Morgunblaðið - 03.03.1977, Side 28

Morgunblaðið - 03.03.1977, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR 3. MARZ 1977 raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar tilboö — útboö fP ÚTBOÐ Tilboð óskast frá innlendum framleiðendum í smiði göguljósa- stólpa út stálpípum, DIN 2448, St. 35, fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, R. Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 24. mars n.k. kl. 1 1.00 f.h. Bifreið óskast Vel með farinn Citroén Pallas með vökva- skiptingu, ekki eldri en '73 óskast til kaups gegn fasteignatryggðu skuldabréfi til 3ja ára. Uppl. í síma 66-148 og á kvöldin í síma 28221. • Óskum eftir að kaupa trillu 4 — 5 tonna (helst dekkbát) með fullum útbúnaði til handfæraveiða. Upp- lýsingar um verð og áhvílandi skuldir óskast send Mbl. augld. fyrir fimmtudag 10. þ.m. merkt „Bátur: 1721". INNKAUF>ASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR i Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Útboð — Malbikun Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í gerð slit- lags á 50 — 60 þús. fm. í götum. Verk- tími er áætlaður snemma sumars. Út- boðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjar- verkfræðings Strandgötu 6 gegn 5.000 - kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað kl 1 1 fimmtudaginn 10. marz Bæjarverkfræðingur. Nauðungaruppboð á stálgrindahúsi við Gagnheiði á Selfossi, eign hlutafélagsins Straumness, áður auglýst í 86., 88. og 91. tölublaði Lögbirtingablaðs 1976, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 7. marz 1 977 kl. 14.00. Uppboðskrefjendur eru lögmennirnir Jón Hjaltason, Gústaf Þór Tryggvason, Axel Kristjánsson, Jón N. Sigurðsson, Magnús Sigurðsson og Þorfinnur Egilsson. Sýs/umaður Árnessýslu. Reiðskóli Fáks Ný námskeið eru að hefjast, innritun næstu daga, fimmtudag kl. 13 —15 föstudag kl. 10—12 sími 30178, kenn- ari Guðrún Fjeldsted. Hestamannafélagið Fákur. Siglufjörður og Skagaströnd: Að nýta tiltæka tiárfest- ingu í loðnubræðslum Verulegar end- urbætur á SR’46- verksmiðjunni í Siglufirði EYJÓLFUR Konráð Jónsson (S) bar fram fyrirspurn til sjávarút- vegsráðherra varðandi hugsan- lega endurnýjun Síldarverk- smiðja ríkisins í Siglufirði og á Skagastönd með hliðstjón af nauðsyn þess að auka vinnslu- möguleika tiltækra loðnu- bræðslna í landinu. Spurðist hann sérstaklega fyrir um SR’46 í Siglufirði og SRP, en jafnframt, hvort möguleikar væru á endur- byggingu SR’30 og SRN þar á staðnum. Ennfremur spurðist hann fyrir um áform varðandi Skagastrandarverksmiðjuna. Taldi hann kostnaðarminna og hagkvæmara að endurbæta til- tæka fjárfestingu í landinu í lítt eða vannýttum verksmiðjum heldur en byggja nýjar frá grunni, auk þess sem sérhæft starfsfólk væri til staðar á við- komandi stöðum. í því sambandi minntist hann á síðsumar- og haustveiðar loðnu fyrir Norður- landi og möguleika á flutningi hráefnis í annan árstíma. Allmiklar endurbætur f SR’46. Matthfas Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra, sagði nú unnið að allmiklum endurbótum á SR’46- verksmiðjunni í Siglufirði, sem samþykktar