Morgunblaðið - 03.03.1977, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 03.03.1977, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977 25 Ríkisstofnanir og landsbyggðin: Unnið að útfærslu hugmynda Sérstakt flutningsrád ekki sett á fót Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra, svaraði nýlega fyrirspurn á alþingi varðandi hugsan- legan flutning ríkisstofnana út á land. Benti hann m.a. á þá viðleitni í þessu efni, sem átt hefði sér stað á vegum Hafrannsóknastofnun- ar, Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Vega- gerðar ríkisins, Pósts og síma, og fræðslukerf- isins. Að öðru leyti fara spurningar (Helgi F. Seljan Abl) og svör hér á eftir: • 1.) Er ætlunin að leggja fram á þessu þingi frumvarp um flutningsráð ríkisstofnana? • 2.) Hvað hefur ríkisstjórnin aðhafst eða ákveðið varðandi álit stofnananefndar, sem fram kom í árslok 1975? Hugmyndir stofnana- nefndar. Þetta er ekki i fyrsta sinn, sem ég svara fyrirspurnum varðandi hugmyndir stofnananefndar um flutning ríkisstofnana hér á Al- þingi. 7. maí 1976 svaraði ég spurningum 9. landskjörins þing- manns, Sigurlaugar Bjarnadótt- ur, um þetta mál. 1 svari minu þá kom fram, að ríkisstjórnin hefði ekki enn talið tímabært að taka afstöðu til hugmynda um flutning ríkisstofnana út á landsbyggðina og af hálfu ríkisvaldsins væri ekki hafinn undirbúningur að slíkum flutningi. Ákvarðana í þessu efni væri ekki að vænta fyrr en þeir mörgu aðilar, sem fengið hefðu nefndarálitið um flutning rikisstofnana til skoðun- ar, hefðu sett fram ^jónarmið sín að þessu leyti. Á þessum tíma lá það fyrir, að forsætisráðuneytið hafði, að til- lögu stofnananefndar, dreift áliti hennar til þingmanna, lands- hlutasamtaka, fjölmiðla, viðeig- andi stofnana og fleiri aðila. 1 umræðunum um fyrirspurn 9. landskjörins þingmanns sagði ég, að til greina kæmi að einhverjum tíma liðnum að leita beinlínis um- sagnar viðkomandi aðila um nefndarálitið. Alits umsagnaraðila beðið Þann 16. september 1976 ritaði forsætisráðuneytið þeim tæplega áttatíu opinberu stofnunum bréf, sem stofnananefnd gerir tillögur um, að fluttar verði í heild, að hluta eða standi fyrir stofnun úti- búa og óskaði eftir áliti þeirra á hugmyndum nefndarinnar eink- um hvað þær sjálfar snerti. Var óskað eftir svari fyrir lok október 1976. Með bréfi þann 26. nóvem- ber s.l. ítrekaði ráðuneytið fyrr- greinda ósk gagnvart þeim aðil- um, sem þá höfðu ekki enn svarað fyrra bréfinu. Hafa umsagnir að- ila verið að berast ráðuneytinu fram á síðustu daga og síðasta bréfið, sem því barst, er dagsett 14. febrúar s.l. Hafa nú 63 aðilar sent ráðuneytinu bréf en 15 hafa ekki sent skriflegt svar. Verður Geir Hallgrímsson, forsætisráð- herra að sjálfsögðu rehnt að ná til þeirra i þriðja sinn og óskað eftir viðhorfum, sem þeir kunna að hafa. Með þessu tel ég mig hafa svar- að spurningum fyrirspyrjanda um það, hvað ríkisstjórnin hefur aðhafst i þessu máli. Flutningsráð Spurt er, hvort ætlunin sé að leggja fram á þessu þingi frum- varp um flutningsráð ríkisstofn- ana, en það var ein af þeim leið- um sem bent var á. i stuttu máli sagt hefur rikisstjórnin ekki í hyggju að flytja slíkt frumvarp á þessu stigi, þótt það kunni að koma til álita síðar. Telja verður eðlilegt, að lögð sé vinna i það, þegar forsætisráðu- neytinu hafa borist svör frá öllum