Morgunblaðið - 16.03.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MARZ 1977
Svo sem sjá mð af þessarl mynd er Boðl ÁR 100 llla útleikinn eftir sprenginguna og eldsvoðann er varð
( honum f fyrrinðtt. Báturinn, sem er 36 ára gamall eikarbátur, er talinn ónýtur þar eð sprengingin
skemmdi hann mikið. ÖH teki og búnaður ( og á stýrishúsi eru talin gjörónýt (ijósm. ágás)
Boði ÁR100 tal-
inn gjörónýtur
Þorlákshöfn 15. marz.
I NÖTT klukkan 1,30 voru lög-
regla og slökkviliðið i Þorláks-
höfn kölluð út, þvi sprenging
hafði orðið í vélarrúmi báts,
sem lá við bryggjuna hér og var
til viðgerðar, Boða ÁR 100 frá
Eyrarbakka. Báturinn var al-
elda þegar að var komið og
hafði sprengingin verið svo öfl-
ug, að hún þeytti þilfari bátsins
upp á bryggju, svo og trollinu
og öllu lauslegu. Fleiri smá-
sprengingar fylgdu á eftir.
Einn maður var um borð í
Boða, eigandi bátsins og skip-
stjóri, Þórður Markússon frá
Eyrarbakka, 23 ára gamall.
Hann var sofandi þegar þetta
gerðist. Er talin mikil mildi að
hann skyldi sleppa lifandi frá
þessu, en hann var illa brennd-
ur og var fluttur á Landspítal-
ann. Hann hafði ekki getað gert
sér grein fyrir því, hvernig
hann komst upp á bryggjuna.
Báturinn er talinn ónýtur, bæði
brotinn og brenndur. Þetta var
eikarbátur. Slökkviliðinu gekk
vel að slökkva eldinn, en vörð-
ur var hafður á bryggjunni til
morguns. Þess má geta, að
sjúkrabíll er á staðnum og var
hann sem betur fer til taks,
þannig að vel gekk að koma
hinum slasaða manni á sjúkra-
hús. Orsakirnar fyrir slysinu
eru ókunnar.
Skipstjórinn á Boða, Þórður
Markússon, liggur nú á gjör-
gæzludeild Landspítalans, en
er ekki í lífshættu. Hann er
með 20% bruna, mest 2. og 3.
stig. Er Þórður mest brenndur í
andliti og á höndum. — Ragnheiður
Upplýst um smygl á
17 kg af fíkniefnum
EINS OG fram hefur komið f
Morgunblaðinu, hefur sakadómur
f ávana- og ffkniefnum og ffkni-
efnadeild lögreglunnar staðið að
umfangsmiklum rannsóknum á
innflutningi og dreifingu ffkni-
efna að undanförnu.
I fréttatilkynningu frá saka-
dómi í ávana- og fíkniefnum, sem
Morgunblaðinu barst í gær, kem-
ur fram að maður sá, sem losnaði
úr gæzluvarðhaldi um s.l. helgi
eftir að hafa setið inni í tæpa 50
daga, var einn af stærstu aðilun-
um f fíkniefnamálinu mikla, sem
rannsókn hófst á s.I. haust. Maður
þessi, sem er hálfþrítugur Reyk-
víkingur, sá um innflutning á
stórum hluta þeirra 20 kg af
hassi, sem sannaðist i málinu, að
smyglað var til landsins í fyrra-
sumar. Þá hefur hann viðurkennt
að hafa smyglað og dreift 6 kg af
marihuana mánuðina marz—nóv-
ember 1976 og ennfremur smygl á
Framhald á bls. 7
Skýrsla um mengun vegna Kísiliðjunnar:
Mengunarvamir eins
fljótt og tæknilegir
möguleikar leyfa
„EKKI hafa enn fundizt nein
merki um varanlegt heilsutjón
starfsmanna af völdum atvinn-
unnar, en undirstrika verður það,
að eðli rannsóknanna er þannig
að sjúkleg einkenni koma ekki
fram, hvorki á röntgenmyndum
né við ökupróf, fyrr en lungna-
sjúkdómur er kominn á allhátt
stig, en þá eru lungnaskemmdir
ólæknandi. Stefna verður þvf
fyrst og fremst að þvf að herða á
mengungarvörnum og bíða ekki
eftir óbætanlegum skaða.“
Þannig segir i skýrslu um Kísil-
iðjuna við Mývatn, sem Heil-
brigðiseftirlit ríkisins og land-
læknisembættið hafa gefið út. Á
fundi hinn 13. marz 1977 er hald-
inn var með Heilbrigðiseftirliti
rfkisins, landlækni og forstjóra
Kísiliðjunnar ásamt öryggisfull-
trúa starfsmanna Kísiliðjunnar
var þessi skýrsla til umræðu, en
hún er fylgirit með Heilbrigðis-
skýrslum. I henni er gerð úttekt á
mengun, mengunarvörnum og
heilbrigðisástandi starfsmanna
við verksmiðjuna.
