Morgunblaðið - 03.03.1977, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977
19
Helgi Þórisson er hér nánast albrynjaður.
alltaf með kvef. En það fer eftir
því hvort mengunin er mikil
hvort ég nota grímuna, ég gerði
það t.d. ekki í dag, en þær
draga sem sagt ótvfrætt úr
óhreinindum, og mér finnst það
ætti og skylda menn til að nota
þær.
Um launin sagði Magnús að
fast kaup fyrir dagvaktarmenn
væri u.þ.b. 120—130 þúsund kr.
á mánuði og ef hann ynni eitt
kvöld til kl. 11 eða 12 þá gerði
það um átta þúsund krónur
fyrir kvöldið. Sagði hann að
þetta væri ekki of mikið fyrir
svona vinnu, En „maður væri
ekki hér ef kaupið væri ekki
gott.“
Snýtir alltaf svörtu
1 skautsmiðjunni ræddum við
við Valgarð Arnarson, sem
hefur starfað f Álverinu í rúmt
ár. Þar eru skautin fest við
stangirnar sem síðan eru fest
við „kamb“ á kerjunum, og
þannig er þvf stjórnað hvað
djúpt þau fara f kerin.
Magnús Magnússon
Valgarð vann fyrst í ker-
smiðjunni, þar sem kerin eru
endurnýjuð og sagði hann að
loftið væri áifka óhreint á báð-
um stöðum. Nokkuð annars
konar óhreinindi eru í skaut-
smiðjunni en í kerskálanum, en
Valgarð taldi þau sfzt betri: —
Maður hefur heyrt að kolarykið
sem hér er valdi jafnvel
krabbameini, og mun það vera i
erlendum læknaskýrslum.
— Ég reyni að nota alitaf
grímuna, maður sér bara hvað
óhreinindi setjast á hana eftir
daginn, en hún tekur aldrei
allt, maður snýtir alltaf svörtu!
Það er mikið verið að tala um
gróðurinn hér í nágrenni
Álversins, en mér finnst nú að
það þurfi frekar að sinna
mannskapnum, sem vinnur hér
inni í óhreinindunum en
gróðrinum úti fyrir, sagði Val-
garð.
Hann tók undir það sem aðrir
sögðu að launin væru án efa
fyrir mörgum aðdráttarafl,
hann væri t.d. að byggja og
þyrfti á peningum að halda, og
hann kvaðst mundu hætta strax
og hann gæti og fara þá f aðra
vinnu, en hann hafði áður
stundað byggingarvinnu og
verzlunarstörf.
Þá var komið að lokum þess-
arar heimsóknar í Álverið. Þeir
Birgir Thomsen öryggisfulltrúi
og Jóel Sigurðsson töldu að
ekki væri hægt að tala um
atvinnusjúkdóma, það hefði
komið i ljós að einhverjir hefðu
ekki þolað að vinna f Álverinu,
en það gæti vart talist til at-
vinnusjúkdóma. Þeir sögðu að
mjög strangt væri tekið á öllum
brotum á öryggisreglunum og
væri það brottrekstrarsök ef
t.d. menn kæmu ölvaðir til
vinnu og ef ekki væri farið eftir
öryggisreglum, fengju menn
aðvörunarbréf og ef þeir hafa
fengið tvö slfk bréf er hægt að
flytja þá úr þvf starfi sem þeir
gegndu í annað starf í Áverinu.
Indira Gandhi — treystir á sveita-
menn.
fólksfjölgun. Ríkisstjórnin hefur
staðfest að vönun var I einstaka
héraði framkvæmd með valdi og olli
sums staðar uppþotum Stjórnin
hætti herferðinni um það leyti sem
boðið var til kosninganna
Segja sig úrflokknum
Bahuguna og Ram eru ekki þeir
einu, sem hafa sagt sig úr Kongress-
flokknum. Hinn 74 ára gamli C.B
Gupta. sem fjórum sinnum hefur
verið forsætisráðherra i Uttar
Pradesh, hefur lýst stuðningi sínum
við Janata. Cupta er of heilsutæpur
til að geta boðið sig fram, en hann
heldur þvl fram að hljóðið i kjósend-
um í fylkinu sé mjög andstætt Indiru
Gandhi.
En Kongressflokkurinn hefur alls
ekki gefið upp alla von um að halda
fylgi sinu i Uttar Pradesh. Flokks-
menn benda á, að það eru aðallega
kjósendur úr miðstétt, sem eru
óánægðir með herlögin sem Indira
Gandhi setti á 1975. Þau breyttu
hins vegar litlu fyrir fólk í sveitum,
þar sem flestir kjósendur búa
Hvað áróðursmeðul snertir stend-
ur Kongerssflokkurinn betur að vígi
en Janata. Frambjóðendur
Kongressflokksins geta sótt I digra
kosningasjóði á meðan frambjóð-
endur stjórnarandstöðunnar verða
að treysta á framlög fylgismanna
sinna
Hershöfðingi Haig:
Evrópumenn spar-
ir á vamarframlög
Washington, 2. mars. Reuter.
ALEXANDER Haig hershöfðingi,
yfirmaður herja Atlantshafs-
bandalagsins, sagði 1 dag að
Evrópskir bandamenn Banda-
rfkjamanna hefðu ekki lagt nóg
af mörkum til eigin varna. Hann
varaði jafnframt bandarfska
þingið við þvf að hafa f hótunum
vegna þessa.
