Morgunblaðið - 15.04.1977, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.04.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRlL 1977 J3 nú. í skoðanakönnunum hafði komið í Ijós hve fólk hafði Iftið dálæti á Edward Heath. „Ég myndi kjósa íhaldsflokkinn, ef ekki væri fyrir þennan Heath" eða „Mér líkar ekki við Heath" og „Ég er alls ekki ánægður með Heath". Þetta voru svörin og þegar þessi viðbrögð bættust ofan á tvo ósigra flokksins \ röð varð það til að vekja upp vaxandi óánægju með forystu Heaths. Sfðustu dagana fyrir kosningarnar í október segir Sir Niegel að ekki hafi verið sá fulltrúi í framkvæmdanefndinni, að hann fengi ekki skilaboð eða beiðnir frá óbreyttum kjósendum um að flokkurinn færi nú að íhuga að skipta um leiðtoga. SÍÐAN skýrir höfundur*frá því að framkvæmdanefnd flokksins hafi boð- að til fundar, þegar niðurstöður lágu fyrir. Engin tilkynning var gefin út um hann, en fréttamenn komust á snoðir um að eitthvað var í aðsigi og reyndu að afla fregna eftir mætti Sir Niegel segir að innan nefndarinn hafi allir verið á einu máli um að flokknum væri brýn nauðsyn á því að skipta um formann og hafi allir viðstaddir tjáð sig í þeim dúr. Hann segir að enda þótt menn hafi tregðast við að skella allri skuldinni á Heath fyrir ósigra flokksins hafi verið akveðið að reyna að koma því á fram- færi við Heath, að hljóðið I mönnum væri heldur neikvætt í hans garð. Var Edward du Kann, einum helzta áhrifa- manni þingflokksins falið að ræða við Heath og dróst hann á það, enda þótt honum væri það ekki Ijúft. Sömuleiðis var ákveðið að hann ræddi við William Whitelaw þingflokksformann. Sir Nigel segist hafa borið fram þá ósk að fulltrúar fengju sem allra fyrst að vita um viðbrögð viðkomandi manna. Hafi því verið ákveðinn annar fundur daginn eftir. Farið var að öllu með gát til að vekja ekki um of athygli á fundinum. þar sem ekki þótti tíma- bært að sögusagnir kæmust á kreik Komu fulltrúarnir einir síns liðs til fundar þessa. sumir í einkabílum, aðrir með strætisvögnum eða lest. Héldu þeir nú allir til fundarsalar og þóttust hafa vel sloppið EN ÁNÆGJA þeirra stóð ekki lengi. Þegar gengið var af fundi síðdegis biðu Ijósmyndarar og fréttamenn í löngum röðum og kröfðu þá frétta um hvað væri um að vera. Sumir fundarmanna sáu sitt óvænna og hopuðu inn í húsið aftur, þegar þeir uppgötvuðu þetta óvænta umsátur. En sumar lentu i klóm blaðamanna og Evening Standard tókst að ná myndum af nokkrum fundarmanna og þar var frétt slegið upp um að „Mjólkurstrætismafían" (kennt við götuna þar sem fundurinn var) hafði komið saman til fundar til að undirbúa atlögu að foringja flokksins Sir Nigel segir ásakanir blaðsins í hæsta máta óréttlátar og tilhæfulausar. Hafi mönnum mislikað stórlega mafíu- stimpillinn og reynt að kanna, hver lekinn hafi verið, en ekki varð Ijóst hvaðan upplýsingarnar höfðu borizt. Á þessum fundi skýrði Edward du Cann frá svörum Heaths við skilaboð- unum Hafði fundur du Cann og Heaths verið stuttur og einkennzt af spennu. Að sönnu var það ekki nýtt, þar sem ágreiningur hafði lengi verið millum þeirra. Sir Nigel segir að mönn- um hafi orðið býsna órótt, þegar þeir komust að raun um að Heath hafði ekki gefið du Cann færi á að ræða málið að neinu gagni. Samið var nú bréf til Heaths og var hann beðinn að koma á fund hjá nefndinni. Hann birti svar sitt, vísaði tillögunum um það á bug, en ekki bréfinu beinlínis. Þetta fannst mönnum sérkennileg fram- koma, enda gaf Heath í skyn í bréfinu að hann væri reiðubúinn að ræða við nefndina um