Framhald á bls. 7
Þingvallamynd
eftir Gunnlaug
Blöndal fór
á 350 þús. kr.
GUÐMUNDUR Axelsson f
Klausturhólum hélt sitt 29. list-
munauppboð f gær f Súlnasal
Hótel Sögu og voru þar boðin upp
58 málverk. Gekk uppboðið vel og
seldust málverk fyrir 4 millj. kr.
að meðtöldum söluskatti.
Sagði Guðmundur, þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gær, að mynd Gunnlaugs Blön-
dals frá Þingvöllum hefði verið
Framhald á bls. 7
Nýi sfmaklefinn á Lakjartorgi. Hvað fær hann að vera lengi f friði?
Símaklefarnir aldrei látnir í friði:
Þrisvar skipt um klefa á
Lækjartorgi á einu ári
StMAKLEFINN, sem stendur á
Lækjartorgi, hefur nú verið eyði-
lagður að mestu þrisvar sinnum á
skömmum tfma og nú er búið að
ganga frá þriðja sfmaklefanum á
torginu á einu ári. Að sögn Haf-
steins Þorsteinssonar hjá Lands-
sfma tslands, eru starfsmenn sfm-
ans svo til daglega við viðgerðir á
þessum stöðum, þar sem fólk
virðist beinifnis slfta talsnúruna
úr sambandi ef það fær ekki
fljótt samband við rétt númer.
Þar fyrir utan er ráðizt á sfma-
klefana og þeir eyðilagðir að
mestu eins og fyrr sagði.
Hafsteinn Þorsteinsson sagði,
er Morgunblaðið ræddi við hann í
gær, að það væri að næturlagi
sem klefarnir væru eyðilagðir, og
hlyti fólk að ráðast á þá með ein-
hverjum bareflum, þar sem glerið
í þeim væri sérstaklega styrkt og
grindin mjög traust.
„Eini símaklefinn, sem fengið
hefur að vera í friði, er andspænis
miðborgarstöð lögreglunnar, og
þvf virðist fólk ekki að ráðast á
hann,“ sagði Hafsteinn.
Þá sagði hann, að Landssíminn
ætlaði nú að koma upp sfmtækj-
um á nokkrum stöðum við höfn-
ina og eins við Sundahöfn. Á þess-
um stöðum hefðu áður verið sím-
Framhald á bls. 7
Bræðslunum settir úrslita-
kostir um hreinsibúnað í vor
— segir heilbrigðisráðuneytið
—ÉG reikna með þvf, að í vor
verði verksmiðjum eins og
fiskimjölsverksmiðju Lýsis og
mjöls f Hafnarfirði settir úr-
slitakostir og þá verði endan-
lega kveðið á um hvað þurfi að
gera til að minnka til muna þá
mengun sem stafar frá bræðsl-
unum, sagði Ingimar Sigurðs-
son, lögfræðingur f Heilbrigðis-
ráðuneytinu f viðtali við
Morgunblaðið f gær. Sagði Ingi-
mar að verið væri að vinna að
tíllögugerð f Heilbrigðiseftir-
liti rfkisins og yrði hún tilbúin
undir vorið.