Haig skýrði hernaðarnefnd öld-
ungadeildarinnar frá þvi að fram-
lag Evrópuþjóða til Nato hefði
hækkað á undanförnum árum en
framlag Bandarfkjamanna lækk-
að. Hann kvaðst ekki vera ánægð-
ur með framlag Evrópumanna þvi
þau væru ekki nógu há.
Hann benti einnig á að á undan-
förnum árum hefðu Bandarikin
verið upptekin af Asíu og því
fækkað f herjum sínum i Evrópu.
Barnabarn
Gandhis yfir-
gefur Indiru
Nýju Delí, 2. marz. Reuter
BARNABARN Mahatma Gandhi,
föður indversku þjóðarinnar,
Sumitra Kulkarni, sem er 47 ára
gömul, sagði sig í dag úr
Kongresslfokknum, flokki Indiru
Gandhi forsætisráðherra. Kvaðst
hún ætla að vinna með stjórnar-
andstöðunni í kosningabarátt-
unni.
Hún er fyrsti efri deildar þing-
maðurinn, sem yfirgefur flokk-
inn. Sagði hún að flokkurinn væri
orðinn fjarlægur hugsjónum sfn-
um.
Haig lagði áherslu á að lausnin á
vandamálum Atlantshafsbanda-
lagsýis vegna hernaðaruppbygg-
ingar f Austur-Evrópu, fælist f
samráði og samstarfi en ekki hót-
unum frá Bandaríkjunum.
Forseti nefndarinnar, demó-
kratinn John Stennis, sagði að
það væri nauðsynlegt að banda-
menn stæðu við skuldbindingar
og greiddu sinn hlut, því hér væri
þó um að ræða varnir þeirra eigin
landa. Hann benti á, að á síðasta
ári hefðu Nato-löndin ekki varið
meir en 9 milljörðum dollara
meira til varna en Varsjárbanda-
lagsríkin, en þjóðarframleiðsla
þeirra væri þó þrefalt meiri. Því
væri það meira af viljaleysi en
getuleysi ef jafnvægið á milli
bandalaganna raskaðist.
Hershöfðinginn sagði að fram-
lög Bandaríkjamanna rynnu mest
til kjarnorkuvopna og sjóherja,
sem væru ekki nægilega sjáanleg
Evrópsku bandamönnunum, sem
teldu sig leggja fram mun meira
af mannafla en Bandaríkin.
IÓskum eftir
fósturheimili
—— Hafnarfirði
fyrir 1 5 ára dreng.
Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar sími 53444
oy ao sjálfsögðu yður lika
GS sendiferðabíllinn er búinn öllum kostum og tækni-
legri fullkomnun hinna GS bilanna.
Hin fullkomna vökva- og loftfjöðrun, sem er sjálfstæð á
hverju hjóli, gerir bílinn einstaklega mjúkan og stöðugan
á vegi.
CITROÉN ^GS Service
GS sendiferðabíllinn
fer vel með jafnvel viðkvæmustu
vörur yðar
Aflhemlakerfi með diskahemlum er
á öllum hjólum. Nákvæmt tann-
stangarstýri.
Egin þyngd er aðeins 880 kg, en
rþol 460 kg.
CITROEN ^ GS Service
er fyrirliggjandi á kr. 1.440.000 - til fyrirtækja x) auk
ryðvarnar.
Leitið nánari upplýsinga hjá sölumanni vorum.
Rét' verð þegar auglýsing var gerð er háð breytingum og er birt án
ábyrgðar
V
Globuse
Lágmúla 5
>imi 81 5551
Ensk
viðskipta-
bréf
Stjórnunarfélag fslands gengst fyrir nám-
skeiði í enskum viðskiptabréfum dagana
7. — 9. mars n.k. Kennt verður alla dagana kl.
16:00—18:00.
Leiðbeinandi er Pétur Snæland viðskiptafræðingur, lögg. skjalaþýðandi
og dómtúlkur.
Fjallað verður um:
Form
Inntak
Helstu hugtök
Megináhersla er lögð á að gefa þátttakendum ramma sem þeir geta
síðan unnið út frá.
Þetta námskeið er einkum ætlað þeim sem sjá um enskar bréfaskriftir
og kemur fólki að gagni hvort sem enskukunnáttan er meiri eða minni.
Þátttökugjald er kr. 5000.- (20% afsláttur til félagsmanna)
Skráning þátttakenda er í síma 82930.
Bókfærsla II.
Stjórnunarfélag íslands gegnst fyrir nám-
skeiði í bókfærslu II dagana 7. —10.
mars n.k.
Leiðbeinandi er Kristján Aðalsteinsson, viðskiptafræðingur.
Á námskeiðinu verður tekið fyrír:
Stutt upprifjun á undirstöðuatriðum.
Rækileg könnun á hinum ýmsu þáttum bókhalds.
Rekstraruppgjör fyrirtækja.
— Verklegar æfingar verða nötaðar við kennsluna —
Námskeiðið er kjörið fyrir þá sem vilja geta fylgst náið með rekstri
fyrirtækis.
Gert er ráð fyrir þvi að nokkur bókhaldsþekking sé fyrir hendi hjá
þátttakendum eða þeir hafi sótt námskeiðið .Bókfærsla I'
Þátttökugjald er kr. 18000,- (20% afsl. til félagsmanna)
Skráning þátttakenda er í sima 82930.
Stjórnurrartélag íslands Æs