ástand mála, en þó ekki fyrr en hann hefði verið endurkjörinn fyrir næsta kjörtímabil. Þegar þarna var komið við sögu átti Heath ýmsa möguleika. Hann gat farið fram á traustsyfirlýsingu nefndar- manna; sagt af sér formennsku eins og Alec Douglas-Home hafði gert við svipaðar aðstæður nfu árum áður, hann gat hundsað hugmyndir nefndar- innar og haldið sínu striki og hann gat einnig beðið átekta og íhugað hvað affarasælast myndi verða í Ijósi þess hvernig atburðir þróuðust Hefði hann tekið þriðja kostinn er ekki vafi á að það hefði valdið úlfaþyt og jafnvel klofningi innan flokksins. Og þar sem það er eklo í eðli Heaths að flana að neinu ákvað hann fjórðu hugmyndina: að bíða TRÚLEGT er, segir Sir Nigel að Heath hafi verið gramur og vinsvikinn vegna úrslita kosninganna. Hann hafði verið sannfærður um, að viðvörunar- orð hans um yfirvofandi efnahags- kreppu, vaxandi verðbólgu, aukið atvinnuleysi og fleira myndi reynast rétt, sem og varð Hann hafði talið að þessi áróður fengi hljómgrunn með þjóðinni. Heath og ýmsir stuðnings- manna hans hugðu og að Verka- mannaflokksstjórnin myndi splundrast, annað hvort vegna ágreinings um að- ildina að Efnahagsbandalaginu eða varðandi almenn efnahagsmál í land- inu og þá gæfist honum tækifæri til að mynda samsteypustjórn. Edward du Cann ENDA þótt Ijóst væri að almenn óánægja var með Heath í formanns- sæti virtist nú sem stuðningur við hann úti í kjordæmunum hefði heldur vaxið Sir Nigel og fleiri fengu nú mörg bréf þar sem hvatt var til að Heath fengi nauðsynlegt traust frá flokknum með endurkjöri f formannssæti sem allra f yrsta. Þó var sýnt að blikur voru á lofti og Heath varð að vfkja, ef átti að takast að bjarga íhaldsflokknum og hleypa f hann nýju lífsblóði. Sir Nigel segir að fyrst hafi öllum borið saman um að William Whitelaw myndi nánast verða sjálfkjörinn eftirmaður. Hins vegar var þess að gæta að Whitelaw hafði aldrei lagt að Heath að víkja sæti, enda hafði hann ekki verið f heppilegri aðstöðu til að beita sér f málinu. Sir Nigel segir að nú hafi enn verið boðað til fundar og var du Cann á ný fenginn til að stýra honum Lagði du Cann sig f Ifma að sjá svo til að allir fengju að taka til máls sem óskuðu eftir þvf, svo að ekki væri hægt að segja sfðar að ekki hefði rfkt jafnræði með mönnum. Því kom það mönnum óþyrmilega á óvart daginn eftir þegar flest brezku blaðanna skýrðu frá þvf að fundurinn hefði verið gagnslaus skrípa ^ leikur vegna ofríkis du Canns í fundar- stjórastöðu Var sýnt að einhver var sá sem reyndi með öllum ráðum að gera störf framkvæmdanefndarinnar tor- tryggileg og vekja samúð með Heath Sömuleiðis gerðu menn sér á næstu dögum grein fyrir því að Heath hafði sjálfur engin áform um að hætta for- mennsku En nú varð ekki aftur snúið og stefndi óðfluga í áttina að því að kosningar yrðu látnar fara fram um formann flokksins FLESTIR voru áfram um að halda kosningar sem fyrst. Þegar farið var að skyggnast um kom William Whitelaw jafnan fyrstur í hugann Annar hugsan- legur frambjóðandi var Keith Joseph sem naut álits í flokknum fyrir stjórnunarhæfileika og góðar gáfur Aftur á móti segir Sir Nigel að hann hefði orðið fráleitur leiðtogi þar sem hann hafi skort pólitíska dómgreind Þegar betur var að gáð voru bæði Joseph og Whitelaw tregir til að gefa kost á sér Þá fór nú fyrst að fara alvarlega um framkvæmdanefndina „Við höfðum lagt töluvert hart að okkur til að losa okkur við hæfan leiðtoga og höfðum svo engan hæfan mann til að taka við af honum Margaret Thatcher hafði ekki á þessu stigi