Iendinga af 275.000 lesta há- marksafla verði um 260 þúsund lestir, þegar dregnar hafa verið frá 5.000 lestir til V-Þjóðverja, 8.000 lestir til Færeyinga, 1.500 lestir til Belga og um 500 lestir til Norðmanna. Á árinu 1977 verður þvi að tak- marka þorskveiðar okkar við 260 þúsund lesta hámarksafla. Ljóst er af framansögðu að gildandi samningar við aðrar þjóðir tak- marka veiði okkar sjálfra um það magn, sem öðrum þjóðum er leyft að veiða. Stjórn L.Í.O. leggur þvi til, að nú þegar verði sagt upp samning- um við Færeyinga, Belga og Norð- menn með 6 mánaða fyrirvara, eins og þeir samningar gera ráð fyrir og samningur við V- Þjóðverja verði ekki endurnýjað- ur, þegar hann rennur út 1. des- ember n.k. Stjórn L.I.tT. leggur áherzlu á, að áfram verði vandlega fylgst með veiði á smáfiski og lokað verði þeim veiðisvæðum, þar sem hans verður vart, líkt og gert hef- ur verið að undanförnu. Brýna nauðsyn ber til að fylgj- ast náið með göngu fiskseiða á rækjuveiðisvæðum, og banna rækjuveiði, þar sem fiskseiða verður vart i þeim mæli að hættu- legt getur talist. Stækkun möskva f 155 mm. f botn- og flotvörpupoka á að hafa í för með sér minnkun á smáfisk- veiði og má ætla, að sú breyting dragi úr heildarafla. Við þær aðstæður, sem við nú búum við, er sérstök ástæða til að taka upp strangt eftirlit með þvf, að fylgt verði í hvfvetna ákvæðum reglugerðar nr. 51/ 1972, um fjölda þorskneta í sjó frá hverju skipi. Eðlilegt virðist vera að ný- ráðnum eftirlitsmönnum ráðu- neytisins og Hafrannsóknastofn- unarinnar verði fengið þetta verkefni. Þar sem ljóst er, að framan- greindar ráðstafanir til þess að draga úr þorskafla munu ekki einar duga til þess að takmarka þorskaflann við 260 þúsund lestir á árinu 1977, leggur stjórn L.I.Ú. til, að ákveðið verði að leyfilegur hluti þorsks f afla einstakra skipa, öðrum en þeim, sem veiða með lfnu og handfærum, verði tak- markaður sem hér segir eftir að 240 þúsund lestir af þorski hafa borizt á land: Dagsetning Leyfilegt hlutfall þorsks í veiðiferð 240.000 tonn: til áramóta: 20. ágúst 11% 1. september 13% 10. september 15% 20. september 18% 1. október 21% 10. október 25% 20. október 31% 1. nóvember 38% 10. nóvember 48% 14. nóvember 53% Forsendur: 1. Engu skipi verði leyfilegt að koma með nema visst hlutfall af þorski úr hverri veiðiferð frá þeim degi, sem 240.000 tonna markinu er náð. 2. Engar takmarkanir verði settar á þorskveiðar línu- og hand- færabáta. 3. Þorskhlutfallið ákvarðast af þeim dagafjölda, sem er til ára- móta, þegar 240.000 tonna þorsk- afla hefur verið náð. 4. Ef til takmörkunar kemur er gert ráð fyrir þvf, að sóknin bein- ist á aðrar tegundir en þorsk, þannig að heildarafli verði óbreyttur. 5. Allir útreikningar miðast við aflatölur frá árinu 1976. 6. Við útreikninga er stuðst við meðalaflatölur pr. dag sfðustu þrjá mánuði ársins, en lftið frávik er á aflatölum milli þessara þriggja mánaða. Með þessari reglu á ekki að vera þörf á að hætta útgerð skipa vegna takmörkunar á þorskveið- um, nema viðkomandi aðilar sjái sér hag að því. Jafnframt á að vera tryggt, að ekki þurfi að koma til alvarlegs atvinnuleysis vegna þessara ráðstáfana, en til þess myndi vafalítið koma, ef bannað væri að veiða þorsk eftir að 260 þúsund lestir hefðu verið lagðar á land. Stjórn L.I.