Sveinn Guðbjartsson heil-
brigðisfulltrúi sagði í Morgun-
blaðinu f gær að heilbrigðis-
ráðuneytið hefði undanfarin ár
gefið út starfsleyfi fyrir
bræðslu Lýsis og mjöls gegn
vilja heilbrigðisnefndarinnar í
Hafnarfirði. Hefur nefndin
barizt fyrir því í mörg ár að
sögn Sveins að sett verði upp
hreinsitæki og reykháfur verk-
smiðjunnar hækkaður verulega
þannig að reyk frá verksmiðj-
unni leggi ekki yfir stóran
hluta bæjarins þann tfma, sem
loðnubræðslan fer fram.
Ingimar Sigurðsson sagði það
alrangt að heilbrigðisráðuneyt-
ið hefði gefið starfsleyfi gegn
vilja heilbrigðisnefndarinnar í
Hafnarfirði. — Samkvæmt
reglugerð frá 1972 um varnir
gegn mengun sótti verksmiðja
Lýsis og mjöls um undanþágu
fyrir starfsleyfi og hefur sfðan
verið á slíkri undanþágu, sagði
Ingimar.
— Hins vegar getur heil-
brigðisnefndin hvenær sem er
stöðvað þennan rekstur og seg-
ir beinlfnis f þriðju grein laga
um hollustuhætti og heil-
brigðiseftirlit að heilbrigðis-
nefnd á hverjum stað hafi
heimild til slíks. I lögunum seg-
ir svo.: „Heilbrigðisnefnd er
heimilt að stöðva starfsrækslu
eða notkun ef skilyrðum laga,
heilbrigðisreglugerðar eða heil-
brigðissamþykktar eða fyrir-
mælum heilbrigðisnefndar
samkvæmt heimildum í þeim
ákvæðum er ekki fullnægt um
starfsrækslu eða húsnæði."
— Það er ekki aðeins verk-
smiðjan í Hafnarfirði, sem hef-
ur starfsleyfi samkvæmt und-
anþágu. Hið sama gildir um
verksmiðjurnar á Akranesi og f
Keflavík, en að vísu er þetta
mál erfiðast í Hafnarfirði, þar
sem verksmiðjan stendur svo
lágt. I verksmiðjunni þar er
verið að gera tilraunir með sér-
stakan hreinsibúnað sem Jón
Þórðarson á Akranesi hefur
hannað. í vor ætti að vera
komin nokkur reynsla á hvern-
ig þessi tæki reynast, en einnig
eru komin á markaðinn önnur
tæki, sem hægt er að setja upp.
Eins og ég sagði áðan er verið
að vinna aö tillögum f Heil-
brigðiseftirlitinu um hreinsi-
búnað og tæki sem minnkað
geta þessa mengun og verður
væntanlega kveðið á um það í
vor hvernig þessu skuli háttað í
fyrrnefndum verksmiðjum,
sagði Ingimar Sigurðsson að
lokum.
Gufuþurrkari og
soðkjarnatæki
það sem koma skal
— Reyknum eða gufunni frá
verksmiðjunni má eyða að
verulegu leyti með gufuþurrk-
urum og soðkjarnatækjum,
sagði Árni Gfslason, fram-
kvæmdastjóri Lýsis og mjöls í
samtali við Morgunblaðið í gær
en hann á einnig sæti í Heil-
Framhald á bls. 19
Gufíiþurrkarar og soðkjam-
ar eru það sem koma skal
— segir framkvæmdastjóri Lýsis og Mjöb í Hafnarfírði