Morgunblaðið - 15.04.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRlL 1977
5
S akley singi ar nir
Bíómyndin, sem sjón-
varpið sýnir í kvöld kl.
21:55 er bandarísk og
nefnist Sakleysingjarnir,
The Innocents. Ingi Karl
Jóhannesson þýðir mynd-
ina og hafði hann eftir-
farandi að segja um hana:
— Þessi mynd er byggð á
þekktri sögu eftir rit-
höfundinn Henry James,
The Turn of The Screw. í
myndinni er byggð upp
dularfull sálfræðileg
spenna, farið inná drauga-
gang og þess háttar mál.
Ung kennslukona,
heimiliskennari, sem leikin
er af Deborah Kerr, hefur
með höndum kennslu
tveggja barna og grunar
hana að þau séu undir
áhrifavaldi afturgangna og
af því mótist öll þeirra mót-
sagnakennda hegðun.
— Þetta er bráðvel gerð
mynd og vel leikin, bæði
kennslukonan og
krakkarnir, sérstaklega
strákurinn, og ég hugsa að
flestir muni límast við
tækin ef þeir setjast við
þau á annað borð og byrja
að horfa á myndina.
Leikstjóri er Jack
Clayton og er myndin gerð
árið 1961. Ingi Karl tók
fram að honum fyndist
þessi mynd alls ekki við
hæfi barna.
KLUKKAN 20:30 verða Prúðuleikararnir á dagskrá
sjónvarpsins í litum og í þessum þætti er gestur
leikbrúðanna söngkonan Sandy Duncan. Þýðandi er
Þrándur Thoroddsen.
Kastljós kl. 20:55:
Þörungavinnslan
og gigtarsjúklingar
Að sögn Ómars Ragnarssonar, umsjónarmanns Kast-
ljóss I kvöld, verða rædd þar tvö málefni. Hið fyrra er
um þörungavinnsluna á Reykhólum og mun Ómar fá
til viðræðu við sig þá Vilhjálm Lúðvíksson, formann
stjórnar Þörungavinnslunnar, og Sigurð Hallsson
efnaverkfræðing, um ástand og horfur I málefnum
Þörungavinnslunnar.
Síðara mál Kastljóss er um gigtarsjúklinga og mun
Sigurveig Jónsdóttir blaðamaður sjá um það. Ræðir
hún við Jón Þorsteinsson, Iækni á Landspítalanum,
Guðjón Hólm, formann Gigtarfélags Islands, og Pál
Sigurðsson ráðuneytisstjóra, um þessi mál, og einnig
verður litið við á endurhæfingarstofnunum, sem
gigtarsjúklingar hafa fengið inni á.
ínar. Áöur höfðu þau skemmt
víða i Austur-löndum, t.d. í Thai-
landi, þar sem þau nutu mikilla
vinsælda og sjálfsögðu í heima-
landi sinu, Ástraliu, þar sem
Heathermae var kosin tvö ár i röð,
1975—’76 „top female artist” eða
bezti kvenskemmtikraftur þar i
álfu. Þá tóku þau systkinin þátt i
Yamaha-söngkeppninni fyrir
hönd Hollendinga nú siðast.
ÁSTRALSKA söngkonan Heath-
ermae og bróðir hennar Warwick
Reading munu skemmta gestum í
veitingastaðnum Glæsibæ næstu
tvær helgar, og verður fyrsta
skemmtun þeirra i kvöld, föstu-
dag.
Heathermae og Warwick eru
systkini gamalkunnrar söngkonu,
sem oft hefur gist ísland, Wilmu
Reading, en hún kemur einmitt
til íslands í næsta mánuði og mun
þá sem endranær skemmta gest-
um Glæsibæjar. „Ísland er stór-
kostlegt, eða hvað eigum við að
segja annað, þar sem við höfum
aldrei séð svona mikinn snjó og
reyndar aðeins einu sinni áður á
lífsleiðinni séð snjóföl og að það
skuli vera til bananatré á islandi,
það er hreint ótrúlegt,” sögðu þau
systkin, þegar Mbl. hitti þau að
máli á æfingu í Glæsibæ.
Hingað koma Heathermae og
Warwick frá Hollandi, en þau
hafa nú verið að skemmta í Evr-
ópu um því sem mæst eins árs
skeið og héðan halda þau til Berl-
Systkin Wilmu Reading
skemmta í Glæsibæ
Vorum að
takaupp
nýjar
vorvörur
TfZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
TfZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
0 KARNABÆR
AUSTURSTPÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi frá skiptiborði 28155