Ú. gerir sér iullæ grein fyrir, að þessar tillögur munu að öllum líkindum hafa al- varlegar afleiðingar fyrir útgerð landsmanna, en telur að ekki verði hjá komist að ákveða nú þegar, hvernig sóknartakmarkan- ir verði framkvæmdar, vegna mikilvægis þess að þorskstofninn verði byggður upp að nýju. Stjórn L.I.Ú. leyfir sér að óska eftir samvinnu við ráðuneytið um útgáfu endanlegra reglna um þetta efni.“ — Ólafur Framhald af bls.43 brigðin voru einnig mikil I heims- meistarakeppninni 1974. Þá vorum við með gott lið og stemmningin var einnig góð. en þegar allt virtist ætla að ganga okkur I haginn fengu flest- ir leikmennirnir slæma innfluenzu og þar með var draumurinn úti. — Er mikill munur á að leika með Islenzka landsliðinu nú og er þú hófst feril þinn? — Þegar ég byrjaði voru gamal- kunnir handknattleiksmenn að leika slna siðustu leiki með íslenzka landsliðinu, leikmenn eins og Gunn- laugur Hjálmarsson, Karl Jóhanns- son og Birgir Björnsson Aðalbreyt- ingin sem orðið hefur er sú, að leikirnir eru miklu fleiri en voru á þessum tlma og álagið þvi meira. Skipulag er einnig miklu betra en það var. og allt tekið miklu alvar- legra en var I „gamla daga Keppn- isferðir eru t d allar miklu strangari en var og meira lagt upp úr þvi að menn standi sig Um landsliðið núna sagði Ólafur: — Það sem þetta landslið hefur fram yfir islenzk handknattleiks- landslið fyrri tlma er hversu mikla leikreynslu margir leikmannanna hafa Þannig vorum við sem lékum mest á móti Spánverjum með um 600 landsleiki að baki Um þjálfarann sagði Ólafur H Jónsson: —, Það er ekkert vafamál að Jan- usz Cerwinski er geysilega góður þjálfari og ég hef trú á þvi að hann geti gert miklu meira með íslenzka landsliðið. en hann hefur nú þegar náð. Hann hefur alls ekki haft tíma til þess að móta liðið eftir slnu höfði Æfingar Januszar eru mjög góðar, en helzta vandamálið er að hann virðist ekki eiga auðvelt með að koma þvi sem hann vill fá fram til skila. — SVR Framhald af bls. 2 eða 2 mánuðum sfðar en reiknað hefði verið með. Væri því ljóst að útreikningur um að halli á rekstri SVR í ári yrði 209 milljónir stæð- ist ekki og yrði talsvert hærri. — Fargjöldin nægja til að borga 60—65% af hinum raun- verulega kostnaði við hverja ferð, hitt er greitt úr hinum sameigin- lega sjóði borgarbúa, sagði Eirík- ur Ásgeirsson. — Sparisjóðs- reikningar Framhald af bls. 44 Landsbankans, skýrði Morgun- blaðinu frá i gær eru þó ekki fuilmótaðar allar tillögur um það hvernig að þessari breytingu verður staðið, en rætt væri um tvenns konar reikninga — annars vegar með bók og hins vegar bókarlausa. Eins og nú háttar eru svonefndir vaxtaaukareikningar hinir einu sem eru bókarlausir, en innstæður á þeim eru sem kunnugt er bundnir til eins árs. Kvað Helgi geta komið til greina að hafa fleiri bundna sparisjóðs- reikninga bókarlausa. — Vatnsleysi Framhald af bls. 2 hefði tekið að bera á vatnsleysi rétt eftir jól og nú væri svo komið að vatnslaust væri á rúmlega öðrum hverjum bæ í hreppnum. Sagði Skúli að þeir bændur, sem væru vatnslausir, þyrftu að flytja vatn að og not- uðu menn ýmist til þess tanka, sem komið væri fyrir á vögnum eða haugsugur. — Margir brunnar hér um slóðir, sem lengi hafa dugað áður, eru nú nær þurrir, og þegar við það bætist að vatnsnotkun hefur aukist bæði vegna fjölgunar á skepnum og meira vatn er not- að til heimilishalds, er sýnt að til einhverra