þeim aðilum, sem það ritaði, að vinna úr þessum svörum og e.t.v. leggja á það fjárhagslegan mæli- kvarða, hvað framkvæmd á hug- myndum stofnananefndar kynni að kosta. Slíkt starf má vinna án þess að svonefnt flutningsráð sé sett á stofn. Þá er ekki úr vegi, að hugað sé að endurútgáfu álits stofnananefndar með athuga- semdum og umsögnum viðkom- andi stofnana eins og þær nú liggja fyrir. Ég tel skynsamlegt, að frekar sé unnið að útfærslu á hugmyndum nefndarinnar á vegum forsætis- ráðuneytisins, áður en lengra er haldið. Utflutt grásleppuhrogn 872 millj. kr. — kavíar 45 millj. JON Ármann Héðinsson (A) bar fram eftirfarandi spurningar til sjávarútvegsráðherra sl. þriðju- dag — I sameinuðu þingi: 0 1. Hversu hárri upphæð nam útflutningsgjald af grásleppu- hrognum árið 1976? 0 2. Hvernig var þessari upphæð ráðstafað og hvaða aðilar nutu þess fjármagns, er inn kom í þessu útflutningsgjaldi á grá- sleppuhrognunum? 0 3. Hvað var mikið verðmæti unnið hér á landi árið 1976 úr söltuðum grásleppuhrognum og hvert voru þessar afurðir seldar? Útflutningur óunninna hrogna og kavíars Matthías Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra, svaraði efnislega á þessa leið: 0 1) Utflutningsgjald af grá- sleppuhrognum á árinu 1976 nam 51 millj. 9 þús. kr. 0 2) Upphæð þessi rann i þróunarsjóð lagmetisiðnaðarins sbr. lög um Sölustofnun lagmetis- iðnaðarins og var varið til vöru- þróunar, tækniaðstoðar og markaðsstarfsemi í þágu lag- metisiðnaðarins, til þess að stuðla að fullvinnslu islensks hráefnis, þ.á m. grásleppuhrogna hérlend- is. En í þessum 1. segir, að í næstu 5 ár skuli öll útflutningsgjöld af niðursoðnum og niðurlögðum sjávarafurðum og söltuðum grá- sleppuhrognum undanþegin hinum almennu ákvæðum um út- flutningsgjöld en renna þess i stað í sérstakan sjóð til eflingar lagmetisiðnaðinum og útflutningi hans samkv. 7. gr. Við endurskoð- un útflutningslaganna voru grá- JónÁrm. Matthlis HMinsson. Bjamason. sleppuhrogn undanþegin, en hins vegar álögð samkv. þeSsum 1. frá 1972. 0 3) Á árinu 1976 var fob- verðmæti útflutnings grásleppu- kavíars um 45 millj. kr. Afurð- irnar voru seldar til Austur- Þýskalands og Tékkóslóvakíu, 60%, til Efnahagsbandalagsland- anna 7%, til Bandarikjanna 8% og til Sviss, Spánar, Svíþjóðar og fleiri landa um 25%. Varðandi fsp. þessa er rétt að taka fram eftirfarandi, að útflutningsgjald af grásleppuhrognum er 6% af fob-verðmæti, sem rennur í þenn- an sjóð, þróunarsjóð lagmetis- iðnaðarins, til ársloka 1977, en gjald þetta hefur verið frá því að lögin tóku gildi, 1973 13 millj. 492 þús., 1974 8 millj. 350 þús., 1975 32 millj. og 1976 eins og ég sagði áðan 51 millj, Fjórar verksmiðjur innan vébanda Sölustofnunar- innar hafa framleitt grásleppu- kavíar til útflutnings, Arktik á Akranesi, K. Jónsson og Co, Akur- eyri, Ora h.f. í Kópavogi og lag- metisiðjan Sigósild í Siglufirði. Útflutningsverðmæti niðurlagðs grásleppukavíars og saltaðra grá- sleppuhrogna nam 1973 17.2 millj., 1974 69.2, 1975 36.4 og á s.l. ári 45 millj. En útflutningsverð- mæti hrognanna nam 1973 236.9 millj., 1974 156.6, 1975 584.7 og 1976 871.7 millj. Útflutningsmagn fullunnins kavíars og óunninna hrogna í tunnum var. sem hér segir: 1973, kavíar 600 tunnur eða um 3% af heildarframleiðslunni, en hrogn 19 þús. tunnur, 1974 1600 tunnur kaviars eða um 13% af