komið við sögu og varð ekki af neinu ráðið, að hún hygðist sækjast eftir kjöri." í slðara greininni segir síðan frá því þegar Thatcher kemur fram á sjónar- sviðið, frá undirbúningi kosninganna og álit Sir Nigels um úrslit og niður- stöður þeirra r Heaths innan brezka Ihaldsflokksins Rétt svar á reiðum höndum þar sem þörfin er. Lítil tölva — betri nýting IBM System /34, nýjasta tölvusamstæðan frá IBM, gerir meðalstórum fyrirtækjum hérlendis kleift að hagnýta tiltölulega ódýra tölvu á sama hátt og stórar og dýrar tölvusamstæður eru notaðar af stórfyrirtækjum og fyrirtækjasamsteypum. Fljótvirk og fyrirferðarlítii IBM System /34 er fljótvirkt og fyrirferðarlítið tölvukerfi, sem því næst hver sem er getur stjórnað eftir fárra tíma þjálfun. System /34 er gert í framhaldi af System /32, og hefur IBM á íslandi tilbúin forrit sérhönnuð fyrir ísleivk fyrirtæki fyrir hvers konar verkefni á viðskiptasviðinu. Vinnuskermur í hverri deild IBM System /34 býður þannig tilbúin forrit og vinnslukerfi, sem nýta má þegar í stað til upplýsingadreifingar á sérstaka sjónvarpsskerma með tilheyrandi lykilborði. Þannig getur tölvan sjálf til dæmis verið í. kjallaraherbergi og unnið að útskrift yfirlitsreikninga á meðan starfsfólk í vöruafgreiöslum, söludeild, bókhaldi og aðalskrifstofu fær umbeðnar upplýsingar um sölu- og birgðamál — hver deild á sínum eigin vinnuskermi. Afgreiðsla á augabragði IBM System /34 býður ódýra fjölvinnslu með möguleikum á 8 vinnuskermum eöa prenturum. Hver skermur getur verið í allt að 1.5 km. fjarlægð frá sjálfri tölvunni. Sendingahraði milli skerms og tölvu er um 100.000 stafir á sekúndu. Hvað er meðalstórt fyrirtæki lítið? Ef þér efist um að fyrirtæki yðar sé nógu stórt til að geta hagnast á IBM System /34 með því að nýta möguleika starfsfólksins til fulls með öruggu upplýsingastreymi jafnhliða margskonar færslumöguleikum — hafið samband við söludeild IBM á íslandi og fáið nánari upplýsingar um hæfni IBM System /34 fyrir starfsemi yðar. fSLANDI KLAPPARSTÍG 27, REYKJAVÍK, SÍMI 27700 Lionsmenn á Hofsósi gefa lækn- ingatæki LIONSKLÚBBURINN Ilöfdi á Hofsósi er kenndur við Þórðar- höfða f Skagafirði. Var klúbbur- inn stofnaður 15. desember 1974 og er því með yngstu I.ionsklúbb- um landsins, hann er ekki fjöl- mennur, eða nú um 30 manns. Föður og móðurhlutverk önnuð- ust þeir Lionsfélagar á Sauðár- króki með miklum sóma enda er nú klúbburinn á Ilofsósi liklegast einn sérstæðasti klúbbur landsins þar sem hann spannar yfir 6 hreppa f austanverðum Skaga- firði. Meðlimir hans eru úr býsna mörgum stéttum ef miða á við félagsmannatölu, má þar nefna presta, eina 5 oddvita, sýslu- nefndarmann, 2 hreppstjóra, skólastjóra, kennara, bændur, síma- og póstmeistara, lögreglu- menn, vélsmiði, bankamann, hljómlistamenn, bflstjóra svo eitthvað sé nefnt. Eins og gefur að skilja starfar þessi félgsskapur eins og aðrir Lionsklúbbar að liknar- og menn- ingarmálum, og hefir varið öllum fjármunum sem aflað hefir verið til góðra hluta. Nú fyrir nokkrum dögum afhentu Lionsmenn læknastofunni á Hofsósi skoðunarstól sem læknar segja að sé kærkomin og ómetanleg gjöf. Félagarnir hafa verið að safna i þennan stól með öðrum verkefn- um, fengu tolla eftirgefna svo að kaup þessi urðu viðráðanleg. Lionsmenn í klúbbnum Höfða eru samhentir og einhuga um að vinna að hugsjón klúbbanna. Stjórn klúbbsins skipa nú: Gísli Kristjánsson oddviti, Hofsósi, Þorsteipn Hjálmarsson simstjórí á Hofsósi, og Reynir Gislason, bóndi á Bæ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.