ráðstafana verður að grípa, sagði Skúli. Fram kom hjá Skúla að rætt hefði verið um að leggja vatnsveitu um sveitina en ljóst væri að kostnaður við þá framkvæmd yrði gífurlegur og langt væri milli bæja eða að meðaltali um 2 kílómetrar, það væri þvi ekki vfst hvað úr yrði. — Þeir, sem eru með kýr, eru verst settir en yfirleitt eru þó menn með fáar kýr og þeir sem flestar kýr hafa eru með skástu vatnsbólin, sagði Skúli að lokum. — Hér í Hraunhreppnum eru margir bæir vatnslausir, ýmist að hálfu eða öllu leyti, en þetta fstand hefur að mestu verið óbreytt frá þvi í lok janúar, sagði Ólafur Egilsson, bóndi á Hundastapa í Hraunhreppi á Mýrum, er við ræddum við hann. Sjálfur sagðist Ólafur verða að flytja allt vatn til bús síns, en hann er með um 45 nautgripi og þar af 30 mjólk- andi kýr. — Ég þarf að flytja um 3 tonn af vatni heim á hverjum degi. Vatnið sæki ég á næsta bæ, Hrafnkelsstaði en það er um 7 kílómetra leið. Ástandið hér er mjög slæmt og hætt við að bændur verði fyrir afurðatjóni af þessum sökum, því það kemur fljótt fram ef kýrnar verða vatnslausar þó ekki sé nema í hálfan sólar- hring, sagði Ólafur. Hann sagði að rætt hefði verið um að leggja vatnsveitu um hreppinn og um það hefði verið gerð áætlun, en ekki væri búið að taka neina ákvörðun um hvort ráðist yrði í þær framkvæmdir. — Manchester Framhald af bls. 42 2. DEILD: Wolves — Blackpool 2—1 3.DEILD: Mansfield — Walsall 3—0 Bury — Wrexham 0—2 Oxford — Shrewsbury 4—2 4. DEILD: Port Vale — Reading 1—0 Newport — Doncaster 1—2 Rochdale — Southport 3—0 Swansea — Bradford 2—3 SKOZKA (JRVALSDEILDIN Dundee Utd. — Partick 0—0 — Búið að frysta Framhald af bls. 44 banda SH og eitthvað mun hafa bætzt við síðan þótt tölur liggi ekki endanlega fyrir. Frysting loðnunnar hefur verið seinlátari en búizt var við og er ástæðan sögð m.a. sú að fyrsti hluti göng- unnar hafi „týnzt“ um tíma en eftir að hún fannst hafi hún geng- ið óvenjuhægt meðfram strönd- inni. Mjög strangt eftirlit er einn- ig með gæðum loðnunnar sem fer í frystingu, og má nefna að í upp- hafi vertíðar voru hér yfir 20 Jap- anir til að fylgjast með frysting- unni en þeim hefur þó fækkað eitthvað sfðan. Hjá frystihúsum á vegum sjáv- arafurðadeildar Sambandsins hafa verið frystar rösklega 300 lestir hingað til. Þar hefur fryst- ingin sömuleiðis gengið hægar fyrir sig en vænzt var, m.a. vegna strangari flokkunarkrafna en áð- ur hafa gilt og einnig veldur það nokkrum erfiðleikum nú að loðn- an er tekin að smækka frá þvi sem var i byrjun, enda venjan sú að stærsta loðnan gengur fyrst og er þá jafnan mestur gangur í frystingunni. Tveir Japanir eru hér að hafa eftirlit með fram- leiðslunni á vegum Sambandshús- anna. — Klofningur Framhald af bls. 1. I tillögum Smiths er gert ráð fyrir að blökkumenn fái jafnan rétt á við hvfta menn til að sækja krár, veitingahús og búa í hótel- um og að svartir bændur megi taka búsetu á svæðum þar sem aðeins hvitir menn hafa búið áð- ur. Framkvæmdaráð flokks Smiths lagðist gegn tillögunum þegar í upphafi. Tillögurnar mið- uðu að því að fá fylgi 6,4 milljóna svartra íbúa landsins við stefnu Smiths um að leysa vandamálin um framtfð Rhódesfu með inn- byrðissamningum, en ekki við leiðtoga þjóðernissinnahreyfing- anna, sem haldið hafa uppi skæruhernaði-gegrtstjórn Smfths.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.