Morgunblaðið - 03.03.1977, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.03.1977, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÍ)IÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977 43 Viðar Símonarson — 101 leikur: Verð með svo lengi sem ég hef gamen af VIÐAR Sfmonarson er „nestor“ fslenzku landsliðs- mannanna f Austurrfki. Hann er 32 ára að aldri. Sinn fyrsta landsleik lék Viðar árið 1966, er hann fór með fslenzka lands- liðinu f keppnisferð til Banda- rfkjanna. Sfðan lék Viðar einn leik árið 1967 gegn Tékkum, en fastur maður varð Viðar ekki f fslenzka landsliðinu fyrr en 1968, og hefur hann leikið nær alla landsleiki tslands sfðan, nema það ár sem hann var sjálfur landsliðsþjálfari. Spurningu um minnisstæða leiki, svaraði Viðar: — Það eru einkum tveir leikir sem mér er efst í huga — ekki endilega vegna þess hve góðir þeir voru, heldur hvernig þeir þróuðust. Annar var 14:14 leikurinn við Rúmena 1971 og það sem skipti mestu fyrir mig i þeim leik var að ég skoraði jöfnunarmark okkar. Þetta var óskaplega skemmtilegur leikur, en jafnframt tók hann á taug- arnar, svo ekki sé meira sagt. Hinn leikurinn var ekki eins ánægjulegur, en það var jafn- teflisleikurinn við Tékka á Olympíuleikunum 1972. Þá vorum við með mjög gott liá, sem búið var að undirbúa sig vel, og mikill áhugi var ríkj- andi. Þessi úrslit voru okkur reiðarslag, og vonbrigðin ólýsanleg. Um undirbúning landsliðsins fyrir þessa keppni sagði Viðar: — Hann var mjög góður svo langt sem hann náði. Hinn nýi þjálfari hafði of stuttan tíma til þess að kynnast liðinu og ná fram árangri hjá þvi. Ég efast ekki um að hann á eftir að ná góðum árangri með liðið, en sagt er að ekki megi vænta þess að störf þjálfara skili sér til fulls fyrr en eftir tveggja til þriggja ára starf hans með sama liðið. Um framtíðina sagði Viðar: — Ég er ákveðinn að stunda handknattleik meðan ég hef heilsu til og hef gaman að þvi sjálfur, en það hef ég vissulega um þessar mundir. Hitt er svo annað mál hversu lengi ég á erindi i islenzka landsliðið. Um það verða aðrir að dæma. SJONVARPIÐ SYNIR LEIKINA LANDSLEIKIK Islands við Spán og Holland f B- heimsmeistarakeppninni f handknattleik verða sýndir f fslenzka sjónvarpinu á næstunni. Austurrfska sjónvarpið hefur sýnt mikið af leikjum f keppninni, — alla leiki Austurrfkis meðan þeir voru með f keppninni, en sfðan hefur sjónvarpið valið úr leiki. Að sögn Bjarna Felixsonar, fþróttafréttamanns sjónvarpsins, er ekki vitað hvenær myndir af leikjunum berast hingað til lands, en hann sagði það ætlunina að reyna þá að sýna þá við fyrsta tækifæri. Er ekki ósennilegt að unnt vcrði að sýna a.m.k. leik fslands við Spánverja f fþróttaþætti Sjónvarpsins á laugardaginn. Geir Hallsteinsson — 101 leikur: — MINN fyrsta landsleik lék ég 1958 og mótherjar okkar þá voru Vestur-Þjóðverjar. sagBi Ólafur H. Jónsson I viðtali vi8 MorgunblaS- i8 I gasr. — Vi8 töpu8um þessum leik me8 tveimur mörkum. SiSan var ég oftast i fslenzka landsliSinu þangaB til ég fór til Þýzkalands. Þó missti ég nokkra leiki úr vegna néms. HefSi ég veri8 me8 í þeim landsleikjum sem ég missti úr vegna Þýzkalandsdvalarinnar vœri ég sennilega kominn meS um 120 landsleiki. Þegar Ólafur var spurður um minnisstæðustu leikina á ferli hans. svaraði hann: — Það eru náttúrlega margir leikir sem maður man mjög vel eftir, ' en þeir leikir sem koma oftast upp i hugann eru leikur við Pólverja I heimsmeistarakeppninni 1970 Þann leik unnum við og héldum áfram I keppninni, en Pólverjar urðu að halda heim á leið Siðan er mér mjög minnisstæður jafnteflisleikur- inn við Rúmena í Laugardalshöllinni 1971. Sá leikur varð jafntefli 14:14, en Rúmenar voru nýbakaðir heimsmeistarar þegar þetta var Það sem ég man gleggst eftir úr leik þessum er frammistaða Hjalta Ein- arssonar i islenzka markinu. 