heildarframleiðslu, en hrogn 11 þús. tunnur, 1975 kavíar aðeins Viðgerðarkostnaður íslenzka flugflotans á Keflavíkurflugvelli Svar utanríkisráðherra EINAR Ágústson, utanríkisráð- herra, svaraði s.l. þriðjudag fyrirspurn í sameinuðu þingi (frá Jðni Skaftasyni F) um framkvæmd þingsályktunar um viðgerðar- og viðhaldsað- stöðu flugvéla á Keflavíkur- flugvelli, sem samþykkt var á Alþingi 11. marz 1976. Gagnasöfnun. I svari ráðherra kom m.a. fram að utanríkis- og sam- gönguráðuneytið tilnefndu í sumar er leið sinn manninn hvort til þess að annast gagna- söfnun í máli þessu. Gagnasöfn- un lauk í nóvember s.l. I henni kemur m.a. fram: Islenzkir flugvirkjar starfa ekki fyrir varnarliðið. Því veld- ur hvorttveggja nauðsyn þess, að flughermenn séu stöðugt i þjálfun í flugvirkjun herflug- véla, og öryggisástæður. Öll flugskýli á Keflavíkur- flugvelli, utan fjögur, eru í eigu Bandarikjanna. Á grundvelli varnarsamningsins frá 1951 eru þau fjögur skýli, sem Islend- ingar eiga, í rekstri varnaliðs- ins. lslenzka ríkið getur ekki einhliða rift þeim afnota og um- Einar Agústs- son, utan- rikisráð- herra. ráðarétti, sem varnarliðið fékk yfir skýlum 1951. Sú viðgerðar- aðstaða sem íslenzku flugfélög- in hafa nú á vellinum, hefur varnarliðið látið þeim í té. Flugvirkjafélag Islands hef- ur gagnrýnt aðstöðu við við- halds íslenzkra véla á vellinum og talið, að flugvirkjar þyrftu af þeim sökum að leita atvinnu út fyrir landsteina, auk þess, sem þjóðhagslega óhagkvæmt sé að flytja slíká viðgerðarþjón- ustu út, eins og nú er gert. Úr þessu verður naumast bætt, nema byggð verði ný flugskýli, hvort sem það er svo hlutverk ríkisins eða annarra að gera það. Ráðuneytin hafa nú ákveðið að skipa sérstaka nefnd til álits- og tillögugerðar i þessu máii. Flugvirkjar hafa þegar tilnefnt fulltrúa í þá nefnd en Flugleið- ir hins vegar ekki. 400 tunnur eða 2% af heildar- framleiðslu, en hrogn 20 þús. tunnur og 1976 470 tunnur kavíars eða 2%, hrogn 24 þús. tunnur. Helztu kaupendur óunn- inna hrogna eru Danir, Vestur- Þjóðverjar, Frakkar, Belgar og Svíar. Nota þeir hrognin til kavíarframleiðsiu og selja á sömu mörkuðum og Íslendingar selja sinn grásleppukavíar. Fer hrá- efnið þannig beint til keppinauta íslenskra lagmetisframleiðenda. íslendingar flytja nú grásleppu- kavíar aðallega til Austur- Evrópu. Stærsti markaðurinn var til landa Efnahagsbandalags Evrópu og fóru um 68% af kavíarnum þangað á árinu 1973. Þegar tollaþvinganirnar fóru að hafa áhrif, féll magnið niður í 2% til Efnahagsbandalagslandanna, en þá var að mig minnir kominn 30% innflutningstollur á kavíar til þessara landa. Árið 1974 var mikið magn selt til Bandaríkjanna, í raun meira en markaður var fyrir og í engu samræmi við líklegan útflutning þangað í framtíðinni. Unnið er nú að því að endurvinna markað í Efnahagsbandalagslöndum með breyttri tollatilhögun jafnhliða þvi, sem unnið er að aukinni sölu á öðrum mörkuðum. Þessar upp- lýsingar sýna okkur það, að við þurfum auðvitað að framleiða mun meira úr þessum hrognum hér heima sjálfir, en jafnhliða því verðum við að afla okkur mark- aða í erlendum löndum og þessi framleiðslugrein þolir ekki jafn- háa tolla eins og Efnahagsbanda- lagið setti á okkur áður en tolla- samningurinn kom til fram- kvæmda. AIÞMG AIMAG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.