voru í stjórn SR á s.l. sumri. Keyptar hefðu verið tvær nýjar pressur frá Noregi, sem kosta myndu um 100 m.kr. upp- settar. Afköst hvorrar pressu um sig verða um 700 tonn hráefnis á Eyjólfur Matthfas Konráð Bjarnason. Jónsson. sólarhring. önnur pressan er komin upp og er verið að reyna hana þessa dagana. Síðari pressan verður væntanlega tiltæk til vinnslu í maímánuði. Afköst verk- smiðjunnar með tilkomu þessara nýju pressa (4 gamlar teknar burt) aukast sennilega um 400 tonn á sólarhring, þegar önnur tæki verksmiðjunnar hafa verið aukin og endurbætt til samræmis við afköst pressanna. Pantaðar hafa verið nýjar mjöl- vogir og áformaðar eru verulegar endurbætur á löndunartækjum á næsta vori, gufulögnum og mjöl- flutningsleiðslu. I athugun eru kaup á nýjum skilvindum í verk- smiðjuna, en 6 nýjar skilvindur kosta um 1,6 m.kr. Ráðherrann sagði engar vélar f SRN-verksmiðjunni, sem nýtt hefði verið sem rafmagnsverk- stæði og lager og engin áform vera uppi um breytingu þar á. Vélakostur í SR’30 verksmiðjunni er úreltur og ekki hugsað til breytinga á henni. Hins vegar sé nú hugað að lengingu vinnslutíma SR’46-verksmiðjunnar og i því efni kannaðir möguleikar á að auka geymslurými hráefnis veru- lega. Málefni verksmiðjunnar á Skagastönd hafa verið til athug- unar í stjórn SR. Þar um hafa enn engar ákvaðanir verið teknar. Þörf sé á ítarlegri athugun á hag- kvæmni slíkra framkvæmda, sem þar eru nauðsynlegar, áður en til vinnslu kæmi. Hafnaraðstaða á Skagastönd sé á þann veg, að stærri loðnuskip geta ekki athafn- að sig þar að óbreyttum aðstæð- um. Endurbætur á höfninni á Skaga- stönd. Eyjólfur Konráð Jónsson (S) þakkaði ráðherra svör hans. Taldi nauðsynlegt og þjóðhagslega hag- kvæmt að hraða nýtingu á þeirri frjárfestingu, sem liggur í lftt nýttum loðnubræðslum, á sama tima og takmarkaðir vinnslu- möguleikar f landi væru taldir torvalda annars mögulegar veiðar loðnuflotans. Hann þakkaði og ráðherra frumkvæði hans um loðnuveiðar á norðurmiðum. Varðandi Skagastönd sagði Eyjólfur, að þar væru fyrirhugað- ar hafnarframkvæmdir á yfir- standandi ári, sem myndu gera loðnuskipum fært að athafna sig f höfninni þar. Það út af fyrir sig ætti þvf ekki að standa i vegi fyrir loðnuvinnslu þar. Hann fagnaði fyrirhugaðri stækkun geymslurýmis við SR '46 verksmiðjuna — en minnti á, að enn væri unnið úr fiskúrgangi f elztu verksmiðju Siglufjarðar, SRP, og taldi athugandi, hvort ekki mætti nýta hana jafnframt til loðnuvinnslu.a.m.k. hluta úr ári. Snæfellsnes. Fleiri tóku til máls f þessari umræðu, m.a. Jón Árnason (S), sem minnti á, að lega staða við loðnumiðum væri atriði, sem taka þyrfti tillit til við tilkomu nýrra feitfiskbræðslna, og óhjákvæmi- legt væri að stefna að byggingu slfkrar verksmiðju á Snæfells- nesi, enda lægi yfirlýstur þing- vilji að baki slíkri framkvæmd. Þingsálykyunartillaga um fjár- hagslegt samræmi 1 skólakerfi: Hlutur verk- menntunar verðiréttur ÞRÍR stjórnarþingmenn, Pálmi Jónsson (S), Ingi Tryggvason (F) og Jón Árna- son (S), flytja tillögu til þings- ályktunar um samræmingu á fjárhagslegum grundvelli framhaldsskóla, á