1972 lékum við svo leik sem ég man alltaf eftir. og verð sennilega aldrei það gamall að ég gleymi honum Þetta var leikur við Tékka á Ólympiuleik- unum I Þýzkalandi Við þurftum að vinna þennan leik til þess að komast áfram i keppninni, og höfðum mjög góð tök á leiknum lengst af. Þegar skammt var til leiksloka var staðan 18:15 fyrir okkur og sigurinn virtist blasa við. En þar með fór allt í baklás hjá okkur — við misstum leikinn niður i jafntefli 19:19 og komumst þar af leiðandi ekki i ána liða úrslitin. Ég held að ég hafi aldrei á ævi minni verið eins von- svikinn og eftir þennan leik Von- Framhald á bls. 24. LEIKREYNSLAN HEFUR KOMIÐ ÍSL LIÐINU MJÖG AÐ GÚÐU GEIR Hallsteinsson lék sinn fyrsta landsleik árið 1966 og var mót- herjinn þá heimsmeistaralið Rúm- •na. Leikið var I Laugardalshöll- inni og lauk leiknum me8 sigri Rúmenanna 16— 15 eftir skemmtilegan leik. Þama voru fleiri nýliSar en Geir Hallsteins- son, t.d. léku þeir Hermann Gunn- arsson og Gisli Blöndal sinn fyrsta landsleik einnig. — Ég missti slðan varla úr lands- leik unz ég fór til Göppingen 1973, sagði Geir Hallsteinsson, en meðan ég var þar ytra lék ég einnig lands- leiki með islenzka liðinu Eftir að ég kom heim, ákvað ég að gefa ekki kost á mér I islenzka landsliðið Fannst nóg komið. En einhvern veg- inn var það nú samt þannig að það var eitthvað sem maður réð ekki við sem sogaði mann inn i þetta aftur. Úrslitaáhrif hafði svo koma Januszar Cerwinski. Ég var sjálfur búinn að halda þvi fram, að nauðsynlegt væri fyrir okkur að fá nýtt blóð I þjálfun- ina, og þegar Janusz var ráðinn, og til min var leitaðað leika með lands- liðinu, gat ég ekki sagt nei Og ég hef ekki orðið fyrir von- brigðum. Janusz er fyrsta flokks þjálfari sem við berum mikla virð- ingu fyrir og það er vafamál að annar þjálfari hefði náð svona árangri með islenzka liðið eins og náðst hefur að undanförnu — Minnisstæðir leikir? — Ætli leikirnir heima i vetur séu manni ekki einna efst i huga, þ.e. leikirnir við Pólverja, Tékka og Vest- ur-Þjóðverja Þeir gengu vel, og það var stórkostlegt að finna hversu fólk- ið stóð vel með okkur. Geir var sammála Ólafi H Jóns- syni um það að það sem íslenzka liðið hefði nú fram yfir islenzk lands- lið oft á tíðum væri hversu leikreynt það væri orðið. — Við höfum leikið saman i landsliðinu meira og minna s.l. sjö ár, sagði Geir, og erum farnir að þekkja hver annan út og inn. Reynslan hefur mjög mikið að segja, ekki sizt i mótum sem þess- um Sú breyting hefur einnig orðið á. að leikurinn er ekki eins mikið byggður upp á framtaki einstakra leikmanna og var — samvinna hef- ur allt að segja Það er einkum sóknarleikurinn sem hefur batnað hjá okkur. Vörn og markvarzla er svipuð og oft hefur verið. — Ætlar þú að halda áfram i þessu? Ólafur H. Jónsson 100 leikir: — Það fer eftir ýmsu, sérstaklega þó hvort ég get fundið mér tima til æfinga Menn sem eru á minum aldri (Geir er 31 árs) þurfa að æfa miklu meira en hinir yngri Það er hins vegar skoðun min að það sé lifsspursmál fyrir islenzka landsliðið að við. þessir eldri, hættum ekki allir I einu. Góð blanda eldri og yngri leikmanna gefur oft bezta árangur- inn. Ég ætla að sjá hvernig málin þróast, áður en ég tek ákvörðun um hvort ég verð með eða ekki. 100 LEIKJA KLÚBBURINN í heimsmeistarakeppninni í Austurríki hafa þrír leikmenn íslenzka landsliösins náð þeim merka áfanga að leika sinn 100. landsleik fyrir ísland. Eru það þeir Geir Hallsteinsson, FH, Viðar Símonarson, FH, og Olafur H. Jónsson, Val. Þeir Geir og Viðar léku sinn 100. leik á móti Portúgölum í Klagenfurt en Ólafur lék sinn 100. leik á móti SpánverjunT Linz. Þeir félagar eru nú kallaðir „100 leikja klúbburinn" meðal hinna landsliðsmannanna í Austurríki, en allar líkur eru á því að fjórði maðurinn bætist í klúbb þennan áður langt um líður. Sá er Björgvin Björgvinsson, sem lék sinn 94. landsleik gegn Spánverjum. Fréttamaður Morgunblaðsins á heimsmeistarakeppninni í Austurríki, Sigtryggur Sigtryggsson, hitti þá félaga að máli í Linz í gærkvöldi og spallaði við þá ÞAÐVAR EITTHVAÐ SEM SOGAÐI MANNINN í ÞETTAÁNÝJAN LEIK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.