þann hátt, að hlutdeild rfkissjóðs f stofn- kostnaði og rekstri verði hin sama án tillits til námsefnis. Skuli ríkisst jórnin undirhúa löggjöf um þetta efni. Verk- menntun þjóðarinnar verði ekki hafin til verðugs sess, nema vegið sé að rótum þess fjárhagslega misræmis, sem rfkir milli einstakra mennta- stofnana á framhaldsskólastigi. Greinargerð: ,,0ft er rætt um eflingu verk- menntunar og nauðsyn þess að auka virðingu hennar til jafns við bóknám meðal þjóðarinnar. Þótt nokkuð hafi miðað áleiðis f þessum efnum virðist borin von, að markinu verði náð án þess að ráðist sé að rótum þess fjárhagslega misræmis, sem ríkir á milli einstakra mennta- stofnana á framhaldsskóla- stiginu. Eins og nú standa sakir eru menntaskólar kostaðir alfarið af ríki, bæði að því er snertir stofnkostnað og rekstur. Við fjölbrautaskóla ber ríkissjóður 60% stofnkostnaðar, auk þess laun að firilu og annan rekstrar- kostnað að hálfu. Sveitarfélög standa undir því, sem á vantar bæði í stofnkostnaði og rekstri. Við iðnakóla skiptist stofn- kostnaður að jöfnu á milli rfkis og sveitarfélaga. Rfkissjóður greiðir laun, en sveitarfélög annan rekstrarkostnað. Aðrir skólar á framhaldsskólastiginu, sem flestir eru sérskólar, eru yfirleitt kostaðir af ríkissjóði þó ekki undantekningariaust, þannig hafa t.d. húsmæðraskól- arnir, sem nú heita hússtjórn- arskólar, verið kostaðir af sveit- arfélögum að hluta. Það misræmi í hlutdeild rik- isins f stofnkostnaði og rekstri einstakra framhaldsskóla, sem hér hefur verið lýst, er einkar óheppilegt að dómi flm. þessar- ar þáltill. Það felur i sér viss forréttindi a.m.k. menntaskóla- ■ tiMtll ottitttll Mlltill iMtttl IIIIIHtmi! tlllilllttl ( ft ttMMttll il t » j Itmy « » »t í |f Pálmi Jónsson Ingvi Tryggvason námsins fram yfir þá verk- menntun, sem iðnskólar veita, og hefur átt þátt í því að tor- velda eðlilega uppbyggingu iðnskólanna. Um leió hefur ýmsum virst þykja það nokkru meira í munni að stunda menntaskólanám en verklegt nám, t.d. í iðnskóla. Þessu þarf að breyta. Námsefni framhalds- skólastigsins þarf að njóta jafn- réttis og jafnrar virðingar, hvort sem um er að ræða bók- legt eða verklegt nám. Með þessari tillögu er lagt til, að samræmdur verði fjárhags- legur grundvöllur framhalds- skólanna á þá lund, að hlut- deild ríkissjóðs í stofnkostnaði þeirra og rekstri verði hin sama án tillits til námsefnis. Mót- framlag sveitarfélaganna verði og hið sama til einstakra skóla, ef þátttaka þeirra verður ákveðin í kostnaði við fram- haldsskólastigið, sem flm. telja þó æskilegt. Þessu skal samt ekki slegið föstu hér né hversu hlutdeild sveitarfélaganna skuli vera mikil ef af verður, vegna þess að ákvörðun um það kann að tengjast stefnumótun um nýja verkefnaskiptingu rfkis og sveitarfélaga. Þó er ljóst, að erfiðleikar eru því samfara, að sveitarfélögin taki á sig að hluta kostnað við suma skóla, einkum einstaka sérskóla, enda verður að gera ráð fyrir að þeir geti orðið undanskildir þeirri samræmingu, sem hér er rætt um. Að öðru leyti er hún nauð- synleg og tímabær.” illl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.